Norðurslóð - 26.05.1993, Qupperneq 3

Norðurslóð - 26.05.1993, Qupperneq 3
NORÐURSLÓÐ —3 Hreppsfundir í Svarfaðardal: Hagur sveitarsjóðs mjög góður - en óvíst hvort han þolir byggingu íþróttahúss og félagsheimilis á Húsabakka Helgi Már Halldórsson arkitekt frá Jarðbrú útskýrir teikningar sínar að íþróttahúsinu sem rætt er um að reisa á Húsabakka. Mynd: su Á opnum fundi hreppsnefndar Svarfaðardais sem haldinn var á Grundinni 5. maí sl. kom fram að staða sveitarsjóðs er mjög góð. Þar urðu miklar umræður um það hvort rétt væri að hefja byggingu íþróttahúss/félags- heimilis/leikskóla á Húsabakka. Endurskoðandi hreppsins upp- lýsti á fundinum að slík bygging - sem talin er kosta 60-70 millj- ónir króna - myndi ganga afar nærri fjárhag hreppsins. Þessi góða staða hreppsins birt- ist fyrst og fremst í því að sveitar- sjóður skuldar ekki nema 433 þús- und krónur en á rúmar 13 milljónir í sjóði. Skuldir á hvem Svarfdæl- ing sem hlutfall af skatttekjum lækkuðu úr 23% árið 1990 í 2% um síðustu áramót. Að sögn Atla Friðbjömssonar oddvita er skýr- ingin á þessu aðallega sú að hrepp- urinn hefur ekki staðið í neinum framkvæmdum að undanfömu. Sameiginlegum framkvæmdum við Dalbæ ofl. er lokið - í bili amk. - og ekki verið ráðist í nýjar. „í fyrra var eingöngu fengist við viðhaldsverkefni en þar höfum við verið að vinna upp hala frá fyrri ámm. í fyrra fóm 6 milljónir króna í viðhald og alls 13 milljónir á þeim þremur ámm sem liðin eru af kjörtímabilinu,“ sagði Atli. Alls voru skatttekjur Svarfaðar- dalshrepps á síðasta ári 22,4 millj- ónir króna en heildartekjur 30,4 milljónir króna og tekjuafgangur 3,6 milljónir. Langstærsti gjalda- liður sveitarsjóðs em fræðslumál en til hans mnnu 18,2 milljónir króna. Frá því dragast þó 5,8 milljónir króna sem eru framlag Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga til skólamála í Svarfaðardal. Bein út- gjöld hreppsins til skólamála em því 12,4 milljónir króna sem sam- svarar 55% af skatttakjunum. Næststærsti gjaldaliðurinn er yfir- stjóm sveitarfélagsins sem tekur til sín 2,4 milljónir króna. Líflegar umræður um íþróttahús En mál málanna á þessum hrepps- nefndarfundi var byggingin sem menn eru að velta fyrir sér að reisa á Húsabakka. Helgi Már Halldórs- son arkitekt lýsti byggingunni sem hýsa mun leikskóla (sem gæti einnig nýst sem kennaraíbúð), 50 manna veitingasal, íþróttasal og búningsklefa í kjallara. íþrótta- salurinn er af minni gerðinni, þar væri hægt að koma fyrir löglegum blakvelli en ekki plássfrekari íþróttagreinum. Lofthæð í salnum er mest 6 metrar. Þá er gert ráð fyrir geymslum og skrifstofum sem nýst gætu félagasamtökum Svarfdælinga. Alls eiga þessi herlegheit að kosta 60-70 milljónir króna og er þá ótalinn fjármagnskostnaður á byggingartíma. Valur Þórarinsson endurskoðandi gerði grein fyrir út- tekt á möguleikum hreppsins til að fjármagna svona framkvæmd og var niðurstaða hans sú að núver- andi eign sveitarsjóðs og ráðstöf- unarfé hans næstu árin nægðu til að gera húsið fokhelt en það kostar um 30 milljónir króna. Þá væri svigrúmið búið. Hreppurinn á þó möguleika á framlagi úr Jöfnunarsjóði. Það gæti orðið 24 milljónir króna, hugsanlega meira. Að því með- töldu væri þetta mögulegt en þó mjög erfitt. Valur sagði að í svona 8-10 ár yrði staða sveitarsjóðs svo erfið að hann myndi varla þola mikinn snjóavetur, hvað þá önnur áföll. Auk þess gæti Jöfnunarsjóð- ur dregið hreppinn á framlaginu því þar væru margir að slást um sömu krónumar og ekkert fast í hendi. Verða félögin með? Þá er eftir að reikna með hlut fé- lagasamtakanna í hreppnum. Þar eru nú starfandi fimm félög: kven- félag, tvö ungmennafélög, veiðifé- lag og búnaðarfélag. Atli oddviti sagðist hafa trú á að þau vildu leggja þessari byggingu lið en þann vilja ætti eftir að kanna. Á fundinum kom fram að Kvenfé- lagið Tilraun er reiðubúið að leggja fram fé í bygginguna enda hefur félagið safnað fé í félags- heimilissjóð um nokkurt árabil. Önnur félög höfðu ekki tekið af- stöðu til húsbyggingarinnar. Töluverðar umræður urðu um húsbygginguna og var ma. rætt um möguleikann á að byggja minna hús. Atli sagði hann vera fyrir hendi, það væri hægt að byggja eingöngu félagsheimili fyrir svona 20 milljónir króna, en slíkt hús yrði sennilega ekki reist á Húsa- bakka. Ymsir möguleikar á nýt- ingu hússins voru nefndir, svo sem fyrir ferðaþjónustu og sem veiði- hús fyrir þá sem veiða í Svarfaðar- dalsá, auk þess sem íþróttasalurinn yrði leigður út. Framhald á bls. 4 Tónlistarlífið á Dalvík: Mikil gróska í söngnum - Jón Þorsteinsson ráðinn söngkennari næsta vetur - Spjallað við Hlín Torfadóttur skólastjóra Hlín Torfadóttir skólastjóri Tónlistarskóla Dalvíkur. Mynd: -þh Það hefur áður komið fram á síðum Norðurslóðar að tónlist- arlífið hefur verið í mikilli upp- sveiflu á Dalvík og í Svarfaðar- dal að undanförnu. Á föstudags- kvöldið var haldin mikil söng- hátíð í Dalvíkurkirkju þar sem yfir 50 manns sungu af hjartans lyst, ýmist einir eða í kórum, kvartettum og dúettum. Áður höfðu verið haldnir nemenda- tónleikar Tónlistarskólans sem sýndu vel þá miklu sókn sem þar er í gangi. Sú sem heldur um tónsprotann á flestum vígstöðvum er Hlín Torfadóttir. Hún er skólastjóri Tónlistarskóla Dalvíkur, organisti og kórstjóri Kórs Dalvíkurkirkju. Hún er að ljúka fimmta vetri sínum á Dalvík og virðist ekki á förum því hún var að flytja í eigið hús við Hjarðarslóðina í vetur. Þensla í Tónlistarskólanum Á þessum fimm árum hefur orðið veruleg útþensla í Tónlistarskól- anum. Að sögn Hlínar varð stærsta breytingin fyrir tveimur árum þeg- ar Árskógshreppur fékk aðild að skólanum. í vor luku 156 nemend- ur námi við skólann, um 80 á Dal- vík, 49 af Árskógsströnd og 26 úr Svarfaðardal en kennsla fer fram á þremur stöðum. Fyrir rúmlega tveimur árum var byrjað að æfa lúðrasveit við skól- ann og hefur henni vaxið fiskur um hrygg. Nú eru um 20 böm og ung- lingar í sveitinni og hafa komið víða fram undir stjóm Eiríks Stephensen. í vor tóku 13 nemend- ur söngdeildar stigspróf en þeir hafa verið við nám í tvo vetur und- ir leiðsögn Rósu Kristínar Baldurs- dóttur. Hún ætlar að taka sér frí næsta vetur og etv. lengur, en í hennar stað hefur verið ráðinn Jón Þorsteinsson tenórsöngvari frá Ólafsfirði. Og í fyrrahaust var komið á forskóladeild við skólann þar sem María Gunnarsdóttir kennir yngstu bömunum. Nú er yngsti nemandinn 5 ára en sá elsti á fimmtugsaldri. - En hvaða hljóðfœri er kennt á í Tónlistarskóla Dalvíkur? „Við kennum á píanó, hljóm- borð, málmblásturshljóðfæri, þver- flautu og blokkflautu og í vetur kom hingað gítarkennari frá Akur- eyri. Því miður sjáum við ekki fram á að geta haldið í hann því Jón Þor- steinsson mun búa á Ákureyri og við höfum ekki efni á að hafa tvo kennara í fömm. Auk þess vantar okkur kennara á tréblásturshljóð- færi, klarinett og saxófón, og svo er engin fiðlukennsla hér. Það hefur hins vegar gengið vonum framar að ná í kennara. Þeir hafa bara komið af sjálfsdáðum eða ég hef hitt þá á fömum vegi. Við verðum með sömu kennara næsta vetur, að Rósu frátalinni. Þetta sýnir að það ríkir stöðugleiki í skólanum.“ Stefnt að deildskiptingu - Hvernig finnst þér bœjaryfir- völd styðja við bakið á skólanum? „Þau hafa staðið sig vel. Við höfum hingað til haft frjálsar hend- ur um aukninguna, en nú er komið að því að sýna okkur aðhald. Það birtist í því að við fengum ekki að bæta við einni kennarastöðu næsta haust og einnig höfum við verið beðin um að móta framtíðarstefnu í málefnum skólans." - Og er komin einhver mynd á hana? „Já, við höfum ákveðið að skipta skólanum í tvær deildir. Annars vegar yrðu þeir nemendur sem ætla sér í stigspróf og hyggja á framtíðamám í tónlist. Hins vegar þeir sem vilja fyrst og fremst læra að spila á gítar eða hljómborð fyrir sjálfa sig. Við ætlum ekki að þrýsta öllum nemendum í stigs- próf, en á móti hvetja þá sem við teljum að eigi erindi í framhalds- nám. Það gildir bæði um nemend- ur í söng og hljóðfæraleik. í vetur tóku um 20 manns stigspróf og í hópnum em nokkrir sem tvímæla- laust eiga framtíð fyrir sér í tónlist, ef áhuginn hneigist í þá átt.“ Vantar hljóðfæri - Hvaða hljóðfœri njóta mestra vinsælda? „Píanóið og hljómborðið em vinsælust, en það væm fleiri að læra á blásturshljóðfæri ef skólinn væri betur búinn hljóðfærum. Þeg- ar lúðrasveitin komst á laggimar kom í ljós að það þurfti að endur- nýja svo til öll málmblásturshljóð- færin. Okkur vantar alveg stærstu og dýmstu hljóðfærin og höfum orðið að leigja þau af skólum hér í nágrenninu.“ - En hvað með afstöðu bœjar- búa til skólans? „Þeir em mjög jákvæðir. Við höfum verið með opið hús í skól- anum í vetur auk þess sem söng- deildin og lúðrasveitin kynna skól- ann meðal almennings. Ég finn breytingu á afstöðunni frá því ég kom fyrir fimm ámm. Nú em menn jákvæðari. Hér er mikil sönghefð sem stendur á gömlum merg og er greinilega hluti af uppeldinu sem fólk hlýtur. Þetta kom vel í ljós á sönghátíðinni á dögunum, þá var full kirkja og viðtökur mjög góðar. En það er mikilvægt að kenna á hljóðfæri til að styðja við þessa hefð og auðga menningarlífið." Tómlegt mannlíf án tónlistar - Þá erum við eiginlega komin að kjarna málsins. Til hvers er verið að reka tónlistarskóla á stað eins og Dalvík? „Mannlífið væri ansi tómlegt ef tónlistina vantaði. Við emm að leggja gmnninn að tónlistariðkun framtíðarinnar, ala upp flytjendur og ekki síður hlustendur. Áðsókn- in sem verið hefur að tónleikum - öðrum en söngtónleikum - sýnir að það er þörf á að ala fólk upp við hljóðfæraleik. Við ætlum okkur ekki að gera alla að klassískum hljóðfæraleikurum heldur starfa í þeim anda að sá sem ekki hefur tónlist geti ekki orðið hamingju- samur,“ segir Hlín. Því er svo við að bæta að ætl- unin er að gera sönghátíð á borð við þá sem haldin var á föstudag- inn að árlegum viðburði í dalvísku tónlistarlífi. Að þessu sinni vom tveir gestir á hátíðinni, þau Guðrún A. Kristinsdóttir píanóleikari og Óskar Pétursson tenórsöngvari. Það er mál manna að starfsemi söngdeildarinnar hafi haft vemleg áhrif á sönglífið í dalnum, enda hefur Kór Dalvíkurkirkju tekið framfömm og hlotið góðar undir- tektir fyrir =söng sinn að undan- fömu. -ÞH Forskólabörnin sýna listir sínar á nemendatónleikum undir stjórn Maríu Gunnarsdóttur. Mynd: sh

x

Norðurslóð

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðurslóð
https://timarit.is/publication/1253

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.