Norðurslóð


Norðurslóð - 13.12.1991, Page 13

Norðurslóð - 13.12.1991, Page 13
NORÐURSLÓÐ - 13 ÁRMENN: DANSLEIKUR Svona litu aðgöngumiðarnir út hjá Ármönnum. Ármenn á grímudansleik 1965. Jóhann á trommum, Atli Rafn á gítar, Gunnar Jóns á saxafón, Heiðar Árnason söngur og Kári á píanó. Bak við Heiðar er Villi á Karlsá með saxafóninn. Af áhorfendum á bak við má þekkja m.a. Jonna á Sigurhæðum, Jóa og Hrönn, Júlla í Höfn og Þuríði í Arnarhóli. Sikk) og bað Villa „að spila meira á hornið þarna“. Yngri kynslóðin kunni þessu vel og lagaval hljóm- sveitarinnar breyttist með fjöl- breyttari möguleikum. Fyrsta lagið sem Villi spilaði á saxafónin var Red river rock, en vafalítið er Bona sera eftirminnilegasta lagið sem Villi söng og spilaði jafn- framt að hluta til á saxafóninn. Stundum klappað upp Um 1960 eru rafmagnsgítarar að ryðja sér til rúms. Jóhann Tryggvason í Þórshamri átti ágætan gítar og spilaði a.m.k. einu sinni á hann með Tónatríó- inu. Líklega er Never on Sunday fyrsta lagið sem spilað er á gítar í hljómsveit hér, en það gerði Jó- hann um 1960. Jóhann Daníels- son var einnig með gítar um tíma og söng með þeim og hætti þá hljómsveitin að vera eða heita tríó heldur var nafnið Tónar notað. Jóhann Dan notaði gítar- inn eins og bassa með því að slá á meðstu strengina. Minnistæðasta lagið á þessum tíma er án efa Nótt í Moskvu sem Jóhann Dan söng við mikinn fögnuð. Þegar söngur fór að þróast olli stundum erfiðleikum að textar voru illfá- anlegir. Ingólfur Jónsson samdi hins vegar söngtexta þegar mikið lá við svo slík vandræði háðu lítið starfi hljómsveitarinnar. Tónar störfuðu hér allt til ársins 1964. Undir það síðasta var Gunnar Friðriksson farinn að slá gítar með þeim. Enn urðu kynslóðaskipti í hljómsveitarbransanum. Á skólaskemmtun árið 1961 ákváðu nokkrir strákar á aldrinum 12 til 15 ára að rétt væri að stofna hljómsveit. Þá um veturinn voru þeir byrjaðir að spila á kvöldvök- um í skólanum. I fyrstu var þetta sextett og hlaut nafnið AA sext- ettinn (svona eins og KK sextett- inn). í hljómsveitinni voru Kári Gestsson á píanó, Atli Rafn Kristinsson og Friðrik Daníels- son á gítara, Gunnar Jónsson á saxafón, Jóhann Antonsson á trommur og Haukur Antonsson á harmonikku. Þó harmonikkan gegndi lykilhlutverki í fyrsta lag- inu sem hljómsveitin lék (Michael rode) datt hún fljótlega út. Á nokkrum kvöldvökum söng Gunnar Stefánsson með hljóm- sveitinni. Hljóðfærin voru nokk- uð frumstæð. Gítarleikararnir notuðust við útvarp heimanað frá sér sem magnara og trommur voru að hluta til heimasmíðaðar, þó var gamla bassatromman frá negrakvartettinum enn notuð. Mánar. Uppstillingin í anda The Shadows. Frá hægri: Kári Gestsson, Jó- hann Antonsson, Atli Rafn Kristinsson, Friörik Daníelsson og sitjandi fyrir miðju Gunnar Jónsson. Uppáskrifað af Kristjáni hreppstjóra Smátt og smátt eignuðust menn frambærileg hljóðfæri og hljóm- sveitin tók á sig blæ miðað við tíðarandann. The Shadows urðu fyrirmyndin til að byrja með. Þá varð ekkert pláss fyrir harmo- nikku eða píanó en saxafónninn hélt velli. Á fyrsta opinbera dans- leiknum sem hljómsveitin spilaði hafði hún hlotið nafnið Mánar. Hljóðfæraleikararnir voru þeir sömu og í upphafi nema Haukur var hættur og Kári farinn að spila á bassagítar meira en píanóið. Hljóðfæraleikararnir voru það ungir af árum að foreldrar þeirra þurftu að gefa skriflegt leyfi sem Kristján hreppstjóri skrifaði síð- an uppá svo þeir gætu verið á böllunum. Kári þurfti á slíkri undanþágu að halda allt til ársins 1965. Veturinn 1962-63 tók Guð- laugur Arason við trommunum en Jóhann byrjar aftur þá um vorið. Eftir að Tónar hættu á árinu 1964 kemur Villi á Karlsá til liðs við Mána en Friðrik hættir. Á þessum tíma var starfandi hljóm- sveit á Selfossi sem hét Mánar. Talsvert bar á þeirri hljómsveit og var talið ófært að hafa starf- andi tvær hljómsveitir með sama nafni. Því varð það úr að hljóm- sveitin hér tók upp nafnið Ár- menn í stað Mána. Enginn söngvari var með fyrr en Villi kemur til liðs. Síðar bætist Heið- ar Árnason í hópinn og söng með hljómsveitinni um tveggja ára skeið. Líklega minnast menn best tilþrifa Heiðars í laginu House of the rising sun. Kristján Kristjánsson frá Miökoti hefur stjórnað mörgum marsinum. Hér blæs hann úr nös í forstofunni í Ungó eftir aö hafa stjórnað marsi á grímuballinu 1965. Mannabreytingar - meiri söngur Hljómsveitin starfaði mest yfir sumarið og síðan um jól og ára- mót. Árin sem Ármenn spiluðu voru blómatími bítlatónlistar en hljóðfæraskipan og aðrar aðstæð- ur gerðu það að verkum að Bítl- arnir sjálfir voru aldrei fyrir- myndin. Síðast spiluðu Ármenn um jól og áramót 1969-1970. Þrír voru með í hljómsveitinni allan tímann. Vilhelm Guðmunds á saxafón.hljómborð og harmo- nikku, Kári Gestson á hljóm- borð, bassa og píanó og Jóhann Antonsson á trommur. Tveir saxafónar voru í upphafi á meðan Gunnar Jónsson var með. Var oft góður „svingur" þegar Villi og Gunni blésu báðir. Atli Kristinsson var á gítar allt til 1967. Aðrir sem voru í hljóm- sveitinni um skemmri eða lengri tíma voru Júlíus Jónasson, Páll Gestsson, Rúnar Rósmundsson sem spiluðu á gítar og Einar Arn- grímson á gítar og bassa. Um tíma sungu Sólveig Hjálmars- dóttir og Sigvaldi Júlíusson með Ármönnum. Eins og áður segir hættu Ár- menn 1970. Þá um vorið var stofnuð hljómsveitin Hugsjón. Þá kom Ingólfur Jónsson aftur til skjalanna. Hann spilaði á hljóm- borð. Á gítara voru Páll Gests- son og Rúnar Rósmundsson, Friðrik Halldórsson frá Melum var á bassa og á trommunum var Friðrik Friðriksson. Söngvari með Hugsjón var Sólveig Hjálm- arsdóttir. Ári seinna var hijóm- sveitin endurskipulögð og hlaut þá nafnið Safír. Friðrik, Páll og Rúnar héldu áfram og til viðbót- ar komu Einar Arn bassa og Hafliði hljómborð. rimsson lafsson Lögreglubíllinn málaður Safír starfaði í tvö ár og spilaði víða á Norðurlandi. Þeir keyptu gamlan lögreglubíl frá Ólafsfirði sem var skrautlejga málaður með nafni hljómsveitarinnar. Þetta er eini formlegi hljómsveitarbíllinn sem gerður hefur verið út frá Dalvík. Eftir að Safír hættir 1972 kem- ur nokkuð langt hlé þar til næsta hljómsveit kernur fram á sjónar- sviðið. Þar með er komið það nærri okkur í tíma nú að ekki er ástæða að rekja sögu hljómsveita frekar en orðið er. Hljómsveit- irnar sem hér hefur verið drepið á hafa að mestu starfað á Dalvík. f Svarfaðardal spiluðu á árunum milli 1960 og 1970 Haraldur Við löggæslu á grímuballi 1965. Baldvin Magnússon og Kristinn Jónsson í niiðasöluklefanum í Ungó. Spilað á áramótadansleik í Ungó 1967-68. Frá vinstri: Villi með nikkuna, Jóhann á trommum, Kári með bassa og Atli Rafn með gítarinn. Húsið var allt skreytt undir stjórn Davíðs Haraldssonar. Hljómsveitin Safír. Frá vinstri: Hafliði tílafsson, Páll Gestsson, Friðrik Friðriksson, Einar Arngrímsson og Rúnar Rósmundsson. Því miður er ekki til mynd af hljómsveitarbílnum. Hjaltason og Stefán Friðgeirsson á harmonikkur og Sigurður Marinósson á trommur en svo síðar tók Sölvi Hjaltason við trommunum af Sigga. Það er nú svo að ýmsir hafa spilað á harmo- nikku svo sem á jólatrésskemmt- unum. Það er hins vegar erfitt að tína til öll þau nöfn. Ekki er samt úr vegi að minnast á Stein Símon- arson sem þandi nikkuna á fjöl- mörgum slíkum samkomum. Við frágang á þessari grein hef- ur komið í ljós að myndir eru fáar til af hljómsveitum fyrri tíma. Til dæmis hefur reynst ógerlegt að finna mynd af Tóna- tríóinu. Mikill akkur er í að ná myndum og ef einhver á gamlar myndir af hljómsveitum mætti sá hinn sami gjarnan hafa samband við undirritaðan. Ef til vill gefst tækifæri til að skoða betur þá sögu sem hér hefur verið rakin og birta þá fleiri myndir.

x

Norðurslóð

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Norðurslóð
https://timarit.is/publication/1253

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.