Norðurslóð - 26.08.1994, Blaðsíða 3

Norðurslóð - 26.08.1994, Blaðsíða 3
NORÐURSLÓÐ —3 Fannst orðið tíma- bært að skipta - Sveinn Jónsson í Kálfsskinni er hættur í hreppsnefnd, en hamast við að láta hugmyndir sínar um nýjungar í ferðaþjónustu rætast Sveinn Jónsson bóndi, trésmiður og ferðamálafrömuður í Syðra- Kálfsskinni á Árskógsströnd lét af starfi sem oddviti og hrepps- nefndarmaður að loknum kosn- ingum í vor. Hann hafði þá setið 24 ár í hreppsnefnd og verið oddviti í tæpan áratug. Eflaust fínnst fíeirum en þeim sem þetta ritar undarlegt að hugsa sér hreppsnefnd Árskógshrepps án Sveins. Hann hefur verið lang- mest áberandi af sveitungum sínum og vasast í mörgu eins og hann segir sjálfur. Norðurslóð fannst því tilvalið að taka Svein tali í tilefni þessara tímamóta. Það er ekki auðvelt að fá yfir- sýn yfir starfsvettvang Sveins í Kálfsskinni. Hann er þó fyrst og fremst bóndi nteð 130 þúsund lítra framleiðslurétt á mjólk. Það sam- svarar 30-40 mjólkandi kúm, en að sögn Sveins eru oft hátt í hundrað gripir í fjósinu á Kálfsskinni. Auk þess er hann með hesta sem ma. helgast af ferðaþjónustunni sem fjölskyldan rekur. Ofan í öll þessi dýr þarf reiðinnar ósköp af heyi enda heyjar Sveinn af 80 hektörum á hverju sumri. Nú, hann er líka aðaleigandi og stofnandi eins elsta byggingar- fyrirtækis Eyjafjarðar, Kötlu hf., sem reisir hús og önnur mannvirki víða um héruð. Þá hefur hann setið í stjórn Sparisjóðs Árskógsstrand- ar um árabil og nú Sparisjóðs Svarfdæla. Auk þess hefur hann átt sæti í stjómum ýmissa fyrirtækja og samtaka og má þar nefna félag áhugamanna um vélsleðaakstur þar sem hann er í stjórn ásamt syni sínum. Enn er ótalið það verkefni sem Sveinn hefur fengist við af hvað mestum áhuga undanfarin ár: ferðaþjónustan. Þessa dagana ekur hann gestum landbúnaðarsýning- arinnar Auðhumlu 94 að Hrafna- gili um sýningarsvæðið í hestvagni sem þýskur hestamaður ók hring- inn í kringum landið fyrr í sumar. Vagninn er nýjasti sprotinn á ferðaþjónustuveldi Sveins og bama hans en það verður umfangs- meira með hverju árinu. Leiddist barlómurinn „Þetta byrjaði á þvt að Erla Gerður dóttir mín fór að tala unt að hana vantaði einhverja skemmtilega sumarvinnu. Eg sló til og við keyptum jörðina Ytri-Vik en þar stendur elsta steinhús sveitarinnar, 65 ára gamalt. Þar byrjuðum við með bændagistingu, en húsið tekur 16 gesti í rúm og svefnpokapláss. Það sem hvatti mig líka til dáða var hvað mér leiddist barlómurinn í bændum. Það var á þeim að skilja að ekkert væri hægt að gera ef hefðbundinn búskapur brygðist. Ég var ekki sammála þessu. Það hefur svo bæst í þetta hjá okkur. Við erum búin að reisa þrjú 50 fermetra sumarhús á jörðinni og getum bætt fleirum við ef grund- völlur er fyrir því. Það er á mörk- unum að þessi fjárfesting standi undir sér því ferðamannatíminn er svo stuttur. Ef hægt væri að lengja hann væri þetta ekkert mál. Nú má líka segja að nóg sé komið í bili af gistirými og veit- ingaaðstöðu í íslenskri ferðaþjón- ustu. Það þarf hins vegar að auka afþreyinguna. Við fórum af stað með hestaleigu og sjóstangaveiði sem nú er komin um allt land. Við gerum út 30 tonna bát frá Hauga- nesi og fáum á hverju sumri ákveðna hópa, til dæmis er hópur af Svisslendingum sem er hér 2-3 vikur við sjóstangaveiðar á hverju sumri.“ Kláfferja og ferðamiðstöð Það er óhætt að slá því föstu um Svein í Kálfsskinni að hann verður seint uppiskroppa með hugmyndir. Þær hafa líka tilhneigingu til að verða að veruleika ef hann ákveður það. Hann hefur í vaxandi mæli snúið sér að því að byggja upp ferðaþjónustu á Akureyri. Þar eru þeir feðgar með mörg jám í eldin- um. Auk hestvagnsins góða bjóða þeir upp á sjóskíði og þotur á Ak- ureyrarpolli og synimir reka mat- sölustaðinn Pizza 67 við Geisla- götu. Og hugmyndimar eru síður en svo þrotnar. „Við höfum boðið upp á ævin- týraferðir í Fjörður og er þá farið á jeppum úteftir en á bát til baka eða öfugt. Svo er ég að láta athuga möguleikann á því að setja upp kláfferju í Hlíðarfjalli ofan við Skíðastaði. Þar væri hægt að koma fólki upp í tæplega 1200 metra hæð á Vindheimajökli. Þar uppi opnast alveg nýtt skíða- og útivist- arsvæði sem er opið allt árið. Þá stæði Akureyri loks undir nafni sem skíðabær. Ég fékk verkfræði- deild Háskóla íslands til að gera athugun á veðurfari þarna uppi til þess að geta spáð í það hversu marga daga svona mannvirki myndi nýtast á ári. Sjálfur hef ég yndi af vélsleða- ferðum á vetuma og gæti vel hugs- að mér að bjóða ferðafólki upp á slíkar ferðir allan ársins hring. Við höfum verið að leigja sleða í smáum stíl á Þorvaldsdal á vet- uma. Þar hef ég líka boðið ferða- fólki upp á trússahest með töskum fyrir farangur. Þetta getur hentað göngufólki vel því það getur þá gengið án klyfja.“ Nýjasta framtak Sveins í ferða- málunum sýnir glöggt framsýni hans. Hann er að festa kaup á húsinu sent Umferðarmiðstöðin er í við Hafnarstræti á Akureyri. Þar sér hann fyrir sér miðstöð ferða- þjónustu fyrir allan Eyjafjörð. „Þorri allra ferðamanna sem koma til Akureyrar koma í þetta hús og þar vil ég að sé hægt að bjóða upp á ódýrar veitingar. Einn- ig á að vera þar upplýsingaþjón- usta og sala á ferðum og þjónustu fyrir allt héraðið. Það er mikilvægt að hægt sé að kaupa allt á einum stað en þurfa ekki að leita um allan bæ. Þá gæti verið þama sala á minjagripum og munum. Með svona þjónustu er ég sannfærður um að hægt sé að auka arðsemi ferðaþjónustunnar og ánægju ferðafólksins." Akveðinn greindarskortur En við skulum ekki gleyma okkur í ferðamálunum heldur skyggnast aðeins aftur í fortíð Sveins. Hann er fæddur í Kálfsskinni, en fór á lýðháskóla í Danmörku þar sem Jón Trausti Þorsteinsson kenndi honum ásamt fleirum. Heim kom- inn lærði hann trésmíðar í Reykja- vík og þar hóf hann búskap með henni Ásu sinni. Hún er frá Engi- hlíð, dóttir Marinós Þorsteinssonar sem lengi var oddviti í Árskógs- hreppi. „Hún gerði það fyrir mig að koma með mér norður aftur. For- eldrar mínir voru þá að bregða búi og enginn vildi taka við kotinu nema ég sem var yngstur og vit- lausastur," segir Sveinn og brosir. Ása er ljósmóðir og starfar sem slík á Dalvík og Akureyri. Þau eiga fjögur böm, dæturnar Erlu Gerði sem er læknir á Borgarspítalanum og Margréti sem er deildarstjóri í verðbréfamarkaði Islandsbanka. Synimir eru Jón Ingi sem veitir byggingafyrirtækinu Kötlu for- stöðu og Marinó sem hefur tekið við ferðaþjónustunni að verulegu leyti. Báðir eru þeir smiðir að mennt. „Ása heldur þessu öllu sarnan," segir Sveinn. „Án hennar væri ekkert vit í þessu, því hún er frem- ur illa gift, blessunin. Það lýsir auðvitað ákveðnum greindarskorti að geta aldrei verið til friðs, þurfa alltaf að vera að vasast í öllum hlutum. Það vantar líka í þetta allt skipulag. Að vísu hef ég það mér til málsbóta að ferðabransinn er óútreiknanlegur, maður verður oft að hlaupa frá öllu þegar eitthvað kemur upp á. Ég reyni þó að mjólka kvölds og morgna. Svo hef ég haft gott starfsfólk, bæði hjá Kötlu og hér á búinu, sömu menn- ina árum sarnan." Rígurinn háir okkur ekki Sveini fannst orðið tímabært að skipta um oddvita í kosningunum í vor, en hann er þó ekki alveg búinn að sleppa hendinni af málefnum sveitunga sinna. „Ég er í stjórn byggðasamlags um sorpeyðingu og þar eru óhemju mikil verkefni framundan. Það er löngu tímabært að við förum að huga að því hvað verður um ruslið sem við fleygjum frá okkur. Nú er verið að athuga möguleikann á því að nota hluta úrgangsins, þann líf- ræna, sem áburð. Mér finnst það spennandi tilhugsun að geta nýtt ruslið til að græða upp landið.“ Og svo hefur fundist heitt vatn í landi Ytri-Víkur og Sveinn hefur áhuga á að kanna möguleikann á því að veita því um sveitina. „Þama hefur fundist 50°C heitt vatn á 150 metra dýpi, en það á eftir að kanna þetta betur. Ef þetta er raunhæfur möguleiki gæti það gerbreytt búskaparháttum hér í sveitinni." En Árskógshreppur er ekki bara sveit. Tveir af hverjum þremur Ströndungum búa í þorpunum á Árskógssandi og Hauganesi. Löngum hefur verið haft á orði að rígur væri á milli þorpanna og ein sagan segir að hann sé ástæðan fyrir því að skólinn og Sparisjóð- urinn voru settir niður miðja vegu milli þeirra. „Jú, það hefur verið rígur á milli þorpanna," viðurkennir Sveinn, „en hann hefur ekki staðið okkurfyrir þrifum. Þessi kjarni við Árskóg er vel í sveit settur og í góðu vegasambandi við umheim- inn, auk þess að vera miðsvæðis í sveitinni," segir hann. Verkefnin eru svo mörg Að lokunt er ekki úr vegi að spyrja hvað það sé sem rekur Svein áfram í lífinu. Af hverju getur þessi 62 ára gamli bóndi og smiður aldrei verið til friðs, svo notuð séu hans eigin orð? „Það sem rekur mig áfram er að mér finnst verkefnin framundan vera svo mörg að við höfum ekki efni á því að borga fólki atvinnu- leysisbætur. En ég finn að það er ekki endalaust hægt að bæta við. Dagurinn er einfaldlega ekki nógu langur til þess. Það er aðalástæðan fyrir því að ég ákvað að hætta í sveitarstjóm," segir Sveinn Jóns- son í Kálfsskinni. -ÞH Atvinna Vantar starfsfólk til matvælavinnslu. Um er að ræða störf við snyrtingu og pökkun. Upplýsingar gefur Sigurður í síma 61200 Meðmæli óskast Frystihús ÚKE Dalvík Dalvfk Málningarvörur frá Sjöfn Útitex 101 kr. 4.780 Texolín grunnfúavörn 41 kr. 1.824 Texolín þekjandi 41 kr. 3.201 Rex þakmálning 201 kr. 13.123 Byggingavörudeil

x

Norðurslóð

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Norðurslóð
https://timarit.is/publication/1253

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.