Norðurslóð - 28.04.1992, Qupperneq 1

Norðurslóð - 28.04.1992, Qupperneq 1
Svarfdælsk byggð & bær 16. árgangur Þriðjudagur 28. apríl 1992 4. tölublað f ifgf ^ gSas.. Niðurskorin vegaáætlun - Skíðadalsvegur úti, Svarfaðardalsvegur inni Ný vegaáætlun hefur nú litið dagsins ljós hjá Vegagerðinni fyrir Norðurlandsumdæmi eystra og kemur í ljós það sem legið hefur í loftinu að fjárfram- Iög hafa verið skorin niður í stór- um stíl og verkum þar af leið- andi frestað um óákveðinn tíma. Aðalverkefnið hér í grenndinni verður nýbygging vegar frá Engimýri í Öxnadal nokkuð fram fyrir brúna á Öxnadalsá og fylgir ný brú með í kaupunun. Framkvæmdir sem detta út af áætlun eru fjölmargar, t.d. við Bakkaveg frá Hofi í Hörgárdal niður að Hjalteyri, við Staðar- bakkaveg í Hörgárdal og, takið eftir, Skíðadalsvegur frá Sökku að Hofsá í Svarfaðardal. Skíðadalsvegur skorinn niður Á áætlun fyrir 1992 var að hefja endurbyggingu vegarins frá Sökku fram að Hofsá og verja til þess 12 milljónum króna. En þvíhefur sem sagt verið frestað og getur enginn svarað því á þessari stundu hvenær það verk getur hafist. Aftur á móti verður endurbyggingu vegarkafl- ans frá Holti fram að Tjöm haldið til streitu og 20 milljónum varið til þess verkefnis. Að sögn Jóns Hauks Sigurbjömssonar rekstrar- stjóra hjá Vegagerðinni verður engin breyting á vegarstæðinu en vegurinn verður hækkaður, styrkt- ur og klæddur fram að Tjöm og auk þess lögð klæðning áfram fram að Húsabakkaafleggjara. Á því öllu að vera lokið fyrir haustið. Gulgallaðir mælingamenn eru raunar nú þegar komnir á stjá með stikur og staura en verkið verður líklega boðið út í byrjun maí. Reiðvegur í athugun Aukin umferð ríðandi manna og bama á þessum vegarkafla og slysahætta henni samfara hefur valdið vegfarendum áhyggjum. Meðfram veginum er að vísu ófull- kominn reiðvegur en spumingin er hvort Vegagerðin hefur gert ráð fyrir hrossunum við hönnun nýja vegarins. Guðmundur Heiðreksson umdæmistæknifræðingur, sá sem hannað hefur veginn, svaraði því til að æskilegt væri að strax í upp- hafi yrði gert ráð fyrir reiðvegi og fyrir því væri vilji hjá Vegagerð- inni. Hins vegar væru á þessum kafla skurðir á báðar hendur og flá- inn á nýja veginum gengi alla leið að skurðbökkunum. Ef fara ætti í að grafa nýja skurði þá hrykki fjár- veitingin í verkið skammt. En mál- ið væri í skoðun og alls ekki útrætt. Þess má geta að á vegaáætlun fyrir landið allt er að jafnaði gert ráð fyrir dálitlum upphæðum til reið- vega sem þartilgerð Reiðvega- nefnd ákveður hvar ráðstafa skuli hverju sinni. Múlavegurinn ber ekki þyngri umferð Aukið samstarf og samþætting at- vinnulífs á Dalvík og í Ólafsfirði hefur haft í för með sér þyngri um- ferð um Múlaveginn og á sú um- ferð eftir að magnast til muna ef og þegar ýmis áform um verkaskipt- ingu hafnanna verða að veruleika. Forsenda þessarar samþættingar voru að sjálfsögðu Múlagöngin enda byggð öðrum þræði með það markmið að leiðarljósi. Það er hins vegar ekki nóg að grafa göng og áforma stóraukna þungaumferð í gegnurn þau ef vegurinn að þeim þolir ekki þessa umferð. Vegurinn út í Múla er nefnilega alls ekki í stakk búinn að taka við þyngri um- ferð og er nánast burðarlaus frá Karlsá út að Rípli að sögn Jóns Hauks. 1983 var hann að vísu eitt- hvað styrktur en það var aðeins hugsað til nokkurra ára. Þessi veg- ur væri hins vegar hvergi inni á áætlun og ekki sýnilegar neinar breytingar á því í næstu framtíð. Að vísu væru 16 milljónir merktar Múlagöngunum núna en þær færu í greiðslu á skuldunt. Sú staða gæti því komið upp að setja þyrfti þungatakmarkanir á Múlaveginn og getur hver maður séð hversu bagalegt það yrði fyrir sveitarfé- lögin. Hj.Hj. Ólafsfj ör ður/Dal vík: Sameining hafn- anna um áramót - Heimild veitt til að urða sorp á Glerárdal - Sorpbrennslunni á Sauðanesi verður lokað í sumar Á sameiginlegum fundi hafnar- stjórna Ólafsfjarðar og Dalvík- ur sem haldinn var 25. mars sl. var samþykkt að sameina hafn- arsjóði staðanna og gera áætlun um framkvæmdir í höfnunum sem niiða að því að Ijúka upjj- byggingu fiskiskipahafnar í ÓI- afsfirði og vöru- og fiskihafnar á Dalvík. Er að því stefnt að Hafnasamlag Dalvíkur og Ólafs- fjarðar taki til starfa um næstu áramót. Aðdraganda þessarar sam- þykktar má rekja aftur til 21. ágúst 1990 en þá var sett á laggimar sameiginleg nefnd á vegum bæjar- stjómanna sem ætlað var að undir- búa stofnun byggðasamlags um rekstur hafnanna. Á fundinum þar sem samþykktin var gerð ræddu menn um hugsanlega aðild Hrís- eyjar- og Árskógshrepps að sam- laginu. Var það mál manna að rétt væri að doka með það, þeir gætu komið inn í samlagið síðar. Þessa sameiningu má ekki síst skoða í ljósi aukinnar samkeppni milli hafna um flutning og við- skipti, ekki síst hér við Eyjafjörð. Af öðrum samstarfsvettvangi Dalvíkur og Ólafsfjarðar urðu þau tíðindi í dymbilvikunni að bæjar- stjóm Akureyrar veitti heimild til þess að sorp frá þessum stöðum verði urðað á Glerárdal ofan við Akureyri. Að sögn Helga Þorsteinssonar bæjarritara á Dalvík verður samn- ingi við Sorptak um hirðingu og brennslu sorps á Sauðanesi sagt upp frá og með 1. júní. Á næstunni verður hirðing á húsa- og gáma- sorpi boðin út, en bæjartæknifræð- ingi Dalvíkur hefur verið falið að gera tillögur um gámasvæði í bæj- arlandinu. Ljóst er að sorpbrennslunni á Sauðanesi verður lokað í sumar og munu margir fagna því. Ekki ligg- ur enn fyrir hvernig hreppsnefndir Svarfaðardals- og Árskógshrepps bregðast við þessum breytingum en sorpi þaðan er nú brennt á Sauðanesi. Helgi sagði að núverandi urð- unarstaður á Glerárdal entist í ein- hver ár, en að annað svæði væri til ofar á dalnum. Framtíðarskipan þessara mála er þó enn óráðin. -ÞH Kirkjukór Dalvíkur hélt tónleika í Dalvíkurkirkju sl. sunnudag. Þar flutti kórinn verk eftir Mozart, Bruckner og Sálumessu eftir franska tónskáldið Gabriel Fauré. Stjórnandi kórsins er Hlín Torfadóttir, einsöngvarar voru þau Sólveig Hjálmarsdóttir og Michael John Clarke en Juliet Faulkner lék undir á orgel. Michael söng auk þess einsöng í tveim verkum eftir Leonard Bernstein og Felix Mendelssohn. Kirkjan var að heita má full og var góður rómur gerður að söng kórsins. Voru stjórnandi, orgelleikari og einsöngvarar hylltir í lok tónleikanna. Mynd: Hj.Hj. S Utgerðarfélag Dalvíkinga h/f: Afkoma síðasta árs vel viðunandi - Kvóti keyptur fyrir 192 milljónir króna - Veruleg hlutafjáraukning ákveðin Á aðalfundi Útgerðarfélags Dalvíkinga h/f sem haldinn var sl. föstudag kom fram að heild- artekjur félagsins á síðastliðnu ári námu 401,7 milljónum kr. og höfðu aukist um 15,7% mið- að við árið á undan. Hins vegar voru rekstrargjöld önnur en af- skriftir og fjármagnskostnaður einungis 6,1 % hærri en árið áð- ur eða kr. 286,1 milljón. Hagn- aður án afskrifta og fjármagns- kostnaðar hækkaði því milli ára úr 77,4 milljónunt í 115,5 milljónir. Hins vegar hækkuðu afskriftir úr 53,5 í 97,7 miljónir þannig að hagnaður fyrir fjár- magnskostnað var á síðasta ári 17,8 millj. á móti 23,8 millj. króna árið áður. Nettó fjármagnskostnaður nam kr. 26,1 milljón árið 1991 en var í raun jákvæður árið 1990 vegna reiknaðra verðbólguáhrifa. Gaf það heldur brenglaða mynd það árið sem meðal annars sést á þvíað þá var bókfærður hagnaður félagsins 74 milljónir en bókfært tap nú 8,7 milljónir þó árið 1991 sé í raun betra rekstrarár en árið áður. Það þjónar því litlum til- gangi að bera saman lokaniður- stöðu þessara ára. Heildarafli skipa félagsins var 6.545 tonn. Úthaldsdagar Björg- vins EA voru 280 og var afli á út- haldsdag 12.679 kg. en Björgúlf- ur EA var með 257 úthaldsdaga og 11.653 kg. afla á úthaldsdag. Hagnaður fyrir afskriftir og fjá- magnskostað var á hvoru skipi fyrir sig, 61,7 millj. á Björgvin og 53,9 millj. á Björgúlfi. Hins vag- ar eru afskriftir Björgvins 66,5 millj. en Björgúlfs 31,2 millj. Björgvin er nýrra og dýrara skip og þarf því að skila mun meiru en Björgúlfur til að koma fjárhags- lega eins vel út. Á árinu 1991 keypti Útgerðar- félagið veiðiheimildir (kvóta) sem KEA átti, meðal annars af Baldri EA 108. Alls voru það 1.134 þorskígildistonn og var kaupverðið 192,7 milljónir. Hækkun afskrifta er að mestu komin til vegna afskriftar þess- arar kvótaeignar. Að öðru leyti voru fjárfestingar félagsins ekki miklar. Heildarskuldir fyrirtækis- ins námu í árslok 736,3 millj. og höfðu aukist um 141 millj. milli ára. Þar vegur þyngst að kvóta- kaupin eru bókfærð sem lang- tímaskuld við KEA, en ákveðið hefur verið að breyta þeirri skuld í hlutafé KEA sem raunar er eini hluthafinn í fyrirtækinu. Eigið fé félagsins nam 9,5 millj. króna og hafði lækkað lítil- lega eða úr 17,2 milljónum. Nafnverð hlutafjár er 2,2 miljónir en eins og áður hefur komið fram liggur fyrir ákvörðun um aukn- ingu og mun þá hlutafé verða 195 milljónir. Við þá aðgerð lækka heildarskuldir í 543,5 milljónir króna miðað við stöðuna um síð- ustu áramót. Togurum félagsins hefur verið úthlutað 4.412 þorsk- ígildistonnum og eru þá meðtalin kvótakaupin sem áður er getið. þetta þýðir að nettóskuldir fyrir- tækisins verða 110 kr. á þorsk- ígildi eftir að hlutafé hefur verið aukið. Það mun vera allgóð staða miðað við mörg íslensk útgerðar- fyrirtæki. JA

x

Norðurslóð

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðurslóð
https://timarit.is/publication/1253

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.