Norðurslóð


Norðurslóð - 13.12.1991, Page 16

Norðurslóð - 13.12.1991, Page 16
16 - NORÐURSLÓÐ Bryndís Björnsdóttír: Hún Beggagamla Svipmynd úr Svarfaðardal Margir Svarfdælingar muna enn eftir Sigurbjörgu Rögnvaldsdótt- ur eða „Beggu gömlu“ eins og hún var jafnan kölluð. Hún var ein þeirra kynlegu kvista mannfélagsins sem nútímasamfélagið virðist hvergi hafa pláss fyrir nema á stofnunum og var einn síðasti full- trúi þess litskrúðuga þjóðfélagshóps sem kallaður hefur verið „flökkufólk“.Um Beggu gömlu og skringileg tilsvör hennar eru til ótal sögur sem enn lifa góðu lífi meðal fólks í dalnum. Hér á eftir birtist útdráttur úr ritgerð sem Bryndís Björnsdóttir frá Húsa- bakka (þroskaþjálfi og prestfrú á Ólafsfirði) tók saman um Beggu og skilaði sem lokaritgerð í íslensku við Menntaskólann á Akur- eyri 1983. Sigurbjörg Rögnvaldsdóttir á Vallahlaði. Uppruni og uppvöxtur Begga fæddist í Dæli í Skíðadal 4. janúar 1870. Hún var fædd utan hjónabands og var fyrsta legorðssök foreldra sinna, þeirra Sigurbjargar Sigurðardóttur og Rögnvaldar Jónassonar, sem bæði voru þá vinnuhjú í Dæli. Móðir hennar Sigurbjörg Sig- urðardóttir var fædd 7. desember á Hamri á Þelamörk. Hún var ekkja eftir Pál Gunnlaugsson þegar Begga fæddist og vann fyrir sér og syni sínum í vinnu- mennsku. Sigurbjörg giftist aftur 1876 Þorsteini Vigfússyni bónda á Sveinsstöðum í Skíðadal. Þau slitu samvistum um 1890 og höfðu þá eignast átta börn saman og alla tíð barist í bökkum. Eftir að Sigurbjörg skildi við mann sinn var hún í húsmennsku hér og þar í Eyjafirði, en dó árið 1922 á heimili dóttur sinnar í Glerárþorpi. Faðir Beggu, Rögnvaldur Jón- asson var fæddur á Völlum í Svarfaðardal 27. júlí 1845. Hann var vinnumaður í Dæli og á Syðri-Másstöðum en fór seinna til Skagafjarðar og var þar bóndi á Þröm. Uppvaxtarár Beggu voru hrakningasöm. Ekki gat hún dvalist með móður sinni nema endrum og sinnum. Þess á milli var hún send í fóstur hingað og þangað um byggðina. Eitthvað var hún í Skagafirði hjá föður sínum en tólf ára fór hún til Sig- ríðar Sigurðardóttur og Þorkels Þorsteinssonar á Syðri-Másstöð- um og seinna á Hofsá. Undir verndarvæng Sigríðar var hún í 9 ár og minntist hennar jafnan með hlýhug og kallaði hana fóstru sína. Á Völlum í Velli kom Begga fyrst árið 1909 og er þá skráð þar sem húskona í kirkjubókum, en í það skiptið dvaldi hún þar aðeins í þrjú ár. Næst kom hún í Velli árið 1927 og þá til lengri dvalar, því hún var heimilisföst þar í samfleytt 20 ár. Þáverandi presthjón á Völlum, séra Stefán Kristinsson og Sól- veig Pétursdóttir, tóku hana til sín úr Uppsalakoti, þar sem hún hafði verið hjá Önnu Jónsdóttur um nokkurt skeið. Hjá prest- hjónunum átti hún öruggt skjól. Á Völlum hafði Begga aðsetur sitt í gamla bænum, þar sem hún var alveg útaf fyrir sig. Inni hjá sér hafði hún bekk og á honum stóð olíueldavél, þar sem hún hitaði sér alltaf kaffi. Við einn vegginn stóð rúmið hennar og þilið þar fyrir ofan var þakið myndum af vinum og ætt- ingjum, sem henni höfðu verið gefnar. T d. voru þar myndir af Zophoníasi Þorkelssyni, syni Sig- ríðar á Hofsá og systkinum hans, en Zophonías reyndist Beggu mjög vel og sendi henni alltaf peninga fyrir jólin. Einnig voru innanum ýmsar fallegar myndir úr dagblöðum sem Begga hafði sjálf klippt út. í þessu húsi var hennar athvarf og heimili og þar dvaldi hún þeg- ar hún var heima. Hún eldaði þar ofan í sig og var sjálfri sér nóg um mat og annað, því á ferðum sín- um um sveitina var henni gefinn alls konar matur, svo sem tólg, smjör og kjöt. Og ef hún fór til Dalvíkur kom hún oft með fisk til baka sem henni var gefinn þar. Á Völlum tók Begga lítinn þátt í störfum innanhúss og fór aldrei í fjós. Hins vegar tók hún virkan þátt í heyskapnum og vildi jafnan vera ein við að raka. Á haustin vann hún svo við að hrauka sverðinum. Samtíða Beggu á Völlum var gamall maður að nafni Þorsteinn Hallgrímsson. Um hann var Beggu lítið gefið enda setti hann sig ekki úr færi að stríða henni í hvert sinn sem hann sá hana. Hann tók oft í hana þegar þau mættust í göngunum og mátti þá heyra bölvið og ragnið í Beggu. Margar sögur eru til af orða- skiptum þeim sem Beggu og Þor- steini fór á milli. Ein sagan er svohljóðandi: Eitt sinn mættust þau í bað- stofunni á Völlum og þar þvæld- ust þau smá stund hvort fyrir öðru og hvorugt vildi víkja. Þá sagði Begga: „Hvað ert þú að þvælast fyrir mér?“ Þorsteinn svaraði þá: „Ég fer mína leið og þú getur farið þína.“ Önnur saga af dvöl Beggu á Völlum segir frá því þegar hún var á leið niður í kjallarann á Völlum eftir að dimmt var orðið. Þar hékk þá skrokkur af nýslátruðum hrút. Begga rak sig í skrokkinn í myrkrinu og til hennar heyrðist upp þegar hún öskraði. „Á öllum andskotanum gengur, hefur nú drepist hrútsskrokkur?" Þegar séra Stefán lét af prest- skap á Völlum og hann og kona hans fluttust til Hríseyjar, vildi Begga ekki búa þar lengur, enda þótt henni stæði það til boða. Síðustu æviár Síðustu ár ævi sinnar dvaldi Begga á Tungufelli hjá Guð- manni Þorgrímssyni og Þóru Þor- valdsdóttur. Hún valdi sjálf þennan sama- stað þegar hún fór frá Völlum, líklega af því að henni þótti mjög vænt um börnin þar. Á Tungufelli bjó hún í óupp- hituðu herbergi og voru rúinfötin hennar oft rök þegar kaldast var í veðri. Síðustu æviárin var Begga oft mjög lasburða og slæm fyrir brjósti, og við þennan ömurlega aðbúnað dó þessi aldna förukona 23. júlí 1950. Eins snauð og hún kom í þennan heim. Hún hafði þó skilið eftir sig góðar minning- ar í hugum þeirra sem henni kynntust. En smám saman fækk- ar þeim er muna Beggu, þessa síðustu förukonu í svarfdælskri byggð og brátt hylur gleymskan spor hennar um dalinn. Flakkið Eitt af því sem einkenndi Beggu mest var flakkið og eirðarleysið. Flakkið var hennar líf og sál og hún varð mjög óróleg ef að hún komst ekki af bæ. Á þurrkatím- um þegar mikið var að gera í heyskapnum, skrapp hún eitt- hvað í heimsókn á kvöldin frekar en að sitja heima og hvíla sig, ef að það rigndi notaði hún tækifær- ið og skrapp af bæ. Begga fór alltaf í vissar árlegar ferðir. Á haustin fór hún til Akureyrar og þá gangandi og í bakaleiðinni kom hún við í Öxnadalnum. I þessari ferð heimsótti hún vini og kunningja og kom þá jafnan hlaðin gjöfum heim eða með burð eins og hún kallaði það. Eftir eina slíka ferð hafði Begga komið heim með alls konar varning og segir þegar hún er spurð frétta úr ferðinni. „Ja ekki eru allar ferðir til fjár.“ Til Hríseyjar fór Begga yfir- leitt eftir jólin og dvaldi þar hjá Áskeli Þorkelssyni (syni Sigríðar fóstru Beggu) fram á vor. Ein góð saga er til um Beggu sem flestir Svarfdælingar muna eftir. En hún er um það þegar Begga var að koma úr kaupstað- arferð einu sinni sem oftar og var eitthvað örg. Séra Stefán vildi reyna að blíðka hana og sagði: „Begga mín lofaðu mér nú að sjá hvað þú keyptir?“ Begga sýndi honum einhverja hluti sem hún hafði keypt og seg- ir að hún hafi líka keypt flónel. Prestur biður hana þá að lofa sér að sjá flónelið. En þá sagði Begga. „Ég held að þú vitir hvernig það lítur út það er eins og í brókinni frúarinnar." Persónan Begga var mjög sérkennileg per- sóna og á alian hátt öðruvísi en fólk er flest. Hún var ein af þess- um mörgum kynlegum kvistum sem skáru sig úr fjöldanum og fylgdu ekki hinu ákveðna lífs- munstri eins og hinir. Hún fór sínar eigin leiðir og einmitt þess vegna hefur hin sér- staka persóna hennar ekki fallið í gleymsku hjá sveitungum hennar er voru henni samtíða. Einhver samtíðarmaður Beggu sagði að skapgerð hennar væri rishá. Sennilega hefur hann átt við að það væri skammt öfganna á milli. Begga var glaðlynd og blíð og góð, en þegar henni fannst eitthvað vera gert á sinn hlut gat hún orðið mjög heiftrækin og orðljót. Hún var ákaflega trygglynd og vinur vina sinna og mundi alltaf eftir þeim sem voru henni góðir og gerðu henni gott. Hún batt vináttu við fáa og þeim sem ekki féllu henni í geð sneyddi hún hjá. Begga var einstaklega tilfinn- inganæm og viðkvæm og ef að henni var gefið eitthvað að borða sem henni fannst gott, runnu tár- in niður kinnar hennar af gleði og þakklæti. Þannig var hún blíður og góður vinur vina sinna, en við hina sem henni var ekki að skapi, var hún hvassyrt og ill viðskiptis. Flest börn hændust að Beggu, enda var hún sérstaklega barn- góð og til að gleðja börnin safn- aði hún marglitum efnispjötlum, til þess að færa þeim. En gjaf- mildi var einmitt einkenni Beggu, hún gaf allt aftur sem henni hafði verið gefið til þess að gleðja aðra, enda þótt hún hefði ekki úr miklu að spila. í útliti var Begga meðalmann- eskja á hæð. Hún var eilítið lotin í herðum. Andlit hennar var frernur ófrítt, augun voru sljó og nefið stórt. Begga hafði sérkennilegt göngulag, þannig að hún steig mjög út til beggja hliða, með sér- stæðri dinglandi eða dillandi hreyfingu. Begga var alltaf þrifaleg til fara, hún hafði unun af því að þvo sér og vera hrein. Fötin hennar voru aldrei rifin eða skítug og alltaf snyrtileg. Hún hafði mikið dálæti á litríkum og rósóttum fötum og í heyskapnum vildi hún helst alltaf vera ljósklædd. Eini munaðurinn sem Begga veitti sér um dagana var að reykja pípu. Tróð hún jafnan vandlega í pípuna, og hafði oft litla taðflögu ofan á eftir að hún hafði kveikt í „stertinum“, senni- lega til þess að halda betur glóð- inni í tóbakinu. Begga hlaut litla uppfræðslu í uppvextinum og var fáfróð um margt. Ekki hafði verið lögð mik- il áhersla á að kenna henni meira en nauðsyn krafði og hún fékk mjög litla kennslu vegna lítils skilnings á því að hún þurfti ef til vill meiri örvun en mörg önnur börn. Begga hafði ekki litla greind og í dag hefði hún trúlega tilheyrt þeim hópi barna sem fá hjálparkennslu til að fylgja jafn- öldrum sínum eftir. En hún var barn síns tíma og hlaut að líða fyrir það að hún skar sig úr fjöld- anum vegna síns sérstæða per- sónuleika og umkómuleysis. Begga var vel læs og las oft sér til gamans, en hún átti erfitt með að lesa skrift og kunni sjálf ekki að skrifa. Hún lét þó ekki lélega skriftarkunnáttu aftra sér frá þvf að senda vinum sínum bréf. Heldur las hún bréfritaranum fyrir og voru bréfin frá henni mjög skemmtileg aflestrar. I þessum bréfum kemur hið sér- kennilega orðfar hennar mjög vel fram, vegna þess að hún vildi að engu væri breytt í orðalagi því sem hún las skrifaranum fyrir. Begga hafði bréfasamband við fóstursystkini sín frá Hofsá og Sæmundi Stefánssyni frá Völlum skrifaði hún einnig oft. Eitt aðal einkenni Beggu var hversu skemmtilega að orði hún komst oft á tíðum og hafa varð- veist sögur um þessa orðsnilli hennar á meðal Svarfdælinga. Það skal þá tekið fram að þær voru góðlátlegt grín, aðeins ætl- aðar til gamans, en ekki til að hæða Beggu á nokkurn hátt. Ein slík saga er um það þegar Beggu í sláturtíðinni var gefinn ósviðinn haus. Begga kemur með hausinn heim í Hof þar sem Arn- fríður húsfreyja Sigurhjartardótt- ir stendur við að svíða. Þá kallar Begga til hennar nokkru áður en hún kemur í hlað: „Æ elsku Fríða mín, taktu nú af mér haus- inn og svíddu hann.“ Önnur saga er um það þegar stúlka í Gullbringu eignaðist barn og tveir menn komu til

x

Norðurslóð

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Norðurslóð
https://timarit.is/publication/1253

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.