Norðurslóð


Norðurslóð - 13.12.1991, Qupperneq 11

Norðurslóð - 13.12.1991, Qupperneq 11
NORÐURSLÓÐ -11 bangsa. En þegar björninn stóð kyrr í dyrunum og járnin gerðust hvít af hita, greip Jóhann þau af aflinum, gekk hægum skrefum fram til smiðjudyra og hafði járh- in fyrir sér í augnhæð dýrsins, svo sem hann mundi bera þau að augum þess. Bjarndýrinu leist ekki á járnin og hörfaði úr dyrun- um fram á bæjarhlaðið og fylgdi Jóhann hægt og stillt á eftir og bægði dýrinu þannig að honum rýmkaðist svigrúm til bæjardyra og þegar hann hugðist ná þeim á hlið við bjarndýrið, tók hann að hörfa hægt og sígandi til þeirra. Dýrið virtist lostið furðu eða ótta og fylgdi honum ekki eftir, en jafnskjótt og Jóhann náði bæjar- dyrunum, snaraðist hann inn og læsti rammlega á eftir sér. Hélt hann síðan til baðstofu og spurði fyrstra orða, hvort ekki væru allir inni, þegar því var játað sagði hann frá dýrinu og fyrirbauð öll- um að ganga út úr bæ, fyrr en lýsti af degi, því að fullrar birtu mundi þurfa að njóta í viðureign við vágest þennan, ef soltinn væri, sem líklegt mætti þykja, þótt sig hefði undan borið. Fýsti engan að brjóta þetta boð bónda.“ Dag- inn eftir, þegar að var gáð, var dýrið horfið frá Skarði en slóð þess lá að Laufási, þar sem bælið, sem áður var getið um, fannst. Frá Laufási lá slóðin síðan niður til strandar og út á hafísinn, sem þá var á firðinum, og er sá björn úr sögunni. Risi felidur En „nýir“ birnir bætast við. „Norðanfari“ segir að 29. mars 1881 hafi Tryggvi Jónasson skip- stjóri á Látrum, ysta bæ á Látra- strönd skotið hvítabjörn úr snjó- byrgi og séð annan en ekki kom- ist í skotfæri við hann. í ævi- minningum Sæmundar frá Látr- um „Virkir dagar“ sem Guð- mundur Hagalín skrásetti er sagt frá þessum atburði. Peir Látra- menn veiddu hákarl upp um vakir,sem þeir brutu á ísinn og veiddu vel, en á „meðan hákarla- skrokkarnir lágu á ísnum fór að verða gestkvæmt við þá á nótt- unni. Sáu Látramenn stór spor í snjónum, og talsvert hafði verið étið af sumum stykkjunum. Hafði ekki verið rifið með tönnum, heldur sleikt með tungu, eins og þegar köttur sleik- ir kjöt utan af beinum. Var eins og sorfið hefði verið innan úr stykkjunum með grógerðri þjöl. Og þó að stykkin væru yfirleitt harðfrosin að kvöldi, þá voru þau marþíð að morgni, þau sem gest- irnir lögðu sér til munns. Var því auðséð að gestirnir voru heit- fengir. Sáu nú Látramenn á kvöldin þegar þeir voru að fara í land, að ekki færri en 12 bjarndýr þokuðu sér inná ísinn í áttina til hákarlskasanna. Voru sum mjallhvít, en önnur eins og grá- leit með rauðleita vanga. Voru þau hvítu mikið minni en hin og fóru miklum mun ógætilegar, nálguðust ætíð fyrr og fljótar en hin stóru dýrin.“ Ekki var þess að vænta að hinir harðduglegu sjósóknarar á Látr- um sættu sig við þetta ástand. Þeir slógu sér kúlur úr járnbolt- um og hlóðu snjóhús með skot- raufum á í 10-15 faðma fjarlægð frá hákarlakösunum. Þeir voru jafnan allmargir saman en eitt kvöldið varð Tryggvi eftir við annan mann í snjóhúsinu og höfðu þeir hjá sér byssur hlaðnar járnkúlum, hákarlaskálmar og drepi. Grípum nú aftur niður í lýsingu Hagalíns. „Sáu þeir, sem í land fóru, að dýrin þokuðust inn eftir, en fóru nú mjög hægt yfir og varlega. Einkum voru stóru dýrin varkár. Var svo að sjá, sem þau hefðu athugað, að færri fóru í land en farið höfðu út á ísinn. Þeir Tryggvi biðu í snjó- húsinu, og sáu lengi vel ekkert til dýranna. Loks voru þeir orðnir úrkula vonar um að þeim gæfist tækifæri á að senda þeim járnkúl- urnar... en kl. um 11 um kvöldið urðu þeir þess varir, að kvikt var orðið við hákarlinn. Sá Tryggvi að við þann hákarlaskrokkinn, sem næstur honum var, stóð fer- líki mikið. Miðaði hann nú vand- lega. Þar sem svo var dimmt, að hann treysti sér ekki til að hitta heilann, miðaði hann á dýrið aft- an við bóginn. Svo hleypti hann af. Bangsi rak upp öskur snar- snéri sér við og tók undir sig stökk á áttina að snjóhúsinu. Síð- an stökk hann annað stökkið - og loks hið þriðja. Sáu þeir félagar í snjóhúsinu, að blóðbunan stóð út úr honum báðum megin. Og þeg- ar hann kom niður í þriðja sinn, stakkst hann áfram og valt út af dauður. Hin dýrin höfðu þotið af stað, strax og skotið reið af og sáust þau ekki síðar við hákarls- skrokkana." Þetta dýr var síðan flegið og feldurinn seldur, en enginn þorði að smakka á kjöt- inu. Eftir þennan mikla frost- og hafísvetur fer árferði batnandi, þó verður hvítabjarna vart flest árin sem eftir eru af öldinni. Ekki heimsækja þeir þó Eyjafjörð svo að sögur fari af. Sama má segja frostveturinn mikla 1917-1918. Þá sáust hér á landi á annan tug hvítabjarna og voru mörg dýr drepin t.d. í Fljótum, á Skaga- strönd, á Sléttu og á Langanesi. Ég þekki engar sögur af því að hvítabirnir hafi svo mikið sem sést á Eyjafirði þennan vetur. Birnir á þessari öld Það er ekki fyrr en árið 1964 að talað er um, að björn sé e.t.v. kominn inn á fjörðinn. Um miðj- an maí sáu menn eitthvert furðu- dýr úti fyrir Svínárnesi á Látra- strönd og 23. maí var það komið inn á Akureyrarpoll. „Ókennileg sækind á Akureyrarpolli“ var fyrirsögn myndskreyttar greinar á baksíðu Morgunblaðsins, þriðjudaginn 26. maí 1964. í fréttinni segir síðan. „Skömmu fyrir hádegi sl. laugardag sáu margir menn, sem staddir voru á Oddeyrartanga, undarlegt sjáv- ardýr synda fram undan tangan- um og leggja leið sína inn á Akureyrarpoll. Ekki ber lýsing- um saman í öllum atriðum en um það ber öllum sjónarvottum þó saman að dýrið hafi verið hvítt, gljálaust á skrokkinn og senni- lega loðið og enginn blástur hafi frá því sést.“ Sumir töldu þarna hvítabjörn á ferð, aðrir mjaldur og hugmyndir um sjóskrímsli urðu ásæknari. En þetta dýr hvarf fljótlega og vangavelturnar um það hættu. Líklegast verður að teljast út frá lýsingum að þarna hafi farið fulltrúi hins hvíta hvalkyns mjaldranna. Þá er ógetið hvítabjarnar sem Akureyrartogarinn Kaldbakur fékk í vörpuna, þegar hann var á veiðum í Þverálsbotninum, í janúar 1981. Skipverjar uppgötv- uðu þessa sérstæðu veiði ekki fyrr en hún var komin niður á aðgerðarrými togarans og varð mörgum þó eðlilega hverft við. Komið var með skrokkinn til Akureyrar, en hann reyndist svo illa farinn að ekki var unnt að nýta hann til neins. Og þá eru einungis eftir þeir birnir, sem hafa ratað eftir líf sitt hér í heimi, heim til Steingríms Þorsteinssonar á Vegamótum á Dalvík. Steingrímur setti upp dýrið sem skipverjar á Arnari frá Ólafsfirði skutu á Grímseyjar- sundi í júní 1975. Það er nú til sýnis í Grunnskóla Ólafsfjarðar. Éinnig setti Steingrímur upp húninn sem skotinn var í Haga- nesvíkinni í febrúar 1988 og nú er í Varmahlíðarskóla í Skagafirði. Og líkur hér frásögnum af hvíta- björnum sem slæðst hafa til Eyjafjarðar með einum eða öðr- um hætti. Nóvember 1991, Þórir Haraldsson. Frystihús KEA Dalvík sendir starfsfólki og viðskiptavinum bestu jóla- og nýárskveðjur og þakkar vel unnin störf á árinu. Gleðileg jólfarsœlt komandi ár. Laufabrauð Laufabrauð Svarfdælingar búsettir í Reykjavík! Nú fæst laufabrauð frá Víkurbakaríi í G. Ólafsson og Sandholt, Laugavegi 36. Pantanir í síma 13524 Einnig er hægt að panta í síma 96-61432 Víkurbakaríi Sendum hvert á land sem er!

x

Norðurslóð

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðurslóð
https://timarit.is/publication/1253

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.