Norðurslóð - 17.04.1991, Síða 1
Svarfdælsk byggð & bær
15. árgangur Miðvikudagur 17. apríl 1991 4. tölublað
Erla Rcbekka nicð lanibakónginn.
Með hækkandí sól
Það styttist til vors og ýms teikn
eru á lofti. sem benda til þess, að
það sé rétt handan við hornið.
Nyborið lamb er eitt af táknum
vorsins hér á voru landi íslandi,
eins og hún Kristrún í Hamravík
var vön að segja. Enn eru nokkr-
ar vikur þar til sauðburður hefst
fyrir alvöru. En oft gerist það, að
lamb og lamb fæðist á óhefð-
bundnum tíma.
Hér á dögununt komu mæðgin-
in á Göngustöðum, Margrét
Gunnarsdóttir og Gunnar Krist-
inn Guðmundsson á „ritstjórnar-
skrifstofur blaðsins“ með myndir
af nýfæddu ungviði þar á bæ.
Önnur myndin er af hrútlambinu
hennar Móru frá Bæ í Trékyll-
isvík, sent fæddist á föstudaginn
langa, 29. mars. Það er heima-
sætan á bænum, Erla Rebekka,
sem heldur lambakóngnum.
Hin myndin er af tvíkelfingun-
um sem hún Rós í fjósinu eignað-
ist 27. febrúar. Kálfarnir heita
Sóley og Fífill og með þeim er á
myndinni Gunnar Kristinn, mik-
ið bóndaefni. Á bak myndarinn-
ar er skráð þessi gamla vísa, sem
einhver kannast sjálfsagt við:
Kálfar tveir í kúamynd
hvítir voru í framan.
Gullhöttur og Ljómalind
lengi kúrðu saman.
Blaðið þakkar þeim mæðgin-
um fyrir að færa því þessar fal-
legu myndir.
Kálfar tveir í kúamynd.
Til Norðurslóðar
Viltu þiggja þetta blað,
og þrykkja vel á góðum stað.
Berðu kveðju mína með,
mitt þú ávallt hressir geð.
Hugrún.
Rís nú sól
Rís nú sól: og signdu þetta land,
sendu skugann burt af himni þínum.
Pú ert lífsins drottning, draumum mínum
dýrðleg vissa um betri og hlýrri tíð.
Parna ertu að baki blakkra hranna,
blessuð vonarstjarna allra manna.
Komdu nú, og hresstu hrjáðan lýð!
Rís nú sól: því sumar komið er,
sælar dísir árstíðinni fagna.
Ef þú bregst, þær vísast verða að þagna
og vita naumast, hverju lúta ber.
Brostu nú og græddu svalan svörðinn,
sjáðu hvernig vonar þrúguð hjörðin.
Menn og skcpnur mæna eftir þér.
Rís nú sól: og vektu fjólu á fold.
Ó, flýttu þér og vertu ekki að tefja.
Ein þú megnar hlýjum voðum vefja
viðkvæmt brum, er þráir vöxt og yl.
Komdu nú: og sendu birtu í bæinn,
bráðum fer að stytta aftur daginn.
Klukka tímans klingir þáttaskil.
Rís nú sól: og vermdu votar brár
og vörum jarðar sendu ástarkossa.
Láttu ólga fallvötnin og fossa
fram til sjávar , landsins æðaslátt.
þú átt valdið Iffsins strengi að stilla
styrkur þinn er ekki sjónarvilla.
Engin reiknað fær þinn mikla mátt.
VORÞRÁ mætti þetta fallega ljóð heita, sem blaðið fékk í
póstinum þann 15. apríl. Norðurslóð þakkar höfundinum,
Filippíu Kristjánsdóttur skáldkonu frá Brautarhóli (Hug-
rúnu) kærlega fyrir kveðjuna og óskar henni gleðilegs sumars.
Aðalfundur Sparisjóðs Svarfdæla
>»
- Fyrsta konan á Islandi sem formaður bankastjórnar
Laugardag 13. apríl kl. 16.00
hófst aðalfundur Sparisjóðs
Svarfdæla í Sæluhúsinu,
Dalvík. Formaður stjórnar,
Guðríður Ólafsdóttir, setti
fund og kvaddi til fundar-
stjóra Jóhann Antonsson
fyrrv. stjórnarformann. Síðan
gerði hún stuttlega grein fyrir
gangi mála hjá Spsj. Svarfd. á
liðnu ári, sem hafði verið
sjóðnum að flestu leyti
hagstætt. Nokkrar breytingar
höfðu orðið í starfsliði og í
ábyrgðarmannaráði sjóðsins
þar sem út gengu Hjörtur
Þórarinsson og Þóra
Akadóttir, en í þeirra stað
komið Kristján E. Hjartar-
son, Tjörn og Katrín Sigur-
jónsdóttir, Dalvík. Það kom
fram í uinræðu, að þessi
fundur væri að því leyti sögu-
legur, að aldrei fyrr hefði
kona verið í þeirri stöðu hér á
landi, að standa fyrir fundi
sem formaður bankaráðs eða
sparisjóðsstjórnar.
Góð afkonia
Sparisjóðsstjóri, Friðrik Friðriks-
son gerði grein fyrir ársreikning-
unum, sem bæði höfðu verið
endurskoðaðir og uppáritaðir af
ráðnum, löggiltum endur-
skoðendum frá Endurskoðun h.f.
í Reykjavík og af kosnum mönn-
um úr hópi fullrtúa.
Helstu stærðir úr ársreikning-
unum eru sem hér segir :
Hagnaður ársins var 6,04
milljónir og var færður til hækk-
unar á varasjóði. Eigið fé er þá
92,25 milljónir. (75,39 í árslok
1989).
Eiginfjárhlutfall í rekstri sjóðs-
ins er 15,7% en samkvæmt lögum
má þetta hlutfall ekki vera lægra
en 5%, svo þarna stendur Spsj.
Svarfd. mjög vel.
Heildarinnlán voru í árslok
1990 kr. 519,94 milljónir og
höfðu aukist um 24,2% á árinu.
Við sjóðinn störfuðu að meðal-
tali 8 manns yfir árið og voru
heildarlaunagreiðslur 13,48
milljónir.
Fundurinn samþykkti að veita
Útlán eftir greinum.
1 milljón króna í Menningarsjóð
Svarfdæla.
Úr stjórn Sparisjóðsins áttu að
ganga Guðríður Ólafsdóttir,
Bragi Jónsson og Óskar Jónsson,
(árleg kosning) en voru öll
endurkjörin. Aðrir i stjórninni
eru Gunnar Jónsson, fulltrúi
Svarfaðardalshepps og Gunnar
Aðalbjörnsson, fulltrúi Dalvík-
ur'oæjar.
Menningarsjóður
Svarfdæla
Á fundi 4. apríl ákvað stjórn
Menningarsjóðsins að veita þrjá
styrki og tilkynnti formaðurinn,
Þóra Rósa Geirsdóttir, á aðal-
fundi Sparisjóðsins, að styrkþeg-
ar væru sem hér segir:
Sóknarnefnd Dalvíkurkirkju
vegna orgelkaupa kr. 800 þús.
Tónlistarskóli Dalvíkur kr. 200 þús.
Húsabakkaskóli til bókakaupa kr. 100 þús.
Samtals 1100 þús.
Aðrir í stjórn Menningarsjóðs-
ins eru Trausti Þorsteinsson og
Atli Friðbjörnsson. Gestur fund-
arins var Jónas Reynisson spari-
sjóðsstjóri í Hafnarfirði, sem hélt
erindi um stöðu sparisjóða á
lánamarkaðnum.