Norðurslóð - 24.01.1990, Qupperneq 6

Norðurslóð - 24.01.1990, Qupperneq 6
Tímamót Skírnir 2. jóladag var skírð í Dalvíkurkirkju Guðrún Þóra. Foreldrar hennar eru Ingibjörg Ásta Björnsdóttir og Friðrik Fór Valsson (Harðarsonar), Lokastíg 2, Dalvík, 2. jóladag var skírður í Dalvíkurkirkju SigurðurHelgi. Foreldr- ar hans eru Guðrún Sigurðardóttir og Torfi Sigurðsson, Hjarð- arslóð 4b, Dalvík. 2. jóladag var skírður í Dalvíkurkirkju Kristinn Þór. Foreldrar hans eru Helga Níelsdóttir og Björn Friðþjófsson, Steintúni 4, Dalvík. 28. desember var skírð í Dalvíkurkirkju Jara Sól. Foreldrar hennar eru Yrsa Hörn Helgadóttir og Guðjón Antoníusson, Karlsbraut 22, Dalvík. Nýársdag 1990 var skírð í Dalvíkurkirkju Anna Kristín. For- eldrar hennar eru Steinunn Jóhannsdóttir og Leifur Kristinn Harðarson, Hjarðarslóð 6c, Dalvík. Hjónavígslur 2. jóladag voru gefin saman í hjónaband í Dalvíkurkirkju Marsibil Sigurðardóttir og Valur Hauksson. Heimili þeirra er að Mímisvegi 4, Dalvík. 30. desember voru gefin saman í hjónaband í Dalvíkurkirkju Ellen Sigurðardóttir og Ómar Þór Guðbrandsson. Heimili þeirra er að Loka|tíg 1, Dalvík. 30. desember voru gefin saman i hjónaband í Dalvíkurkirkju Magnea Kristín Helgadóttir og Halldór Kristinn Gunnarsson. Hcimili þeirra er að Reynihólum 4, Dalvík. Andlát 30. desember lést á Dalvík Friðleifur Heiðar Hallgríms- son. Friðieifur fæddist á Akureyri 22. desember 1961 sonur Hall- fríöar Árnadóttur og Hallgríms Ingólfssonar, sem nú er látinn, en fósturfaðir hans er Zophonías Antonsson. Friðleifur flutti þriggja ára hingað til Dalvíkur og bjó hér æ síðan. Systkini hans eru Vignir, Hanna Kristín, Árni og Oddný. Marga félaga eignaðist Friðleifur enda bæði glaðvær félagi og duglegur og samviskusamur við 'vinnu. Friðleifur var jarðsunginn frá Dalvíkurkirkju 6. janúar sl. 7. janúar lést í Reykjavík Freyja Þorsteinsdóttir. Freyja fæddist á Hamri 9. ágúst 1916, dóttir Þorsteins Antonssonar frá Hamri og Kristrúnar Friðbjörnsdóttur frá Efstakoti. Fjögur systkini henn- ar komust til fullorðinsára en þau eru: Hjalti, Skafti. Hólm- fríður er lést fyrir fáum árum og Þórunn Ingunn. , 1918 flutti Freyja með fjöl- skyldu sinni í Efstakot, þar sem 1 hún ólst upp og þar var hennar annað heimili alla tíð síðan. 1942 fór Freyja að vinna við saumaskap í Reykjavík en hún var handlagin og afar dugleg eins og ættingjar hennar fengu mikið að njóta. 27. júní 1952 giftist hún eftirlifandi manni sínum Sigurði Hjartarsyni og eignuðust þau þrjú börn, Kristrúnu Júlíönu, Hjört og Þorstein Óla. Fyrir þremur áratugum byggðu Freyja og Sigurður sér heimili að Hvassaleiti 59, en þar hafa margir vinir og ættingjar að norðan gist og notið mikillar gest- risni þeirra hjóna. Freyja kom hingað norður næstum því hvert ár eftir að hún flutti suður og var ætíð tilhlökkun að fá hana í heimsókn, en hún var glaðlynd og rösk til allra hluta og bar með anda glaðværðar hvar sem hún fór. Freyja var jarðsungin frá Dalvíkurkirkju 13. janúar sl. Má é& kvnna í desember síðast liðnum tók til starfa nýr skrifstofusjtóri í Spari- sjóði Svarfdæla á Dalvík, í stað Snorra Finnlaugssonar sem starf- að hefur þar undanfarin ár, en fluttist nú suður til Reykjavíkur. Skrifstofustjórinn nýi hcitir Jónas Míkael Pétursson, hann er húnvetnskur að ætt og uppruna, fæddist árið 1964 og ólst upp hjá foreldrum sínum á Tjörn á Skaga, þar er tvíbýli, bændurnir Sveinn og Pétur eru bræður Sigurlaugar Sveinsdóttur : Lundi hér á Dalvík. Um fermingaraldur fór hann í Reykjaskóla í Hrúta- firði, og eftir það var hann ein- ungis að sumarlagi heima í for- eldrahúsum. Um tíma stundaði hann sjómennsku frá Hvamms- tanga. Árið 1982 byrjaði hann að vinna hjá Sparisjóði Hvamms- tanga. Hann vann þar til ársins 1988, þá fluttist hann með konu og börn til Reykjavíkur, og vann í Sparisjóði Reykjavíkur og ná- grennis þar til nú í vetur að hann réðist hingað til Dalvíkur. Kona Jónasar heitir Svava Ingimundar- Jónas, Jón Mikacl, Svava, Viktor Már. dóttir frá Hvammstanga. Þau eiga tvo stráka, Jón Míkael 7 ára og Viktor Má 4 ára. Aðspurður um áhugamál, kveðst Jónas hafa gaman af að sprikla í íþróttum, sérstaklega hefur liann gaman af körfubolta, sem er reyndar ekki mikið stund- aður á Dalvík um þessar mundir, en það getur lagast. Hann telur ómissandi að stunda einhvers konar íþróttir, skokk, heldur en ekkert, með skrifstofuvinnunni. Til skamms tíma átti hann hest, og getur vel hugsað sér að skreppa á hestbak ef tækifæri gefst. Norðurslóð býður Jónas Pét- ursson og hans fjölskyldu vel- komin í þetta byggðarlag. Fréttahomið Miklar umræður eru nú um þá fyrirætlan Kaupfélags- ins að afleggja með öllu slátrun hér á Dalvík og þiggja boð land- búnaðarráðuneytisins um ca. 18 milljón króna framlag úr svo- kölluðum úreldingarsjóði fyrir að leggja þetta sláturhús niður. Bændur hér eru heldur óhressir yfir þessari þróun mála og hafa gert samþykktir á fundum og nú síðast safnað undirskriftum með áskorun til málsaðila að hætta við fyrirhuguð áform a.m.k. að því er varðar nautgripaslátrun. Mun það vera mjög almennur vilji bænda á svæðinu og raunar fleiri að nautgripaslátrun haldist hér framvegis. í dag, 22. janúar var haldinn fundur um þetta mál á Dalvík. Mættu þar 3 fulltrúar KEA ásamt hreppsnefndarmönnum og stjórnum búnaðarfélaga á svæð- inu þ.e. Svarfaðardal/Dalvík og Árskógsströnd. Ennfrcmur deildarstjórnir Kaupfélagsins hér. Málið var ítarlega rætt og varð niðurstaðan sú, að kannað skvldi til hlýtar, hvort ekki væri fær sú millileið að afleggja sem sláturhús hluta núverandi húss t.d. % eða V> og afsala sér úreld- ingarfé að hluta til. Lagfæra þá þann liluta sem eftir stæöi og nota til stórgripaslátrunar um ótiltekna framtíð. Lofaði kaupfélagsstjóri, Magnús Gauti Gautason því, að flytja þessa tillögu við ráðherra. Nú er eftir að sjá, hvort ráðuneytið treystir sér til að gera þessa til- slökun. Víst er það, að frá sjónarmiði bænda er það mikið spor afturá- bak ef nú á að hætta hér slátrun algjörlega. Nú þegar eru inargir gripir „á Sláturhús í vogarskálinni. biðlista" hjá sláturhúsinu svo nauðsynlegt er, að úrslit fáist í málinu hið fyrsta. Leikfélag Dalvíkur var með skemmtidagskrá í Víkurröst 29. des. sl. Þetta var samfelld dagskrá þar sem lesið var og sungið úr verkum Svarfdælskra alþýðuskálda og hagyrðinga. Meðal annars kom þarna fram nýstofnaður blandaður kvartett. Þessa skemmtun átti að endur- taka sl. föstudagskvöld, en vegna óveðurs varð að aflýsa henni á síðustu stundu. Óvíst er hvort farið verður enn af stað með þessa dagskrá. ú er Þorri karlinn genginn í garð, og þorrablótin á næsta leyti. Blaðið aflaði sér upplýsinga um væntanleg þorrablót í byggð- arlaginu: Kiwanisklúbburinn á Dalvík hélt sitt þorrablót strax á laugardagskvöld í Bergþórshvoli. Ungmennafélag Svarfd. Dalvík verður með herrakvöld með þorramat 3. febrúar í Víkurröst. Ljósm.: SH UKE Dalvík verður með þorra- blót 10. febrúar. Þorrablót ung- mennafélaganna í sveitinni verð- ur að Grund föstud. 2. febrúar, en vegna takmarkaðs húsrýmis er miðað við 16 ára og eldri og að fólk sé með búsetu í sveitinni. Vegna þessa ráðgera brottfluttir Svarfdælingar að efna til annars þorrablóts á Grund 27. janúar ef næg þátttaka fæst. Starfsfólk skólanna á Dalvík Húsabakka og Árskógsströnd heldur sitt þorra- blót 16. febrúar að Grund. Ungmennafélag Svarfdæla á Dalvík minntist 80 ára afmælissíns 30. desember sl. með afmælishátíð og aðalfundi félags- ins. Þar var kjörin íþróttamaður ársins á Dalvík. Þóra Einarsdótt- ir hlaut titilinn. Hún er í A-lands- liði í frjálsum íþróttum og hefur staðið sig mjög vel að undan- förnu. Kvartettinn skipa frá vinstri: Hjörleifur Hjartarson, Rósa Kristín Baldurs- dóttir, Kristjana Arngrímsdóttir og Kristján E. Hjartarson.

x

Norðurslóð

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðurslóð
https://timarit.is/publication/1253

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.