Norðurslóð - 20.04.1994, Page 1

Norðurslóð - 20.04.1994, Page 1
18. árgangur Miðvikudagur 20. apríl 1994 4. töiublað Dalvíkingar njóta kræsinganna sem bæjarstjórn bauð þeim upp á í afmælisvcisiunni. Myndir. -ÞH mm Svarfdælsk byggð & bær Vorið kemur Sunnan yfir sæinn breiða sumarylinn vindar leiða. Draumalandið himinheiða hlær - og opnar skautið sitt. Vorið kemur, heimur hlýnar, hjartað mitt! Gakk þú út í græna lundinn, gáðu fram á bláu sundin. Mundu, að það er stutt hver stundin, stopult jarðneskt yndi þitt. Vorið kemur, heimur hlýnar, hjartað mitt! Allt hið liðna er ljúft að geyma, - iáta sig í vöku dreyma. Sólskinsdögum síst má gleyma, - segðu engum manni hitt! Vorið kemur, heimur hlýnar, hjartað mitt! 1. hluti ljóðabálksins Vikivakar cftir Jóhanncs úr Kötlum Afmælisárið mikla á Dalvík: Bærinn bauð í kaffí á kaupstaðarafmælinu - Ný útgáfa af bæjarmerki og framkvæmdaáætlun fyrir friðlandið í Böggvisstaðafjalli samþykkt á hátíðarfundi bæjarstjórnar I*ann 10. apríl sl. voru liðin tutt- ugu ár frá því Dalvík fékk kaup- staðarréttindi og breyttist úr hreppi í bæ. Af því tilefni gerðu menn sér dagamun, skoðuðu málverk, héldu hátíðarfund og messu og snæddu volduga tertu. Afmælishátíðin hófst daginn fyrir sjálft afmæiið því á laugar- daginn 9. apríl var opnuó sýning á verkum myndlistarmannsins Jóns Stefáns Brimars Sigurjónssonar í húsnæði Tónlistarskólans. Þar gat einnig aó líta söfn nokkurra félaga í Safnarafélaginu sem er ákaflega virkt á Dalvík. Afmælisdagurinn rann upp og kl. 9 um morguninn voru fánar dregnir að húni. Hátíðarmessa var í Dalvíkurkirkju kl. 10.30 þar sem sr. Svavar A. Jónsson predikaði, kirkjukórinn söng og tónlistarfólk á ýmsum aldri lagöi sitt til mál- anna. Kl. 13 hófst sérstakur hátíö- arfundur bæjarstjórnar í Safnaðar- Fundarhamarinn góði sem hjónin og bæjarfulltrú- arnir Guðlaug Björnsdóttir og Hilmar Daniclsson gáfu bæjarstjórn Dalvíkur í tilcfni af afmælinu. Til vinstri má sjá merki Dalvíkurbæjar cins og það hefur nú vcrið útfært af tciknistofunni Stíl á Akureyri. h e i m i 1 i dagskrá fundarins voru tvö mál: Dalvíkur- samþykkt ný og endurbætt útgáfa kirkju. A af merki bæjarins og afgreiðsla á framkvæmdaáætlun l'yrir friöland Dalvíkinga í Böggvisstaðafjalli. Samkvæmt áætluninni á að vinna að skipulagningu fólkvangsins í fjallinu á þessu ári, en fram- kvæmdir eiga að hefjast á næsta ári og vera lokið um aldamót. Er þá átt vió fyrirkomulag aókomuleiða aó fólkvanginum, staósetningu bíla- stæóa, göngustíga, leityækja og skógræktarsvæða. Var hvort tveggja samþykkt með atkvæðum allra bæjarfulltrúa. A fundinum tók til máls Valdi- mar Bragason bæjarfulltrúi, en hann var fyrsti bæjarstjóri hins unga kaupstaðar. Aðrir bæjarfull- trúar tóku til máls og árnuðu bæn- um heilla og Guðlaug Björnsdóttir sem ákveðið hefur að láta af setu í bæjarstjórn eftir kosningarnar í vor kvað sér hljóðs og færði bænum að gjöf forláta fundarhamar sem Jó- hannes Haraldsson á Hjalteyri skar út í tré. Hamarinn er gjöf frá Guð- laugu og eiginmanni hcnnar, Hilmari Daníelssyni, en hann var sveitarstjóri og sat í bæjarstjórn um nokkurra ára skeið. Forseti bæjarstjórnar, Trausti Þorsteins- son, stjórnaði fundi og þakkaði gjöfina og hlý orð í garð afmælis- barnsins. Að loknum hátíðarfundinum bauð bæjarstjórn til kaffidrykkju í Víkurröst og þáðu hundruð manna boðið. Þar var ma. boðið upp á hcljarmikla afmælistertu sem bak- arar í Axinu höfðu bakað. Afmælishátíðin fór í alla staði vel og virðulega fram. En það vakti athygli að einungis einn þingmaður kjördæmisins lét sjá sig í bænum á þessum merkisdegi. Þeir hel'ðu sennilega verið fleiri ef nú væri kosningaár, þó ekki sé geró krafa um að forsetinn sjálfur heiðri bæinn með nærveru sinni eins og Grindvíkingar urðu aðnjót- andi. -ÞH Vorkoma Smám saman saxast á veturinn. Hann var ekkert sérlega illur viðureignar. Nógur er samt snjórinn. Hann kom, svo að um munaði, síðast í janúar og hann Iiggur enn hálfs til heils meters djúpur og eitilharður. Það á nú eftir að sýna sig hvernig hann hefur mcðhöndlað trjágróður og túngróður. I bráðina er ekki ástæða til að vænta annars en góðs. Við sjáum nú hvað setur. Nú eru hinir fljúgandi vorboóar aö koma hver af öðrum. Það byrjaði samt með útlendum fugl- um, sem hrakist hafa hingað norður undan illviðrum. Fiðraðir útlendingar Einn daginn birtust hér öllum að óvörum tveir fiðraðir útlendingar. Þeir voru býsna ólíkir: Annar var svartur, gulnefjaður, á stærð við skógarþröst og hélt sig mest við jörðina. Hinn er smár, á borð við grátitt- ling og heldur sig við trén hopp- andi grein af grein. I Fuglabókinni stendur, að hann sé „skærrauógul- ur á bringu, fram eftir hálsi og enni, en einlitur, olívubrúnn aó ofan". Það er enginn vafi á því, að sá fyrrnefndi er svartþröstur og hann er tíður flækingur hér. Hinn kvað nefnast í bókum glóbryst- ingur og sést hér sjaldan. Nú virð- ist hafa komió vænn hópur og dreifst um landió, því samtímis sáust þeir víða. Hér í byggð sáust þeir um páskana samtímis á Tjörn, Sökku og Laugahlíð. A síðasta staðnum flugu þeir inn í eldhús og þáóu gott úr lófa barnanna. Og fleiri voru flækingarnir. Um skeið var hér stór, grár fugl „og stóð eitthvað skrýtið aftur úr hon- um“, eins og einhver komst aó orði. Þetta held ég, ritstjóri þáttar- ins, að hafi verið gráhegri, en hann teygir langar lappirnar beint aftur frá sér á flugi. Þá má líka nefna fleiri sjaldséða fugla, sem óumdeilanlega tilheyra íslensku fugla-fánunni: A Sökku sáust brandugla, músarrindiíl og rjúpur sama daginn, 14. apríl. Svanur á tjarnir... Og svo voru allt í einu komnir ósviknir farfuglar þ.e.a.s. svanur- inn, sem stundum er kallaóur því einkennilega nafni álft. Hún var komin á mjóa vök á Tjörninni og farin að stinga sér til botnsins, eins og lítil skurðgrafa. Þetta var 15. apríl. Glóbrystingur. ...og þröstur í tún Og síðar sama daginn var allt í einu kominn skrautbúinn skógar- þröstur hoppandi og skoppandi í taðinu fyrir framan fjárhúsin. Næst var röðin komin að öðrum stórum fugli. Nú kemur grágæsin á morgun, sagói einhver á bænum. Rétt var það, að morgni 16. apríl voru þrenn grágæsahjón og ein stök vappandi gæs úti á Kotshól- unum, einu hólunum sem standa upp úr vetrarsnjónum. Þær voru Svartþröstur. glaðar að vera komnar heim og görguðu af feginleik. Hver kemur næst? Og nú fara vorfuglarnir að koma í löngum bunum. Eg spái því að næstur verði stelkurinn að gera vart við sig, og svo heil halarófa: Rauðhöfðaönd, taumönd, márí- atla, grátittlingur og fleiri og fleiri. Kannske fjöllum við eitt- hvað um þá í næsta blaði. HEÞ.

x

Norðurslóð

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Norðurslóð
https://timarit.is/publication/1253

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.