Norðurslóð - 13.12.1991, Side 23
NORÐURSLOÐ - 23
María Þorsteinsdóttir hefur aldrei verið
hrædd við að skera sig úr hópnum og ganga
grýtta veginn. Ævisaga hennar er saga
sorgardaga og gleðistunda, bjartra vona og
dimmra skugga; sagan af því hvernig ung
kona vex og þroskast í kreppu og stríði og
heitir því að vinna friði og bræðralagi
manna það gagn sem hún má; hvernig henni
tekst, þrátt fyrir þungar sorgir og mikinn
missi, að vera alltaf sönn og heil.
Örlögin hafa greitt Maríu þung högg. Þó
lætur hún aldrei bugast, missir aldrei
móðinn, svæfir sársaukann innra með sér,
en beinir öllum kröftum sínum í baráttu fyrir
þeim hugsjónum sem hún trúir á og telur
dýrmætastar: Friði, jöfnuði og réttlæti.
IÐUNN
Med sverðið
í annarri
hendl
og plóglnn
í hinni
Jónas frá Hriílu var dáður og
hataður, dýrkaður og dæmdur,
brautryðjandi og ailurhaldsmað-
ur, stór í sniðum og ógleyman-
legur öllum sem honum kynnt-
ust; maður sem markaði dýpri spor í sögu þjóðar
sinnar en flestir samtíðarmenn.
Hér rekur Guðjón Friðriksson mótunarsögu
Jónasar á lifandi og gagmýninn hátt, segir frá
þroskaárum Jónasar, áhrifavöldum í lífi hans og
afskiptum hans af stjórnmálum og þjóðmálum á
umbrotatímum og sýnir hvernig Jónas þjálfaðist
í þeirri list að stýra samherjum og andstæðing-
um á taílborði mannlífsins. Bókin varpar leiftr-
andi ljósi á líf Jónasar frá Hriflu, hæflleika hans
og bresti. Hér er dregin upp sönn
mynd af umdeildúm athafnamanni, //9
sem ætíð barðist af eldmóði fyrir
því sem honum þótti horfa til jj!
framfara, en sást ekki alitaf fyrir.
IÐUNN
JONAS FRA HRIFLU