Norðurslóð - 20.11.1991, Page 3
NORÐURSLÓÐ - 3
Prátt fyrir aö aðstæður skán-
uðu verulega við endurbyggingu
norðurgarðsins voru þær hvergi
nærri nógu góðar til að mæta
auknum umsvifum. Garðurinn
var mjór og rými fyrir gáma mjög
takmarkað. Þess vegna hefur ver-
ið gerður nýr vanargarður og
uppfylling sem skapar rúmgott
athafnasvæði fyrir vöruaf-
greiðslu. Þar hefur Eimskip þeg-
ar fengið úthlutað lóð til að
byggja hús á og hafa sitt athafna-
svæði. Útibú kaupfélagsins hefur
á hendi afgreiðslu Samskipa,
ásamt Ríkisskipa og ferjuna Sæ-
fara. Afgreiðslan er til húsa í
gömlu bræðslunni sent hefur ver-
ið innréttuð að nýju miðað við þá
starfsemi. Þar er kæligeymsla til
að safna í saltfiski meðal annars.
Tafla II. sýnir vörumagnið sem
skipað er upp úr skipum hér í
höfninni og einnig skipað um
borð. Þegar skoðað er breytingin
frá 1985 til ársins 1990 kemur vel
í ljós það sem hefur verið að
gerast. Árið 1985 fór um höfnina
samanlagt inn og útflutningur
13.6 18 tn en árið 1990 32.261 tn.
Aukningin hvorki meira né
minna en 137%. Ef nánar er rýnt
í tölurnar sést að innflutningur á
saltfiski og freðfiski hefur aukist
ntikið og útflutningur á salti
sömuleiðis. Þetta kann að hljóma
skringilega en svona er það nú sa
mt. Þetta sýnir betur en annað að
Dalvíkurhöfn er orðin umskipun-
arhöfn. Saltfiskur kemur frá ýms-
um nágrannahöfnum og fer hér
síðan í skip til útflutnings. Salt-
inu er hins vegar skipað hér upp
til dreifingar á ýmsa staði hér í
nágrenninu. Þegar saltið er senl
með skipurn á þessa staði telst
það útflutningur.
Á síðasta ári var unnið að gerð
deiliskipulags hafnasvæðisins.
Síðast var gert skipulag að svæð-
inu árið 1979 í framhaldi af líkan-
tilraunum sem gerðar voru til að
átta sig á staðsetningu ytri mann-
virkja. Hugmyndir af skipulagi
nú bera þess merki að vöruflutn-
ingar eru sívaxandi hér í höfn-
inni. Hér í blaðinu eru sýndar
síðustu hugmyndir að skipulagi.
Það eru ekki stórvægilegar breyt-
ingar frá skipulaginu 1979 en
mun nákvæmari útfærsla á
athafnasvæðinu viö norðurgarð-
inn.
Þótt meira sé nú hugsaö um
höfnina sem vöruhöfn en áður
gegnir hún áfram stóru hlutverki
sem fiskihöfn.
Á töflu III. sést að landaður
afli hefur lítið breyst á tímabilinu
1982 til 1990. Það er hins vegar til
umhugsunar hvernig ntál munu
þróst varðandi sölu afla. Flest
bendir tii að fiskmarkaðir muni
gcgna stærra hlutverki í sölu afla
en nú er. Það er að minnsta kosti
Ijóst að nauðsynlegt er að treysta
í sessi fiskmarkaði út á landi.
Markaðarnir á suövesturhorn-
inu eru orðnir nokkuð traustir í
sessi en þeir viröast eiga erfiðara
uppdráttar út um land. Fiskmiðl-
un Norðurlands hefur rekið
markað hér nú i rúmt ár. Magnið
sent þar er selt hefur ekki verið
nægjanlegt til að hægt sé að tala
unt að þessi starfsemi sé traust í
scssi. Það verður samt að vona að
umsvifin aukist og þróist hér. Það
gildir um löndun og miðlun fisks
að Dalvík liggur landfræðilega
vel við sama hátt og með vöru-
flutningana.
Ef fiskmarkaður næst vel upp
hér getur það skapað mörg störf í
ýmiskonar þjónustu sem honum
ntun tengjast. ísstöðin sem hér
tók til starfa á árinu er cinmitt
gott fyrirtæki sem Itiðað getur að
skip sent þá um leið þyrftu á ann-
ari þjónustu að halda. Auk þess
sem þjónusta mcð ís er nauösyn-
leg ef fiskmarkaður eflist. Á
skipulaginu sem hugmynd er af
nú er gert ráð fyrir að í framtíð-
inni verði löndunarkantur út í(
höfninni fram ;if ísstöðinni og þar
til suðurs. Það skýrir vafalaust
staösetningu Isstöðvarinnar fyrir
mörgurn.
Auknin umsvif við höfnina
liafa fjölgað störfum við þjónustu
sem þessu tengist. í ársbyrjun
1986 voru við afgreiðslu hjá
skipafélögunum tveir ntenn í
hlutastarfi. Mælt í stöðugildum
hefur þetta ekki vcrið eitt starf
samanlagt. Nú eru hjá afgreiðslunt
skipafélaganna starfandi 5-8
manns eftir árstíma. Gera má ráð
fyrir að slíkum störfum fjölgi á
næstunni t.d. þegar geymslu-
húsnæði stækkar og untskipun
verður auðveldari t.d. hvað varð-
ar saltfisk. J.A.
Tafla 2 - Útfluttar vörur (í tonnum)
1982 1983 1984 1985 1986 1987 1988 1989 1990
Sattfiskur 3.030 2.867 2.767 3.156 4.412 4.885 4.901 3.580 4.024
Freðfiskur 1.560 1.837 1.765 1.990 1.197 1.529 1.639 2.840 3.205
Skreið 950 1.187 72 15 1.056 432 824 1.124 1.045
Síld og hrogn 352 254 58 81 170 35 99 146 239
Frosin rœkja 259 443 451 503 524 916
Fiskur til Hríseyjar 335 203 109 240 388 360
Fiskur í gámum 520 675 1.390 1.498 1.281
Salt 85 138 123 144 44 1.849
Annaö 351 112 157 140 1.830 4.902 3.422 2.069 2.341
Samtals 6.243 6.257 4.819 6.062 9.969 13.142 13.164 12.215 15.228
Innfluttar vörur 1982 1983 1984 1985 1986 1987 1988 1989 1990
Áburöur 1.238 1.117 850 739 811 719 815 544 686
Olía 4.689 4.556 3.472 3.145 4.379 4.108 6.050 5.975 7.176
Salt 2.521 3.142 1.410 2.628 3.641 3.290 3.530 2.920 5.304
Fiskur frá Hrísey 44 58 60 69 81 370
Fiskbein 494 824 895 1.025 1.099 1.074 554 206
Saltfiskur 280 184 347 317 866
Skreiö 24 26 55 81 113
Freöfiskur 14 232 639 533
Frosin rœkja 248 943
Annaö 286 25 238 105 595 1.701 1.676 2.934 2.981
Samtals 9.120 8.735 6.794 7.556 10.814 11.202 13.850 14.294 17.033
Tafla 3 - Afla landað úr fiskiskipum (tonn) 1982 1983 1984 1985 1986 1987 1988 1989 1990
Bolfiskur 12.900 10.379 8.992 9.903 10.580 11.035 12.670 14.544 12.850
Rækja 193 1.074 1.348 2.141 1.584 1.310 825 2.016
Annaö 359 61 38 63 32 35
Samtals 13.259 10.633 10.105 11.315 12.753 12.654 13.980 15.369 14.866
Blindur er bóklaus maður
- framhald af forsíðu
sólgið í ævisögur og aðrar þjóleg-
ar bókmenntir. Ekki sorprit?
Nei, hér fást engin sorprit. En
hvað um aðstöðuna hérna, er
hún bærileg?
„Hún er alveg ágæt“, segja þær
stallsystur nálega einum rómi,
“þetta er alveg ágætis húsnæði þó
að það sé gluggalaust. Það fylgir
því einn kostur. Á sumrin þegar
er gott veður, sólskin og blíða, þá
vitum við ekkert um það. Þar af
leiðandi langar okkur ekkert út.
Og á veturna, þegar stórhríð er
úti þá vitum við heldur ekkert af
því og kvíðum þá ekki heimferð-
inni“.
Svoleiðis er það nú líka í svart-
holunum, þar eru engar árstíðir,
segir blaðamaður, og ekki hef ég
heyrt, að það þyki svo eftirsókn-
arverður dvalarstaður. Nei, þú
færð nú ekki heldur bakarístertur
og jólakökur með, kaffinu upp á
hvern dag, eins og þú færð hérna.
Satt er það, þar er víst ekkert að
fá nema þurrt rúgbrauð með
vatni.
Og að lokunt aftur yfir í
alvöruna. Hvaða bók telja bóka-
verðirnir merkasta þeirra, sem
safnið á?
Þetta var óþægileg spurning,
en samt nefna þær gamla, gráa
skruddu, Landnámabók, prent-
aða í Skálholti 1688. Hún hefur
þá verið prentuð í prentverkinu,
sem meistari Brynjólfur fékk frá
kollega sínum á Hólum forðum
tíð.
Héraðsskjalasafnið
Ragnheiður býður blaðamanni
að líta inn í stofur skjalasafnsins.
Þar eru bækur og blöð í hillum og
kössunt eins og vera ber á slíkri
stofnun.
Forsaga safnsins?
Safnið varð eiginlega til upp úr
allri þeirri gagnasöfnun, sem
fram fór í kringum samningu
Dalvíkursögu hér á árunum.
Fólk lánaði svo mikið af rituðum
gögnum og myndum, sent ekki
var ætlast til að væri skilað aftur
Ef þær væru geyntdar hér heima
á góðum stað.
Svo var stofnað héraðsskjala-
safn lögum samkvæmt árið 1980
með ráðherraleyfi og reglugerð
samin og staðfest. Safnið heitir
Héraðsskjalasafn Svarfdæla og er
sameign sveitarfélaganna tveggja
í Svarfaðardalshreppi hinum
forna. I 5 manna stjórn þess sitja
2 fullltrúar úr dalnum en 3 frá
Dalvík.
Safnið fékk allient frá Héraðs-
skjalasafninu á Akureyri öll
gögn, sem varöa Svarfaðardals-
hrepp hinn forna sérstaklega. svo
sent hreppstjórabækur allt aftan
frá 18. öld, allar eldri gerðabæk-
ur hreppsnefndar, gerðabækur
ýmiskonar félaga o.fl. o.fl.
Er hægt að segja í tölum hvað
mikið er hér af slíkum gögnum?
Það er nú dálitið crfitt, en þó er
hægt að segja, að hér eru dag-
bækur 38 félaga, sem hér hafa
verið við lýði lengri eöa skemmri
tíma, allt frá nautgriparæktarfé-
lagi og upp í leikfélag. (já eða
kannske öfugt, hugsar blaðamað-
ur).
Hvað mundi nú mega telja
merkasta plaggið í þessu safni?
Safnvörðurinn segir, að það sé
erfitt um að segja. Merkasta
skjalið? Ja það ntá nefna hand-
skrifað blað, sem gekk um sveit-
ina á öldinni sem leið. Það hét
SVARFAÐUR, og það má
nefna dagbækur Gís|a í Gröf og
dagbækur Jóhanns á Hvarfi, svo
dæmi séu nefnd, um ómetanlegar
heimildir unt mannlífið í hérað-
inu á öldinni sem lcið.
Ljósmyndasafn
Svo erum við hér með ágætis ljós-
myndasafn, sem keypt var af Jón-
asi Hallgrímssyni. Hann hefur
verið voðalega iðinn við að gefa
safninu nýjar myndir. Manna-
ntyndir eru orðnar um 2500 og
aðrar myndir af stöðum og
aðstæðum og atburðum og ýmsu
úr atvinnulífi til sjós og lands eru
líka fjölmargar, svo alls eru í
safninu nú á 5. þúsund myndir.
Hvað um notkun safnsins? Það
er nú ósköp lítið notað hvers-
dagslega. Það er þó helst að fólk
konti ef það er að grúska eitthvað
í ættum og þessháttar.
Það var svoscnt ekki við öðru
að búast. Hlutverk skjalasafna er
að geyma og varðveita heimildir
þangað til sá dagur rennur upp,
að einhver grúskari eða sagn-
fræðingur knýr dyra og leitar
svara við þessurn spurningum:
Hver, hvað, hvenær, hvernig,
hversvegna???
Norðurslóð þakkar bókavörð-
unum kærlega fyrir greinagóðar
upplýsingar, góða viðkynningu
og gott kaffi og óskar Dalvíking-
unt og öllunt Svarfdælum til ham-
ingju með þessa friðsælu mennin-
garvin, scm þeir eiga þarna í
kiallara Ráðhússins.
H.E.Þ.
Pú færð allan babpír a einum stað
Strandgötu 3 I • Akureyri • ■s- 24222 & 241 66