Norðurslóð


Norðurslóð - 26.08.1994, Qupperneq 4

Norðurslóð - 26.08.1994, Qupperneq 4
4 — NORÐURSLOÐ Maria Wastl skoðar loftmyndir af Skíðadal. Myndir: hjhj Nefndir og ráð í Svarfaðardalshreppi I síðasta tölublaði Norðurslóðar birtum við upptalningu á nefnd- um og ráðum Dalvíkurbæjar. Nú er komið að Svarfaðardals- hreppi og skipan nokkurra helstu nefnda í sveitinni. Forðagæslumenn Arni Steingrímsson Ingvörum Hallgrímur Einarsson Urðum Skólanefnd Húsabakkaskóla. Kristján Hjartarson Tjöm Sigurbjörg Karlsdóttir Grund Dómhildur Karlsdóttir Klaufa- brekknakoti Jón Hjaltason Ytra-Garðshomi Skógræktar- og umhverfisnefnd Dagbjört Jónsdóttir Sökku Filippía Jónsdóttir Hofi Anna Lísa Stefánsdóttir Koti Félagsmálanefnd Guðrún Rósa Lárusdóttir Þverá Rósa Kristín Baldursdóttir Laugahlíð Arngrímur Baldursson Melum Bygginganefnd Baldur Þórarinsson Bakka Gunnlaugur Sigurðsson Klaufa- brekkum Sölvi Hjaltason Hreiðarsstöðum Kjörstjórn Sigríður Hafstað Tjörn Björn Daníelsson Laugabrekku Gunnar Jónsson Brekku Endurskoðendur Björn Daníelsson Laugabrekku Þorgils Gunnlaugsson Sökku Riðunefnd Arni Steingrímsson Ingvörum Hallgrímur Einarsson Urðum Jón Þórarinsson Hæringsstöðum Afengisvarnarnefnd Margrét Gunnarsdóttir Göngu- stöðurn Halla Einarsdóttir Urðunr Stjórn bókasafns Helga Hauksdóttir Húsabakka Björn Daníelsson Laugabrekku Gunnar Jónsson Brekku Sundskálanefnd Helga Hauksdóttir Húsabakka Kristján Hjartarson Tjöm. Ekki verða hér taldir upp full- trúar Svarfaðardalshrepps í sam- eiginlegum nefndum með Dalvík- urbæ eða með fleiri sveitarfélög- um. Olafur Valsson dýralæknir auglýsir: Símatími er frá 8-10 alla morgna í síma 61430 Ðílasími minn er 985-31114 Þýsku jarðvísindamennirnir með alvæpni á hlaðinu á Másstöðum, frá vinstri: Angelika, Hans, Thomas og Maria. Hvað eru þessir Þjóðverjar alltaf að gera hérna? - Þýskir háskólamenn í gömlu fjárhúsunum á Másstöðum Johann Stötter heitir maður, kallaður Hans af þeini sem þekkja hann. Hann er þýskur eins og nafnið bendir til og starf- ar sem landafræðiprófessor við háskólann í Múnchen. Hans hef- ur 8 sinnum dvalið á íslandi um lengri eða skemmri tíma og þá lengstum í Skíðadal við jarð- fræðirannsóknir. Koma hans í dalinn er orðin jafn árviss og koma Itinna farfuglanna og sjálf- ur segist hann ftnna til óþreyju eins og farfuglarnir sem ekki hverfur fyrr en hann er kominn í Skíðadalinn. Að undanfömu hefur Hans dvalið ásamt fylgdarliði sínu í gömlu fjárhúsunum á Másstöðum en eins og greint var frá í síðasta blaði hefur Oskar bóndi í Dæli unnið að því í sumar að innrétta þar aðstöðu til mannvistar. Hans og fylgdarlið hans hefur um árabil verið í góðu vinfengi við þau Dælishjón og fengu heiðurinn af því að vígja vistarverumar þó ekki séu þær fullbúnar enn. Blaðamaður Norðurslóðar þáði á dögunum heimboð í þessi óvenjulegu húsakynni og var boð- ið upp á kaffi, sríðstertu með ný- tíndum bláberjum og „apfelstrud- el“ sem er þýsk eplakaka borin fram með þeyttum rjóma. Gestgjafarnir ásamt Hans Stött- er voru Maria Wastl, sem vinnur að doktorsritgerð, Angelika Biess sem í sumar er Maríu til aðstoðar og reynir að gera upp við sig hvort hún eigi að fara í doktorinn eða gerast kennari, og Thomas Geist landafræðinemi. Það má því segja að í þessum fjögurra manna hóp séu 3 kynslóðir landfræðinga þó aldursmunurinn sé ekki mikill. Thomas er hér í fyrsta sinn, stúlk- urnar hafa tvisvar dvalið hér áður við rannsóknir en Hans er hér í áttunda sinn eins og áður segir. Nýjar hugmyndir En hvað er þetta fólk að gera og hvers vegna kemur það svona aftur og aftur? Það leikur eflaust fleirum en blaðamanni Norðurslóðar for- vitni á að vita og þess vegna setti undirritaður upp blaðamannshatt- inn og sneri saklausu kaffiboði upp í blaðaviðtal. Hans segir að þær rannsóknir sem hann hafi verið að vinna að hér miði að nokkurs konar endur- skoðun á viðteknum hugmyndum um landmótun eftir lok ísaldar. Þær hugmyndir sem hingað til hafa verið ríkjandi og Sigurður Þórar- insson og Þorleifur Einarsson hafa m.a gengið út frá í skrifum sínum um íslenska jarðfræði hafa ekki að öllu leyti staðist seinni tíma rann- sóknir. Þessi endurskoðun er þó fráleitt bundin við Island og ís- lenska jarðfræðinga. Það sama er uppi á teningnum í Evrópu og um allan hinn norðlæga heim. Með rannsóknum í Skíðadal hefur Hans m.a. komist að því að jöklar hafa sáralítið hreyfst frá lokum ísaldar. Gljúfrárjökullinn hefur því verið lítt frábrugðinn því sem við þekkjum hann nú með Blekkilinn bísperrtan á sér miðjum undanfarin 10.000 ár. Hins vegar hafa berghlaup fallið jafnt og þétt á þessum tíma og breytt verulega svip landsins en ekki bara rétt eftir lok ísaldar eins og menn hafa freistast til að halda. Hans segist vera í góðu sam- bandi við íslenska jarðfræðinga, t.d. Halldór Pétursson á Akureyri, og sömuleiðis vísindamenn í Evrópu sem fást við svipaðar rann- sóknir t.d. í Alpafjöllum og koma niðurstöðurnar þeint mönnum síst á óvart. Sérstaða Islands En hefur fjalllendið hér einhverja sérstöðu? Maria Wastl svarar þeirri spurn- ingu á þann veg að vissulega sé hægt að vinna sambærilegar rannsóknir víðar og komast að svipuðum niðurstöðum en hins- vegar bjóði Island upp á ýmsa kosti fyrir utan það hversu dásam- í júníblaði Norðurslóðar spurðist ég fyrir um, hvort nokkur kynni botn við vísu- slitur, sem ég heyrði oft raulað í æsku minni. Vísuslitrið var á þessa leið: Úr Svaifaðardal var seggurinn frá Seyðisfirði brúðurin Ekkert lífsmark þessu við víkjandi kom frá heiðruðum les- endum fyrst urn sinn og lengi vel. Leið svo fram yfir júlíblað. Þá kom allt í einu í póstinum bréf trá Klöru Arnbjörnsdótt- ur í Olafsfirði, gömlum Dalvfk- ingi. Hún kannast við vfsu sem svipar til týndu vísunnar og gæti þetta hæglega verið af einum og sama upprunanum. Vísan er svona: Berltöfðaður burt égfer brúður enginfylgir mér legt það er að eyða nokkrum vik- um á sumri í náttúruparadís Skíða- dalsins. En fræðilega séð væru kostir Islands þeir helstir að vegna nálægðar við sjóinn yrðu allar breytingar í náttúrunni sem orsak- ast af veðurfari tiltölulega augljós- ar og fljótar að ganga yfir. Sömu- leiðis er hér lítið um mannvistar- leifar á þvf 10.000 ára tímabili sem um ræðir og ekki eru skógarnir til að þvæjast fyrir jarðvísindamönn- unurn. Island er því að mörgu leyti eins og opin kennslubók í land- mótunarfræði. Hans bætir því við að nútíminn sé sömuleiðis áhugaverður hér og hið mannlega samfélag. Hann kom hingað fyrst árið 1982 og á þeim tíma sem liðinn er hefur t.a.m. Dalvík tekið miklum breytingum. I sveitinni er samfélagið tiltölulega stöðugt og engar meiriháttar breyt- ingar sem orðið hafa á búháttum og þess vegna er mannlíf hér gott og gróið. Hér hefur hann eignast góða vini og nefnir hann þá sér- staklega fólkið í Dæli sem hann hefur átt innhlaup hjá hvenær sem hann hefur komið. Nú er blaðamaður orðinn mett- ur af eplakökuáti og kaffidrykkju og fer að hyggja á heimferð. A endanum er öllum stillt upp til myndatöku framan við fjárhúsin gömlu/nýju. Við kveðjum svo þessa sprenglærðu farfugla með virktum og óskum þeim góðrar heimferðar. hjhj heini ai5 Hjalla, hci/n að Stakkahjalla. Þegar ár er liðið eitt öllu verður þessu breytt komin kona, komin verður kona. Hvaðan hún kemur og hvert hún fer, hvorugt má ég segja þér, samt er það svona, samt er það nú svona. Ur Hjaltadal er halurinn, af Höfðaströnd er brúðurin. Leikur á lukkuhjólum, leikur á lukkuhjólum. Klara bendir á, að vísan kunni að vera staðfærð og stað- arnöfnunum breytt eftir þörfum hvers og eins. Mjög trúlegt er það. En skyldi þetta þá ekki hafa verið sungið undir einhverju lagi ? Mér finnst hún þessleg. Að lokum þakka ég Klöru kærlega fyrir gott innlegg í mál- ið. “ HEÞ. Hálfkveðnar vísur 6

x

Norðurslóð

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðurslóð
https://timarit.is/publication/1253

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.