Norðurslóð


Norðurslóð - 26.08.1994, Page 5

Norðurslóð - 26.08.1994, Page 5
NORÐURSLOÐ —5 Ferðamannabærinn Dalvík: Það þarf að koma Dalvík inn á kortið hjá ferðafólki - segir Kolbeinn Sigurbjörnsson ferðamálafulltrúi Kolbeinn Sigurbjörnsson í almenningnum á bæjarskrifstofunum á Dalvík. Eins og fram hefur koniið hér í blaðinu hefur Dalvíkurbær ráð- ið til starfa ferðaniálafulltrúa, að vísu einungis í skamman tíma til aðbyrja með. Sá sem varð fyrir valinu heitir Kolbeinn Sigur- björnsson og býr á Akurevri þar sem hann starfar hjá fyrirtæk- inu Sandblástur og málmhúðum hf. Hann hefur nú verið að störfum um nokkurra vikna skeið á bæjar- skrifstofunum á Dalvík, eyðir þar sumarfríinu sínu þetta árið. Þegar því lýkur mun hann semja greinar- gerð um starf sitt og leggja tillögur fyrir ferðamálanefnd sem aftur mun leggja þær fyrir bæjarstjóm. Norðurslóð tók Kolbein tali þar sem hann sat í almenningnum á bæjarskrifstofunum, en ekki hefur enn tekist að finna honunr fastan samastað og finnst varla úr þessu. En hvað hefur hann verið að sýsla til þessa? „Eg hef verið að viða að mér gögnum og tala við hagsmunaaðila í ferðaþjónustu hér á staðnum. Að því loknu mun ég meta þær stað- reyndir sem við blasa og leggja línurnar um það hvað best er að gera í framhaldinu. Við erum að reyna að sjá Dal- vík fyrir okkur sem ferðamannabæ og átta okkur á því hverjar óskirn- ar eru. Islensk ferðaþjónusta skilar í þjóðarbúið hátt í 25 milljörðum króna og af þeim verða 60-70% til á þremur mánuðum yfir sumarið meðan útlendingarnir eru hér. Því miður virðist það vera svo að ferðamenn staldra stutt við hér í Eyjafirði, þeir virðast bara hafa hér viðdvöl á leiðinni eitthvað annað. Kannanir hafa sýnt að 70% er- lendra ferðamanna gista tvær næt- ur eða skemur hér í firðinum. Þessu þarf að breyta. Einnig þarf að reyna að lengja ferðamannatím- ann því hver ferðamaður sem kem- ur hingað utan háannatímans er inun meira virði en hinir.“ Úr nógu að moða hér - Hvað er hœgt að gera til að hreyta þessu? „Það sem vantar fyrst og fremst er kynning. Við þurfum að gera okkur grein fyrir því að ekki er hægt að ná í alla þá ferðamenn sem koma til landsins. Þess vegna þarf að velja ákveðna markhópa og ná til þeirra. Möguleikamir eru vissu- lega til staðar því hér er margt við að vera og úr nógu að moða. Eg vil þó taka menn vara við því að búast við miklum árangri af þessu starfi á næsta ári. Fjórir af hverjum fimm erlendum ferða- mönnum koma hingað til lands fyrir atbeina erlendra ferðaskrif- stofa og þær eru að prófarkalesa bæklingana fyrir næsta sumar núna. Hins vegar getum við reynt að ná til Islendinga og koma Dalvík inn á kortið hjá þeim sem ferðast innanlands. Þar rekum við okkur á það sama: það vantar kynningar- efni. Það eru ýmsar hugmyndir uppi um það sem hægt er að gera. Til dæmis líst mér mjög vel á hug- mynd Borgfirðinga sem gáfu út bækling þar sem er að finna leið- sögn um héraðið og rifjaðar upp sögur sem tengjast einstökum bæj- um og stöðum. Allir bæir eiga sér sögu og þetta væri vel hægt að gera hér. Það þarf líka að endurvekja hugmyndina um Tröllaskagann sem reynt var að markaðssetja fyr- irnokkrum árum. Tröllaskaginn er paradís fyrir útivistarfólk því hér eru ótal gönguleiðir. Svo má líka nefna hugmynd eins og þá að gera sér mat úr Bakkabræðrum, það má markaðssetja þá rétt eins og Hafn- firðingar hafa gert við álfana sína. Það sem háir okkur hér er að stærstur hluti innlendra ferða- manna býr í Reykjavík og ferðast út frá höfuðborgarsvæðinu eftir veðurkortinu. Svo eiga æ fleiri sumarbústaði eða hafa aðgang að þeim og það bindur þá við afmörk- uð svæði. Við þurfum hins vegar að ná í þá sem eru í lengri ferðum." Að samræma kraftana - Hvað er það sem þér finnst helst vanta íþjónustu við ferðafólk hér á Dalvík? „Það vantar ýmislegt, til dæniis er ekkert skilti sein býður fólk vel- komið í bæinn, hvað þá að því sé vísað til vegar á helstu staði. En hér er margt til sem nýtist vel í ferðaþjónustu. Eg vil nefna gott tjaldstæði og sundlaugina sem verður afskaplega gott mál. Það þarf hins vegar að samræma kraftana og ella kynninguna, koma því sem hér er í boði á framfæri við ferðamenn,“ segir Kolbeinn. -ÞH íþróttir: Dapurlegt gengi í fótboltanum -Bæði kvenna- og karlaliðin í meistaraflokki eru í fallhættu - 4. flokkur stendur sig betur Það væri synd að segja að dal- vísk knattspyrnulið hefðu blómstrað í sumar, amk. á það ekki við um meistaraflokkana. Kvennaliðið vermir botnssæti 1. deildar og er nær öruggt um fall í 2. deiid. Karlaliðið deiiir botn- sætinu í 3. deild með öðru liði og má virkilega taka sig á ef það ætlar sér að forðast fall í 4. deild. A mánudaginn var mikilvægur leikur í fallbaráttu 3. deildar karla þegar Dalvíkingar fóru til Sauðár- króks og öttu kappi við Tindastól. Með sigri hefðu Dalvíkingar getað tosað sig upp úr fallsæti á kostnað Tindastóls, en þeir síðamefndu sigruðu 1-0. Kvennaliðinu var svo sem ekki spáð verulegu gengi eftir að það komst óvænt upp í 1. deild í vor. I deildinni bera fimm lið af, en hin liðin þrjú - Dalvík, Haukar og Höttur - hafa verið að bítast um sjötta sætið því tvö neðstu sætin tákna fall í 2. deild. Og nú virðist borin von umað Dalvíkurliðið nái því sæti. Liðið hefur aðeins fengið eitt stig fyrir jafntefli gegn Hauk- unt og er í neðsta sæti. Bjöm Friðþjófsson formaður UMFS segir að kvennaliðið hafi verið óheppið, til dæmis hafi sterk- asti leikmaður þess, Aðalbjörg Stefánsdóttir markvörður, meiðst á miðju sumri. „Ef hún hefði ekki meiðst væri hún að öllum líkindum komin í landsliðið undir tvítugu," sagði Bjöm. 3. deiidin sterkari í ár Um karlaliðið segir Björn að gegni öðru máli. „Það er mál manna að liðið sé sterkara en áður og leiki betri knattspymu en í fyrra. Hins vegar hefur 3. deildin verið að styrkjast og metnaður liðanna greinilega meiri. Það er alveg Ijóst að ef lið utan af landi ætla að halda sínum hlut í efri deildum Islandsmótsins þá þurfa þau að leggja harðar að sér og setja meira fjármagn í knatt- spyrnuna. Eg get nefnt sem dæmi að við höfum ekið í rútu á alla okkar leiki, að Isafirði frátöldum, meðan hin liðin koma fljúgandi. Það er komið að því að við setj- umst niður, ekki bara stjóm UMFS heldur allir bæjarbúar, og svari þeirri spurningu hvort við viljum eiga lið í efri deildunum. Við finn- um fyrir því að þegar illa gengur hjá liðinu er erfiðara að fjármagna úthaldið, fólk tekur okkur ekki eins vel og áður. Það þarf að breytast.“ Efniviðurinn er til staðar En það eru þó Ijósir punktar innan unt og saman við. Yngri flokkun- um hefur mörgum hverjum gengið ágætlega. Til dæmis unnu bæði kvenna- og karlalið 4. flokks sterk mót á Siglufirði og Neskaupstað í sumar. Dalvík átti tvo stráka í Norðurlandsúrvali 4. flokks sem sigraði á stórmóti á Suðumesjum. „Þetta sýnir að efniviðurinn er fyrir hendi. Að því leyti erum við fyllilega sambærilegir öðrum. En svo er eins og við drögumst aftur úr þegar kemur upp í eldri flokk- ana. Þetta á raunar við um öll fé- lögin hér úr Eyjafirði sem eiga lið í efri deildunum, að Ólafsfirðingum frátöldum. Hin félögin eiga öll í vandræðum í sumar,“ segir Björn. Lítið er af frjálsíþróttafólki Dal- víkur að segja í sumar. Til stóð að halda Norðurlandsmót hér á Dalvík í lok júní, en því varð að af- lýsa sökumrigninga. Það hefur því verið minna um stórmót en ella. -ÞH Sparisjóður Svarfdæla Dalvík - Árskógi - Hrísey Samgleðst viðskiptavinum sínum öllum við Ut-Eyjafjörð með einmunablíðu á sjó og landi og frábæra uppskeru alls jarðargróða, hvort sem er gras, trjágróður, jarðepli eða ber Senn haustar að, og Fólkvangurinn í Böggvisstaðafjalli tekur að skipta litum á sinn óviðjafnanlega hátt, afklæðist grænum sumarkjól og tekur á sig marglitan möttul haustsins í síbreytileika ársins stendur Sparisjóðurinn traustum fótum í vík, eyju og strönd og bíður þess ókvíðinn sem verða vill í sveiflum viðskiptalífsins Sparisjóðurinn sendir Svarfdælum, Hríseyingum og Árskógsstrendingum síðsumarkveðjur og vonar að þeir megi taka komu haustsins með hógværð og jafnaðargeði Sparisjóður Svarfdæla Dalvík 61600 - Árskógi 61880 - Hrísey 61785

x

Norðurslóð

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Norðurslóð
https://timarit.is/publication/1253

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.