Norðurslóð - 26.10.1989, Blaðsíða 5

Norðurslóð - 26.10.1989, Blaðsíða 5
NORÐURSLÖÐ - 5 Tvístýft framan hægra, biti aftan vinstra. UUergudl - ef henni er sómi sýndur Snemma á þessu ári tók til starfa að frumkvæði Framleiðsluráðs landbúnaðarins starfshópur sem falið var að vinna að úrbótum í ullarmálum. Ullarhópurinn mun beita sér fyrir sérstöku kynningarátaki þar sem áhersla verður lögð á haust- rúning og bætta meðferð ullar dagana 30. október til 2. nóvem- ber nk. Haldnar verða kynningar á eftirtöldum stöðum: Hrafnkelsstöðum, Hruna- mannahreppi, Árnessýslu, mánu- dag 30. okt. kl. 14.00. Hesti í Borgarfirði, þriðjudag 31. okt. kl. 10.30. (Þessari kynn- ingu lýkur á Hvanneyri síðdegis.) Samkomugerði I í Eyjafirði, miðvikudag 1. nóv. kl. 10.30. (Þessari kynningu lýkur á Akur- eyri síðdegis.) Skriðuklaustri í Fljótsdal fimmtudag 2. nóv. kl. 14.00. Kynningarnar fara fram með þeim hætti að nokkur hópur fjár verður rúinn, ullin verður skoðuð og metin og leiðbeint verður um vinnubrögð við frágang hennar. Þá verða frjálsar umræður um ullarmálin í lok hverrar kynning- ar. Auk fulltrúa úr ullarhópnum taka þátt í leiðbeiningum eftir- taldir erlendir gestir sem sérstak- lega eru fengnir hingað til lands af þessu tilefni: Svein Halleraker, ullarsér- fræðingur (Noregi). Cesil Berndtsen, ullarsérfræðingur (Noregi). Arnfinn Straume, ullarkaupmaður (Englandi). Búnaðarsamböndunum verður gefinn kostur á að senda rúnings- menn og áhugasama fjárbændur á kynningarnar. Einnig eru full- trúar fjölmiðla velkomnir. Til upplýsingar má geta þess að á árinu 1988 voru lögð inn hjá Álafossi alls um 808 tonn af vetrarrúinni og 615 tonn af sumarrúinni ull. í úrvalsflokk fóru 11,5% af vetrarrúinni ull og 1% af sumarrúinni. Alis flokkuð- ust 226 tonn eða tæp 16% af allri ull í flóka á árinu 1988, mest sumarrúin ull, algerlega verölaus vara. Þessu þarf að gjörbreyta og stórbæta nreðferð og hirðu á ull. Á sl. hausti voru lögð inn um 70 tonn af haustull, nær eingöngu af Norðurlandi. Af þeirri ull voru 43% metin í úrvalsflokk. Ákveðið hefur verið að hrein og óskemmd haustull fái rýrnun- arstuðul 1,22 í haust, þ.e. verði greidd 22% hærra verði á kg en í verðlagsgrundvelli. Það er von ullarhópsins að sauðfjárbændur taki þessari málaleitan vel og árangur komi í Ijós í betri ull strax í haust og vetur. Ullarhópinn skipa: Þórarinn Þorvaldsson (form.), Fram- leiðsluráði landbúnaðarins. Aðalsteinn Aðalsteinsson, Stétt- arsambandi bænda. Emma Ey- þórsdóttir, Ullarmatsformaður. Guðjón Kristinsson, Álafossi hf. Guðmundur Sigþórsson, land- búnaðarráðuneytinu. Kristinn Arnþórsson, Álafossi hf. Ólafur R. Dýrmundsson, Búnaðarfélagi íslands. Sigurgeir Þorgeirsson, Búnaðarfélagi Islands. Nánari upplýsingar um kynn- ingarnar veita eftirtaldir aðilar: Upplýsingaþjónusta landbúnað- arins, sími 91-19200. Ólafur R. Dýrmundsson, Búnaftarfélagi íslands, sími 91-19200. Þórarinn Þorvaldsson, Þóroddsstöðuni, sími 95-10024. Aðsent . rlp ní 1 j Hil E T fll HEILSUGÆSLUSTÖÐIN, DALVÍK 620 DALVlK • SÍMI 96-61500 Influenzubólusetning Boöiö veröur upp á inflúenzubólusetningu haustiö 1989. Hverja á að bólusetja? 1. Fullorðna og börn meö langvinnandi hjarta- og æöasjúkdóma og lungnasjúkdóma. 2. Aldraða, 75 ára og eldri. Sprautað verður á mánudögum og föstudögum eftir hádegi í október og nóvember. Hjúkrunarforstjóri. Dalvíkurbær Dalvíkingar athugið Bæjarsjóður Dalvíkur skorar hér með á þá sem skulda gjald- fallin aðstöðugjöld og útsvör að greiða skuldir sínar nú þegar svo komist verði hjá frekari innheimtuaðgerðum. Bæjarritari. ' ' ‘ ;; TVboð Þykkvabæjamasl ,. Sjávamasl Lambahamborgarhryggur TRAUST PENMGA STOFNUN Allt cr á hverfanda hvcli í íslcnskum banka- málum um þessar mundir. Sjóðif riða til falls og bankar ganga kaupum og sölum. En Sparisjóður Svarfdæla, 105 ára gamall og síungur, stcndur á traustum fótum og cr alls eldd til sölu. - Eflið hcinmbyggð, cflið Sparisjóðinn! - Sparisjóður Svarfdæla Dahík

x

Norðurslóð

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Norðurslóð
https://timarit.is/publication/1253

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.