Norðurslóð - 28.09.1994, Side 3

Norðurslóð - 28.09.1994, Side 3
NORÐURSLOÐ —3 Af svarfdælskum rotþróm Aðeins 6 býli fullnægja skilyrðum Hollustuverndar - Spjallað við Arnar Má Snorrason tæknifræðing Arnar Már Snorrason starfar sem tæknifræðingur hjá Dalvík- urbæ. Hann útskrifaðist sem byggingartæknifræðingur frá Tækniskóla Islands í maí s.l. Arnar er maður umhverfisvænn og fjallaði lokaritgerð hans um „rotþær og aðra fráveituhreins- un við íslensk sveitaheimili“. Meðal annars kannaði Arnar ástand fráveitumála á bæjum í Svarfaðardal. Þar kom fram að enn eiga svarfdælskir bændur býsna langt í land ineð að koma frárennslismálum sínum í það horf sem viðunandi getur talist. í sem stystu máli varð niður- staðan sú að í um 60% tilfella, þ.e. á 28 bæjum, rennur skólp beint og milliliðalaust út í læki eða opna skurði. I mörgum tilvikum þar sem þó er um einhvarja safnþró eða rot- þró að ræða eru þær allsendis ófullnægjandi og gera lítið sem ekkert gagn. Aðeins á 6 bæjum af 47 sem könnunin náði til, eða á 13% bæja í sveitinni, uppfyilir rot- þró skilyrði Hollustuvemdar ríkis- ins. Af þessum bæjum eru 29 kúa- bú en aðeins á 7 þeirra rennur frá- rennsli úr mjólkurhúsi í einhvers- konar rotþrær sem ekki eru þó allar ýkja merkilegar. Norðurslóð hitti Amar að máli nú á dögunum til að forvitnast nánar um þessa „svörtu skýrslu“ hans. - Þetta er nú svo sem engin svört skýrsla í þeim skilningi að Svarfdælingar séu eitthvað meiri slóðar en aðrir í þessum efnum. I ritgerðinni tilgreini ég kannanir í 2 öðrum sveitum og þar er niður- staðan svipuð. Það afsakar hins- vegar ekki ástandið hjá okkur og hér þarf hið bráðasta að grípa til einhverra aðgerða. En nú hafa Islendingar komist af rotþróarlausir í rúm þúsund ár. Verður þetta ekki í lagi hér eftir sem hingað til? - Jaaa, það var nú ekki fyrr en á síðustu öld að menn áttuðu sig á samhenginu á milli óþrifa og sjúk- dóma, t.d. kóleru. Fyrsta vatnssal- emið var tekið í notkun árið 1906 hér á landi en síðan hefur mikið vatn runnið til sjávar í orðsins fyllstu merkingu. Vatnsnotkunin er nú orðin margfalt meiri en áður var. En hvaða skaði hlýst af opnu frárennsl i frá hœjum? - Af því stafar náttúrulega ým- issi mengun, bæði lyktar- og sjón- mengun. Hætta er á jarðvegs- og grunnvatnsmengun og truflun á lífríki. Þá er af þessu smithætta, t.d. salmonella sem borist getur í búpening og fólk, og þetta dregur að sér meindýr eins og rottur. Kannski eru það aðallega sápuefn- in og óhófleg notkun á þeim í seinni tíð sem mestum skaða veld- ur og truflun á lífríki. I sápuefnum ýmiss konar eru bæði fosföt og köfnunarefni sem virka eins og áburður og auka m.a. á þörunga- gróður. Þar með er komin af stað röskun á lífkeðjunni sem erfitt er að sjá fyrir endann á. Hvar eru t.d. öll hornsílin sem svo mikið var af hér áður? Eg held að rekja megi hvarf þeirra til gríðarlegrar aukn- ingar sápuefna í frárennsli mjólk- urhúsa í kjölfar tankvæðingar og rörmjaltakerfa. Eg get að vísu ekki sannað neitt en ég hef þetta svona á tilfinningunni. En er ekki flókið og kostnaðar- samt að setja niður rotþró? - Hollustuvernd hefur gefið út nákvæmar leiðbeiningar um hvemig standa eigi að málum með niðursetningu rotþróa. Þróin sjálf Safnþró 4% Þannig skiptast úrræði svarfdælskra bænda í frárennslismálum sam- kvæmt könnun Arnars. Þarna er greinilega mál sem bænd- ur í „fegursta dal á íslandi" þurfa að taka til gagngerrar endurskoð- unar. Það eru fleiri en Arnar þeirr- ar skoðunar að óheft frárennsli frá íbúðarhúsum og ekki síst mjólkur- húsum geti valdið og hafi nú þegar valdið töluverðum umhverfis- spjöllum hér. Látum svo lokaorð ritgerðar Arnars slá botninn í þessa um- fjöllun: „Umhverfismái skipta æ nteira máli í sambandi við ferðaþjónustu og matvælaframleiðslu. Við mark- aðssetningu á þessari vöru og þjónustu skiptir ímynd og hrein- Rúnar Gylfi Dagbjartsson í tækjasalnum að Böggvisstöðum. Mynd: -ÞH Líkamsrækt að Böggvisstöðum Arnar í fjösinu heima á Völlum. kostar um 80.000 krónur en svo er náttúrulega misjafnt hvað leggja þarf í mikinn kosnað við að koma henni niður í jörðina og leggja lagnir. I sumum sveitarfélögum hefur verið farin sú leið að sveitar- félagið sjálft hefur greitt hluta kostnaðarins, kannski jarðvinnuna ellegar sjálfa þróna, en hver og einn bóndi hefur borgað afganginn af dæminu. Gerð hafa verið alls- herjarútboð í þessi verk og þannið náðst hagkvæm tilboð. Er einhver hreyfing á þessum málum í Svatfaðardalshreppi? - Eg hef svo sem rætt þetta við oddvitann og hann hefur látið að því liggja að þessi mál séu á borð- inu og þeim verði að fara að sinna. Hér látum við spjallinu lokið. Mynd: hjhj leiki landsins miklu máli. Hrein og ósnortin náttúra er verðmæt og ómetanleg. Omengað umhverfi þ.á m. lækir, ár og vötn eru náttúru- auðlindir sem seint verða að fullu metnar. Aðgát skal höfð í nærveru sálar segir máltækið og það á einn- ig við um náttúruna. Staðreyndin er sú að það að setja niður rotþró kostar peninga, þó rotþróin gefi lít- ið af sér í samanburði við kýrnar, mun hún þó síðar verða til að skila tekjum og þá í fornti vöru og þjón- ustu. Við megum engan tíma missa og því ættu allir að vinna sameiginlega að því að koma frá- rennslismálum, jafnt frá híbýlum manna sem og dýra, sem fyrst í viðunandi horf.“ hjhj Gamlir starfsmenn sem unnu í loðdýrabúinu að Böggvisstöðum hafa orð á því nú að þar sé æði margt öðruvísi en áður var. Það er búið að þrífa út í öll horn, mála hátt og lágt og fylla neðri hæðina af tækjum og tólum til líkamsræktar. Og um núðjan september voru herlegheitin opnuð fyrir almenning. Það eru þau hjónin Bergljót Snorradóttir og Rúnar Gylfi Dag- bjartsson sem standa fyrir því að glæða gamla minkabúið nýju lífi. Faðir Bergljótar, Snorri Snorrason skipstjóri, keypti húsið og hugðist koma þar upp ígulkerjavinnslu. Ekkert varð úr því og í vor hófust þau hjónin handa við að gera neðri hæðina að líkamsræktarstöð, en á efri hæðinni hafa þau innréttað sér íbúð. Rúnar Gylfi er enginn nýgræð- ingur í líkamsræktinni því hann hefur stundað hana frá því hún sló fyrst í gegn hér á landi árið 1979. Hann mun sjálfur leiðbeina fólki sem vill byggja upp þrek með að- stoð tækja og er vel á veg kominn með að fylla gömlu fóðurstöðina af tækjabúnaði. I öðrum sal er búið að setja mjúka mottu á gólfið, spegla á veggi og hátalara þannig að þar er hægt að stunda þolfimi. Að sögn Gylfa er aðsóknin mest í þann sal fyrst um sinn og margir hafa sýnl þvf áhuga að stunda fitubrennslu, enda veitir kannski ekki af hjá sumuml. Þarna verður boðið upp á allar nýjustu aðferðir við að ná af sér spikinu: þolfimi, pallaleikfimi ofl. Svo verða sérstakir tímar fyrir Knattspyrna: Strákarnir mörðu það - Dalvíkingur í unglingalandsliðinu Það fór skár en á horfðist um tíma fyrir meistaratlokki karla í knattspyrnu. Með því að sigra Fjölni í mikilli flugeldasýningu í síðasta leik tókst þeim að forðast fall niður í 4. deild og leika því áfram í 3. deild að ári. En kvennaliðið féll í 2. deild eins og við mátti búast. Það leit raunar ekkert gæfulega út hjá karlaliðinu í leiknum gegn Fjölni. Heimamenn komust að vísu í 2-0 og í hálfleik var staðan 2- 1. En snemma í síðari hálfleik skoruðu gestimir tvö mörk og ástandið ekki beint glæsilegt því Dalvíkurliöið varð að vinna til að halda sér uppi. Og þá skipti liðið um gír. Mörkin komu hvert af öðru og þegar upp var staðið höfðu ver- ið skoruð tíu mörk í leiknum sem fór 7-3, Dalvík í vil. Þungu fargi var af mönnum létt og liðið hafn- aði í 7. sæti deildarinnar. Knattspyrnumenn af báðum kynjum héldu að vanda uppskeru- hátfð að lokinni leiktíðinni og fór hún fram í Víkurröst. Þar var Jón Örvar Eiríksson kosinn besti leik- maður meistaraflokks karla. Hjá konunum var Aðalheiður Reynis- dóttir kjörin best í meistaraflokki, en sú efnilegasta taldist vera Ás- laug Hólm Þorsteinsdóttir. Það er mál manna að margt búi í Dalvíkurliðinu um þessar mundir og það gæti verið til alls líklegt á næstu árin ef rétt er á haldið. Gott starf í yngri flokkunum er farið að skila sér eins og sást í lokaleiknum þar sem ungur piltur, Heiðar Sigur- jónsson, skoraði tvö mörk. Pillur- inn sá er raunar kominn í landslið pilta undir átján ára aldri sem tók þátt í móti unglingaliða í Slóvakíu í síðustu viku. Er hann fyrsti Dal- vfkingurinn sem leikur í því lands- liði, en Sigurbjörn Hreiðarsson lék með piltalandsliðinu undir 16 ára aldri þegar hann bjó á Dalvfk fyrir nokkrunt árum og nú er Þorleifur Árnason í því liði, að vísu undir merkjum KA en liann lék hér á Dalvík þangað til í sumar. Björn Friðþjófsson formaðui' UMFS sagði að septembermánuð- ur væri yfirleitt frekar rólegur hjá félaginu, en nú væru að hefjast æf- ingar í körfubolta og innanhúss- knattspymu. „Meistaraflokkurinn í körlubolta verður áfram í 2. deild- inni, en í fyrsta sinn í vetur sendum við lið í yngri flokkunum í íslands- mótið. Við verðum einnig með æf- ingar í frjálsum íþróttum. Og svo bíða allir spenntir eftir nýju sund- lauginni og þeim möguleikum sem þar bjóðast,“ sagði Björn. I framhaldi af því má geta þess að hér á árum áður var svarfdælskt sundfólk vel gjaldgengt á sund- mótum, í það minnsta í héraði, ef ekki á landsmótum. Það er reynsla annarra bæjarfélaga sem byggt hafa nýjar sundlaugar að þær eru mikil lyftistöng sundmennt unga fólksins. Vonandi verður svo einn- ig á Dalvík. -ÞH þær sem orðnar eru eldri og vilja stunda frúarleikfimi. Eftir púlið er svo hægt að slaka á í sturtu og sauna, en ljósalampar koma ef til vill seinna. Gylfi segist hafa tekið upp sam- starf við Vaxtarræktina á Akureyri sem sendir honum leiðbeinendur í þolfimina og hann hyggst líka bjóða upp á júdóæfingar ef næg þátttaka verður. I framtíðinni von- ast hanij til að geta ráðið kennara á staðnum. Blaðamaður spyr hvort hann óttist ekki ófærðina þegar fer að snjóa, en hann gerir ekki mikið úr henni. „Það þyrfti aðvísu að hækka veginn á kafla, en ég vona að bær- inn moki hingað upp eftir. Annars setja Dalvíkingar ekki svoleiðis smámuni fyrir sig,“ segir Rúnar Gylfi. “ " -ÞH Aldraðir: Vetrarstarfið að hefjast Félagsstarf eldri borgara á Dal- vík og nágrenni hefur færst í aukana undanfarin ár og sl. laugardag hófst vetrarstarf Fé- lags aldraðra með samkomu í Dalvíkurskóla. Framundan er heilmikil dagskrá hjá félaginu en starfssvæði þess er Dalvík, Svarfaðardalur, Árskógsströnd og Hrísey. Eins og á síðasta ári verður boð- ið upp á söngælingar undir leið- sögn Maríu Gunnarsdóttur tón- menntakennara sem hefur æft nokkurn hóp félagsmanna í kór- söng. í fyrra voru æfingar tvisvar í mánuði og til stendur jafnvel að fjölga æfingum ef áhugi er fyrir því. Þá verða þau Gunnar Björg- vinsson og Margrét Brynjólfsdóttir áfram með danskennslu fyrir fé- lagsmenn. Ekki þarf að tjölyrða um það hversu mjög reglulegar söng- og dansæfingar auka lífs- gæðin. Söngurinn er sagður besta meðal gegn streitu sem til er og dansinn einhver hollasta hreyfing sem völ er á fyrir fullorðna. Stjórn félagsins hefur í athugun að koma á fleiri námskeiðum ef áhugi er fyrir hendi og er námskeið í tréskurði til sérstakrar skoðunar. Ætlunin er að koma saman hálfs- mánaðarlega og spila á spil eða bingó, lesa upp og gera sér annað til skemmtunar. Slundum verða þessar skemmtanir blandaðar fræðslu og fagfólk fengið til að kynna ákveðin málefni, svo sem sjúkraþjálfun, félagsráðgjöf ofl. Skemmtanirnar verða í Dalvík- urskóla hinum nýja annan hvorn laugardag kl. 14 en hina laugar- dagana verður sungið og dansað í gamla skólanum á Dalvík. Þó er reiknað með að einn af fyrstu fund- unum verði haldinn í Hrísey. Svo verða fastir liðir í vetrar- starfinu að sjálfsögðu á sínum stað: litlujól, árshálíð og jafnvel þorrablót. (Fréttatilkynning)

x

Norðurslóð

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðurslóð
https://timarit.is/publication/1253

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.