Norðurslóð - 23.09.1992, Blaðsíða 3
NORÐURSLOÐ —3
Blíðskaparveður var á 90 ára afmæli Urðakirkju. M>nd:-i*H
Vígsluhiskupinn, sr. Bolli Gústavs-
son, <>g sóknarpresturinn, sr. Jón
Helgi l’órarinsson, að lokinni hátíð-
armessu. M>nd: -i>ii
Biskup oj> prestar ganga úr Tjarnarkikju að lokinni endurvígslu. M>nd: hk
Työ kirkjuafmæli
- Urðakirkja 90 ára og Tjarnar-
kirkja 100 ára á liðnu sumri
Biskup Islands, herra Olafur Skúlason, við altari Tjarnarkirkju, formaður sóknarnefndar, Sigríður hafstað, les ritn
ingarorð. Til hægri standa sr. Jón Helgi Þórarinsson og sr. Birgir Snæbjörnsson prófastur. M>nd:
Tvær af fjórum kirkjum Svarf-
aðardals héldu upp á stóraf-
mæli á liðnu sumri. Þann 5. júlí
var 90 ára afmælis Urðakirkju
minnst tneð hátíðarinessu og í
lok ágúst var Tjarnarkirkja
endurvígð eftir miklar endur-
bætur og um leið haldið upp á
aldarafmæli hennar.
Urðakirkja fór illa í Kirkjurok-
inu aldamótaárið, hún fauk af
grunninum og brotnaði í spón.
Kirkjubóndinn, Sigurhjörtur Jó-
hannesson, lét ekki deigan síga
heldur hóf byggingu nýrrar kirkju
árið eftir. Gengu framkvæmdir vel
og þann 20. júlí 1902 var hægt að
vígja nýja kirkju. A vígsludegi
nam byggingarkostnaður Urða-
kirkju kr. 2.736,63.
Kirkjan var í eigu Sigurhjartar
fram til 1918 þegar hann hætti bú-
skap. Þá aflienti hann söfnuðinum
kirkjuna. Síðan hefur hún verið
eign safnaðarins. Fyrir sjö árum
var hún öll máluð, gluggar endur-
nýjaðir. bekkir bólstraðir og upp-
hitun endurnýjuð. Fyrir tveimur
árum var kirkjan svo máluð að ut-
an og skipt um vindskeiðar. Kirkj-
an er í góðu ásigkomulagi og það
sama má segja unt kirkjugarðinn
sem hefur verið sléttaðurog komið
upp nýrri girðingu og sáluhliði.
Við hátíðarmessuna predikaði
sr. Bolli Gústavsson vígslubiskup
Hólastiftis og þjónaði fyrir altari
ásamt sókriarprestinum, sr. Jóni
Helga Þórarinssyni. Kirkjukórinn
söng undir stjórn Jóhanns Olafs-
sonar organista en etnsöngvari var
Svana Halldórsdóttir frá Melum.
Að lokinni messu buðu húsráðend-
ur að Urðum kirkjugestum til stofu
þar sem kaffiveitingar voru reiddar
fram. Kirkjunni bárust ýmsargóð-
ar gjafír í tilefni afmælisins.
Tjarnarkirkja
endurbyggð
Tjarnarkirkja er áratug eldri en
Urðakirkja. Eins og hún leysti
Tjarnarkirkja af hólmi gamla
kirkju sem byggð hafði verið um
miðja nítjándu öldina. Astand
hennar mun hafa verið orðið held-
ur dapurlegt og í vísitasíu prófasts,
sr. Davíðs Guðmundssonar, í júlí
1891 hvetur liann til þess að kirkj-
an verði rifin og ný reist að ári
komanda. Söfnuðurinn létt ekki
segja sér það tvisvar og á hvíta-
sunnu 1892 var ný kirkja vígð þótt
ekki væri hún fullfrágengin.
Tjarnarkirkja stóð af sér Kirkju-
rokið þótt tæpt væri. Reyndar losn-
aði hún af grunninum, en fyrir
kraftaverk - segja sumir - fauk
hún aftur upp á grunninn í öðru
roki skömmu síðar. Síðan hefur
hún þjónað sínu hlutverki. Árið
1917 lést síðasti Tjarnarpresturinn,
sr. Kristján Eldjárn Þórarinsson.
en síðan hefur Tjamarkirkja verið
annexía. Framan af var höfuð-
kirkja dalsins að Völlum en síðan
kirkja reis á Dalvík árið 1958 hefur
presturinn setið þar.
I fyrrasumar kannaði Hjörleifur
Stefánsson arkitekt sem sæti á í
Húsfriðunamefnd kirkjuna og kom
þá í Ijós að hún þarfnaðist veru-
legrar viðgerðar því burðarvirki
hennar voru orðin fúin svo vegg-
imir voru farnir að síga. Ákveðið
var að ráðst í viðgerðir og skyldi
þeim lokið á þessu sumri svo hægt
yrði að halda upp á aldarafmælið.
Þegar viðgerð hófst kom í Ijós að
skemmdirnar voru töluvert meiri
en talið var í fyrstu og má heita að
kirkjan hafi verið að mestu leyti
endurbyggð. Kostnaðurinn við
viðgerðina fór við þetta verulega
fram úr áætlun, en samt tókst að
ljúka endurbyggingunni fyrir lok
ágúst.
Endurvígsla í ágústlok
Þann 30. ágúst var kirkja svo end-
urvígð. Það verk annaðist biskup
Islands. herra Olafur Skúlason, og
predikaði hann einnig. Sóknar-
presturinn, sr. Jón Helgi Þórarins-
son, þjónaði fyrir altari ásamt pró-
fasti, sr. Birgi Snæbjömssyni, og
sóknarprestinum í Olafsfirði, sr.
Svavari A. Jónssyni. Kirkjukórinn
söng undir stjórn Jóhanns Olafs-
sonar organista og tvöfaldur kvart-
ett frá Tjörn flutti verk eftir Scar-
latti. Viðstaddir voru fleiri prestar
úr prófastsdæmínu. Að lokinni
vígslu var gestum boðið til kaffi-
drykkju í Húsabakkaskóla.
I tilefni afmælisins var gefinn
út bæklingur um sögu kirkjunnar
með prestatali frá siðaskiptum
ásamt greinargerð um viðgerðirnar
á kirkjunni. Þá er í bæklingnum
ávarp biskups og skrá yfir alla
starfsmenn kirkju og safnaðar frá
1892. Er bæklingurinn til sölu hjá
sóknarnefnd og er ekki vanþörf á
að hala inn tekjur því endurbæt-
urnar urðu töluvert dýrari en ráð
var fyrir gert í upphafi eins og áður
sagði. Lætur nærii að þær hafi
kostað 5-6 milljónir króna. Á af-
mælinu bárust kirkjunni ýmsar
góðar gjafir frá sóknarbörnum og
öðrum velunnurum. -ÞH
MÁ ÉG KYNNA
Þrátt fyrir margumræddan at-
gerfisflótta af landsbvggðinni
til höfuðborgarsvæðisins eru
alltaf einhverjir sem ekki láta
berast með straumnum og jafn-
vel synda á móti honum. I þetta
sinn vill Norðurslóð kynna Ei-
rík Stephensen og Maríu
(íunnarsdóttur sem bæði tvö
eru tónlistarkennarar og brut-
ust hingað norður á móti
straumnum til að fara að segja
æskulýð Dalvíkur og nærsveita
til í tónlist og hljóðfæraleik.
Dalvíkingar eiga því láni að
fagna að atvinnulíf staðarins er í
uppsveifJu og fólk sækist eftir að
búa þar. En eins og annars staðar
þarf fólk þak yfir höfuðið til að
geta sest að á Dalvík en því fer
fjarri að framboð á húsnæði anni
eftirspurninni. Eftir langa leit
fannst húsnæði fyrir þau Eirík og
Maríu frammi í sveit, nánar tiltek-
ið í sumarbústað milli Tjarnar og
Ingvara. Eru þau skötuhjú því
landnemar og fyrstu ábúendur af-
býlisins Reiðholts í Svarfaðardal.
Ekki má gleyma þriðja manni um
borð sem er Guðmundur Már son-
ur Eiríks. Sá gengur í Húsabakka-
skóla í 9 ára bekk.
Fulltrúi blaðsins brá sér bæjar-
leið s.l. sunnudagsmorgun til að
drekka með þeini morgunkaffi og
forvitnast um leið í nafni lesenda
um hagi þeirra og uppruna.
Bæði sögðust þau með sýnilegu
stolti vera fædd og upp alin á Stór-
kópavogssvæðinu. I Kópavogi
gengu þau í skóla og hlutu sitt tón-
listarlega uppeldi en skólar bæjar-
ins eru einmitt þekktir fyrir að hlúa
vel að tónlistarmenntun æskunnar.
Leið þeirra beggja í gegn um
menntakerfið hefur síðan legið eft-
ir brautum tónlistarinnar og s.l. vor
útskrifuðust þau bæði úrTónlistar-
skóla Reykjavíkur, hún úr tón-
menntakennaradeild og hann úr
tónfræðideild. Áður hafði hann
hlotið útskrift frá blásarakennara-
deild skólans. Þetta eru því engir
amatörar í músíkinni sem rekið
hefur á fjörur okkar og eins gott að
halda í þau sem fastast. Eiríkur
kennir m.a. á blásturshljóðfæri en
hann hefur stjórnað Lúðrasveit
Reykjavíkur undanfarin ár. María
kennir í forskólanum en einnig sér
hún um tónmenntakennsluna í
Dalvíkurskóla.
Aðspurð um af hverju þau
hefðu komið hingað sagði María
að þau hefðu hugsað sér að llytja
út á land. Onefnd vinkona hefði
bent henni á að hér væru að losna
stöður og leist þeim báðum vel á
að flytja hingað. Aðspurð um
áhugamál nefndu þau kórstarf öðru
fremur en bæði eru þau gengin til
María og Eiríkur. M>nd: iij.iij.
liðs við Kirkjukór Dalvíkur. Dóm-
kórinn í Reykjavík hefur til fjölda
ára notið krafta þeirra og komu þau
hingað með honum þegar hann
hélt konsert hér í sumar.
I nafni lesenda og annarra
Svarfdælinga býður Norðurslóð
Eirík. Maríu og Guðmund Má vel-
kominn í dalinn.
Hj.Hj.