Norðurslóð


Norðurslóð - 13.12.1991, Qupperneq 23

Norðurslóð - 13.12.1991, Qupperneq 23
NORÐURSLOÐ - 23 María Þorsteinsdóttir hefur aldrei verið hrædd við að skera sig úr hópnum og ganga grýtta veginn. Ævisaga hennar er saga sorgardaga og gleðistunda, bjartra vona og dimmra skugga; sagan af því hvernig ung kona vex og þroskast í kreppu og stríði og heitir því að vinna friði og bræðralagi manna það gagn sem hún má; hvernig henni tekst, þrátt fyrir þungar sorgir og mikinn missi, að vera alltaf sönn og heil. Örlögin hafa greitt Maríu þung högg. Þó lætur hún aldrei bugast, missir aldrei móðinn, svæfir sársaukann innra með sér, en beinir öllum kröftum sínum í baráttu fyrir þeim hugsjónum sem hún trúir á og telur dýrmætastar: Friði, jöfnuði og réttlæti. IÐUNN Med sverðið í annarri hendl og plóglnn í hinni Jónas frá Hriílu var dáður og hataður, dýrkaður og dæmdur, brautryðjandi og ailurhaldsmað- ur, stór í sniðum og ógleyman- legur öllum sem honum kynnt- ust; maður sem markaði dýpri spor í sögu þjóðar sinnar en flestir samtíðarmenn. Hér rekur Guðjón Friðriksson mótunarsögu Jónasar á lifandi og gagmýninn hátt, segir frá þroskaárum Jónasar, áhrifavöldum í lífi hans og afskiptum hans af stjórnmálum og þjóðmálum á umbrotatímum og sýnir hvernig Jónas þjálfaðist í þeirri list að stýra samherjum og andstæðing- um á taílborði mannlífsins. Bókin varpar leiftr- andi ljósi á líf Jónasar frá Hriflu, hæflleika hans og bresti. Hér er dregin upp sönn mynd af umdeildúm athafnamanni, //9 sem ætíð barðist af eldmóði fyrir því sem honum þótti horfa til jj! framfara, en sást ekki alitaf fyrir. IÐUNN JONAS FRA HRIFLU

x

Norðurslóð

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðurslóð
https://timarit.is/publication/1253

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.