Norðurslóð


Norðurslóð - 13.12.1991, Side 1

Norðurslóð - 13.12.1991, Side 1
■smm Úr Dœlisreit í fyrstu snjóum. Stóllinn í baksýn. Ljósmynd: Lcne Zachariassen. Lát mig heyra hljóm þinn, hvíta Ijóð. Huga mínum kveik þú nýja glóð. Svartir skuggar skima eftir bráð. Skelfist barnið frostsins grimmdarráð. Lít í hönd mér litla kertið dautt, lít á vörum stirðnað málið snautt. Leys úr viðjum hjartans dýra hljóm. Himingeislum vek þú liðin blóm. Mannsins veika von í hreysi fœdd vafin móðurörmum, tötrum klœdd. Lífsins gull í lófa saklauss barns, Ijúfi sunnanþeyr í ríki hjarns. Snauða barnsins bjarta jólaljós, bleikrar elli skœrust hjartarós, himintónn í hljóði fátæks ranns, helgast Ijóð í brjósti dauðlegs manns! Kom þú! dagsins dýrð, í jarðarátt. Dreyp þú Ijósi á heljarmyrkrið grátt. Lát að nýju lýsa þjáðra von, líf og fögnuð. Mannins dýra son. Jakobína Sigurðardóttir. Messur um jólin: 22. desember Aðventustund á Dalbæ kl. 16.00. Kórsöngur, hljóðfæraleikur, helgistund við kertaljós. Ræðumaður sr. Pétur Þórarinsson. 24. desember Aftansöngur í Dalvíkurkirkju kl. 18.00. 25. desember Hátíðamessa í Tjarnarkirkju kl. 13.30. Stund fyrir börnin. Hátíðamessa í Vallakirkju kl. 16.00. Stund fyrir börnin. 26. desember Hátíðamessa í Dalvíkurkirkju kl. 14.00. Hátíðamessa á Dalbæ kl. 16.00. 29. desember Hátíðamessa í Urðakirkju kl. 14.00. Stund fyrir börnin. Dagbók jólanna 1. janúar 1992 Hátíðamessa í Dalvíkurkirkju kl. 17.00. Altarisganga. Aðrar samkomur: Jólatrésskemmtun barna verður í Pinghúsinu Grund laugardaginn 28. des kl. 14.00. Jólatrésskemmtun barna á Dalvík föstudaginn 27. des. kl. 17.00. Verslanir á Dalvík: Laugardaginn 21. desember opið 10-22. Mánudaginn 23. desember opið 9-23. Þriðjudaginn 24. desember opið 9-12. Föstudagur 27. desember opið 10-19. Laugard. og sunnud. 28. og 29. opin lúga 11.00-12.30 og 13.30-16.00. Mánudag 30. desember 9-18. Gamlársd. 31. desember 9-12. Verslunin Kotra: Laugardaginn 21. des. opið 10-18. Á Þorláksmessu 23. des. opið 10-22. Aðra daga eins og venjulega. Blómabúðin llex. Fimmtudagur 19. des. opið 10-20. Föstudagur 20. des. opið 10-22. Laugardagur 21.des. opið 10-22. Sunnudagur 22. des. opið 10-18. Mánudagur 23. des. opið 10-24. Þriðjudagur 24. des. opið 9-12. Föstudagur 27. des. opið 10-18. Laugardagur 28. des. opið 13-16. Mánudagur 30. des. opið 10-18. Gamlársdag 31. des. opið 9-12.

x

Norðurslóð

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðurslóð
https://timarit.is/publication/1253

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.