Fréttablaðið - 16.05.2017, Qupperneq 11
Nýlega festi erlendur auð-maður kaup á einni land-mestu jörð á Íslandi, Gríms-
stöðum á Fjöllum, mestöllum hluta
jarðarinnar í einkaeign. Sami aðili fer
nú eins og ryksuga um Norð-Austur-
land, kaupandi hverja jörðina á fætur
annarri, að eigin sögn til að verja og
vernda jarðirnar fyrir ágangi.
Í Kastljósi Sjónvarpsins fyrir
nokkru vildi hann ekki upplýsa
hvað yrði um jarðirnar eftir sinn dag
en af óljósu svari hans mátti ráða að
hann teldi að þá væru þær orðnar
sjálfbærar sem atvinnurekstur fyrir
laxveiðar. Með öðrum orðum, varla
byrði á eigendum, þvert á móti arð-
vænleg eign.
Auðmenn fjarlægja
okkur landinu
Þetta er vissulega þróun sem ekki er
ný af nálinni en alltaf færumst við
fjær því að „hinn almenni maður“
geti komist í laxveiðar á Íslandi.
Eftirspurn auðmanna með fulla
vasa fjár eftir því að renna fyrir lax á
„ósnortnu“ Íslandi hefur séð fyrir því.
Ekki færir það almenning nær landi
sínu þegar eignarhaldið er komið út
fyrir landsteinana. Og stöðugt berast
fréttir af landakaupum erlendra auð-
manna víðar á landinu og er fylgi-
fiskurinn iðulega sá að þeir reyni að
loka að sér.
Vildu selja ríkinu
en fengu aldrei svar
Fram hefur komið að Grímsstaða-
menn vildu helst selja ríkinu og á
annað hundrað einstaklingar úr
öllum stjórnmálaflokkum, öllum
aldurshópum, frá öllum landshlut-
um, úr nánast öllum starfsstéttum,
höfðu óskað eftir því að svo yrði gert.
Þeir sem skrifuðu undir áskorun
í þessa veru, voru hins vegar aldrei
virtir svars og þegar Grímsstaða-
mönnum barst kauptilboð frá breska
auðkýfingnum Radcliffe, sem endan-
lega keypti, var ríkisstjórnin enn á ný
spurð hvort ríkið vildi kaupa. Ekkert
svar!
Þetta er ekki bara dónaskapur
heldu líka dapurlegur vesaldómur.
Einhliða umfjöllun í Kastljósi
Í umræddum Kastljósþætti var
aðdragandi málsins rakinn. Hvergi
var minnst á áskorun til ríkisstjórn-
arinnar eða þingmál sem flutt höfðu
verið í þá veru að sporna gegn upp-
kaupum auðmanna á landi!
Lítillega var sagt frá því að sett
hefði verið reglugerð á sínum tíma
sem torveldað hefði þessi kaup en
sú reglugerð hafi verið afnumin því
hún hafi ekki þótt standast lög. Þetta
er mikil einföldun!
Vel ígrundaður málatilbúnaður
Í upphafi árs 2013 þegar ég var
innanríkisráðherra kynnti ég laga-
frumvarp svo og reglugerð með það
í huga að sporna gegn landakaupum
erlendra auðmanna á Íslandi. Ég
gerði mér fulla grein fyrir því að
málið kynni að verða umdeilt, bæði
hér innanlands og erlendis. Enda
fór svo að eftirlitsstofnun ESA ósk-
aði eftir greinargerð. Leitaði ég þess
vegna til færustu sérfræðinga sem völ
var á að vera til ráðgjafar um útfærslu
á þeim ásetningi mínum að setja
landakaupum skorður.
Í frétt á vef innanríkisráðuneytis-
ins 25. janúar 2013, þar sem kynnt
var frumvarp að lagabreytingu sem
tæki til landakaupa útlendinga utan
sem innan EES annars vegar og hins
vegar reglugerðarbreyting gagnvart
EES borgurum, segir: „Í tengslum
við þessar athuganir hefur innan-
ríkisráðuneytið aflað tveggja álits-
gerða, annars vegar frá Eyvindi G.
Gunnarssyni, dósent við lagadeild
Háskóla Íslands, og Valgerði Sólnes
lögfræðingi. Hins vegar frá Jens Har-
tig Danielsen, prófessor við lagadeild
Háskólans í Árósum, og Stefáni Má
Stefánssyni, prófessor við lagadeild
Háskóla Íslands, en þar er fjallað sér-
staklega um reglur EES-samningsins
um frjálsa fjármagnsflutninga og
fjárfestingu í fasteignum.“
Ítarleg kynning
Frumvarpið lagði ég síðan fram til
kynningar á Alþingi – en reglugerð-
ina undirritaði ég 17. apríl þegar hún
hafði staðið til kynningar í nær þrjá
mánuði.
Ég taldi það vera lykilatriði að
greinar gerðir fræðimannanna kæmu
fram við kynninguna svo hugsanlegum
andmælendum gæfist kostur að taka
upp málefnalega umræðu um hana.
Eftirmaður minn í embætti,
Hanna Birna Kristjánsdóttir, lét það
verða eitt fyrsta verk sitt að afnema
þessa reglugerð og hafði um hana
þau orð að hún væri á gráu svæði.
Það var allan tímann vitað sem áður
segir, en engu að síður meiri líkur
en minni að hún stæðist fullkom-
lega stranga lagaskoðun enda vel
ígrunduð og að henni staðið á fag-
legan, opinn og lýðræðislegan hátt.
Öðru máli gegndi þegar hún var
afnumin án kynningar eða umræðu.
Danir og Norðmenn vilja
skorður við landakaupum
Ýmsar þjóðir innan EES hafa viljað
leita leiða til að sporna gegn upp-
kaupum auðmanna á jörðum, bæði
innlendra og erlendra. Nefni ég þar
Dani og Norðmenn sérstaklega.
Sjálfur deili ég þessum sjónarmiðum
og hef margoft fært opinberlega rök
fyrir þeim. Ég gerði mér grein fyrir
því að taka þyrfti á málinu á marg-
þættan hátt en aðeins að hluta til
heyrði það undir það ráðuneyti sem
ég fór fyrir, innanríkisráðuneytið, og
sneri þá einkum að kaupum útlend-
inga á landi.
Sitja og góna á framvinduna
Auk fyrrnefnds frumvarps og reglu-
gerðar flutti ég því þingmál um ítar-
lega athugun á þessum málum og
lagði til að reynt yrði að sporna gegn
því að auðmenn gleyptu landið eins
og nú er að gerast með ríkisstjórn og
Alþingi á áhorfendapöllunum.
Dapurlegur vesaldómur ríkisstjórnarinnar
Ögmundur
Jónasson
fv. innanríkis
ráðherra
Ýmsar þjóðir innan EES hafa
viljað leita leiða til að sporna
gegn uppkaupum auðmanna
á jörðum, bæði innlendra
og erlendra. Nefni ég þar
Dani og Norðmenn sérstak-
lega. Sjálfur deili ég þessum
sjónarmiðum og hef margoft
fært opinberlega rök fyrir
þeim.
Aukin þægindi allan daginn
Veitir stuðning og minnkar álag á fæturna
S k o ð u n ∙ F R É T T A B L A ð i ð 11Þ R i ð J u D A G u R 1 6 . m A í 2 0 1 7
1
6
-0
5
-2
0
1
7
0
4
:3
9
F
B
0
3
2
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
C
D
C
-A
0
5
C
1
C
D
C
-9
F
2
0
1
C
D
C
-9
D
E
4
1
C
D
C
-9
C
A
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
3
2
s
_
1
5
_
5
_
2
0
1
7
C
M
Y
K