Norðurslóð - 24.01.1990, Page 5
NORÐURSLÓÐ - 5
il
Minning:
Ted Amason bæjarstjórí í Gimli
Fæddur 25. júní 1918 - Dáinn 26. desember 1989
Á annan dag jóla andaðist á
sjúkrahúsinu í Gimlibæ í Maní-
toba Kristján Theodor Árnason
bæjarstjóri þar í bæ. Hann var
vel þekktur hér á landi. jafnan
kallaður Ted Arnason.
Ted var fæddur á bænum Espi-
hóli í Gimlisveit ekki langt frá
hinunt mikla íslendingabæ, sem
ber sama nafn. Foreldrar hans
voru hreinræktaðir íslendingar,
þótt bæði væru fædd vestanhafs.
Faðirinn var Guðjón Árnason.
ættaður frá Villingdal og fleiri
bæjum í Eyjafirði. en móðirin
Petrína Pórunn Soffía Baldvins-
dóttir. Hún lifir enn í hárri elli á
heimili aldraðra. Betel. í Gimli.
Guðjón dó liins vegar fyrir
nokkrum áruni.
Baldvin faðir Petrínu var
Norðlendingur og kann eg ekki
að greina frá ætt hans, en móðir-
in var svarfdælsk. Hún hét líka
Petrína Soffía og var dóttir Arn-
gríms Gíslasonar málara, sem
síðast bjó í Gullbringu. og konu
hans Þórunnar Hjörleifsdóttur
frá Tjörn. Petrfna Arngrímsdótt-
ir fór til Kanada innan við tvítugt
árið 1894. Hún giftist ntjög fljótt
eftir vesturkomuna, eignaðist
barn sitt. Petrínu vngri. árið sem
hún varð tvítug 1896. Hún dó af
barnsfararsótt. svo litla dóttirin
hefur verið látin heita í höfuðið á
látinni móður sinni.
Pessi sorglega saga er rakin hér
til að tengja uppruna Teds Arna-
sonar við Eyjafjörð og Svarfað-
ardal, scm hann taldi sér ná-
komnari öðrum héruðum á ís-
landi vegna upprunans.
Það átti hins vegar fyrir Petrínu
yngri að liggja, að verða móðir
stórs barnahóps því þau Guðjón
eignuöust 10 börn, sem upp kom-
ust þar af 7 syni. Af þessu fólki er
nú mikill ættbogi sprottinn í
Winnipeg og nágrenni.
Gimlisveitin var nálega al-
íslensk byggð. Allir töluðu
íslensku og lærðu fyrst ensku
þegar í skóla kom. Guðjón og
Petrína á Espihóli stunduðu
nautgriparækt eins og flestir ná-
grannar þeirra og framleiddu
kjöt og mjólk og ræktuðu korn til
fóðurs, bygg og hafra, og eitt-
hvað hveiti til sölu. Lífið var ekki
dans á rósum. en menn björguð-
ust vel af og komu á legg hraust-
um börnum. hertum í hóflegri
vinnu sem reyndust dugnaðarfólk
þegar kom út í lífsbaráttuna.
Ted var meðal eldri systkin-
anna, fæddur 25. júní 1918. Ég
hef ekki nógu góða mynd í huga
mér af æviferli Teds frænda míns
og vinar. Vissi ekki einu sinni að
ég ætti þetta frændfólk í Kanada
fyrr en við vorum báðir rígfull-
orðnir nrenn eftir stríð. Því leyfi
ég mér að tilfæra glefsu úr minn-
ingargrein Ncils Bardal, sem birt-
ist nýlega í Reykjavíkurblaði:
„Ted var óþreytandi eljumað-
ur allt frá æsku er hann hóf störf
á býli foreldra sinna og síðan við
margvísleg fyrirtæki sín. Hann
var 4 ár í flugher Kanada í seinni
heimsstyrjöldinni en árið 1946
stofnaði hann með Valda bróður
sínum sjálfseignarverslunina
„Árnason's Self Serve" sem var
fyrsta verslun af því tagi í Gimli.
Síðar starfaði hann við marg-
vísleg fyrirtæki á sviði byggingar-
starfsemi ásamt bræðrum sínum
Baldwin, Joe, Frank og Wilfred
og stofnaði loks ferðaskrifstofuna
Viking Travel Ltd. árið 1974."
Þetta er ferðaskrifstofan. sem
flutt hcfur hingað til lands hvaö
flesta Vesturísledinga á undan-
förnum 15 árum.
Um skeið bjó Ted í Winnipeg-
borg með fjölskyldu sinni. en
flutti síðan aftur heim á æsku-
slóðirnar og settist að í Gimlibæ.
Árið 1978 bauð hann sig fram til
bæjarstjórastarfs, en í þá stöðu
er kosið heinni kosningu þar í
landi. Ted sigraði glæsilega og
gekk í þetta starf með miklum
dugnaði. Hann var svo endurkos-
inn tvisvar sinnum og heföi átt að
Ijúka þriðja kjörtímabilinu nú i
vor. Til þess gafst honum ekki
tími, dauðinn skarst í leikinn.
Eiginkona Teds er Marjorie,
fædd Dall, nafn sem mér skilst að
sé dregiö afnafni Dalasýslu. Hún
er íslensk í aðra ætt en skosk-
ensk í hina, ákaflega glæsileg
kona og samhent manni sínum í
störfum ekki síst viö rekstur
ferðaskrifstofunnar. Þau kynnt-
ust og giftu sig rétt eftir lok
stríðsins og eignuðust í fyllingu
tímans 3 dætur. scm nú eru giftar
konur og eiga sjálfar börn.
Arnasonfólkið konr í fyrstu
heimsókn sína til íslands laust
eftir 1960. Þá komu gömlu
hjónin, Petrína og Guðjón ásamt
með Jóhanni (Joe) syni þeirra.
Síðan eru heimsóknirnar til
gamla ættlandsins orðnar margar.
Um sumarmálin í fyrra komu þau
hingað Ted og Marjorie. Það var
35. koma þeirra til landsins. Svo
mjög varð ísland hluti af líti
þéirra. Og hér eignuðust þau
fjölmarga vini t.d. á Akureyri þar
sem þau dvöldu gjarnan nokkra
daga í senn.
Og í höfuðstaönum eignaðist
hann góöa vini, sem kunnu að
meta störf hans í þágu góðs og lif-
andi sambarids íslenskættaðra
Ameríkana við land feðranna.
Fyrir þau störf tók hann við
fálkaorðunni úr hendi forseta
íslands á síðastliönu ári.
Það var gaman \orið 1979 að
heimsækja bæjarstjórahjónin i
fallega, nýja húsið þeirra í Gimli.
Ekki síður var gaman að fara í
kvöldferð með þeim niður að
vatriinu. sjá þegar ísienskur liski-
maður kom að landi með.aflann.
einar 4-5 fiskitegundir. sem ég
hafði aldrei á ævinni fyrr augum
litiö. Og þiggja svo kvöldverð hjá
Marjorie í sumarhúsi þcirra
hjóna í Víðinesi við vatniö og sjá
hinn fræga, hvíta stein. þar sem
fyrsti íslendingurinn í Nýja-
íslandi fæddist 1878. Gaman var
líka að aka meö bæjarstjóranum
um Gimlisveit. þar sern hann
fæddist og ólst upp og þckkti
hvern bæ og hvert eyðibýli. Og
hcimsækja svo nokkra íslenska
bændur, sem fóru með harðsnún-
ar íslcnskar hringhendur og vildu
fá botn við mjög crfiöa fyrri-
parta. Aka síðan alla leið út í
Tcd Arnason á Græniandi suniariú 1982.
Ljósm.: HEI’.
Mikley í Winnipegvatni og ganga
um í kirkjugaröinum, þar sem
íslendingar hvíla undir hverjum
minnisvarða.
Ted kcnndi innvortismeins fyr-
ir nokkrum árum. Það reyndist
vera illkynjað. Sjúkdómurinn fór
sér hægt og Ted baröist gcgn
honunt af mikilli hugprýði með
aðstoð bestu lækna. Hann vissi
þó gerla að hvcrju fór. Þegar
hann var hér á sumardaginn
fyrsta í fyrra töluðu þau hjón um
ástand heilsu hans af æöruleysi
og Ted sagöi. að nú hefði liann
það markmið að endast þangað
til tímabil hans sem bæjarstjóri í
Gimli rynni út í vor eða snemnia
sumars. Það átti ekki að verða.
Veikin færðist i aukana og liann
var fluttur á Johnson-minningar-
sjúkrahúsið þar sem hann andað-
ist á 2. dag jóla. 26. desember.
eins og sagt var í upphafi þessara
orða.
Það er óhætt að segja. að Ted
Arnason var meðal allra merk-
ustu manna í Vesturhcimi at
íslcnsku bergi brotinn. Hann var
góður sonur fæðingarlands síns,
Kanada. Hann var mikill Islend-
ingur og talaði ágæta íslensku og
þau hjón bæði. llann var auk
þess mikill heimsborgari og sótti
heim fjölmörg lönd allt frá
Grænlandi til Astralíu og Japans.
Hann hefði gjarnan viljað lifa
lengur og það hefðum við vinir
hans líka viljað. En hann hat'ði
unrtið mikiö starf langan dag. og
enginn má sköpum renna.
Ég flyt Marjorie og börnum
þeirra dýpstu samúðarkvcðjur
við fráfall góðs eiginmanns og
heimilisföður. H.E.Þ.
Porramatur - Porramatur
Höfrnn til sölu mikið úrval af þorramat.
Seljum bakka með 14 tegundum af þorramat.
Tökum til þorramat fyrir hópa ef óskað er.