Norðurslóð - 27.07.1994, Síða 4

Norðurslóð - 27.07.1994, Síða 4
4 — NORÐURSLOÐ Kveðja Dýrleif Friðriksdóttir í Argerði F. 14. okt 1906 - D. 18. júní 1994 Dýrleif í Árgerði andaðist á Akur- eyri þann 18. júní sl. á 88. aldurs- ári. Hennar hefur verið minnst í blöðum í Reykjavík og á Akureyri þar sem uppruna hennar og æfiferli eru gerð góð skil. Það sem hér er sett á blað verða því fá orð svo sem í kveðjuskyni l'yrir hönd aðstand- enda og lesenda þessa blaðs. Þau Dýrleif og maður hennar, Daníel Á. Daníelsson héraðslækn- ir, komu hingað árið 1945, þá tek- in að nálgast miðjan aldur, með eina dóttur barna, Guðnýju, f. 1939 á Hesteyri í Jökulfjörðum, þar sen Daníel gegndi embætti hér- aðslæknis. Hér fæddust hjónunum svo tveir synir, Friðrik 1947 og Bjarni 1949. Þau hafa því eirt hér vel innan svarfdælska fjallahrings- ins, eins og fleira gott aðkomufólk. Sumartónleikar á Norðurlandi eru nú haldnir í áttunda sinn í norðlenskum kirkjum og kemur röðin að Dalvíkurkirkju föstu- daginn 29. júlí nk. Þá kemur sönghópurinn Hljómeyki ásamt Hatliða Hallgrímssyni tónskáldi og sellóleikara í heimsókn og syngur í kirkjunni kl. 21. Hljómeyki var stofnað árið 1974 og starfaði þá í nokkur ár. Árið 1986 var hópurinn endurreist- ur og hefur síðan frumflutt ný tón- verk á sumartónleikum í Skálholti Dýrleif var menntuð Ijósmóðir, tók próf frá Ljósmæðraskóla Is- lands 1925. Að því námi loknu starfaði hún um 10 ára skeið sem ljósmóðir í Núpasveitar- og Öxar- fjarðarumdæmum. Hún fór til framhaldsnáms í Kaupmannahöfn 1930-1931. Heimkomin hvarf hún aftur að ljósmóðurstarfinu, meðal annars á fæðingardeild Landspítal- ans í Reykjavík. Hún giftist Daníel Á. Daníelssyni lækni 10. júní 1938. Hjónabandið entist þeim meðan bæði lifðu eða í 56 ár. Fljótlega eftir að þau komu hingað í hérað 1945 keyplu þau gamla timburhúsið á Árgerðis- hólnum, sem þar var reist sem læknisbústaður 1907 eða 1908. Það hús var nú rifið en í þess stað byggt veglegt steinhús, sem hæfir á hverju ári, oftast undir stjórn höf- undar. Hópurinn telur sextán sön^vara. I fyrrasumar frumfluttu þau tvö verk eftir Hafliða Hallgrímsson og verða þau flutt á tónleikunum í Dalvíkurkirkju. Auk þess syngur Hljómeyki fjögur þjóðlög í útsetn- ingu Hafliða og þrjú sönglög og einn sálm eftir Jón Nordal. Hafliði er fæddur á Akureyri en ættaður úr Svarfaðardal í föðurætt, því faðir hans var sonur Lilju Jó- hannsdóttur frá Ytra-Hvarfi. Hann hinu stórfagra umhverfi, þar sem Svarfaðardalsá skýtur olnbogan- um vesturfyrir Hrísahöfðann og víðihólmarnir setja töfrandi blæ á umhverfið. Þarna settust nú læknishjónin að til frambúðar, spölkorn utan við kauptúnið og þó ekki beinlínis í sveitinni. Til viðbótar við hina sjálfgefnu náttúrufegurð vil ég nefna skrúðgarðinn sunnan við læknishúsið. Frá fyrstu árum Sigurjóns Jónssonar, læknis í Ár- gerði (1908-1938) og konu hans, Sigríðar Ólafsdóttur, eru óvenju bolntikil reynitré sunnan undir húsinu, en því miður helst til nærri gluggunum með tilliti til útsýnis fram dalinn. Þennan vísi að skrúð- garði tók frú Dýrleif í fóstur og jók út og fegraði. Hún plantaði espi- lauk námi frá Tónlistarskólanum á Akureyri og fór til framhaldsnáms í tónsmíðum í Róm og Lundúnum. Hefur hann síðan starfað sem sellóleikari og tónskáld. Undan- farna tvo áratugi hefur Hafliði búið og starfað í Edinborg og Skotlandi og þar hitti Kór Dalvíkurkirkju hann í byrjun júnímánaðar sl. Hann mætti á tónleika kórsins þar sem ma. var flutt þjóðlagið Veröld fláa sýnir sig í útsetningu hans. Aðgangur að tónleikunum er ókeypis og allir velkomnir. -ÞH trjám, lerki og runnagróðri auk blómabeða og annaðist þessi fóst- urbörn sín af natni og alúð, því hún unni öllum gróðri og kunni góð skil á íslenska gróðurríkinu. Til gamans skal hér rifjað upp. að fyrir nokkrum árum á hásumar- degi heimsóttum við, ég og kona mín, þau Árgerðishjón, sem oftar. Svo sem í tilraunaskyni söfnuðum við saman stórum vendi, mörgum tugum íslenskra jurta, tíndum á Hrísahöfðanum og þar í kring. Blómvöndinn fékk Dýrleif hús- freyja til að greina f tegundir. Eg man ekki að nefna prósentur en hún fékk háa ágætiseinkunn fyrir frammistöðuna og hafði hún og við öll mikið gaman af. Eg hef farið nokkrum orðum um þennan þátt í lífsstarfi Dýrleifar Friðriksdóttur eftir að hún eignað- ist eigin blett til að annast. Sjálfri mun henni þó að líkindum hafa verið ríkust í minningunni árin hennar í Ijósmóðurstarfinu þótt þau væru ekki svo ýkjamörg. Hún bar falslausa virðingu fyrir því og hafði yndi af að rifja upp minning- ar frá því tímabili ævinnar og sagði svo frá með nokkru stolti, að enga konu hefði hún „misst“ í sínu ljós- móðurstarfi, né heldur barn. Án efa varð húsmóðurstarfið þó sá þáttur í lífi Dýrleifar, sem hún helgaði mesta krafta og umhyggju. Þegar Dýrleif var komin á fimmtugsaldur eignuðust þau hjónin tvo syni með ríflega árs millibili. Hafi Dýrleifu áður fund- ist hún ekki hafa nægilegt „viðnám krafta sinna“, svo notuð séu orð Sumartónleikar á Dalvík - Hljómeyki og Hafliði Hallgrímsson á tónleikum í Dalvíkurkirkju á föstudagskvöldið Svarfdœlabúð Dalvík í kjötborðinu: Allt á grillið og í helgarmatinn Grillkjöt frá Kjarnafœði, Nýja Bautabúrinu og Kjötiðnaðarstöð KEA Ferðagasgrill - Kolagrill Grillkol - Grilláhöld Svefnpokar - Tjöld - Tjalddýnur og fleira í útileguna þingeyska skáldsins, þá hefur sú tilfinning horfið bæði fljótt og vel þegar henni höfðu fallið í skaut synirnir ungu og allur sá óendan- legi erill, sem því fylgir að koma barni til manns. Ekki hefur það verið talið eftir og á elliárunum veittist hjónunum líka sú ánægja að fylgjast með ágætri frammistöðu bama sinna í straumkasti þjóðfélagsins. Einnig veittist þeim sú ánægja, að fá að kynnast bamabörnum sínum, sem hafa dvalist í Árgerði langtímum saman. Með þessum fáu og fátæklejju orðum vil ég þakka Dýrleifu í Ar- gerði ágæta viðkynningu og marga skemmtilega samverustund hjá þeim hjónum í Árgerði. Dýrleif var bráðskemmtileg kona, sem mikil eftirsjá er að. En hún var há- öldruð orðin og kröftum þrotin. Hennar útmældi tími var kominn, og enginn má sköpum renna. Hún var jarðsungin frá Dóm- kirkjunni í Reykjavík þann 25. júní. Blaðið sendir Daníel í Ár- gerði og afkomendum þeirra hjóna innilegar samúðarkveðjur. HEÞ. Sögur úr sveitinni Framliald afforsíchi hefjast framkvæmdir þar e.t.v. strax í haust. Þar eru á ferðinni Sig- urður Lúðvígsson tannlæknir og Guðríður Valva Gísladóttir tónlist- arkennari. Sótt hefur verið um aðra byggingarlóð í Laugahlíð og hafist er handa við byggingu sumarbú- staðar neðan við Jakobslund. Mikil ásókn hefur verið í sum- arbústalóðir í landi Hamars. Það land hefur enn ekki allt verið skipulagt en síðustu lóðinni á skipulögðu landi var úthlutað nú í sumar. I fyrra var þar úthlutað þremur lóðum og verður hafist handa við þá sumarbústaði alla í sumar. En Oskar byggir Þeir sem leið hafa átt um Skíða- dalinn í sumar hafa tekið eftir and- litslyftingu á gömlu fjárhúsunum á Másstöðum og velt nokkuð vöng- um yfir því hvað þarna sé í upp- siglingu. Norðurslóð hafði sam- band við Oskar Gunnarsson í Dæli sem stendur þarna fyrir fram- kvæmdum og spurði hann hvað þarna væri að gerast. Oskar sagðist reyndar ekki alveg vera endanlega búinn að gera upp við sig hvaða starfsemi þarna færi fram. Það hefði lengi staðið til að endurbæta fjárhúsin til einhverrar starfsemi. Nú væri búið að einangara, leggja gólf og koma vatni og hita í húsið. Til greina kæmi að hafa þarna einhverja ferðaþjónustu og eins gæti þarna orðið aðstaða fyrir list- iðnað húsfreyjunnar, Lene Zachar- íassen, sem löngu er landskunnur orðinn. Þetta verður sem sagt fjöl- nota hús undir margháttaða starf- semi hinna framkvæmdasömu hjóna í Dæli og það er hið besta ntál eins og sagt er fyrir sunnan. hjhj

x

Norðurslóð

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðurslóð
https://timarit.is/publication/1253

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.