Norðurslóð - 23.02.1994, Qupperneq 1
IIÍÉID'
Svarfdælsk byggð & bær
18. árgangur
Miðvikudagur 23. fcbrúar 1994
2. tölublað
Björn Björnsson sperrir sig á sviðinu í Ungó. í baksýn eru frá vinstri: Lovísa María Sigurgcirsdóttir, Hclga Stcinunn
Hauksdóttir, Ingvcldur Lára bórðardóttir og Birkir Bragason. Mynd: Hcrmtna
LD sýnir Hafið eftir Ólaf Hauk
- Frumsýning verður föstudaginn 25. febrúar
Bæjarstjórnarkosningar á Dalvík:
Þrír listar í kjöri
- Sjálfstæðisflokkur, Framsókn og hinir
Á fóstudagskvöldið verður fruni-
sýning hjá Leikfélagi Dalvíkur á
Hafinu eftir Ólaf Hauk Símon-
arson í leikstjórn Þórunnar
Magneu Magnúsdóttur.
Þetta leikrit Ólafs Hauks var
frumsýnt í Þjóðleikhúsinu haustið
1992 og gekk fyrir fullu húsi allan
veturinn. Voru gagnrýnendur jafnt
sem áhorfendur sammála um að
hér væri á fcróinni afbragðsgott
verk sem tæki til umfjöllunar mál
scm brennur á landsmönnum, auk
þcss sem það væri vei samið og
skemmtilegt.
I verkinu segir frá útgerðar-
manni sem farinn er að reskjast, cn
hann hefur kallað börn sín á sinn
fund til að ræða framtíð fyrirtækis-
ins og þar rneð þorpsins því fyrir-
tæki hans er langstærsti atvinnu-
rekandinn. Spurningin er hvort
halda eigi áfram rekstrinum eða
selja „þeim á Akureyri" kvótann
og skipin og gefa þorpið og íbúa
þess upp á guó og gaddinn.
Verkið hefur hlotið margvísleg-
ar viðurkenningar, svo scm rncnn-
Framhald á bls. 5
I>að styttist í sveitarstjórnar-
kosningar, en þær eiga að fara
fram 28. maí í vor. Þegar líður
að kosningum fara menn eðli-
lega að huga að framboðsmál-
um. Af er sú tíð að menn skipi
sér í fastmótaðar og fjórskiptar
flokksfylkingar og raunar hefur
flokkakerfíð aldrei verið alveg
niðurnjörvað hér á Dalvík. I vor
eru allar líkur á því að kjósend-
ur geti valið á milli þriggja bók-
stafa þegar þeir munda blýant-
inn í kjörklefanum.
Eins og allir vita er meirihluti
bæjarstjórnar Dalvíkur skipaður
þrcmur fulltrúum Sjálfstæðis-
llokks og óháðra og einunt fulltrúa
Jafnaðarmannafélags Dalvíkur, en
í minnihluta eru tveir fulltrúar
Framsóknar- og vinstrimanna og
einn fulltrúi Frjálslyndra. Á fundi í
stjórn Jafnaðarmannafélagsins í
janúar kom fram að lítill áhugi
virtist vera á áframhaldandi mciri-
hlutasamstarll á þessum nótum og
verður félagið því ekki aðili að
frantboði í vor.
Samfylking til vinstri
Þá geróist þaó aó Þjóðarflokkurinn
hafði santband við öll pólitísk
sanitök á Dalvík að Sjálfstæóis-
llokki frátöldum og bað þau um að
scnda fulltrúa á fund um hugsan-
legt samstarf í framboðsmálum.
Allir játtu erindinu og voru haldnir
tveir fundir þar sem verulegur
áhugi kont frarn á samciginlegu
framboði.
Á aðalfundi Framsóknarfélags
Dalvíkur 12. febrúar sl. var hins
vcgar samþykkt að hætta þátttöku í
vióræóunum. Meirihluti fundar-
manna taldi affarasælla fyrir félag-
iö aö standa að sjálfstæóu fram-
boði undir merkjum B-listans og
hafnaói því öllu samstarlJ. Hefur
verió skipuð uppstillingarnefnd til
að gera tillögur um niðurröðun á
lista.
Og þá voru eftir fjórir. Á fundi
þann 17. febrúar ákváðu fulltrúar
Þjóðarflokks, Alþýðubandalags,
Frjálslyndra og Jafnaðarmannafé-
lags Eyjafjarðar (sem er deild í Al-
þýðuflokki) aó bjóða fram sameig-
inlegan lista. Var kosin nefnd til að
undirbúa prófkjör, skoðanakönnun
eða aðra þá aðferð til aö velja fólk
á lista sem samkomulag næðist
um. Er búist við að valió verði á
listann í byrjun marsmánaðar.
Þetta nýja framboó hefur enn ekki
hlotið nafn, en búið er að setja nið-
ur starfshópa til að ræða málefna-
skrá framboðsins.
Hverjir gefa kost á sér?
Af Sjálfstæóisflokki er það að
frétta að þar hefur verið skipuó
uppstillingarnefnd með fulltrúum
flokksfélagsins og ungliðafélags-
ins og er hún að störfum. Að sögn
Trausta Þorsteinssonar eru nefnd-
inni ekki sett nein tímamörk, enda
rennur framboðsfrestur ekki út fyrr
en í lok aprílmánaóar. Trausti kvað
ekki afráðið hvort áframhald yrði á
samstarll flokksins við óháða kjós-
endur, það myndi ráðast í starfl
uppstillingarnefndar.
En kosningar í bæjarstjórnir og
hreppsnefndir snúast fyrst og
fremst um fólk. Ekki er enn full-
Ijóst hverjir núverandi bæjarfull-
trúa hyggjast gefa kost á sér til
áframhaldandi setu. Þó er ljóst aö
Guðlaug Björnsdóttir gefur ekki
kost á sér áfram. Aðrir hafa ekki
gefið upp áforrn sín.
í Svarfaðardal er allt með kyrr-
um kjörum enn og varla farið aó
ræóa kosningar sem eru óhlut-
bundnar eins og menn vita. Odd-
viti Svarfdælinga er Atli Frið-
björnsson á Hóli og virðist vera
óumdcildur meóal sveitunga sinna.
Hann hcfur þó ekki viljað segja áf
eða á um þaó hvort hann gefur kost
á sér áfram.
-ÞH
Fjárhagsáætlun Dalvíkurbæjar:
Sundlaugin er mál málanna
- Rekstrargjöldum haldið í lágmarki og lántökur auknar um 40 milljónir
Fjárhagsáætlun Dalvíkurbæjar
var samþykkt á fundi bæjar-
stjórnar 15. febrúar sl. Fram
kom á fundinum að full eining
var í bæjarstjórn um að leggja
alla áherslu á að Ijúka fram-
kvæmdum við sundlaugina á ár-
inu og verður varið 70 milljón-
um króna til þess. Er ætlunin að
sundlaugin verði tilbúin í júlí-
mánuði.
Samkvæmt áætluninni veróa
skatttekjur Dalvíkurbæjar 181,5
milljónir króna. Rckstur mála-
flokka kostar 131,5 milljónir, en
ráðstöfunarfé 45,7 milljónir eftir
afborganir lána og fjármagnsgjöld.
Fjárfestingar veróa 99,3 milljónir
króna og nýjar lántökur því tæp-
lega 55 milljónir króna. Eldri lán
verða greidd nióur um 15 milljónir
króiia þannig að skuldabyrði bæj-
arsjóðs eykst um 40 milljónir
króna á árinu.
Eins og áður segir er lang-
stærsta fjárfestingin bygging sund-
laugar sem tekur til sín 70 milljónir
á árinu. Alls verða þá komnar 130-
140 milljónir króna í sundlaugina.
Aðrar fjárfestingar eru um 5 millj-
ónir króna sem lagðar verða í götur
og gangstéttir og svipuð upphæð
rennur til kaupa á nýjurn slökkvibíl
(eins og sagt er frá annars staðar í
blaðinu).
Einhugur um
sundlaugina
Kristján Þór Júlíusson bæjarstjóri
segir að um það hafi ríkt einhugur í
bæjarstjórn aó láta sundlaugina
hafa forgang. Þaó hafl leitt til þess
að rekstrargjöldum er haldió í
lágmarki og lántökur auknar um
40 milljónir króna.
„Rekstrarþáttur áætlunarinnar
breytast töluvert frá síðasta ári. Þar
vegur þyngst að áhaldahúsið er
ekki lengur sjálfstæður liður í bók-
haldinu, en í staóinn kemur leik-
skólinn Fagrihvammur sem nú er
að hefja sitt fyrsta heila starfsár.
Framlag bæjarins til hans er tæpar
5,2 milljónir króna. Þá veróur líka
sú breyting að gert er ráð fyrir
rekstri sundlaugar í hálft ár og loks
að rekstur Ungó er kominn yfir til
Leikfélagsins.
Bygging sundlaugarinnar verð-
ur til þess að rekstrarkostnaði er
haldið í lágmarki og vitaskuld get-
um við fyrir bragðið ekki veitt fjár-
magni til allra þeirra verkefna sem
við vildum gjarnan sjá verða að
veruleika. Það væri til dærnis voða
gott að geta lokið við að malbika
allar götur og ganga frá öllum
ópnum svæðum, en það verður að
bíða.“
Á fundi bæjarstjórnar kom fram
í máli Valdimars Bragasonar aó ef
hann hefði ekki tekið þann pól í
hæóina aö styðja sundlaugarbygg-
inguna eins og gert er, hefði hann
viljað leggja meira fé í áframhald
skólabyggingarinnar. Kristján Þór
tók undir þetta sjónarmið og sagði
að hægt yrði að hefja hönnun
byggingarinnar á þessu ári, en hún
færi ekki langt nema ákveðið yrði
síðar á árinu aó reiða meira fé af
hendi. Á þessu ári verður framlag
bæjarins til fjárfestinga í grunn-
skólanum 1,5 milljónir, en þar af
hcfur verið rætt um að nota 700
þúsund krónur í brunavarnir.
Breytingar á
tekjustofnum
Eins og áður segir verða skatttekj-
ur Dalvíkurbæjar 181,5 milljónir á
árinu og standa að heita má í stað
frá fyrra ári. Verulegar breytingar
hafa orðið á tekjustofnum sveitar-
félaga í kjölfar þess að aðstöðu-
gjaldið var lagt nióur í kjölfar
kjarasamninga í fyrra. Til þess að
bæta sér tekjumissinn ákvað bæj-
arstjórn að hækka álagningu tekju-
skatts úr 7 í 9% og fasteignaskatt á
atvinnuhúsnæói úr 1,2% í 1,4%.
„Þrátt fyrir þessar hækkanir
vantar um 10 milljónir upp á að
skattheimtan skili bænum sömu
tekjum og verið hefði aó óbreyttu
aðstöðugjaldi,“ segir Kristján Þór.
„Vió fullnýtum ekki tekjustofnana,
vió mættum hækka, útsvarið, fast-
eignaskatt á íbúðarhúsnæði og hol-
ræsagjaldið, auk þess sem við
ákváðum að leggja ekki á sérstak-
an skatt á verslunar- og skrif-
stofuhúsnæói. Vió kusum að auka
skuldir bæjarins, úr því vió áttum
kost á því, fremur en að hækka
álögur á fólk. Þær eru nægar fyrir.“
Engin kosningalykt
Það vakti nokkra athygli að bæjar-
stjóm afgreiddi fjárhagsáætlunina
með öllum greiddum atkvæðum.
Einungis ein breytingartillaga kom
fram við síðari umræðu: Guðlaug
Björnsdóttir lagði til að framlag til
björgunarsveita yrði hækkað úr 1 í
1,5 milljónir og var þaó samþykkt.
Þetta finnst mörgum merkilegt í
ljósi þess að nú er kosningaár og
einungis fjórir mánuðir þar til kos-
in verður ný bæjarstjóm. Ber að
túlka þetta sem svo aó engin kosn-
ingalykt sé af fjárhagsáætluninni í
ár, Kristján Þór?
„Nei, það er engin kosningalykt
af henni, þvert á móti. Ef ætlunin
hefði verið að hafa slíka lykt af
áætluninni hefðu menn dreift
sundlaugarbyggingunni yfir lengri
tíma og byrjað á fleiri verkefnum.
Þessi bæjarstjórn hefur haft það
verklag að setja sér markmið og
vinna að þeim,“ sagði bæjarstjóri.
-ÞH
Atvinnuþróunarsjóður
Dalvíkur stofnaður
Við afgreiðslu fjárhagsáætlun-
ar var samþykkt að leggja
fram 8 milljónir króna til
stofnunar Atvinnuþróunar-
sjóðs Dalvíkur, en sá sjóður
var stofnaöur fyrr á sama bæj-
arstjórnarfundi.
Samkvæmt stofnskrá sjóósins
skuldbindur Dalvíkurbær sig til
aó leggja fram fimmtíu milljónir
króna til sjóósins á næstu fimni
árum. Við þetta bætist hlutafjár-
eign bæjarins í ýmsum fyrir-
tækjum, svo sem Söltunarlélag-
inu, Hamri, Fiskeldi Eyjafjarðar,
ísstöóinni, Sæluvist, Iðnþróunar-
félagi Eyjafjarðar ofl.
Tilgangur sjóðsins er að cfla
atvinnulíf á Dalvík með því að
veita lán og styrki, hlutafjár-
kaupum og ábyrgðarveitingum
til fyrirtækja, einstaklinga og
stofnana sem ráðast t fram-
kvæmdir sem oröið gætu til að
auka atvinnu á staónum.
Nánar má fræðast um sjóðinn
í samþykktum hans sem við
birtum í heild á bls. 4. -ÞH