Norðurslóð - 26.08.1994, Blaðsíða 6
TÍMAMÓT
Skírnir
Þann 2. júlí var skírð í Dalvíkurkirkju Erla, dóttir Ellener Sigurðar-
dóttur og Ulfars Guðmundssonar, Brekkubyggð 85, Garðabæ. Erla
fæddist 23. apríl sl. Séra Hulda Hrönn Helgadóttir skírði.
Þann 17. júlí var skírð í Dalvíkurkirkju Anna María, dóttir Sess-
elju Antonsdóttur og Bergs Höskuldssonar, Skíðabraut 15, Dalvík.
Anna María fæddist 30. janúar sl. Séra Svavar A. Jónsson skírði.
Þann 7. ágúst var Eyþór Freyr skírður við útiguðsþjónustu á Há-
nefsstaðareit. Foreldrar hans eru Lene Zachariassen og Oskar Snæ-
berg Gunnarsson, Dæli í Skíðadal. Séra Svavar A. Jónsson skírði.
Hjónavígslur
Þann 9. ágúst sl. varð sjötíu og fimm ára
Sveinn Sigurðsson, Svalbarði, Dalvík.
Þann 24. ágúst sl. varð sjötug Vaigerður
Guðmundsdóttir, fyrrum húsfreyja á Hrísum,
Hjarðarslóð 4 e, Dalvík.
Norðurslóð árnar heilla.
Þann 7. ágúst sl. varð sjötug Jónína Árna-
dóttir, Bárugötu 12, Dalvík.
Systrabrúðkaup fór fram í Minjasafnskirkjunni á Akureyri þann 13.
ágúst sl. Þar voru gefin saman í hjónaband annars vegar Hafdís
Sigmarsdóttir og Úlfar Kristinssón, Hraunkambi 9 í Hafnarfirði,
og hins vegar Hanna Sigmarsdóttir og Hilmar Jakobsson, Fjólu-
götu 16, Akureyri. Systumar eru dætur Sigmars Sævaldssonar og
Ástu Einarsdóttur á Dalvík. Það var séra Þórhallur Höskuldsson
sem gaf hjónin saman.
Þann 13. ágúst voru gefin saman í hjónaband í Staðarstaðakirkju á
Snæfellsnesi þau Magnea Þóra Einarsdóttir, Hjarðarslóð 4 e,
Dalvík, og Örnólfur Einar Rögnvaldsson frá Staðarstað. Hjónin
eru búsett í Danmörku. Það var faðir brúðgumans, séra Rögnvaldur
Finnbogason, sem gaf þau saman.
Þann 20. ágúst voru gefin saman í hjónaband þau Guðmundur
Þorbjörn Júlíusson og Áslaug Valgerður Þórhallsdóttir, til
heimilis í Miðtúni 3, Dalvík. Athöfnin fór fram í Dalvíkurkirkju og
það var séra Svavar A. Jónsson sem gaf hjónin saman.
Afmæli
Þann 6. og 24. ágúst sl.
urðu sjötug hjónin Krist-
inn Þorleifsson og Svan-
björg Jónsdóttir,
Bárugötu 6, Dalvík.
FRÉTTAHORNIÐ
Húsið Valensía við Hafnarbraut hvarf eins og dögg fyrir sólu um síðustu
helgi. Það var Starfsmannafélag Söltunarfélagsins sem virkjað var til niður-
rifsstarfsins og það gekk svo rösklega til verks að þegar Ijósmyndari Norður-
slóðar mætti á vettvang var ekkert eftir af húsinu annað en skuggi á vegg
SFD. Það var fyrst og frcinst til að greiða fvrir umferð um Hafnarstræti sem
húsið var látið hverfa en það stóð í vegi fyrir skipulagi. En öll hús eiga sér
sögu og við ætlum að rifja upp sögu Valensíu síðar. Mvnd: -i>h
Iðnaðarmenn voru að koma fyrir 40 metra langri rennibraut við nýju sund-
laugina í vikunni.
Hreppsnefnd Svarfaðardals-
hrepps hefur nú jafnað niður
göngum og sent gangnaseðla á alla
viðkomandi bæi. Fyrstu göngur
verða helgina 9.-11. september og
aðrar göngur helgina 23.-25. sept.
Réttað verður í Tungurétt sunnu-
daginn 11. september kl 12.30.
Hrossasmölun verður föstudaginn
7. október og stóðrétt í Tungurétt
kl. 12.30 þann 8. okt. Fjallskila-
stjóri vill sérstaklega benda þeim
sem hyggjast fara á Tungurétt á að
þar verður ekkert fé fyrr en kl. hálf
eitt á réttardaginn.
✓
Ymsar framkvæmdir hafa verið
í gangi á vegum Dalvíkurbæj-
ar eins og vaninn er á sumrin.
Stærsta framkvæmdin er að sjálf-
sögðu sundlaugin, en einnig hefur
verið gengið frá götum og gang-
stéttum hér og þar. Nú er búið að
samþykkja að leggja kalt vatn út að
Hóli, en frá Helgafelli hefur einnig
borist ósk um að tengjast vatns-
veitunni.
Ljóst er að framkvæmdir við
nýju sundlaugina dragast eitt-
hvað fram yfir mánaðamót, en
helsta ástæða tafanna er sú að ít-
alskt fyrirtæki sem framleiðir flís-
amar sem prýða laugarbakka og
búningsklefa sendi flísar í röngum
litum í fyrstu atrennu. Þau eru
mörg handtökin sem þarf til að
koma svona flóknu mannvirki í
gagnið og þegar tíðindamaður
Norðurslóðar átti leið um bygging-
arsvæðið á miðvikudag var verið
að koma fyrir 40 metra langri
rennibraut sem eflaust á eftir að
njóta vinsælda meðal yngri kyn-
slóðarinnar. Af öðrum búnaði
laugarinnar má nefna að auk aðal-
laugarinnar, sem er 12,5x25 m að
stærð, verður vaðlaug með sveppi,
tveir heitir pottar, eimbað og ljósa-
lampi. Einnig er gert ráð fyrir að
nota hluta laugarhússins undir lík-
amsrækt eða aðra heilsuræktar-
starfsemi en beðið verður með að
innrétta þann sal. Loks ber að
nefna að í tuminum góða sem vak-
ið hefur svo mikla athygli verður
komið fyrir lítilli kaffistofu þar
sem hægt verður að fá sér hress-
ingu að afloknu sundi.
Forstöðumaður nýju sundlaug-
arinnar hefur verið ráðinn
Skarphéðinn Pétursson frá Hrís-
um og hefur hann verið önnum
kafinn við að undirbúa reksturinn
og skoða margvíslegan búnað sem
þarf til að reka eina sundlaug. Með
honum er ráðgert að fastráða þrjá
starfsmenn, en ljóst er að í upphafi
verður mikil aðsókn og viðbúið að
lausráða þurfi fleiri svo hægt verði
að sinna nauðsynlegri og lögboð-
inni öryggisgæslu.
Bæjarstjóm hefur borist upp-
sögn rekstraraðila leikskólans
Fagrahvamms á sámningi um
reksturinn. Þær Anna Jóna Guð-
mundsdóttir og Birna Björns-
dóttir hafa haft rekstur leikskólans
á leigu síðan hann var stofnaður í
september í fyrra, en hyggjast nú
hætta því frá og tneð 1. júní á
næsta ári. Ákvörðun um framtíð
Fagrahvamms verður vísað til
skólanefndar, en samkvæmt breyt-
ingum sem gerðar voru eftir kosn-
ingar í vor heyra málefni leikskól-
anna nú undir skólanefnd en ekki
félagsmálaráð.
Fyrr í sumar auglýsti húsnæðis-
nefnd Dalvíkur eftir íbúðum til
kaups. Þrjár eldri íbúðir voru
boðnar falar auk þess sem Tréverk
hf. og Árfell hf. buðu til kaups
íbúðir sem enn eru ekki risnar.
Ákveðið var að gera gagntilboð í
tvær eldri íbúðanna. Húsnæðis-
nefndin hefur heimild til að kaupa
þrjár félagslegar íbúðir á þessu ári
og verður þriðja heimildin notuð
til að ljúka fjórðu og síðustu íbúð-
inni í raðhúsi sem risið hefur við
Skógarhóla.
Að vanda er töluverður slagur
um leiguíbúðir á Dalvík um
þessi mánaðamót. Ingvar Kristins-
son húsnæðisfulltrúi staðfestir að
mikil eftirspurn eftir leiguíbúðum
Mynd: -ÞH
sé í bænum og skortur á slíku
húsnæði. Ingvar segir algengt að
fólk leiti til bæjarins eftir leigu-
húsnæði, en hann hafi nóg með að
útvega starfsfólki á vegum bæjar-
ins húsnæði.
Félagsheimilið
að Húsabakka:
Fyrri
áfanga
að ljúka
Nú líður að því að Tréverks-
menn skili af sér fyrri áfanga
félagsheimilisins að Húsa-
bakka. Verið er að ljúka við
klæðningu utan á húsið en
eftir er að steypa stéttir og
grófjafna lóðina svo öllum
ytri frágangi sé lokið eins og
gert var ráð fvrir í útboði.
Hvert framhaldið verður
ræðst að nokkru af hvenær
framlag Jöfnunarsjóðs til
verksins berst en rætt hefur
verið um að ganga frá
einangrun hússins í vetur.
I Húsabakkaskóla hafa enn
orðið dálitlar breytingar innan-
stokks. Skólabókasafn er kom-
ið í nýja stofu sem áður til-
heyrði kennaraíbúð og þar er
einnig gott kennslurými fyrir
litla hópa og sérkennslu. Á
móti hefur lítil kennslustofa á
efstu hæð verið tekin undir
setustofu en önnur kennslu-
stofa verið stækkuð um helm-
ing með því að rífa þil og opna
inn í fyrrum setustofu nem-
enda. hjhj
Ferðafélag Svarfdæla
Vinnuferð á Tungnahrygg verður farin frá Bauga-
seli í Barkárdal kl. 11 laugardaginn 27. ágúst. Unnið
verður að málningu og viðhaldi skála og gengið nið-
ur í Skíðadal daginn eftir. Þátttaka tilkynnist Svein-
birni Steingrímssyni í síma 61365.
Stjórnin
Munið gíróseðlana