Norðurslóð - 20.11.1991, Page 4
4 - NORÐURSLÓÐ
Svarfdælabúð
Dalvík
Dalvíkingar, nærsveitungar!
Allar bökunarvörur á
tilboði.
Til dæmis:
Var NÚ
Kornax hveiti 68,-
Strásykur 102,-
Bökunarsmjörlíki 97,-
Erum að taka upp
jólavörurnar!
Kjötborðið verður
yfirfullt að vanda
Umhverfismál
Margnota bleyjur
á Dalvík
Eitt stærsta umhverfisvandam-
ál sem mannkynið stendur
frammi fyrir er hið óendanlega
flæði af sorpi ýmiskonar sem
neysluvenjur nútímans hafa
ieitt af sér.
Á íslandi glímir hvert einasta
sveitarfélag við spurninguna um
livað gera eigi við allt ruslið sem
til fellur og við því er brugðist
með ýmsu móti þó í fæstum til-
fellum sé lausnin fullnægjandi.
Bent hefur verið á að stærstur
hluti sorpsins séu umbúðir ýmis-
konar sem tiltölulega auðvelt sé
að endurnýta og einnota varning-
ur sem skipta mætti út fyrir marg-
nota vörur. Einnota bleyjur eru
afar fyrirferðarmikið rusl sem
brotnar nijög hægt niður í nátt
úrunni. Sé miðað við það að barn
noti alfarið bréfbleyjur í 2]A ár
sem er mjög algengt, hefur frá
þessu eina barni komið l Vi tonn
af rusli sem tekur 500 ár að eyð-
ast í náttúrunni.
Pó að vísu sé mjög dýrt að
nota alfarið pappírsbleyjur,
kjósa samt margri foreldrar held-
ur þau óumdeilanlegu þægindi
sem þær hafa fram yfir gömlu
góðu taubleyjurnar.
En nú eru komnar á markað-
inn margnota bleyjur sem sam-
eina umhverfisverndar -og sparn-
aðarsjónarmið taubleyjanna og
þægindi pappírsbleyjanna. Og
það sent meira er: Hér á Dalvík
er starfrækt umboðsverslun fyrir
slíkar bleyjur. Fyrir þeirri starf-
semi stendur Elín Unnarsdóttir,
Goðabraut 21.
Elín gerði verðsamanburð á
bleyjunum sínum og meðal-
pappírsbleyjum úr Kaupfélaginu
á Dalvík og reiknaði með að barn
notaði 6 slíkar yfir sóarhringinn.
Niðurstaðan varð sú að yfir árið
kostuðu bréfbleyjurnar 49.275
kr. en úthaldið af margnotableyj-
um (20 b leyjur, 5 innlegg og 6
buxur) að viðbættum rafmagns-
kostnaði og þvottadufti yfir árið
kostaði 17.350 kr.
En fyrst og fremst sparast
ómæld landspjöll og jörðin verð-
ur byggilegri börnunum sem í
hlut eiga.
Ekki er þó öll sagan sögð enn.
Því nú er önnur kona á Dalvík að
fara af stað með framleiðslu á
margnota bleyjum. Sú heitir
Hugrún Marínósdóttir, Svarfað-
arbraut 14. Hún hefur nú þegar
saumað bleyjur mjög áþekkar
þeim innfluttu og ætlar nú eftir
áramótin alfarið að snúa sér að
saumaskap á margnota bleyjum.
Hj.Hj.
Félagsmanna-
afsláttur
18. nóvember - 7. desember
Kaupfélag Eyfirðinga veitir félagsmönnum 10% afslátt
af vörum úr Vöruhúsi KEA og sömuleiöis af ýmsum
vörum úr Raflagnadeild og 12% afslátt af vörum
úr Byggingavörudeild.
Afslátturinn miöast viö staögreiöslu og framvísun
félagsmannakortsins.
Nýir félagsmenn geta einnig notiö sömu kjara.
Ef þú vilt gerast félagsmaöur kemur þú á skrifstofur
okkar og færö félagsmannakort og þú getur
verslaö strax.
KAUPFELAG EYFIRÐINGA
DALVÍK
Frá
Dalvíkurbæ
Athygli er vakin á því að frestur til að
sækja um leyfi til búfjárhalds í
lögsagnarumdæmi Dalvíkur rennur út
1. desember næstkomandi.
Bæjarritari
Hundaeigendur
Dalvík
Árleg hundahreinsun fer fram við
Áhaldahús Dalvíkurbæjar
laugardaginn
23. nóvember kl. 11-12.
Hundarnir eiga að vera fastandi.
Héraðsdýralæknir.