Norðurslóð - 25.09.1991, Page 1
15. árgangur
Miðvikudagur 25. september 1991
7. töluhlað
Svarfdælsk byggð & bær
Stórframkvæmdir hjá Skíóafélaginu
- Skíðalandsmót haldið hér í vetur
Skíðafélag Dalvíkur stendur
um þessar mundir í stórræð-
um. I sumar og haust hefur
verið gerður sökkull undir hús
sem reist verður á næstunni.
Nú um helgina var lokið
steypu á gólfi hússins og áður
hafði verið lokið að mestu frá-
gangi lóðar meðal annars búið
að þekja svo ekki sést lengur
jarðrask eftir framkvæmdir
sumarsins. Húsbyggingin stór-
bætir alla aðstöðu í fjallinu og
auðveldar að halda skíðalands-
mót hér í vetur.
Húsið sem þarna er í byggingu er
einnar hæðar með góðu risi.
Grunnflötur hússins er 178 m’ og
nýtanlegt gólfpláss í risi um 150
m:. Félagar í Skíðafélaginu hafa í
sumar og haust unnið í sjálfboða-
vinnu við grunninn og er hann nú
tilbúinn svo reisa má húsið. Hús-
ið er einingarhús sem keypt verð-
ur af SG einingum á Selfossi.
Vinnan við uppsetningu hefst í
byrjun október og koma menn
frá framleiðanda til að setja það
upp. Þegar þeir skila af sér hús-
inu verður frágangi að utan lokið
og allir milliveggir komnir upp og
útveggir allir klæddir.
A neðri hæð verður afgreiðsla
fyrir lyftuna og snyrtingar. Þá
verður þar aðstaða fyrir starfs-
fólk á svæðinu. eftirlits- og af-
greiðslufólk og þjálfara. Eldhú-
skrókur verður og setustofa fyrir
gesti og notendur svæðisins. í ris-
inu verður gistiaðstaða, snyrting-
ar og sturta. Gistiaðstaðan er
hugsuð fyrir aðkomufólk sem
hingað kemur til keppni eða æf-
inga. Þarna verða bæði salur fyrir
svefnpokapláss og herbergi.
Að sögn forsvarsmanna
Skíðafélagsins er fyrirhugað að
ganga sem fyrst frá afgreiðslunni
fyrir lyftu og snyrtingum. Telja
þeir sig hafa fjármagn til þess en
framhaldið ræðst síðan af frekari
fjármögnun. Dalvíkurbær mun á
næstu 3-5 árum styrkja Skíðafé-
lagið til framkvæmda sem nægir
til að greiða SG einingum þeirra
hlut það er um 10 milljónir
króna. Það sem að framan er sagt
að sjáist fram úr að fjármagna
kostar um 2 milljónir króna. Þá
má gera ráð fyrir að lokafrágang-
ur kosti 2-3 milljónir og er það sú
fjárhæð sem á vantar til að Ijúka
byggingunni. Samtals er áætlað
að húsið kosti 14-15 milljónir.
Ákveðið er að Skíðalandsmót-
ið verði haldið hér á Dalvík og á
Ólafsfirði næsta vetur. Slíkt móts-
hald þarnast góðrar aðstöðu
svo allt gangi vel og snurðulaust
fyrir sig. Ljóst er að ef tekst að
ljúka byggingunni fyrir þann
tíma gerbreytir það allri aðstöðu
og er þá ekki að efa að fram-
kvæmd Skíðafélagsins á því móti
verður byggðalaginu til sóma.
Það mátti heyra það á Skíðafél-
agsmönnum að þeir binda miklar
vonir við að aðsókn að skíð-
asvæðinu hér muni aukast með
tilkomu þessa húss. Ekki síst
vegna þess að aðkomufólki sem
og heimamönnum verður gert
auðveldara að athafna sig á svæð-
inu.
það er vissulega ánægjulegt
hversu stórhuga skíðafélagsmenn
hafa alla tíð verið og ættu allir að
leggjast á eitt með þeim svo húsið
verði tilbúið fyrir landsmótið.
Væri ekki mögulegt að fyrirtæki
og einstaklingar byndust samtök-
unt unt að fjármagna það sem út
af stendur til að ljúka bygg-
ingunni fyrir áramót?
Eínstök árgæska á líönu sumrí
Nú er komið hrímkalt haust og
horfin sumarblíða, segir í
kunnri vísu um tímans eilífu
hringrás í náttúrnni og mann-
lífinu.
Nú er komin helgin í 22. viku
sumars, það var gangnahelgin að
fornu lagi. Nú er hún viku fyrr og
var réttað á aðalrétt Svarfdælinga
á Tungunum sunnudaginn 15.
eins og fram kentur á sínum stað
hér í blaðinu.
Gæðasumar
Það er engum blöðum um það að
fletta, að sumarið 1991 er eitt
albesta sumar þessarar 20. aldar
frá fæðingu vors herra. Lang-
minnugir nefna helst sumarið
1939 til samjöfnunar. Það er
sumarið þegar Hitler réðst inn í
Pólland og seinni heimsstyrjöldin
hófst formlega. Látum oss vona,
að sagan endurtaki sig ekki.
Eftir kuldakastið, sem gerði
fyrripart júní kom sumarið fyrir
alvöru og hélst ágætt allt hvað
eftir var. Það var sérlega sólríkt
og hlýtt, aldrei óþægilega hvasst
og aldrei mikil rigning. Helst
mætti finna því það til foráttu, að
það hafi verið einum of þurrt fyr-
ir gróður jarðar.
í miðsveitinni í Svarfaðardal
var mánaðarúrkoman í júní 11
mm, í júlí 21 mm og í ágúst 14
ntm. Þetta er allt langt undir því,
sem venjulegt er, því meðaltöl
þessara mánaða hér eru ca. 30,
35 og 40 mm. September er ekki
allur. en horfur eru á, að hann
verði þurr meira en í meðallagi.
Heyskapur hófst með fyrsta
móti og spratt vel þrátt fyrir litla
vætu. Honum lauk líka fyrr en
nokkru sinni áður, en þar kemur
líka til ný heyskapartækni sem
kennd er við rúllubagga.
Kartöfluuppskera hér á
norðurslóð varð líka góð. Sömu-
leiðis vöxtur trjáa, sem líklega
hefur orðið meiri á þessu sumri
en dæmi eru um áður.
Hér skal því við bætt, að ein-
mitt þessi dagur mun henta
mjög illa vegna hrossasmöl-
unar, en sláturhússtjóri, Óli
Valdemarsson, leyfir að hafa það
eftir sér, að þeir menn skuli hafa
samband við sig og muni hann þá
geta hliðrað til og fund ið þeint
hentugri dag.
Líklega eru svarfdælskir
bændur ekki búnir að sætta sig að
fullu við missi sláturhússins á
Dalvík. Hinsvegar eru Dalvík-
ingar elskusáttir á að hafa losnað
við sláturumstangið úr miðbæn-
um. Og nú eru komnar stéttar og
Á Heljardalsheiði, séð niður Svarfaðardal. í forgrunni veðursorfinn símastaur frá 1906.
Ljósm. Z.J.
Berin blá
Seint í júní, þegar þegar síðasta
blað Norðurslóðar kom út, voru
þessi spámannlegu orð rituð í
grein um ástand og horfur:
„Og nú er gott að geta sagt frá
því, að aðalberjalyngið er alsett
blómum, a. m. k. víða og sér-
staklega upp í hlíðum. Þar sem
blóm er þar er von um ber, og nú
fer uppskeran auðvitað alveg eft-
ir því, hvað hlýtt verður og sól-
ríkt sumarið, sem í hönd fer, og
hve seint eða snemma fyrstu næt-
urfrostin koma. Það skiptir
sköpum“.
Sumarið varð sólríkt og hlýtt
og skaðleg næturfrost komu með
seinna móti. Og eins og spáð var:
Berjaspretta varð ágæt. Hún
varð reyndar svo stórágæt, að
hún hefur líklega slegið út sumar-
ið í fyrra, sumarið 1990, sem að
sínu leyti var metberjasumar.
Að Iifa af
gæðum jarðar
Og þetta hafa menn kunnað að
metaog notfæra sér. Hálfþjóðin,
sá helmingur, sem ekki hefur ver-
ið úti í sólarlöndum, hefur legið í
berjamó um allar helgar síðan í
miðjum ágúst og sópað saman
berjum, krækiberjum, bláberj-
um, aðalberjum bláum og
svörtum. Það verður mikið til af
safti og sultum í kæligeymslum
íslenskra húsfreyja undir kom-
andi vetur. Góð búbót það - og
kostar ekki gjaldeyri.
Nú eru menn líka í vaxandi
mæli að komast upp á að nýta sér
eina guðsgjöfina til, sveppi. Það
er alveg ótrúlega mikið til af mat-
sveppum hér um slóðir og hefur
farið vaxandi með minnkandi
sauðfjárbeit og aukningu skóg-
ræktar. Það eru fyrst og fremst
stóru hattsveppirnir, birkisvepp-
ur eða kúalubbi í birki og hrís-
kjarri og svo lerkisveppurinn
ágæti, sem fylgir lerkinu og hjálp-
ar því til að vaxa og dafna.
Ög fólk er til hér um slóðir,
sem tínir sér ilmjurtir til tegerðar
og bragðbætis við matargerð,
blóðberg, vallhumal, rjúpnalauf
o. m. fl. fyrir utan fjallagrös, sem
allir ættu að kynnast.
Slátrun hafín
Slátrun sauðfjár er hafin á Akur-
eyri. Þangað eiga svarfdælskir
bændur að senda sláturfé sitt, svo
margt sem það nú er. Slátrunar-
dagur Svarfdælinga hefur verið
ákveðinn föstudagurinn 4.
október. Fjöldi slátraðra dilka
verður í kringum 540.
blómabeð úti fyrir gamla Slátur-
húsin u þar sem áður var óhrjáleg
mölin, en innifyrir fer fram fram-
leiðsla hágæðavöru til útflutnings
úr ríki sjávar.
Stóðrétt
5. október
Fjallskilastjóri, Jón á Hæri-
ngsstðum, hefur tjáð blaða-
manni, að ákveðið sé, að
hrossasmölun í sveitinni fari
fram föstudaginn 4. októ-
ber. Afréttarhross verða
rekin í Tungurétt kl. 11,30 -
klukkan hálf tólf, laugar-
daginn 5. október.