Norðurslóð


Norðurslóð - 13.12.1991, Side 22

Norðurslóð - 13.12.1991, Side 22
22 - NORÐURSLÓÐ /------------ Gömul þula Úr Skagafirði fékk blaðið sent efni til birtingar. Það eru þulur, sem sumar eru vel kunnar hér austan Tröllaskagans, aðrar síður. Sendandinn er Margrét Jónsdóttir á Sauðárkróki, ekkja Víglundar heitins Péturssonar. Hún hefur látið fljóta með þulunum vísu frá eigin brjósti, sem lýsir heilsuástandi henn- ar sjálfrar: Ein í horni oftast dvel allur þrotinn kraftur Er nú orðin, að ég tel, eins og fúinn raftur. Og hér kemur þulubrot: Heyrði ég í hamrinum hátt var látið, sárt var grátið. Búkonan dillaði börnunum öllum: Ingunni, Kingunni, Jórunni, Pórunni, Aðalvarði, Ormagarði, Eiríki og Sveini. Ekki heiti ég Eiríkur, þó ég sé það kallaður. Ég er sonur Sylgju, er bar mig undan bylgju. Bylgjan og bára, brutu mínar árar langt fram á sjó langt fram á rúmsjó. Kanntu að telja föðurfrændur þína? Já, kann ég það. Kambur Skæðingsson, Skæðingur Brandsson, Brandur Björgúlfsson, Björgúlfur Hringsson, Hringur Hreiðarsson, Hreiðar Garðarsson, Garðar Gunnarsson, Gunnar Refsson Refur Ráðfinnsson, Ráðfinnur Kolsson, Kolur Kjörvaldsson, Kjörvaldur Bjórsson, Bjór Brettingsson, Brettingur Hakason Haki Óðinsson, Óðinn hinn illi, allra trölla faðirinn. Sá var mestur maðurinn sem í helli bjó. Norðurslóð þakkar fyrir þuluna. NátttröDið og stúlkan Stúlka gætir barns á jólanótt; nátttröll kemur á gluggann og kveður: „Fögur þykir mér hönd þín, snör mín hin snarpa og dillidó." Stúlkan: „Hún hefur aldrei saur sópað, ári minn Kári, og korriró“. „Fagurt þykir mér auga þitt, snör mín hin snarpa og dillidó." „Aldrei hefur það illt séð, ári minn Kári, og korriró." „Fagur þykir mér fótur þinn, snör mín hin snarpa og dillidó." Aldrei hefur hann aur troðið ári minn Kári, og korriró." „Dagur er í austri, snör mín hin snarpa og dillidó.“ „Stattu og vertu að steini, en engum þó að meini, ári minn Kári og korriró." v__________________________________________________________/ /------------------------------------------------------------ Ræða Andrésar á Kvíabekk flutt við opnun hesthússins í Ytra-Holti sunnudaginn 8. des. 1991 Alla tíð hef eg talið mig vera hálfan Svarfdæling, og þar af leiðandi hálfdrætting að monti til á við heimamenn. Stundum hefi eg fundið örla á eyfirskri drýldni í sálartetrinu yfir þessum meðfæddu eiginleikum mínum. Það var um síðustu helgi, að eg lagði lykkju á leið mína um Svarfaðardal til að skoða þetta nýja samkunduhús hestamanna, sem nú hefur verið afrefað með öllu að því mér er sagt. Svo montinn var eg af þessu framtaki frænda minna, að þegar heim kom, tók eg að lesa mér til í ættfræði ef ske kynni, að ögn fleiri dropar af svarfdælsku blóðii rynni í æðum mér, og viti menn! það kom þá í ljós að eg er Svarf- dælingur af 3A og við þá vitneskju öðlaðist eg þriggja kvartela mont á við innfædda. Eg held að þótt Svarfdælingar séu framkvæmdaglaðir menn séu þeir einnig mjög íhaldssamir. T.d. hefi eg hvergi séð íslenskari réttardag en í Svarfaðardal. Einnig hafa þeir alla tíð haldið tryggð við hestinn, jafnvel meir en í öðrum byggðarlögum tíðk- aðist eftir innreið „jappanna" eins og hún amma mín kallaði þá. Eg minnist þess að rétt fyrir miðbik aldarinnar þegar Lág- heiðarvegurinn opnaðist, hvernig Ólafsfirðingar hrjáðust af eins konar blikkbeljuvíðáttubrjálæði. Já, það var um þær mundir sem allir hestar í Ólafsfirði urðu að óæðri verum og fengu nafnið Trunta. En þá sáu Svarfdælingar sér leik á borði og sóttu sér góð hross til Ólafsfjarðar og forðuðu þeim frá blóðvelli. Minnisstæð eru mér tvö hross sent fóru að Jarðbrú, leirljós hestur og brún hryssa. En það fór nú reyndar fleira frá Ólafsfirði til kynbóta að þeim bæ. Við þeir fáu, sem tryggð héldu við hestinn, litum upp til Svarf- dælinga, þar voru haldin hesta- mót og riðið út um helgar. Eg minnist þess frá fyrsta mót- inu, sem eg reið til í dalnum, hversu fagmannlegir riddarar þar voru, menn eins og Björn Gunn- laugsson, Tóti á Bakka, (þá á Böggvisstöðum), og Friðgeir Jóhannsson komu stráknum til að líta upp. Þegar eg lít yfir hópinn núna sýnist mér, að strákunum ólöstuðum, sem eru að vaxa upp úr grasinu í dalnum, að enn beri þessir menn af sem gull af eiri. Pað er bara svona langt ættliða- bilið hjá hestamönnum. Þegar hingað var komið skrif- finnsku minni leit Kella mín yfir öxl mér og mótmælti harðlega. Hún sagðist hafa lesið það í Þýskalandi, að allir Svarfdæling- ar væru af ætt Hreiðars heimska, og Bakkabræðra og þeir væru bara svona seinþroska, sem kæmi ættliða bilinu ekkert við. Já hún getur verið svolítið kvikindisleg hún Kella. Enda er hún ekki Svarfdælingur eins og við. Þegar eg lít yfir þessa veglegu byggingu, finnst mínu svarf- dælska monti, að við Ólafsfirð- ingar eigum nú líka sitthvað í þessu. Ólafsfirðingar hafa nefni- lega gert meira en að kynbæta á Jarðbrú. Þeir hafa einnig kynbætt á Bakka. Eg er svolítið stoltur af formanni ykkar hestamanna, honum Ingva frænda, eg veit að hann hefur verið ykkur betri en ekki neitt. Að lokum vil eg óska ykkur til lukku með þessa glæsilegu að- stöðu. Eg vona að eg eigi eftir að leika mér hér með ykkur um ókomna tíð og að hér megi sjá glæstustu hross landsins. MEGI HÉR RÍKJA GOTT MANNLÍF OG HESTA- HEILSA. Hver vill botna? Utí löndum íslendingar iðka söng og magasmellL A Holtsmóunum hestamenn hús sitt byggja á traustum grunni ■\ r Gleðilega hátíð! Með nýju ári hefst nýtt happdrættisár. Yið getum átt samleið og gleðilegt ár. Happdrætti Gleðileg jól heillaríkt happó ár HAPPDRÆTTI HÁSKÓLA ISLANDS vænlegast til vinnings

x

Norðurslóð

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðurslóð
https://timarit.is/publication/1253

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.