Norðurslóð - 26.05.1993, Page 5
NORÐURSLÓÐ —5
Enskur leikhópur í Ungó
- Leikhópur frá Remould-leikhúsinu í Hull sýnir á
Dalvík leikrit um líf og störf breskra togarasjómanna
Úr leiksýningu Remould-leikhópsins Togað á norðurslóðum.
Skyldu margir hafa hugleitt það
hér um árið í miðju þorskastríði
hvaða afleiðingar útfærsla ís-
lensku landhelginnar hefði í
bresku fiskibæjunum Grimsby
og Hull? Nú gefst ágætt tækifæri
á að sjá „hina hliðina“ á land-
helgisdeilunum í leiksýningu Re-
mould-leikhússins í Hull en leik-
hópur frá því verður á ferð hér á
Dalvík fyrstu helgina í júní með
sýninguna Togað á itorðurslóð-
um.
Stökur
mánað-
arins X
Hér kemur nú stökuþáttur-
inn í 10. skiptið. Við höldum
áfram að rekja okkur eftir
stafrófinu og gleymum þá
ekki, að íslensku bókstafirnir
eru lleiri en þeir, sem nefndir
eru í gömlu minnisþulunni:
..A h c d e f g“. Nú eigum við
þessvegna að konia með
vísur, sem byrja á I. í og .1.
I lllu börnin iðka það,
œpa, hljóða, hrína.
Hitt og þetta hafast að,
heimta, hrjóta, týna.
Það er hreint ótrúlegt hve
fáar vísur byrja á I, en þessi er
úr Heilræðavísum séra Hall-
gríms Péturssonar.
í / fyrrahaust ég hlaut í arf
hraustan son og fr'tðan.
Skœruliðans skemmdarstaif
skekur hús mitt síðan.
Vísan er eftir lítið þekktan
höfund, Þórarin Hjartarson.
J Jæja þá, í þetta sinn
þér er heimil ólin.
En hvenær koma, kæri minn,
kakan þín og jólin?
Þessa stöku þekkja víst allir.
Hún er síðasta erindið af þrem-
ur í kvæðinu um þá strákinn
Ola og hundinn Snata. Höfund-
urinn er Þorsteinn Erlingsson.
Næstu 3 stökur eiga að byrja á
K, L og M.
**** **** ****
Svo ætlaði ég að líta svolítið í
vísnabelginn hennar Svanhvít-
ar í Syðri-Skál í Köldukinn.
Það er úr miklu að moða, en
lítið pláss f blaðinu. Hér eru
tvær eftir Jón S. Bergmann:
Meðan einhver yrkir hrag
og íslendingar skrifa,
þetta gamla þjóðarlag
það skal alltaf lifa.
Eru skáldum arnfleygum
œðri leiðir kunnar. '
En ég vel mér veginn um
veldi ferskeytlunnar.
Og í lokin síðasta stakan í
“Syrpu Svanhvítar”: Hún er
ekki valin af verri endanum,
eftir sjálfan Einar Ben:
Gengi er valt þarfé erfalt.
fagna skalt i hljóði.
Hitt kom alltaf hundraðfalt,
sem hjartað galt úr sjóði.
Að svo mæltu þökkum við
Svanhvíti og kveðjum lesend-
ur.
BLESS BLESS
HEÞ
Þetta verk er samið upp úr við-
tölum við sjómenn og fjölskyldur
þeirra í Hull og í því er lýst lífi tog-
arasjómannanna, bæði úti á sjó og
í landi. Það lýsir raunverulegum
atvikum sem áttu sér stað, sorgum
og gleði, og ekki síður hlutskipti
eiginkvennanna og samfélaginu
sem varð til í sjómannahverfinu
við Hessle Road og togarahöfnina
St. Andrews Dock sem nú er raun-
ar búið að fylla upp í.
Togaraútgerðin í höfnunum við
Humber-fljót átti sér rúmlega ald-
arlanga sögu því um miðja nítj-
ándu öld var farið að gera þaðan út
togara sem vona byrjaðir að veiða
við strendur Islands og Færeyja
um 1880. Blómaskeið þessarar út-
gerðar voru eftirstríðsárin, en þá
sóttu breskir togarar fiskimið um
allt Norður-Atlantshaf, allt norður
að Bjamaeyju og upp með strönd-
um Labradors. Eftir 1970 var farið
að þrengja að þessari útgerð og
hún bókstaflega hrundi á árunum
1975-1980 þegar landhelgin var
færð út við ísland, Grænland, Nor-
eg og í Barentshafi.
Togurunum var lagt í hundraða-
tali og mannskapurinn látinn taka
pokann sinn. Þá var atvinnuleysi í
Bretlandi, rétt eins og nú, og fyrir
vikið eru margir sjómannanna enn
atvinnulausir, 10-15 ámm síðar.
Réttindi þeirra voru af skomum
skammti - til dæmis vom menn
aldrei fastráðnir á breska togara.
Sumir hafa því orðið að berjast
fyrir réttindum sínum í öll þessi ár.
Þeir voru sérhæfður starfskraftur
með þekkingu og reynslu sem
skyndilega var orðin úrelt og
óþörf. Efnahags- og atvinnu-
ástandið í Grimsby og Hull beið
mikinn hnekki og er fyrst núna að
ná sér aftur á strik.
Sýning Remould-leikhússins
var fyrst sett upp í Hull haustið
1985. Árið eftir var farið í tvær
langar leikferðir um Bretland og
leikritið sýnt yfir 100 sinnum. Eftir
það hefur ekki linnt óskum um að
leikhópurinn endursýni verkið og í
fyrra gafst tækifæri til þess þegar
borgaryfirvöld í Hull styrktu leik-
húsið til að setja leikritið á svið að
nýju. Þá kviknaði hugmyndin um
að sýna Togað á norðurslóðum í
Færeyjum, Noregi og á íslandi þar
sem efnið tengist þessum löndum á
ýmsa vegu.
Sýningar Remould-leikhússins
hér á Dalvík verða í Ungó föstu-
daginn 4. júní og laugardaginn 5.
júní kl. 21 báða dagana.
Samhliða þessum sýningum
halda liðsmenn Remould-leik-
hússins námskeið í gerð byggða-
leikhúss fyrir áhugamenn um það
og er það haldið í samvinnu við
Leikfélagasamband Norðurlands.
-ÞH
Svarfdœlabúð
Dalvík
Allt á grillið í helgar- og
hátíðarmatinn úr kjötborði
Kynning á grillmat frá
Kjötiðnaðarstöð KEA
27. maí
Nýkomið mikið
úrval af fatnaði
frá Miklagarði
Gas- og kolagrill
Grillkol og
grilláhöld
Garöáburöur
Áburðarkalk
Skeljakalk
Mosaeyðir
Byggingavörudeild
Garöurinn og Grillið
Svarfdœlabúð 27. maí
Útigrill frá Kjötiðnaðardeild
Byggingavörudeild KEA
kynnir
Garð- og sólhúsgögn
Vífilfell
kynnir nýtt
Fanta Lemon
MÖI og Sandur kynna Grástein - nýjan hleðslustein ásamt hellum
Garðtœkni sf. kynnir þjónustu sína
Gróðrarstöðin Réttarhóli
kynnir plöntur í garðinn, sumarblóm, tré og runna