Norðurslóð


Norðurslóð - 23.02.1994, Qupperneq 5

Norðurslóð - 23.02.1994, Qupperneq 5
NORÐURSLÓÐ — 5 „Af hjarta ég þrái að komast á blót“ I>orrablót Svarfdælinga var haldið í Vík- urröst á þorraþærælnum, 19. febrúar. •240 manns voru þar saman komin og skemmtu sér hið besta við mat og drykk og dans. Hápunktur skemmtunarinnar var þó að vanda annállinn. Þar voru sveitungarnir dregnir sundur og saman í háði og atburðum liðins annálsárs gerð rækileg skil á vægast sagt gamansömum nótum. Séra Jóns Helga Þórarinssonar var sárt saknaó en hann hefur jafnan tekiö að sér vcislustjórn á þorrablótum. I hans staó var Björn Þórlcifsson fenginn til starfsins. Þótti ekki annaó sæmandi en aó Björn tæki ein- hvers konar skemmri prestvígslu til aó geta sinnt embætti sínu sómasamlega sem hann og gerði. Slíkir afleysingamenn sem gegna störfum prestsins í forföllum hans hafa hér urn slóöir fengið viróingarheitið „prestlíki“, sbr. smjörlíki. Eins og frant kernur í Edinborgarpistlin- um frá séra Jóni á síðunni hér á móti er hugurinn heinia enda kont þaö skýrt fram í annálnum. Birtum vió hér nokkur áöur óbirt vcrs undir sálmalögum scm annálsritarar kváöust hafa grafiö upp úr bréfasafni Norð- urslóðar. Saknaðarsálmar séra Jóns Helga í útlegðinni 1. Lagboði: Þú guð míns lífs ég loka augum niínum A hátíðum ég hugsafram til dala. I Hnjótafjalli kysi ég mér að smala. Og keppa jafnvel vildi ég veikum burðum við vélsleðanna söng í messu á Urðum. 2. Lagboði: I fornöld á jörðu Með fjölskyldu mína égflækst hefi burt. Þótt frekar ég hefði’ átt að vera unt kjurrt. Hér naga ég „haggish “ svo hart eins og grjót. Afhjarta ég þrái að komast á blót. Gestir skemnitu sér hið besta við mat, drykk Og dans. Myndir: Ilj.Iij. Sölvi Hjaltason lcs annálinn mcð tilþrifuiii. 3. Lagboði: Full af gleði Fullur gleðifengi ég mér bita. Fögur Ijóð ég syngi þöndum lunguin. Saman blaiulast Svarti dauði og fita. Sæki ég mér aukaskaniiiit afpungum. 4. Lagboði: nr. 11 í Sálmasöngsbókinni. Er þið vinir veiga dýrra njótið. Vcrið stillt og yfir mark ci skjótið. Efbjórfrá Sana inun buna úr krana veit ég afvana að Jói Dan býst á blótið. Bj.Þórl. Þetta er birt hér til að afsanna þann sví- viróilega róg sem borinn var fram á blótinu aó ritstjórn Noróurslóóar ástundaði ritskoð- un. Svo var aö skilja á annálsriturum að þessir nýtískusálmar séra Jóns hefðu ekki hlotið náð fyrir augum útgefenda. En til þess að séra Jón haldi ekki að þorrablótið hafi eingöngu snúist urn hans persónu skal hér birtur bragur eftir sama höfund um fjármögnunarvanda í Svarfað- ardal: Fjármögnun hallarbyggingar á skólalóðinni Lagboði: Nína og Geiri Ágæt tillaga eitt sinii var inni á borðum hreppsnefiidar, á Húsabakka að byggja höll bænduin fannst þetta hugmynd snjöll. Þeir æddu í skyndi út í sveit að afla fjár og í stuðningsleit. I félagasambanda fjárhirslum firn þeir töldu afpeningum. Búnaóarfélagsformanninn fjárhags báðu um stuðninginn. Fljótt þar neiið fengu þvert. Fast hann beit um sinn pípustert. Þeir knúðu að dyrum kvcnfélags, komu tómhentir þaðan strax. Þær byggja að Tungum skúr við skúr og skarast gólfin um stofu í búr. Eitt erfélag frammi í dal. Fínan á það skemmtisal. Fyrr en höllin háa rís, á Höbbðann kaupa þeir teppi og flís. Urvalshópur afréttar átti krónur fáeinar. Bauð hann upp á framlög fús, en fyrst skal einangrað Stekkjarhús. Nú fór hnípin hreppsnefndin að hugsa um stóra reikninginn. Svo sjóður sveitar ei fari flatt á fasteignirnar þeir hækka skatt. Leikfélag Framhald afforsíðu ingarverðlaun DV, og verið til- nefnt til norrænu leikskáldaverð- launanna scm afhcnt vcrða í vor. Þá hcfur Þjóðleikhúsinu vcrið boð- ið að sýna Hafið á leiklistarhátíð í Bonn í Þýskalandi í sumar og hcfur það boð verió þegió. Þrcttán hlutverk eru í lcikritinu, en þau eru í höndum Kristjáns Hjartarsonar, Þórunnar Þórðardótt- ur, Guðnýjar Bjarnadóttur, Stcin- þórs Stcingrímssonar, Helgu Matt- híasdóttur, Ingveldar Láru Þórðar- dóttur, Arnars Símonarsonar, Hclgu Stcinunnar Hauksdóttur, Björns Björnssonar, Elínar Gunn- arsdóttur, Birkis Bragasonar, Sig- urbjörns Hjörleifssonar og Lovísu Maríu Sigurgeirsdóttur. Eins og áður scgir vcróur frum- sýning á Hafinu föstudaginn 25. febrúar nk. Næstu sýningar vcrða sunnudaginn 27. og mánudaginn 28. febrúar, fimmtudaginn 3., laugardaginn 5. og mánudaginn 7. mars. Allar sýningarnar hefjast kl. 21 ncnia sýningin sunnudaginn 27. febrúar, hún hefst kl. 15. Sýningar fara aó sjálfsögðu fram í Ungó. -ÞH Bestu þakkir til allra þeirra sem glöddu okkur meb heimsókn- um, gjöfum og heillaóskum á 60 ára afmœlisdegi okkar, 21. janúar 1994 Ástdís Lilja Óskarsdóttir Árni Reynir Óskarsson Svarfdælabúð Dalvík Allt í helgarmatínn úr kjötborðinu Lambakjöt á lágmarksverði Franskar kartöflur WC-rÚllur |: v :: Lopiogband HHI 40% afsláttur

x

Norðurslóð

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðurslóð
https://timarit.is/publication/1253

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.