Norðurslóð - 13.12.1991, Blaðsíða 27
NORÐURSLÓÐ - 27
Kristián Eldjárn - Ævisaga
Gylfi Gröndal
I þessari miklu bók eru dregnar upp persónulegar og lifandi myndir
sem varpa Ijóma á minningu Kristjáns Eldjárns í hugum Islendinga.
Hér er stuðst við dýrmætar heimildir sem hvergi hafa komið fram
áður, þar á meðal minningabrot og
ítarlegar dagbækur Kristjáns.
Heillandi og svipmikil saga.
Villibráá og veisluföng
úr náttúru Islands
Islensk matreiðsla er tvímælalaust
á heimsmælikvarða. Það sannar
þessi bók - ein glæsilegasta
matreiðslubók sem út hefur
komið. Gómsætir réttir úr
villibráð og öðrum
náttúruafurðum. Höfundarnir
eru sjö íslenskir
matreiðslumeistarar sem unnið
hafa til alþjóðlegra
verðlauna.
Svanurinn
Guðbergur Bergsson
Ný skáldsaga eftir Guðberg Bergsson sætir
tíðindum í íslenskum bókmenntaheimi og hefur
Svanurinn hlotið einróma lof lesenda og gagnrýnenda. Gleðin
kallast á við harminn - frelsið við fjötrana - í þessari snilldarlegu
sögu um litla manneskju í leit að lífinu.
Þegar sálin fer á kreik
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
Hennar stærsta ógæfa varð mesta
gæfa hennar. Ung að árum dvaldist
hún á berklahælum I félagsskap
annarra ungmenna sem kynntust
sorg, gleði og ást I skugga
dauðans. En þegar hinn ytri
heimur lokast, þá fer sálin á
kreik. Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir skráir djarflega og
fjöruga frásögn Sigurveigar
Guðmundsdótfur.
Lífsháskinn
Svanhildur
Konráásdóttir
Oft hefur blásið hressilega
umjónas og hann orðið efni í
beittar sögur sem særðu djúpt. Aðrir hafa tjáð sig
við hann í opinskáum viðtölum, en nú er komið
að honum að segja frá lífi sínu og
samferðafólki í samtali við Svanhildi
Konráðsdóttur. Hann sforkar óttanum í sjálfum
sér og hlífir sér hvergi i þessari einlægu bók.
FORLAGIÐ
LAUGAVEGI 18
SlMI 2 51 88