Norðurslóð - 24.01.1990, Blaðsíða 2
2 - NORÐURSLÓÐ
NORÐURSLÓÐ
Útgefendur og ábyrgðarmenn:
Hjörtur Þórarinsson, Tjörn, Svarfaðardal
Jóhann Antonsson, Dalvík
Umsjón, dreifing og innheimta:
Sigríður Hafstað, Tjörn. Sími 96-61555
Prentun: Dagsprent hf. Akureyri
Fiskverðsákvörðun
- Fiskmarkaðir
Deilur um fískverð og fiskverðsákvörðun hafa blossað
upp enn á ný. Á allmörgum útgerðarstöðum neituðu
sjómenn að fara á sjó eftir áramótin fyrr en Ijóst væri
eftir hvaða leikreglum skiptaverð til þeirra ákvarðaðist.
Til skamms tíma voru þessar leikreglur mjög einfaldar.
Verðlagsáráð sjávarútvegsins auglýsti lágmarksverð á
físki sem allir fóru eftir. Þar fyrir utan sigldu nokkur
skip á erlenda uppboðsmarkaði með afla til sölu. Skilin
milli erlenda verðsins og innlenda fiskverðsins voru
glögg og ekki gerður mikill samanburður á því opinber-
lega.
Eftir að mögulegt varð að senda ísaðan físk með
gámum á uppboðsmarkaði erlendis fór markaðsverð
þar æ meir að verða til viðmiðunar hér á landi. Þannig
hefur flutningatækni breytt aðstæðum og viðhorfí.
Samhliða þessu hefur breytt fjarskiptatækni auðveldað
mönnum að fylgjast daglega með verðum á erlendum
mörkuðum. Undir þessum kringumstæðum er eðlilegt
að uppboðsmarkaðir hafí náð nokkurri fótfestu hér á
landi. Það er hins vegar mikill galli að þeir eru ein-
göngu staðsettir á suðvestur horni landsins. Áhrif
þeirra og vitneskjan um markaðsverð crlendis hafa leitt
til þess að verðákvörðun verðlagsráðs hefur litla merk-
ingu aðra en búa til einhverja grunntölu sem yfírborg-
anir miðast við. Samanburðurinn skapar togstreitu sem
birtist meðal annars í því að sjómenn neita að fara á sjó
fyrr en leikreglur liggja fyrir.
Fiskvinnslan úti á landi telur sig ekki geta greitt verð
sem miðast við markaðina suðvestanlands meðal ann-
ars vegna þess að hún er skuldbundin að taka á móti
öllum afla skipanna, en á mörkuðunum geta menn val-
ið úr það hráefni sem hentar í vinnslu hjá hverjum og
einum þann daginn. Þannig hefur náðst upp sérhæfíng
í vinnslu þar sem markaðarnir eru. Til viðbótar þessu
hefur útflutningur á ferskum flökum og vinnsla í smá-
pakkningar á neytendamarkað nær eingöngu verið hjá
fyrirtækjum sem kaupa hráefni á mörkuðum. Það hef-
ur sýnt sig að slík vinnsla getur greitt hærra verð fyrir
gott hráefni en hcfðhundin fískvinnsla.
Það er því Ijóst að breyttar aðstæður geta orðið erf-
iðar landsbyggðinni ef menn bregðast ekki við þeim á
raunsæjan hátt. Breytingar sem eru vegna tækniþróun-
ar verða ekki umflúnar heldur aðeins spurning hve
lengi menn streitast á móti. Lausn þessa vanda felst í
uppboðsmörkuðum um allt land og að þeir skapi leik-
reglurnar í verðákvörðun á hráefni. Þeir tryggi sérhæf-
ingu vinnslu og áframhaldandi nýsköpun í sjávarútvegi.
Ekkert eitt mál er mikilvægara í byggðamálum en ein-
mitt þetta. Lausn þess veltur eingöngu á ákvörðunum
fólks og fyrirtækja út um allt land. í þessum efnum þarf
ekki og á ekki að hrópa á lausnir að sunnan, við eigum
bara að gera þetta sjálf. J.A.
f
Elskuleg fjölskylda mín ogfrændur, vinir
og þið öll yndislega fólk.
Við þökkum þá miklu hlýju ykkar sem umvafði
okkur öll við fráfall sonar okkar, bróður og frænda
Friðleifs Heiðars Hallgrímssonar
Guð blessi ykkur öll.
Halla Árnadóttir og fjölskylda.
Ur dagbók
Jóhamis á Hvarfi
Anno 1899
1. júlí. Kom Páll heim, verður
ekki róið fyrir beituleysi, en fyrir
utan ána róa nokkrir sem beitu
eiga á húsinu og fá góðan fisk.
Kom Jói heim.
4. júlí. Fór Jói Sigurðsson
vinnum. ofan, hefur eigi á sjó
komið frá 3. nóv. f. á. þegar
mennirnir drukknuðu hér við
Sandinn.
15. júlí. Tryggvi fór ofan með 3
hesta yndir reiðing, og hest
handa Jóa vinnumanni. Komu
þeir eftir háttatíma. Jói hefur
róið á hverjum degi síðan hann
fór, 9 róðra. Kom Jói litli í land
úr consúlskipi, hefur verið 6
daga. Kom Stjáni í Gröf og Jói
heim að kvöldi, svo nú eru allir
heima.
21. júlí. Kom Sigurður Thor-
oddsen og Jónmundur Halldórs-
son á lcið til Reykjavíkur, hafa
verið í vor að gera brúarstólpa
við Hörgá. Gistu.
22. júlí. Fylgdi ég Jónm. og
Sig. yfir báðar brýrnar.
23. júlí. Komu piltar frá fisk-
þvotti kl. 5, sögðu afla mikinn.
4. ágúst. Kom Steingrímur
læknaskóla candidat, setti bólu
29 manns, flest börn.
5. ágúst. Fór ég með Stein-
grími Matthíassyni háskólalæri-
sveini, sem þar hefur verið í 3 ár,
og hér í sveit er nú, til að bólu-
setja gegn bólu og barnaveiki.
Fór að Urðum þar bólusett 41 og
Hreiðarsstöðum 4, fór hann að
Tjörn kl. 4. Hér komu hjón frá
Reistará með barn á hreppinn.
Farið með barnið frá Hvarfi að
Þverá yfir.
10. ágúst. Fór Einar Helgason
(Brautryðjandi í garðrækt) úr
Reykjavík hér um, yfir ár á
brúnum, skilaði Jóa litla bréfi, og
hélt svo áfram.
20. ágúst. í nótt kom Solla frá
Brattavöllum. Fór Sólveig með
ull sem komast á í tóvinnuvélar
Eyfirðinga.
30. ágúst. í nótt brann íveru-
hús stórt á Litla-Árskógssandi,
sem 4 fjölskyldur bjuggu í, mikið
fjármunatjón en eigi manntjón.
31. ágúst. Þennan mánuð hefur
verið nokkur rigning, samt hafa
komið góðir þurrkdagar svo allt
hey hefur náðst lítið sem ekkert
skemmt.
I. september. Fórum við piltar
5 yfir í Bakkafjall og slóum ofan
við jarðfall, upp að Svartaflags-
mó, Ytrasund og Klauf þar suður
og upp. Stúlkur rökuðu. Hætt að
slá hér.
4. september. Bundum bólstr-
ana úr Bakkafjalli, 30 hestar, fór-
um 3 ferðir.
6. sept. Hiti 1 stig, stormur og
súld að morgni, létti til. Grjót-
báru piltar hey öll bæði í Skriðu-
koti og hér heima og birgðu Þor-
geirsfúlgu. Ég saumaði reipi og
lét þau öll upp í hjall, tók til
greina orf, hrífur, Ijái og brýni.
7. sept. — kom fallega Hatta
heim sjálf. Fór Páll og Jói vinnu-
maður ofan til róðra í fyrsta
skipti á þessu hausti, en komu
aftur vegna beituleysis. Jói og
Tryggvi fóru í silung, fengu 10,
þar af 2 laxar hvor 7 pund og eitt
lítið laxbarn, man ég eigi að svo
margir laxar hafi fengist í ánni í
minni tíð.
9. sept. Kom Sveinn eftir
háttatíma. Gistir.
10. sept. Fórum í göngur.
II. sept. Markaður á Hofsrétt.
21. sept. Tekið upp úr garði
kartöflur, sprottið í betra lagi.
23. september. Fór Angantýr
Hólabúfræðingur eftir að hafa
verið hér í jarðbótavinnu, borg-
aði honum kaup sitt kr. 23,40.
Kýr settust inn.
25. sept. Páll fór í fyrsta róður,
28 í hlut, beitt silungi og slængi.
29. sept. Réru 6 bátar af Sand-
inum, fengu nokkuð á sjóbeitu
og slængi.
30. sept. Hofsárkýrin stóð upp,
er nokkuð frísk. Árgerðis- og
Böggvisstaðabátar hafa oft róið
með silung úr ánni til beitu.
6. okt. Kom Páll með fisk á
hesti. Giftu sig Soffonías Bald-
vinsson og Sigurveig Sigurðar-
dóttir Tungufelli. Við Sólveig
vórum í veislunni.
7. okt. Við Sólveig komum
heim að morgni.
8. okt. Fór Tryggvi ofan til að
skreppa í kaupstað, eru báðir
bræður niður frá í þeim væntum.
Páll og Jói fóru ofan, eru skips-
rúm nú laus.
9. okt. Kom Jóhannes í Holti
til niðurjöfnunar í Syðra-Hvarfi,
og Jón Stefánsson. Kom Skálholt
að Sandi kl. 12. Ætlaði Jói með
inneftir hafi hann komist vegna
hvassviðris. (Komist fram í
skipið.)
12. okt. Hofsárkotsstúlkur
komu heim í gærkvöldi fóru með
Skálholti.
13. okt. Komu Jói og Tryggvi
heim í gærkvöldi sjóveg með
Munda í Hrafnstaðakoti. Svo
komu þeir bræður heim í dag,
segja engar fréttir.
19. okt. Skrifaði Sólveig Sig-
fúsi bróður sínum. Komu 6 glös
af fjárbóluefni og verkfæri til Jóa
frá Júlíusi Hallgrímssyni Munka-
þverá, kostar kr. 13,50.
25. okt. Bólusetti Jói á Þverá
61 kind og Urðum 79 alls í dag
140 kindur. Kom Tryggvi neðan-
að með það sem héðan var niður-
frá. Er fiskur heim kominn lítill
mjög þessa vertíð.
4. nóvember. Fóru bræður til
rjúpna fengu 9 og 10. Frostryk á
sjó sést héðan.
5. nóv. Öllu gefið inni í fyrsta
sinn á þessum vetri. Hross látin
inn og gefið. Kom Sigurður á
Kóngsstöðum og Einar í Holár-
koti frá róðrum á Litla-Árskógs-
sandi á heimleið. Kom Ágúst í
Holti (Felli, en Fell er ekki til nú)
úr síldarferð, fékk rúma 5
strokka.
9. nóv. Kom Gísli, fórum báðir
til kaupstaðarferðar ofan á Sand.
11. nóv. — tókum ull hjá
kembivélum, pantaði hníf og
gleraugu hjá Guðm. lækni, tók
15 kr. hjá consúl, borgaði 15 kr.
fyrir kembda ull, keypti hjá
Gránu fyrir 10 kr. Gisti hjá Fló-
vent vert.
14. nóv. Fór ég af Sandinum
suður í Syðra-Holt, gisti hjá
Ágúst.
15. nóv. Fór frá Holti yfir ána á
Helgafellshyl ís sterkur — kom
heim í rökkri, holdvotur og
þreyttur, stórviðri og fjaska regn
í allan dag. Réru margir, fengu
illhleypu, gátu 2 bátar ekki
dregið, voru í Ytri-Vík.
16. nóv. Gekk um hádegi í
afspyrnu rok, veður óstætt, reif
járnþak af timburhúsinu í Dæli á
parti.
21. nóv. Gefið hér inn
hundum. Sáust ormar í Díla, er í
fyrsta skipti sem honum er gefið
inn, er ekki 11 mánaða, ekkert
sást úr Vask.
24. nóv. — er lokið böðun á
þeim parti sem okkur Gísla var
falið frá Hofsá að Sæluá, 25 kind-
um fleira en í fyrra.
26. nóv. Bindindisfélagsfundur
á Þinghúsinu og bóka útlán.
Gistu Steini og Grímsi af Sandin-
um hér.
1. desember. í dag fór Páll
með 47 pör hvítra sokka til
Ágústs í Syðra-Holti, en hann
selur þá Fr. Kristjánssyni kaup-
manni mót peninga borgun á kr.
0,57. Árssamningur á 1000 pör
hvítra heilsokka. Kom Leifi í
Gerði, gistir hér, fékk hann bæk-
ur af safninu.
4. des. Fóru Skíðdælir ofan í
Syðra-Holt með prjónasaum til
Ágústs. Komu Böggvisstaða-
bræður, Valdi og Nonni (Þor-
valdur og Sigurjón) með Guð-
laugu systur sína, sem búist er við
að verði hér eitthvað sem ljós-
móðir í þessum parti hreppsins.
Komu Siglfirðingar með Hall-
grím póst sjóveg í gær. (Hallgr.
Kráksson.) Kom jarðskjálfta-
kippur að kvöldi.
8. des. Fóru bræður ofan með
rjúpur að kvöldi. Komu með
peninga fyrir sokka frá Ágústi í
Holti.
9. des. Forlíkun (Sáttafundur)
á Völlum útaf fjúkyrðum Krist-
jáns bódna á Litlu-Hámundar-
stöðum og Magnúsar húsmanns
þar, sættust án útláta, með góðu
móti. Sóttu drengir folana í
Kóngsstaði, hafa verið þar síðan
19. júní. Rauður og Sokki.
10. des. Fór Jói ofan til kaup-
staðaferðar með Steina í húsinu á
Böggvisstaðasandi (Jónshúsi).
16. des. Kom að kvöldi Dúi
Grímsson frá Langhúsum í
Fljótum, af Oddeyri, frá skipa-
smíði á heimleið, og Bessi Ein-
arsson frá Steinnesi, fylgdi
hingað, gistu báðir. Sögðu eftir
skrifum að sunnan, myrtan
mann, sem farið hafði með pen-
inga milli Hafnarfjarðar og
Reykjavíkur.
17. des. Fór Dúi, Jói gekk með
honum yfir árnar (áleiðis heim að
Klaufabrekku), líka Bessi,
Tryggvi gekk með honum út á
bæi.
21. des. Fór Jói ofan á Sand að
vitja um bréf, er kom með Páli,
og fékk orð um frá Jóni Stefáns-
syni að þyrfti að kvitta fyrir.
27. des. Kom Jói litli og Jón á
Hjaltastöðum af íshúsfundi. I
stjórn hússins: Hallgrímur á
Hrafnsstöðum kosinn í stað
Baldvins á Böggvisstöðum, er
ekki gaf kost á sér, eru þá í stjórn
endurkosnir: Ágúst, og Friðleif-
ur, og Hallgrímur nýr. Hafa ver-
ið íshússtjórar: S.G., 2 ár, (Sig.
Gunnlaugsson bóndi Ingvörum
um skeið, og til heimilis í Kofa
eitthvað.) Jón Stefánsson í 1 ár,
nú Baldvin Hansson. Ákveðið að
halda áfram í sama horfi.
1899 — en byrjaði með mars
snjófall og varði til apríl loka, og
flest var á heljarþröm fyrir fóður-
skort, en skepnutap varð ekki —
kýr gengu úti með júní, allt gekk
hér í sveit vel undan. Grasspretta
og töðufall hið besta."Garðávöxt-
ur mikill. Heilsufar hið besta
almennt. Hér dáið: Ein kelling,
ein stúlka, unglingur, eitt barn og
eitt fætt andvana alls 4 manneskj-
ur á árinu í hreppnum. Gufu-
skipaferðir kringum land fjaska
miklar. Víkingur strandaði á
Sauðárkróki 31. desember og
Tejo 4. nóvember vestur í Al-
menningum, hvorutveggja gufu-
skip.