Norðurslóð - 21.03.1991, Side 2

Norðurslóð - 21.03.1991, Side 2
2 - NORÐURSLÓÐ NORÐURSLÓÐ Útgefendur og ábyrgðarmenn: Hjörtur Þórarinsson, Tjörn, Svarfaðardal dóhann Antonsson, Dalvík Umsjón, dreiflng og innhelmta: Sigríður Hafstað, Tjörn. Sími 96-61555 Prentun: Dagsprent hf. Akureyri Búvöru- samnmgur Sennilega er það stórhættulegt mál að skrifa hugleið- ingu um nýjan búvörusamning. Hvorki bændum né neytendum (landbúnaöarvara) finnst hann sérlega góður, hvorum tveggja út frá sínum hagsmuna- forsendum. Og sín á milli eru bændur ekki á eitt sáttir. Hér skal því haldið fram, að sem nauðarsamningur sé hann í stórum dráttum viðunanlegur eftir að gerðar voru breytingar frá áliti 7-mannanefndar um sauðfjár- ræktina m. a. samkvæmt ábendingum Búnaðarþings. Þar yfirskyggir allt annað sú beiska staðreynd, að ekki er mögulegt að selja kindakjöt á erlendum markaði. Gefa er hægt en ekki selja. Það fæst varla verð sem svarar slátur - og flutningskostnaði. Það gullland, Eldóradó, er ekki til á hnetti vorum, sem vill kaupa okkar ágæta Iambakjöt á margföldu verði, hversu erf- iðlega sem mönnum gengur að kyngja þeim bita. Það er eðlilegt, að mörgum hrjósi hugur við þeim ótíðindum, að enn þurfi að fækka sauðfénu um 70 þús- und ær eða svo, helst á einu ári ella tveimur. Nú skiptir það meginmáli, að hægt verði að stýra fækkuninni svo að hún verði sem minnst í góðu sauðfjárhéruöunum, þar sem menn hafa Iítið annaö en sauðfé og nóg vel gróið beitiland. Það eru nú í samningnum atriði, sem hafa þetta markmiö, hvernig sem gengur að fram- kvæma þau. En einhverstaöar verður fækkunin að koma og það þýðir óhjákvæmilega, að á fjölmörgum jörðum út um allt land verður sauðfjárhald lagt niður að öllu eða langmestu leyti. Stóra spurningin er, hvort búseta getur samt haldist á þeim mörgum eða flestum, búseta byggð á öðrum tekjugrunni. í námunda við þéttbýli, og EE í því þéttbýli er gott atvinnulíf vel að merkja, má Ieyfa sér að vona, að lífvænleg sveitabyggð geti haldist jafn- vel þótt hún grisjist. Þetta eru vangaveltur um framtíð, sem enginn getur í raun og veru spáð í af nokkru viti. Svo er nú það, að alls óvíst er, hvort búvörusamningurinn verður nokk- urntíma staöfestur af stjórnvöldum óbreyttur. Ef hann verður rifinn sundur er vonandi, að síðari útgáfa verði ekki mikiö lakari þeirri fyrri. Það er ekki trúlegt, að hún verði betri, því miður. Ef við svo þrengjum sviðið dálítið og spyrjuni, hvern- ig okkar eyfirsku sveitabyggð muni reiða af á vegferð komandi ára, þá eru svörin líkega auðveldari. Það staf- ar einfaldlega af því, að óvíða er hagur bænda minna kominn undir blessaðri sauökindinni en hér þegar á heildina er litið. Ef ekki kemur til eitthvert stóráfall í markaösmálum nautgriparæktar t. d. meiriháttar inn- flutningur mjólkur- og kjötvara, þá er engin ástæða til að bera kvíðboða fyrir framtíð eyfirsks landbúnaðar. Huggun er það, en ekki hjálpar það stéttarsystkinum okkar, sem ekki njóta svo góðra aðstæðna. Sumir óttast, að bændur með blandaðan búskap og góða afkomu muni sækjast eftir að kaupa upp viðbótarfram- leiðslurétt í sauðfjárrækt, þegar slík verslun verður aftur heimil, og auka þannig enn á umsvif sín, og vænt- amlega um leið, tekjur sínar. Þetta gæti m. a. átt við um Eyfirðinga. Slíkt má ekki eiga sér stað. Þvert á moti mættu marg- ir eyfirskir bændur, og auðvitað miklu fleiri, hugleiða, hvort ekki væri skynsamlegt og sanngjarnt, að þeir sýndu gott fordæmi og seldu ríkinu eitthvað af rétti sín- um til framleiöslu sauðfjárafurða og rýmdu þannig fyrir öðrum, sem meira þurfa hans með. HEÞ. Hver er ég? V. Höfundur æviminninganna, Stefán Björnsson, skýrði frá því í síðasta blaði, hvernig það atvikaðist, að hann varð fyrsti tragtorstjóri í Svarfaðardal 1931. (Orðið dráttarvél hafði þá ekki verið fundið upp) Hann býr hjá foreldruni sínum á loftinu í Vallholti og virðist framtíð sín næsta óráðin. Og hefur hann nú orðið. í Vallholti Framundan var veturinn. Við foreldrar mínir og eg höfðum flult úr Ingvörum vorið 1931... Við fengum leigt á loftinu í Vall- holti, nú Skíðabraut 5. Þetta var í risi hússins. Stofa var við suður- stafninn, eldhús að norðan. Kolaofn var í stofunni og hitaði hana upp. Þarra sváfum við, eg á dívan undir austurhliðinni en þau í rúmi að vestanverðu. Borð var undir glugganum við suður- stafninn. Allt vatn varð að bera upp og niður, eldivið og hvað eina. í botni kjallarans var brunnur og þótti það mikil hátíð. Allt rusl varð að fara með út í fjöru. Var hún allsherjar sorphaugur á þeim árum og að sönnu í áratugi eftir þetta eöa fram yfir 1960. Þrátt fyrir þessar frumstæðu aðstæður var ekki yfir neinu að kvarta miðað við þau lífsskilyrði, sem við vorum vön. Við höfðum nóg að borða og gátum liitað stofuna eins og viö þurftum. Pabbi fór upp í Hrafnsstaði lcngi um veturinn og kenndi krökkum Páls Friðfinnssonar. Þaðan kom mjólkin. Svo gekk hann í hús á Dalvík og kenndi börnum. Fyrir það fékk hann einhver laun, þótt lítið þætti nú til dags. Ég var verkefnalaus þennan vetur. Ekki leið mér vel. Eg var Gamli Surtur í nýju hlutverki. búinn að selja hestaplægingaúi- haldið mitt og annar maður far- inn að stunda það. Dráttarvélar- kaupin voru farin út um þúfur, enda enginn fjárhagsgrundvöllur undir því fyrir einstakling. Spurning var, hvort Búnaðarfé- lagið hefði bolmagn til að fjár- magna áframhaldandi rekstur dráttarvélarinnar ef vinna brygð- ist eins og allt útlit var fyrir. Annað var mér líka til ama þennan vetur þarna á Vallholts- loftinu. Veturinn 1931, síðasta árið á Ingvörum, voru í syðri enda hússins ung hjón. Konan var ættuð vestan af Ströndum, nánar til tekið úr Steingrímsfirð- inum. I apríl um vorið kom systir hennar í heimsókn til hennar. Eg kynntist þessari konu dálítið. Var ég fenginn til að ilytja hana á hestum mínum fram í Svarfað- ardal, þar sem bróðir hennar bjó. Þetta var gift kona, þremur árum eldri en ég og barnlaus. Endirinn á okkar viðkynningu varð sá, að við kvöddumst með handabandi á brautinni norðan í Holtsmóun- um. Það var sár skilnaður á báðar hliðar, með þann ásetning í huga, að við myndum aldrei sjást framar. En um annað varekki að tala eins og á stóð hjá henni. Hef- ur verið við það staðið að öllu leyti, enda hafði eg lofað því að hverfa út úr lífi hennar og Iáta ekki sjá mig á hennar vegunt á væntanlegum lífsferli. Hamingjan var mér hliðholl því huggunin var stutt undan og sú, sem kom fram á sjónarsviðið, geröi betur en að fylla pláss hinn- ar í huga mínum, þrátt fyrir ein- dæma glæsileika hennar að allra dómi. Óráðinn ungur maður Tíminn leið, veturinn 1931-32 var að renna sitt skeið, komið fram í apríl. Ekki veit ég, hvort lífsferill manna er tilviljun ein eða örlög ráða einhverju um lifsferil þeirra. Oft dettur mér í hug, að á þess- um tíma hafi örlög stjórnað mín- um lífsferli. Ekki færi ég nein rök fyrir því, slíkt er ekki hægt að gera af neinu viti. Hvað sem um það er, þá er það dag einn, að á Vallholtsloftinu birtist Gunn- laugur Gíslason bóndi á Sökku. Við höfðum átt mikið saman að sælda og ekki alltaf verið sam- mála og enn var eftir lokauppgjör vegna tragtormálanna...... Gunnlaugur segir mér, að vinnu sé enga að hafa í Svarfað- ardal næsta sumar. Á hinn bóg- inn hafi Búnaðarfélagið ekki það góð fjárráð að það geti greitt upp afborgun og vexti af lánum , sem á þessum verkfærum h víli, nema vinna fáist einherstaðar. Á þesum tíma bjó Páll Frið- finnsson á Hrafnsstöðum (pabbi og hann voru systrasynir.) Hann var bæði útgerðarmaður og bóndi. Hafði hann á þeim tímum síldarsöltun á Siglufirði. Nú hafði hann fyrir hönd félagsins boðið Siglufjarðarbæ vélina á leigu til að brjóta land og vinna á Hóli í Siglufirði, en þar rak bærinn mjólkurbú. Haustið 1931 var mikið at- vinnuleysi á Siglufirði að síldar- tímanum loknum. Hafði þá bæjarstjórnin, undir forystu krat- anna, og vegna áróðurs frá Verkamannafélagi Siglufjarðar láti ræsa fram mikið af mýrlendi, sem bærinn átti, bæði tilheyrandi Hóli og Leyningi, enda átti bær- inn allt land á Siglufirði nema Skarðdal, jörð beint á móti Hóli. Öllu þessu var Páll kunnugur bæði í Svarfaðardal og á Siglu- firði. Það voru því hans ráð að leigja vélina til og koma þeim saman til samninga Svarfdælum og Siglfirðingum. Þegar Gunn- laugur kom til mín var búið að Stefán Björnsson. semja um þetta. Búnaðarfélag Svarfdæla hafði áskilið sér rétt til að láta vélstjóra fylgja vélinni, ef þeim sýndist svo. Þegar Gunn- laugur var búinn að skýra fyrir mér alla málavexti þessu viðvíkj- andi spyr hann mig, hvort ég vilji ekki fara með vélinni vestur fyrir þá. Ég var fljótlega til með það. Ég hafði frá engu að hverfa í Svarfaðardal, eins og ég hefi áður drepið á. Var þetta því fastmæl- um bundið. Var nú farið að ráð- gera flutning á vélinni og verk- færunum. Á þeim tíma gekk bátur reglu- lega á milli Akureyrar og Siglu- fjarðar. Þessi bátur var 60-100 tonn að burðarmagnni. Við hann var samið um flutning á vél og verkfærum. Á þeim tímum voru hér á Dalvíkinni þrjár bryggjur, allar úr tré. Sú sem var suður og fra m af KEA var kölluð Kaup- félagsbryggja. Hún var mest not- uð og sennilega skást og fram hana var farið með vélina. Ekki dugði að láta vélina fara fram bryggjuna fyrir eigin afli. Heldur varð að slökkva á mótornum og ýta henni fram bryggjuna með handafli. Munu það hafa gert einir 5 eða 6 menn. Þá þurfti að hafa bættinga undir hjólunum. Voru til þess notaðir 4 bættingar og tveir og tveir fluttir framfyrir í einu. Ég sat í sæti vélarinnar og stýrði. Ég ntan að þeir sem ýttu voru búnaðarfélagsstjórinn, Gunnlaugur á Sökku. Jón bróðir hans á Hofi, Magnús í Hrafns- staðakoti og faðir minn Björn.. Allt gekk þetta nú eins vel og á varð kosið, skipið kom eins og ráð var fyrir gert og bóma þess tók vélina og verkfærin niður á dekkið þar sem vélin var skorðuð vel niður. Síðast fór ég niður með fötin mÍH í kofforti. Ég var glaður á þessum tímum og veifaði félögum mínum á bryggjunni, enda var ég að ganga til móts við mín eigin örlög. Til Sigló á vit ævintýranna. Það var besta veður á leiðinni vestur. Þegar skipið kom til Siglufjarðar var komið þar að hafskipabryggju eða viðlegukanti þar sem Éossarnir lögðust ætíð að, þegar þeir komu til Siglu- fjarðar. Fyrsta stykkið, sem skip- ið lætur niður á hafnarbakkann er dráttarvélin. Þá vill það til, að áður en vélin er komin niður á bakkann, slitnar vírinn í vind- unni. En svo nærri var hún komin, að hún kom beint niður á hjólin og ekki gat ég séð neitt á henni nema að lakkið var sprung- ið á dregaranum að framan. Síð- ar kom í ljós, að spindillinn í framhjólinu hafði sprungið. Ég setti vélina í gang þarna á stund- inni og keyrði hana urn aðalgötu bæjarins. Þetta farartæki var óþekkt á Siglufirði í þá daga og vakti mikla athygli, sérstaklega barnanna. Hlupu þau bæði á undan og eftir vélinni. Þótti mér það ekki gott. Til allrar lukku kom lögreglu- þjónn þarna til sögunnar og fylgdi mér eftir á meðan börnin höfðu áhuga á þessu nýstárlega tæki. Að stuttum tíma liðnum var ég kominn á leiðarenda, fram að Hóli þar sem mjólkurbúið var rekið... Hér lýsir Stefán aðstæð- um í kringum Hól á Siglufirði, þar sem saman hafði verið slegið mörgum eyðikotum til að gera stórt tún svo hægt væri að fram- leiða mjólk handa börnunum í síldarbænum... Framh.

x

Norðurslóð

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðurslóð
https://timarit.is/publication/1253

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.