Norðurslóð - 28.04.1992, Page 8
DIÍSÉCSS
Svarfdælsk byggð & bær
FRETTAHORNIÐ
Elín Björnsdóttir úr Ólafsfiröi átti
Staðinn. Mynd: Hæjarpóslurinn/HK
Að kveldi síðasta vetrardags var
haldin drslitakeppni í „kara-
okesöng" í Víkurröst. Ef einhver
lesandi er svo frumstæður að skilja
ekki orðið er rétt að útskýra það
dálítið nánar. Karaoke er útbúnað-
ur, einskonar hljómflutningstæki,
sem einnig varpar mynd upp á
tjald jafnhliða texta lagsins sem
flult er. A hljómdiskana vantar
hins vegar sönginn og það er aðal-
atriðið, því hverjum sem er er síð-
an heimilt að troða upp og syngja
lagið við undirleik karaoke. Fyrir-
bærið hefur farið eins og eldur í
sinu um landið undanfarin misseri
og nú í vetur fjárfesti Freygerður
Snorradóttir á Dalvík í svona græj-
um. Var síðan efnt til firmakeppni
í söng á Sæluhúsinu og öllum boð-
ið að vera með. Er skemmst frá því
að segja að keppendur flykktust að
svo ekki sé minnst á áheyrenduma
sem troðfylltu Sæluhúsið kvöld
eftir kvöld. Er óhætt að tala um
söngvakningu á svæðinu í þessu
sambandi og er það hið besta mál
nú á ári söngsins. Urslitakeppnin
var síðan síðasta vetrardag eins og
fyrr segir og voru tólf keppendur í
úrslitum sem hver um sig flutti 2
lög. Víkurröst var full út úr dyrum.
Dómnefndin sem starfað hafði öll
undanúrslitakvöldin fékk liðstyrk
frá sæmdarhjónunum Rúnari Júlí-
ussyni og Maríu Baldursdóttur og
var þeim töluverður vandi á hönd-
um að velja á milli keppendanna
sem margir skiluðu sínu með
glæsibrag. Eftir spennandi keppni
voru þó úrslitin ráðin og varð hlut-
skörpust Elín Bjömsdóttir frá
Olafsfirði. Hún fékk einnig auka-
verðlaun fyrir besta sviðsfram-
komu. í öðru sæti var Kristjana
Amgrímsdóttir á Tjöm og í þriðja
sæti Daníel Hilmarsson á Dalvík.
/
Aaðalfundi Sparisjóðs Svarf-
dæla sem haldinn var 11. apríl
sl. var að vanda úthlutað úr Menn-
ingarsjóði Svarfdæla. Ellefu um-
sóknir bámst og ákvað stjóm
sjóðsins að verða við fimm þeirra.
Þeir sem urðu fyrir valinu voru:
Lene Zacharíassen í Dæli kr.
500.000 til að vinna að gerð list-
muna úr íslensku dýrahári og ull,
Tjarnarkirkja kr. 400.000 til varð-
veislu og viðhalds, Tjamarkvart-
ettinn kr. 100.000 til kaupa á út-
setningum sönglaga, Rósa Kristín
Baldursdóttir í Laugahlíð kr.
100.000 til söngnáms og Listvina-
félagið kr. 50.000 til stofnunar fé-
lagsins.
Aþessu ári verður Tjamarkirkja
100 ára og verður haldið upp á
það með viðhöfn líklega í ágúst.
Nú stendur yfir gagnger lagfæring
á kirkjunni og hefur nánast öll
klæðning verið rifin utan af henni.
Henni verður þó að mestu leyti aft-
ur komið fyrir á sínum stað og
kirkjan þar að auki einangruð.
Hins vegar þarf að skipta um und-
irstöður hennar að verulegu leyti
og rétta bygginguna af því mjög
var hún tekin að síga öðru megin.
Eins og fram hefur komið veitti
Menningarsjóður Svarfdæla 400
þúsund krónum í verkið en Ijóst er
að endanlegur kostnaður skiptir
milljónum.
/
Isíðustu viku marsmánaðar hélt
Búnaðarfélag Svarfdæla aðal-
fund sinn. Fundurinn var jafnframt
aðalfundur Ræktunarsambands
Svarfdæla og var sögulegur fyrir
þær sakir að þar var sá félagsskap-
ur formlega lagður niður og eign-
um hans skipt upp á milli búnaðar-
félaganna tveggja hér á svæðinu.
Aðalverkefni Búnaðarfélagsins á
síðasta ári var rekstur og skipulag
afleysingarþjónustu bænda sem sí-
fellt fleiri notfæra sér. Þá voru
slátrunarmál einnig nokkuð rædd
en í vetur var skipuð sérstök nefnd
til að athuga möguleika á að leigja
húsnæði þar sem bændur gætu
sjálfir framkvæmt sína heimaslátr-
un við mannsæmandi aðstæður.
Það mál er enn í athugun. Formað-
ur Búnaðarfélagsins er Gunnlaug-
ur Sigvaldason og aðrir í stjóm
þeir Gunnsteinn Þorgilsson og
Sævar Gunnlaugsson sem kom inn
TIMAMOT
Skírnir
Á páskadag, 19. apríl, var María skírð að Böggvis-
braut 10, Dalvík. Foreldrar hennar eru Þóra Stein-
unn Pétursdóttir, Grandavegi 35, Reykjavík og
Þórir Oskar Guðmundsson, Böggvisbraut 10, Dal-
vík.
Afmæli
Anton Sigurjónsson smiður, Goðabraut 20 Dal-
vík, varð 85 ára 3. apríl sl.
Árni Lárusson verkamaður, Karlsbraut 16 Dalvík,
varð 80 ára 8. apríl sl.
Krístín Júlíusdóttir vistmaður á Dalbæ Dalvík,
varð 75 ára 9. apríl sl.
Hallgrímur Antonsson húsasmíðameistari, Báru-
götu 13 Dalvík, varð 70 ára 12. apríl sl.
Bergljót Loftsdóttir húsfrú, Bjarkarbraut 7 Dal-
vík, varð 70 ára 17. apríl sl.
Halldór Jóhannesson verslunarmaður, Smáravegi
10 Dalvík, varð 70 ára 21. apríl sl.
Norðurslóð ámar heilla.
Andlát
3. apríl lést á Fjórðungs-
sjúkrahúsinu á Akureyri Sig-
ríður Líndals.
Sigríður fæddist í Miðhópi
í Víðidal 15. desember 1908,
yngra bam af tveimur er hjón-
in Guðrún Margrét Jónsdóttir
og Jóhann Líndals Bjamason
áttu. Eldri sonur þeirra hét Ei-
rfkur. Um 1920 flutti fjöl-
skyidan til Dalvíkur og
byggðu þau hjón sér síðar húsið Steinholt er nú
stendur við Karlsrauðatorg. Sigríður átti við van-
heilsu að stríða allt sitt líf en óbilandi vilji til að
bjarga sér og koma sér áfram og dugnaður var að-
alsmerki hennar alla tíð. Hún naut einnig hjálpar
margra og man hver og einn þakklæti Sigríðar og
bros fyrir þá aðstoð. Á tímabili tók Sigríður smá-
böm heim og kenndi þeim fyrir skóla. Af öðrum
vettvangi má nefna að hún starfaði til fjölda ára
með félaginu Sjálfsbjörg á Akureyri. Sigríður bjó í
Steinholti lang stærstan hluta ævi sinnar, fyrst hjá
foreldrum sínum en síðar hjá Eiríki bróður sínum
og Önnu konu hans. Vegna heilsubrests fór Sigríð-
ur á Dalbæ sumarið 1987 hvar hún naut góðrar
hjálpar og umönnunnar. Hún lést 3. apríl 83 ára að
aldri.
Sigríður var jarðsungin frá Dalvíkurkirkju 11.
apríl.
13. apríl lést á Dalbæ, heimili
aldraðra, Dalvík, Jón Krist-
inn Sigurðsson.
Kristinn fæddist á Litla-
Hóli á Dalvík 20. mars 1915.
Foreldrar hans vom hjónin
Anna Sigurðardóttir og Sig-
urður Jón Guðjónsson. Eign-
uðust þau 11 börn og var
Kristinn 6. bam þeirra. Hin
systkinin em: Kristján, sem er
látinn, Guðjón, sem er látinn, Rósa, Sævaldur,
Hallgrímur sem er látinn, Sigrún, Albert. Laufey,
Marinó og Lilja.
Kristinn ólst upp í Litla-Hóli sem foreldrar hans
byggðu en flutti síðan með fjölskyldunni í Mó árið
1929. Leið hans lá snemma til sjávar enda faðir
hans sjómaður og lengi formaður. Byrjaði Kristinn
á sjónum um fermingu og var þar að mestu leyti
næstu fjóra áratugina. Veturinn 1938-39 sótti hann
stýrimannanámskeið á Akureyri og hófst þá ferill
hans sem skipstjóra eða formanns. Næstu áratugina
var Kristinn með ýmsa báta bæði hér fyrir norðan
sem og á vertíðum fyrir sunnan. Má þar nefna bát-
ana Nóa, Þorstein, Júlíus Bjömsson, Leif Eiríksson
og svo Hannes Hafstein sem Kristinn var lengst
með. Á þeim bát var hann einnig aflahæstur á síld
eina vertíð hér fyrir norðan og með þeim hæstu
margar vertíðar. Kristinn var sækinn skipstjóri og
farsæll.
1941 giftist hann eftirlifandi eiginkonu sinni
Huldu Helgadóttur. Þau byggðu sér hús við Karls-
braut 10 og fluttu þangað 1944. Varð það heimili
þeirra æ síðan. Þau eignuðust saman 8 böm sem
eru: Sævar, Guðrún, Ingibjörg Jóhanna, Sigurvin
Karl, Jóna Kristín, Sigursteinn, Grétar og Sigrún.
Einnig eignaðist Kristinn son sem Hallgrímur heit-
ir. Eru bamaböm Kristins og Huldu orðin 23 og
bamabamabörnin 10.
1966 varð Kristinn fyrir slysi á sjó og fór þá að
vinna í landi. 1975 veiktist hann alvarlega en
dvaldist þó heima næstu árin allt þar til sumarið
1988 er hann fór á Dalbæ hvar hann dvaldi upp frá
því. Þar lést hann 13. apríl, 77 ára að aldri.
Kristinn var jarðsunginn frá Dalvíkurkirkju 18.
apríl.
, , 111111! i 11 f I í 1111,
';;í I Hliliii lítim!11!!!11
. is 1 ' ’., i n 11 LLw»'
/ ‘ ■'
Eins og sjá má er búið að færa Tjarnarkirkju úr skelinni, en hún verður
klædd í aftur að viðgerð lokinni.
í á fundinum í stað Jóhanns Ólafs-
sonar. Svo öllu réttlæti sé fullnægt
skal þess getið að Búnaðarfélag
Dalvíkur hélt einnig aðalfund sinn
fyrir mánaðarmótin en í stjóm þess
eru Baldvin Magnússon formaður,
Sófanías Jónmundsson og Haf-
steinn Pálsson.
Það virðist vera mikil uppsveifla
í leiklistarlífi hér norðanlands
og raunar um allt land. Alls staðar
eru áhugaflokkar að setja upp leik-
rit og er það í sjálfu sér engin
nýlunda neina hvað óvenju mikið
er um metnaðarfullar og viðamikl-
ar uppsetningar. Hitt er e.t.v. meiri
nýlunda og sannarlega gleðiefni
hversu aðsókn hefur stóraukist á
leiksýningar. Æ fleiri gera sér nú
ferðir í önnur sveitarfélög og jafn-
vel aðrar sýslur til að komast í leik-
hús og mjög víða hafa leikfélög
neyðst til að bæta við sýningum
vegna mikillar aðsóknar. Hjá nán-
ast öllum leikfélögum hér í
grenndinni hefur aðsóknin verið
stórum betri en menn áttu von á.
Hjá Leikfélagi Dalvíkur urðu sýn-
ingar á „Rjúkandi ráði“ alls 18
talsins sem hlýtur að teljast sýn-
ingamet hér. Höfðu þá um 1300
áhorfendur skilað sér í leikhúsið
og var stór hluti þess hóps gestir úr
öðmm byggðarlögum.
Skólaböm hér hafa sömuleiðis
verið iðin við tignun leiklistar-
gyðjunnar Thalíu. Nemendur Dal-
víkurskóla héldu árshátíð sína í
byrjun mars og var hún einskonar
endapunktur á þemaviku undir yf-
irskriftinni „Umhverfis jörðina á
einum degi“. Þar kenndi margra
grasa og skipuðu frumsamdir leik-
þættir þar áberandi sess. Nutu
krakkamir leiðsagnar Arnars Sím-
onarsonar sem stundar nám í fé-
lags- og æskulýðsstarfi, „fritids-
pædagogi“ í Danmörku. Var þessi
vinna hans hluti af náminu þar.
/
AHúsabakka hefur leikstarf-
semi sömuleiðis verið mikil í
allan vetur. I byrjun desember var
foreldrum og aðstandendum boðið
til kvöldskemmtunar í skólanum
þar sem sýndir voru tveir einþátt-
ungar af eldri og yngri deild ný-
stofnaðs Leiklistarfélags Húsa-
bakkaskóla. Á jólaskemmtuninni
var haldið áfranr að bjóða upp á
leiklist af ýmsum toga en seinni
part vetrar hófust síðan æfingar á
aðalverkefni vetrarins. Það var
sjónleikurinn „Þú ert í blóma lífs-
ins, fíflið þitt“ eftir Davíð Þór
Jónsson og Æskulýðsdeild Leikfé-
lags Hafnarfjarðar. Aðalsteinn
Hjartarson kennari sá um að leik-
stýra þeim 30 nemendum sem tóku
þátt í sýningunni, en það eru allir
nemendur skólans frá 4. bekk og
uppí 9. bekk að viðbættum nokkr-
um 3. bekkingum. Kvöldið fyrir
páskafrí var síðan almenningi boð-
ið á sýninguna og þótti hún takast
svo vel að ekki var annað fært en
að hafa aðra sýningu og að þessu
sinni í Ungó á Dalvík. Þar var leik-
ið fyrir nánast fullu húsi og gerður
góður rómur að sýningunni.
Nýjum stoðum er nú verið að
skjóta undir starfsemi Fisk-
miðlunar Norðurlands h/f. íslensk-
ar sjávarafurðir h/f hafa keypt 40%
hlutafjár í Fiskmiðluninni og sam-
kvæmt þeim samningum sem
gerðir hafa verið í kjölfar þess flyst
öll skreiðarsala sem Islenskar sjáv-
arafurðir hafa verið með til Fisk-
miðlunarinnar og þar með aukast
umsvif fyrirtækisins verulega.
Fiskmiðlunin verður þá stærsti út-
flytjandi skreiðar til Nígeríu og
raunar almennt í skreiðarsölu.
Ákveðið hefur verið að ráða Jó-
hannes Má Jóhannesson fram-
kvæmdastjóra með Hilmari Daní-
elssyni en Jóhannes er núna starfs-
maður Islenskra sjávarafurða og
hefur séð um skreiðarmálin þar.
Jóhannes mun flytja til Dalvíkur í
vor. Hann er sonur Jóhannesar
heitins Kristjánssonar frá Hellu og
Ingunnar Kristjánsdóttur (Jóhann-
essonar fyrrverandi hreppstióra á
Dalvík).
Grásleppuveiði hefur verið al-
veg fádæma treg í vetur.
Raunar var rauðmagaveiði líka
treg en þó varð aðeins vart við
hann. Grásleppuveiðar eru ekki
lengur stór þáttur í smábátaútgerð
hér á Dalvík. Það eru fyrst og
fremst þeir bræður Reimar og
Rúnar Þorleifssynir sem stunda
þennan veiðiskap. Ámi Lárusson
er þó með net í sjó líka. Þess má
geta að Ámi varð áttræður núna 8.
apríl sl. og stundar sem sagt grá-
sleppuveiði enn. Annars hefur að-
eins orðið vart við þorsk hér í firð-
inum nú síðustu daga svo heldur
hefur hýmað yfir smábátaeigend-
um og eitthvað hefur bjartsýni
þeirra aukist.
Sæplast h/f er nú að setja á mark-
að nýja framleiðsluvöru. Hér er
um að ræða rotþrær fyrir sumarbú-
staði og sveitabæi. Sæplstsmenn
hafa hannað þessar þrær sem eru
steyptar úr plasti líkt og kerin sem
fyrirtækið er hvað frægast fyrir að
framleiða. Með auknum kröfum
um varkámi í umgengni við nátt-
úruna eru nú gerðar strangar kröfur
um frágang frárennslis frá híbýl-
um manna. Þar af leiðir að mark-
aður fyrir þessa framleiðslu er vax-
andi og þykir mönnum að vel hafi
tekist til í hönnun þrónna svo vafa-
lílið á þessi framleiðsla eftir að
verða snar þáttur í starfsemi fyrir-
tækisins í framtíðinni.