Norðurslóð - 18.05.1994, Blaðsíða 3
NORÐURSLÓÐ — 3
Hvernig á að kjósa?
- Holl ráð til ungra kjósenda
1. Þitt fyrsta verk er að lesa stefnuskrár listanna. í ár virð-
ist, þegar fljótt er á litið, sem framboðin hefðu getað spar-
að peninga og gefió út sameiginlega stefnuskrá. En ef
grannt er skoðað, sérðu að B-listinn hefur komið fram með
hnitmiðuð markntið að vcl hugsuðu máli, þar sem tekió er
á öllum þáttum bæjarfélagsins.
2. Það er erfitt að láta stefnuskrárnar urn það hvað þú átt
að kjósa, svo næsta skrefið er að skoða gaumgæfilega það
fólk scm prýðir listana. Nú, ef þú skoðar D-listann frá síð-
ustu kosningum, sérðu að megin breytingarnar á honurn
eru fyrir neðan 4. sætið og þó svo aó þú getir ekki fundió
þessu fólki, sem haldið hefur um stjórntaumana undanfar-
in átta ár, mikið til foráttu, þá kemstu að þeirri niðurstöðu
aó forystan er líklcga stöónuð og þreytt. Þá líturðu á hin
tvö framboðin, sem bæði hafa gamla refi í fyrsta sæti. Á
B-listanum fylgir Kristjáni ungt fólk, sem þrátt fyrir aldur-
inn hefur víótæka reynslu af félagsstörfum margskonar og
hefur áhuga á aó gera Dalvík að enn ákjósanlegri staó til
að búa á í framtíóinni. I 5. til 14. sæti er svo fólk á ýmsum
aldri úr öllum stéttum og enginn vafi leikur á því að þessir
frambjóðendur B-listans mynda góða hcild sem þú trcystir
fyrir málefnum okkar draumabláu Dalvíkur.
3. Þá ertu búinn að ákveöa að setja x við B og síóan cr
bara að mæta á kjörstað þann 28. maí til að nýta atkvæðið
örugglcga - því þaó cr mikilvægt að þú látir til þín taka.
En mundu að taka niður X-B merkið, svona rétt á ntcð-
an þú ert að kjósa!
Helga Björk Eiríksdóttir
Þegar stefnuskrá B-listans er lesin yfir má strax greina
mikinn áhuga fyrir lélags- og ntenningarmálum, reyndar
er minnst á hin frjálsu félagasamtök í nær öllum mála-
flokkum stefnuskrárinnar.
Þaö er mitt álit að í bæjarfélagi líkt og Dalvík sé ntikið
og gott félagslíf ásamt nægri atvinnu hornsteinn að heil-
brigðum bæ. Eg legg því mikla áhcrslu á aó þau félaga-
samtök bæjarins sem mörg hver hafa farió út í mikla fjár-
festingu á liðnum árum verði studd dyggilega í uppbygg-
ingarstarfsemi sinni á þeirri myndarlegu aóstöðu sem þau
cru að skapa sér.
Hverri krónu scm hægt er að verja til slíkra lélaga er vcl
variö og það er alveg klárt mál að þaó er endurgoldið
margfalt mcð mikilli vinnu og fórnfýsi félaganna.
Góð og öllug lélagasamtök skila bænunt líka fleiri
ferðamönnum og eru þannig óbeint atvinnuskapandi, t.d. í
kringum allt mótahald, og staðurinn veróur fýsilegri til
búsetu þegar góð íþrótta- og félagsaðstaða er fyrir hendi. í
nær öllum tilvikum sparast miklir fjárntunir, t.d. væru bæj-
arfélögin ekki öfundsverð ef á þcirra könnu væri rekstur
hjálparsveita landsins með öllu er því fylgir, húsnæðis- og
tækjakaupum, viðhaldi, þjálfun og þckkingu. Það lcr
óhcmju tími í rckstur slíkrar starfscmi, cn bæjarfélagið
hel'ur til þessa aðeins borió lítió brot af þessum kostnaói.
Ef Dalvíkingar halda áfrarn aó starl'a að félagsmálum af
sama þrótti og hingaó til er ekki aó kvíöa í þeim efnunt.
Það er hreinlega skylda allra bæjarfulltrúa að sýna þessum
félögum skilning.
B-listinn vill vcg hinna frjálsu lélagasamtaka meiri, því
segi ég X-B fyrir betri bæ.
Stefán Gunnarsson
Fjögur efstu á
B-listanum
3. Stefán Gunnarsson 4. Helga Björk Eiríksdóttir
1. Trausti Þorsteinsson
2. Svanhildur Árnadóttir
3. Birgir Össurarson 4. Gunnar Aðalbjörnsson
Fjögur efstu á
D-listanum
X-D fyrir Dalvík
Á undanförnum fjórum árum hefur verió mikill vöxtur á
Dalvík. Á þessum tíma hefur íbúuni tjölgað unt 5,6% sem
er Iangt umfram meðaltal í kjördæminu og nokkru ntcira cn
landsmeðaltal. Staða bæjarsjóðs er mjög sterk og hefur hún
verið nýtt til aó stórauka þjónustu við íbúana, sem nemur
um 28 milljónum króna frá árinu 1990 á verðlagi 1993. Fé-
lagsleg þjónusta við íbúana hefur vaxió um 15 milljónir
króna á þessu árabili og kostnaður við umhverfismál um 5
milljónir. Á sama tíma hefur skattheimta á einstaklinga og
fyrirtæki lækkað um 13%. Álagning útsvars og fasteigna-
gjalda á einstaklinga hefur lækkað og ýmsir skattstofnar á
einstaklinga og fyrirtæki eru ckki nýttir. Allt hefur þetta
verið gert án þess að stofna peningalegri stöðu bæjarsjóós í
voða. Aóeins þrjú bæjarfélög geta státaó af jákvæðri pen-
ingalegri stöðu bæjarsjóðs líkt og Dalvík.
Þrátt fyrir samdrátt tekna og aukinn rekstur hefur bæjar-
sjóóur framkvæmt fyrir 342 milljónir króna cn séu fram-
kvæntdir á vcgum veitna og hafnar meótaldar nemur upp-
hæóin hátt í hálfan miiljarö króna á þessum fjórum árum.
Þessara framkvæmda sér stað í byggingu skóla, sundlaug-
ar, íþróttasvæðis, skíðaskála, leikskóla, íbúðum aldraóra,
vióbyggingu Dalbæjar, gatnageró og ýmsum smærri verk-
efnum. Á vegunt hafnar og veitna hafa helstu framkvæmd-
ir verið bygging grjótvarnar og athafnasvæóis viö höfnina,
miólunargeymir l'yrir kalt vatn og endurnýjun aöveituæðar
hitaveitu.
Átak hefur verið gert í umhverfismálum. Onýt hús og
skúrar hafa verið fjarlægð og opin svæði fegruð. Atvinnu-
ástand á Dalvík hel'ur verið rnjög gott og fullyrðingar um
annað eru hrein ósannindi. Atvinnuleysi er nánast óþekkt
og vöxtur er í fyrirtækjum á staðnum.
Á þessu framfaratímabili hefur D-listinn verið í forystu
í bæjarstjórn. Ef gerðir bæjarstjórnar eru skoðaðar af raun-
sæi má það teljast fullkomin ósanngirni að saka D-listann
um doða og hugmyndaleysi, ckki síst þegar hafóir cru í
huga þeir erfiðleikar sem verið hafa í íslensku efnahags- og
atvinnulífi.
Kosningar á Dalvík snúast um þaö, hvort kjóscndur
vilja áfrarn þennan vöxt og hagsýni í stjórn bæjarfélagsins
eða úreltar leiðir mótframboóanna um aukin afskipti bæj-
aryfirvalda í atvinnulífi með tilheyrandi skuldasöfnun og
stöðnun. Reynsla annarra sveitarfélaga af slíkurn aðgeró-
um leióir í ljós að þær veita einungis stundarbata, mismuna
fyrirtækjum, skuldasetja sveitarfélögin og kalla síóar eftir
sértækum aðgeróum ríkisvalds í anda Atvinnuleysistrygg-
ingasjóðs útfiutningsgreina.
Frambjóóendur D-listans hafa staóið við þau fyrirheit
sem gefin voru fyrir síóustu kosningar, orð þeirra og efndir
fóru saman. D-listinn lagði fram stefnuskrá sína fyrir kont-
andi kosningar löngu á undan öðrum framboðum. Þar er
áhersla lögð á áframhaldandi vöxt og gróandi mannlíf í
bæjarfclaginu. D-listinn er ckki að lofa upp í crmina á sér.
Fulltrúar listans er samstilltur og áhugasamur hópur fólks
sent vill leggja sitt af ntörkum í þágu bæjarfélagsins, íbú-
um þess til heilla. Því hvetjum vió alla kjósendur til að
setja X við D á kjördag, fyrir Dalvík.
Svanhildur Árnadóttir
Um hvað snúast bæjarstjórnarkosningarnar á Dalvík vorið
1994?
Þær snúast í grundvallaratriðum unt það hverskonar
samfélag vió viljum sjá þróast hér á næstu árum í atvinnu-
legu jafnt sem félagslegu tilliti. Þær snúast einnig um það
hverjum vió treystum best til að standa vöró um hagsmuna-
mál okkar og frantfylgja hugmyndum okkar um réttlátt
samfélag í fögru umhverfi.
I-Iistinn er skipaður Dalvíkingum sem hafa starfað með
Alþýðubandalagi, Alþýðufiokki eða Þjóöarflokki, ásamt
einstaklingum sem eru óháóir stjórnmálaflokkum en kjósa
þennan vettvang til að vinna aó hagsmunamálum síns bæj-
arfélags. I-Iistinn efndi til prófkjörs um framboðið og gaf
Dalvíkingum þannig kost á að hafa áhrif á, bæði hvaða ein-
staklingar skipuðu listann og einnig hverjh- skipuðu efstu
sæti hans. I-listinn cr því myndaður mcð lýðræðislegum
hætti af Dalvíkingum sjálfum. I-listinn hefur á að skipa
traustu fólki sem Dalvíkingar þekkja af verkum þess, bæði
atvinnu og þátttöku í félagsmálum og stjórnmálum.
Við, frambjóðendur I-listans, myndunt samhentan hóp
sent er reiðubúinn aó axla þá ábyrgð sem okkur kann að
vcröa falin.
Viö tcljum að stjórnun Dalvíkurbæjar þurfi á hvcrjum
tíma að ntiða að því að þarfir íbúanna scu uppfylltar mcð
sem hagkvæmustum hætti, þannig að sköttum og þjónustu-
gjöldum sé stillt í hóf.
Við tcljum einnig aó bæjaryfirvöld á hvcrjum tíma cigi
aö vinna meö atvinnulífinu og sýna frumkvæði sé þess þörf
og aö öllug og fjölbrcytt félagsstarfsemi sé ckki aðeins al'-
þreying fyrir íbúana heldur og virkur stuöningur við fjöl-
skylduna.
Um ýmis framfaramál og framkvæmdir cru fiestir Dal-
víkingar sammála. Þannig er malbikun gatna eóa lýsing
þeirra, nú cða framboð byggingalóöa varla ágreiningsefni
eóa kosningamál. Áherslur og vióhorf til annarra mála, eða
forgangsröðun, geta hinsvcgar verið það. Framboð okkar,
I-listinn, stcndur fyrir:
• Ellingu atvinnulífs og aukinni fjölbreytni þess.
• Oryggi fyrir börn; samfelldur skóladagur, sveigjanlegur
vistunartími í dagvist og örugg skipulögö leiksvæði.
• Ellingu skólastarfs á Dalvík; sjálfstæður framhalds-
skóli.
• Sveigjanlega félagsþjónustu sem mætir þörfum íbúanna
og styrkir þá til sjálfshjálpar.
• Fjölbreytt framboó húsnæðis; leiguíbúóir fyrir aldraða.
• Ofiugan stuðning við fjölbreytt lélagsstarf og rncnn-
ingarntál.
• Aukna áherslu á umhverfismál.
• Virkara stjórnkcrfi og valddreifingu.
Rcgluleg endurnýjun þcirra sem fara með stjórn og
ákvarðanatöku cr hverju bæjarfélagi nauðsynleg. I-listinn
hefur á að skipa fólki með góðar hugmyndir og fjölbreytta
reynslu og þekkingu til að hrinda þeirn í framkvæmd. Þess
vcgna er I-listinn góður valkostur kjóscnda á Dalvík.
Frambjóðendur I-listans
Fjögur efstu á
I-listanum
1. Svanl'ríður Inga Jónas- 2. Bjarni Gunnarsson
dóttir
3. Þórir V. Þórisson
4. Þóra Rósa Geirsdóttir