Norðurslóð - 24.01.1990, Blaðsíða 4
4 - NORÐURSLÓÐ
Dalvíkurbær
Almennar
kaupleiguíbúðir
Auglýst er eftir umsóknum um 7 almennar
kaupleikuíbúöir að Lynghólum 3, 5, 7 og 9 og
hins vegar að Brimnesbraut 25, 27 og 29.
íbúðirnar verða til afhendingar nú í sumar.
Til viðbótar hefur bæjarstjórn lagt inn beiðni
til Húsnæðisstofnunar ríkisins um 8 almenn-
ar kaupleiguíbúðir og 12 verkamannabústaði
og er svars að vænta í febrúar n.k.
Frekari upplýsingar verða veittar á bæjar-
skrifstofunni frá og með 22. janúar, umsókn-
arfrestur er til 15. febrúar 1990.
Umsækjendur geta valið um kaup á íbúð eða
leigu með kauprétti eða leigu með kaupum á
eignarhlut í íbúð.
Dalvík, 12. janúar 1990
Bæjarstjórninn á Dalvík
Leiðrétting
Júlíus Daníelsson biður um að
leiðrétt sé prentvilla í frásögn
hans í Jólablaðinu „Bernskujól í
Syðra-Garðshorni“. Þar stendur
„Organistinn var kona í erma-
lausum kjól og það var nývirki í
mínum augum. Þetta var Bogga á
Völlum, öðru nafni Ingibjörg
Stefánsdóttir." Þarna átti auðvit-
að að standa Bolla á Völlum, og
biðjumst við velvirðingar á þess-
ari yfirsjón. Ritstj.
Mér er spurn
Ein bókanna í jólaflóðinu svo-
kallaða var bók eftir Birgi Sig-
urðsson, sem ber nafnið Svartur
sjór af síld. Þó ekki sé ætlunin
hér að skrifa sérstaklega um
þessa bók má þó fullyrða, að hún
sé ein allraskemmtilegasta og
fróðlegasta bókin úr flóðinu
rnikla að þessu sinni. Þar segir á
léttan og leikandi hátt af síldar-
ævintýrinu, sem ekki síst snerti
okkur Eyfirðinga og þá er Siglu-
fjörður meðtalinn sem hluti af
hinni fornu Eyjafjarðarsýslu.
Höfundurinn tilfærir ljóð og
stökur til að krydda frásögnina.
Þar er þó ekki að finna brag
sem eitthvað var sunginn hér í
gamla daga, en hefði átt vel
heima á vissum stað í bókinni.
Líklega hefur Birgir ekki heyrt
hann. Við höldum að bragurinn
byrji svona: Eg mætti hérna um
morguninn/manni ofan úr sveit.
Önnur vísa byrjar svo: I síldina á
Siglufjörð/í sumar ætla ég mér.
Hér með er leitað til „almenn-
ings“ til hjálpar. Hver kannast
við þennan brag og getur kennt
hann allan eða vísað á, hvar hann
er að finna á prenti?
Ef fyrirspurnin ber árangur
munum við birta braginn í næsta
blaði.
I öðru lagi væri gaman að vita,
hvar má finna á prenti vísu eða
brag úr síldarævintýrinu og byrj-
ar svona: Er síldarskipin koma
inn á Siglufjarðarhöfn.
Við þökkum fyrirfram hjálp-
ina. Ritstj.
Ljósmyndaii kvaddur
I fjarlægri fortíð, nánar tiltekið
17. mars 1978, var í fyrsta skipti
tilgreindur sérstakur ljósmyndari
í blaðhaus Norðurslóðar. Maður-
inn var Rögnvaldur Skíði Frið-
björnsson.
Það er skemmst frá því að
segja, að æ síðan hefur Rögn-
valdur gegnt þessu ábyrgðarstarfi
í tómstundum sínurn og hefur
lagt blaðinu til mikinn fjölda
mynda á þessu árabili. Ekki hef-
ur verið lagt í að telja þær saman,
en mörghundruð eru jjær, líklega
milli 500 og 1000.
Nú hefur Rögnvaldur beðist
lausnar sem opinber Ijósmyndari
blaðsins og hljótum við að taka
því með tregablandinni sálarró.
Jafnframt þökkum við honum
ágætt samstarf og liðlegheit alla
tíð og óskum honum heilla í hinu arnnkið.
starfinu, sem hann gegnir á Dal- Hér af leiðir: Starf ljósmynd-
vík og er líka töluvert ábyrgð- ara er laust til umsóknar. Ritstj.
Rögnvaldur Skíöi í hinu starfinu.
Hæstu vextir voru greiddir í sparísjóðnum á sL árí
Avöxtun Inn lánsreikn i n ga 1989
Trompbók sparisjóðanna
Hávaxtabók Samvinnubanka
Kjörbók Landsbanka 16 mán
Kaskó Verslunarbanka
Bónus Iðnaðarbanka
25,52%
25,24%
25,04%
24,98%
24,92%
Trompbók 67 ára og eldri 25,86%
Gullbók Búnaðarbanka
Sérbók Alþýðubanka
Abót Útvegsbanka
Kostabók KEA
25,05
25,02%
25,36%
25,45%
Bundnar bækur í 12 mánuði
Öryggisbók sparisjóðanna
26,51 1 þrep
27,01 2 þrep
27,40 3 þrep
Ethun okkar heimabyggð
Stuðningur við sjóðitut er stoð framtíðarinnar
SPARISJÓÐUR SYARFDÆLA
DALVÍK