Norðurslóð - 21.03.1991, Qupperneq 6

Norðurslóð - 21.03.1991, Qupperneq 6
Svarfdælsk byggð & bær Tímamót Skírnir 10. mars var skíröur í Dalvíkurkirkju Omar Þorri. Foreldrar hans eru Ósk Finnsdóttir og Gunnlaugur Jón Gunnlaugsson, Mímisvegi 1, Dalvík. Afmæli Þann 18. mars varð 75 ára Petrína Zóphóníasdóttir, Karlsrauða- torgi 16, Dalvík. Blaðið árnar heilla. Andlát 27. febrúar lést á Hornbrekku, Ólafsfirði, Jóhann Guðlaugur Kristjánsson, Karlsbraut 1, Dalvík. Jóhann fæddist á Karlsá, 29. október 1900, sonur Kristjáns Lofst Jónssonar og Helgu Solveigar Guðjónsdóttur. Hann var elstur af níu börnum þeirra hjóna en þau voru auk Jóhanns: Sigurlína Snjólaug, sem er látin, Sveinn Sigurjón, sem er látinn, Solveig, Jóna Hallfríður, Sigurður Kristinn, Þorsteinn Valgarð- ur, Rósa, sem lést barn að aldri, og Guðlaug Baldvina. Jóhann bjó með foreldrum sínum í Garðakoti, Svarfaðardal, fyrstu árin en flutti með þeim í Uppsali árið 1907, þar sem for- eldrar hans áttu heima æ síðan. Hann fór-ungur til sjós og átti það starf vel við hann. Var hann meira og minna á sjónum fram yfir fertugt, m.a. sem mótoristi, eins og það var þá kallað, en til þeirra starfa hafði hann réttindi. Eftir að hann koin í land vann hann ýmsa verkamannavinnu á Dalvík, nt.a. við smíðar enda laginn og ágætur verkmaður. 1927 kvæntist hann eftirlifandi konu sinni, Kristínu Sigur- hönnu Sigtryggsdóttur. Þau hófu búskap á Hánefsstöðum en fluttu þaðan til Ólafsfjarðar, livar þau bjuggu fyrst í Hólkoti en síðan niðri í kauptúninu. Til Dalvíkur flytja þau aftur árið 1939 og bjuggu lengst af í Bergþórshvoli eða í um þrjá áratugi. Þau eignuðust 6 börn sem eru: Arnfríður Jóhanna, Hjörleifur, Kristján Loftur, Marinó Jóhann, sem er látinn, Sigrún Rósa og Sigtryggur Elinór. 1975 fluttu Jóhann og Kristín í Hruna, Karlsbraut 1, þar sem þau hafa átt heimili síðan. Jóhann Guðlaugur var jarðsunginn frá Dalvíkurkirkju 5. mars. JHÞ Þann 11. mars andaðist Sigurjón Hjörleifsson, Karlsbraut 19 á Dalvík. Sjá grein á bls. 4. Þann 15 mars andaðist á heimili sínu, Karlsbraut 19 á Dalvík, Friðhólm Kristinn Jónsson frá Sægrund þ. e. Grundargötu 6 á Dalvík. Hann var fæddur þar 4. sept- ember 1923, sonur hjónanna Jóns Vald- emarssonar og Sigurveigar Sigurðardóttur. Kristinn var sjómaður lengst af ævi en vann jafnframt mikið í landi og lagði á margt gjörva hönd: frystihússtörf, lögreglustörf, skóviðgerðir, hjólhestavið- gerðir o.m.il. Hann kvæntist Gróu Gríms- dóttur ættaðri úr Isafjarðardjúpi í maf 1948. Kjördóttir þeirra er Kolbrún Kristinsdóttir. Hún býr í Reykjavík og á 2 börn. Ann- að þeirra er Kristín, sem hefur alist upp hjá afa sínum og ömmu á Dalvík og á þar heima. Kristinn var dugnaðarforkur hinn mesti og hvergi smeykur í lífsins ólgusjó. Aldrei var hann niður- lútur né lét kveða sig í kútinn í orðaskiptum við menn því hann hafði gaman að stóryrðum og lét margt flakka. Þrátt fyrir það, eða kannske einmitt vegna þess, var hann vinsæll mjög, enda var alltaf stutt í hlátur og glens hjá Kidda og allir voru vinir hans. Hann varð fyrir slæmu vinnuslysi fyrir inörgum árunt síð- an og varð aldrei samur maður til starfa eftir það. Það mótlæti bar hann með æðruleysi og henti stundum gaman af því ein og öðru. Hans verður saknað og rná líklegt þykja, að margir vilji fylgja honum til grafar. Útförin verður gerð frá Dalvíkurkirkju á föstudaginn 22. mars kl. 13,30. Fáir hafa betur lifað heldur en Kristinn Jónsson eftir því heil- ræði, sem svo er orðað í fornum fræðum: Glaður og reifur skyldi gumna hverr uns sinn bíður bana. HEÞ Helgihald í kyrruviku og á páskum Pálmasunnudagur, 24. mars: Barnaguðs|)júnusta verður í Dalvíkurkirkju kl. 11. Itarnaguðsþjúnusta verður í Vallakirkju kl. 14. Guösþjúnusta verður í Dalvíkurkirkju kl. 17. Stundin verður tileinkuö boðunardegi Maríu. Séra Kristján Vulur Ingólfsson ijallar uin utburði kirkjuúrsins og sýnir helgi- inyndir. Margrét Búusdóttir syngur einsöng og einnig inun kirkjukórinn leiða alinennan safnaðarsöng tengdan boðunardcgi Muríu. Skírdagur, 28. mars: Messaö verður í Urðakirkju kl. 21. I.esið verður úr píslarsögunni og I.itanía sr. Bjarna Þorsteinssonar sungin. Altarisganga. Föstudagurinn langi, 29. mars: Kl. 20.30 hefst í Dalvíkurkirkju kvöldvaka við krossinn. Orgelleikur verður í 15 mínútur úður en stundin hefst. Lesiö verður úr píslarsögunni, sungnir súlmar er tilhcyra deginum og kveikt á kertaljúsum við krossinn. Páskadagur, 31. mars: I lútíðarmessa verður í Dalvíkurkirkju kl. 8 úrdegis. Altarisganga. Hljúðfæraleikur. Hútíðarmcssa vcröur i Tjarnarkirkju kl. 14. Hútíðarmessa verður i Vallakirkju kl. 16. 2. páskadagur, 1. apríl: Hútíðarmessa veröur ú Daibæ kl. 16. Súknarprestur. Má ég kynna Þeir hjá Sparisjóði Svarfdæla hafa lag á að krækja sér í huggulegt starfslið. Hefur þetta blað kynnt sumt nýkom- ið starfsfólk þar og hefði mátt gera oftar. Nýlega sá ritstjóri nýtt stúlkuandlit þar í gjald- kerastúku, sem honum fannst hann kannast við, e n kom ekki fyrir sig hvar. Við eftir- grennslan kom á daginn, að það mundi hafa verið í „ís- íenska sjónvarpinu“. Hún heitir Gunnhildur Ottós- dóttir og er fædd í Hrísey 22. júlí 1963.Foreldrar hennar eru Svandís Gunnarsdóttir frá Árskógsströndinni og Ottó Þor- gilsson deildarstjóri hjá KEA í Hrísey. Og fyrir þá ættfræðisinn- uðu skal það upplýst, að Þorgils Baldvinsson, afi Gunnhildar, var frá Steindyrum og var bróðir Antons Baldvinssonar, sem andaðist á Dalvík fyrir nokkrum árum og Sigríðar Baldvinsdóttur, sem lengi bjó á Akureyri, en andaðist fyrir alllöngu síðan. Gunnhildur á því margt skyldfólk hér um slóðir bæði g egnum þessi ættartengsl og sjálfsagt aðrar ætt- argreinar. Gunnhildur ólst upp í eynni og gekk í barnaskóla 1-7. bekk og í Dalvíkurskóla 8. og 9. bekk. Þá lá leiðin í MA þaðan sem hún útskrifaðist 1983, stúdent úr málabraut. Þá innritaðist hún í H.í. og lagði stund á íslensku. Hún segist hafa unnið nrikið í fiski á sinni tíð einkum í Frysti- húsi KEA í Hrísey. Líka vann hún á skrifstofu bæði á Dalvík og Akureyri. Hjá Sjónvarpinu vann hún rúmlega 2 ár sem fréttaþula og þar kynntist þjóðin henni, að því marki sem unnt er að kynnast fólki í gegnum sjónvarpsskerm. Hún fór að vinna hjá Sparisjóðn- um á Dalvík 1. mars 1991. Sambýlismaður Gunnhildar er Elías Björnsson (Elíassonar og Ragnheiðar Guðmundsdóttur á Dalvík.) Hann stundar nú sjóinn. Sonur þeirra er O.ttó fæddur 5. maí 1988. Fjölskyldan býr á Brimnesbraut 29, alveg norður undir Brimnesá. Afskaplega huggulegur og skemmtilegur staður, segir Gunnhildur. Áhugamál? Ja, ekkert sér- stakt, jú kannske.útivist, njóta veðurblíðunnar þegar hún gefst, lesa dálítið, hlusta á útvarp, nei, ekki glápa á sjónvarp. Eru þau komin til langrar dvalar? Já, einhversstaðar verður maður að finna sér samastað, eignast þak yfir höfuðið. Því ekki hér,þetta er góður staður í upp- gangi.Ég vona að fólk taki okkur vel. Því ekki það, Dalvíkingar eru yfirleitt alminlegheita fólk og Norðurslóð býður fjölskylduna velkomna og væntir þess að hún vaxi, blómgist og dafni á kom- andi tímum. Fréttahomið Nýlega afhenti stjórn Kvenfélagsins Tilraunar í Svarfaðardal Heilsugæslustöð- inni á Dalvík kr 100.000.00 til áhaldakaupa . Verður þeim pen- ingum varið til kaupa á ungbarn- avog. Kvenfélagið Vaka á Dalvík hefur undanfarið safnað til kaupa á eyrnasmásjá, sem er mjög dýrt stykki, hefir kvenfélagið afhent kr 200.000.00 til þeirra kaupa. Lionessur og lionsnrenn hafa nú bætt við þann sjóð kr 180.000.00, svo nú er ekkert til fyrirstöðu að hægt veröi að kaupa smásjána, og kemur hún á næstu dögum. Kvenfélagskonur afhenda gjöfina. F.v. Þuríður Sigurvinsdóttir, Stefanía Jónasdóttir, Kristín Klemenzdóttir, Ástdís Óskarsdóttir, Kristjana Þ. Ólafs- dóttir hjúkrunarforstjóri og læknarnir Þórir V. Þórisson og Bragi Stefáns- SOn. Mynd: Heimir 21. mars frumsýndi Leikfélag Dalvíkur gamanleikinn Frænka Charleys eftir Brandon Thomas. Þetta er sígildur gaman- lcikur sem sýndur hefur verið víða um land við góðar undir- tektir og sums staðar oftar en í einni uppfærslu. Á Dalvík hefur hann verið sýndu r tvisvar áður árið 1947 í leikstjórn Marinós (Bassa) Þor- steinssonar og árið 1961 undir stjórn Hjálmars (Bomma) Júl- íussonar. Hér hlýtur því að vera um sérlega vel heppnaðan gam- anleik að ræða. Leikstjórinn er að þessu sinni ungur Dalvíking- ur, nýútskrifaður úr Leiklistar- skóla íslands, Björn Ingi Hilm- arsson (sjá viðtal). 10 leikarar taka þátt í sýningunni en auk þeirra hópur af öðru starfsliði eins og venjan er. Ihelgina í apríl verður • í Heilsugæslunni á Dalvík námskeið seni varðar slys á börnum. Þar verður fjallað.um fyrirbyggjandi aðgerðir. fyrstu viðbrögð og, tleira sem tengist slysum á börnum. Hjúkrunarf- ræðingur frá Reykjavík, sem að undanförnu hefur unnið mi kið að forvarnarstörfum þar, mun stýra námskeiðinu. Öllum er hei- mild þátttaka. Aðalfundur Svarfdælingasam- takanna í Reykjavík var haldinn nýlega. Þar var kosin ný stjórn. Hana skipa: Valdemar Óskarsson formaður, og aðrir í stjórn eru: Helga Hjörleifsdóttir, Sólveig Jónsdóttir, Atli Rafn Kristinsson og Kári Gestsson. Fyrirhugað er að halda fjöl- skyldudag á næstunni og er það ósk stjórnar að sem allra flestir mæti þar. Einnig var áformað að halda grilldag úti snemma næsta sumar. Leikhópur Leikfelags Dalvíkur í Frænku Charleys 1991. Leikstjórinn, Björn Ingi Hilmarsson, lengst til liægri. Mvnd: Heimlr Það er kunnara en frá þurfi að segja að Múlagöngin voru vígð 1. mars sl. við hátíðlega at- höfn. En ekki nrá héraðsfréttablað á borð við Norðurslóð láta hjá líða að geta svo stórmerkra tíð- inda þótt seint sé. Nú þegar eru áhrif ganganna farin að koma í ljós varðandi aukið samstarf bæj- arfélaganna sitt hvoru rnegin Múlans. Þannig hafa löggæslu- menn á Dalvík og Ólafsfirði boð- að stóraukna samvinnu á sviði löggæslu og án efa verður sam- vinna á fleiri sviðum orðin að veruleika áður en langt um líður.

x

Norðurslóð

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðurslóð
https://timarit.is/publication/1253

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.