Norðurslóð - 18.05.1994, Page 5
NORÐURSLÓÐ — 5
Stærðfræðin og tónlistin hjálpast að
- Spjallað við Davíð Þór Bragason
Ungi námshcstur-
inn og píanólcikar-
inn Davíð I>ór
Hragason. Mynd: hjhj
Síðasta laugardag hélt Davíð Þór
Bragason píanótónleika í Dal-
víkurkirkju. Á efnisskránni
voru verk eftir Bach, Bethoveen,
Chopin, Szymanowsky, Prokof-
iev, Jón Leifs og Hjálmar H.
Ragnarsson og spilaði Davíð tón-
leikana með miklum glæsibrag.
Davíð tók lokapróf í píanóleik
frá Tónlistarskólanum á Akur-
eyri nú fyrir skemmstu og út-
skriftartónleika hélt hann á Ak-
ureyri nú í vikunni.
Davíð Þór er tvítugur Dalvík-
ingur, sonur Braga Stefánssonar
læknis og Svölu Karlsdóttur. Hann
lauk stúdentsprófi af eðlisfræði-
braut í Mcnntaskólanum á Akur-
eyri sl. vor og hefur í vetur með-
fram tónlistarnáminu unnió fyrir
sér með því aó taka nemcndur í
M.A. og V.M.A. í aukatíma í
stærófræði og eólisfræði.
Davíð er afbragðsnámsmaður.
Hann hefur tvívegis keppt fyrir
hönd Islendinga á Olympíuleikum
ungra eðlisfræðinga og s.l. sumar
náði hann næstbestum árangri sem
Norðurlandabúi heíúr náó á þeim
vettvangi. Hann varð einnig
„semi-dux“ á stúdentsprófi og
sömu sögu er að segja af píanó-
náminu, á lokaprófi í Tónlistar-
skólanum hlaut hann 93 stig af 100
mögulegum. Hann hefur nú hlotió
námsstyrk frá University of Penn-
sylvania til að stunda þar það nám
sent hann kýs. Þcssar upplýsingar
fékk blaóamaður eftir krókaleiðum
því sjálfur lætur Davíö lítió uppi
um afrek sín.
Eftirfarandi viðtal fór fram eftir
tónleikana í Dalvíkurkirkju.
Hvenœr byrjaðir þú að lœra á
píanó?
- Ég var 12 ára þegar ég byrjaði
í tónlistarskólanum á Dalvík hjá
Nigel Lillicrap. Síðan hef ég haft
ýmsa kennara en undanfarin 4 ár
hefur Marek Podhajski verið kenn-
ari niinn.
Er mikill tónlistaráhugi á heim-
ilinu?
- Já, já. Pabbi spilar á píanó og
mamma hefur sungió í ótal kórum.
Svo hafa systkini mín öll verió í
einhvcrju hljóðfæranámi. Kiddi
bróðir sem cr 11 ára er efnilegur
píanóleikari.
Hvað fœr ungan mann af rokk
og ról kynslóðinni til að snúa sér
að klassískum píanóleik?
- Það er ekki gott að segja. Ég
hlustaði meira á rokk hér áóur fyrr
en eftir að ég fór aó hlusta á klass-
íska tónlist fannst mér hún einfald-
lega skemmtilegri.
Hver eru uppáhaldstónskáldþín?
- Ég hlusta mikið á Chopin og
Scriabin og finnst gaman aó glíma
viö þá. Annars eru ótal tónskáld í
uppáhaldi hjá mér.
Hvað er svo framundan?
- Ég fer sennilcga til Fíladelliu
í Bandaríkjunum nú í ágúst. Ég er
koniinn þar inn í háskóla og búinn
að fá styrk. Ég l’er líklega í eðlis-
fræði og ætli ég vclji ekki píanóió
sem aukagrein.
Verður ekki erfitt að þjóna
tveim svo ólíkum herrum?
- Nei, það cr nokkuó algengt í
amerískum háskólum að ntenn
leggi stund á tvö fög samhlióa.
Þetta eru náttúrulega ólík fög en
samt ekki alveg eins óskyld og
ntenn ætla. Stærófræði og tónlist
cru aö mörgu leyti af sama ntciði
og ég er ekki frá því að hin stæró-
fræóilega hugsun hjálpi mér í
píanólciknum.
Þá er bara eftir aó óska Davíð
Þór til hamingju með árangurinn
og óska honum góðrar ferðar út í
heiminn. hjhj
Sóknarnefnd
Tjarnarkirkju
verður með kaffisölu að Húsabakka laug-
ardaginn 28. maí nk., kosningadaginn,
frá því að kjörfundur hefst og þar til
talningu er lokið um kvöldið.
Sóknarnefndin
Auglýsing
um kjörfund vegna
bæjarstjórnarkosninga á
Dalvík 28. maí 1994
Kosið verður í Dalvíkurskóla (efri skóla).
Kjörstaður verður opnaður kl. 10.00.
Kosningu lýkur kl. 22.00.
Talning atkvæða fer fram á kjörstað að
loknum kjörfundi.
í kjörstjórn Dalvíkurbæjar
Helgi Þorsteinsson
Inga Benediktsdóttir
Halldór Jóhannesson
Kjörfundur
vegna sveitarstjórnar-
kosningar í Svarfaðardals-
hreppi 28. maí 1994
verður í Húsabakkaskóla (syðra húsi) og
hefst kl. 10 f.h.
Stefnt er að því að Ijúka kosningu
kl. 20.00.
Talning atkvæða hefst kl. 22.00 á
kjörstað.
í kjörstjórn Svarfaðardalshrepps
Sigríður Hafstað
Ármann Gunnarsson
Björn Daníelsson
Framboðslistar við bæjarstjórnar-
kosningar á Dalvík 28. maí 1994
B-listi
Framsóknarfélags Dalvíkur
D-listi
Sjálfstæðismanna og óháðra kjósenda
l-listi
Alþýðubandalags, Alþýðuflokks,
Frjálslyndra, Þjóðarflokks og óháðra
1. Kristján Ólafsson
2. Katrín Sigurjónsdóttir
3. Stefán Gunnarsson
4. Helga Eiríksdóttir
5. Sigurlaug Stefánsdóttir
6. Brynjar Aðalsteinsson
7. Ragnheiður Valdimarsdóttir
8. Daníel Hilmarsson
9. Valgerður Guðmundsdóttir
10. Einar Arngrímsson
11. Guðný Bjarnadóttir
12. Björg Ragúels
13. Jóhannes Hafsteinsson
14. Guðlaug Björnsdóttir
1. Trausti Þorsteinsson
2. Svanhildur Árnadóttir
3. Birgir Össurarson
4. Gunnar Aðalbjörnsson
5. Dorothea Jóhannsdóttir
6. Þorsteinn Skaftason
7. Hjördís Jónsdóttir
8. Friðrik Gígja
9. Hermína Gunnþórsdóttir
10. Hákon Stefánsson
11. Dana Jóna Sveinsdóttir
12. Rúnar Júlíus Gunnarsson
13. Björn Elíasson
14. Eyvör Stefánsdóttir
Dalvík 9. maí 1994
Yfirkjörstjórn Dalvíkur
Helgi Þorsteinsson
Inga Benediktsdóttir Halldór Jóhannesson
1. Svanfríður Inga Jónasdóttir
2. Bjarni Gunnarsson
3. Þórir V. Þórisson
4. Þóra Rósa Geirsdóttir
5. Gunnhildur Ottósdóttir
6. Viðar Valdimarsson
7. Ásta Einarsdóttir
8. Hjörtína Guðmundsdóttir
9. Sverrir Sigurðsson
10. María Gunnarsdóttir
11. Ottó Freyr Ottósson
12. Þuríður Sigurðardóttir
13. Ottó Jakobsson
14. Kolbrún Pálsdóttir