Norðurslóð - 28.09.1994, Side 6

Norðurslóð - 28.09.1994, Side 6
Svarfdælsk byggð & bær TÍMAMÓT Hjónavígslur Þann 20. ágúst voru gefin saman í Dalvíkurkirkju þau Guðmundur Þorbjörn Júlíusson og Aslaug Valgerður Þórhallsdóttir, til heim- ilis að Miðtúni 3, Dalvíkur. Þann 10. september gengu í hjónaband þau Jónas Baldursson og Sveinbjörg Kristjana Helgadóttir, Smáravegi 4, Dalvík. Athöfn- in fór fram í Dalvíkurkirkju, en sr. Svavar A. Jónsson gaf bæði hjónin saman. Afmæli Þann 10. september sl. átti 70 ára afmæli Sig- urlaug Sveinsdóttir, Karlsbraut 13, Dalvík. Þann 30. september nk. verður 70 ára Valdís Jóhannsdóttir, Bjark- arbraut 15, Dalvík. Norðurslóð árnar heilla. Andlát Þann 23. ágúst sl. lést Sigfúsína Kristín Arn- grímsdóttir. Kristín fæddist þann 6. júní árið 1905, dóttir hjónanna Ingigerðar Sigfúsdóttir og Arngríms Jónssonar. Hún ólst upp í Jarð- brúargerði í fæðingarsveit sinni. Svarfaðardal, og átti þrjá bræður, þá Jón, Björn og Snorra. Þá átti hún þrjár systur, þær Önnu, Svanbjörgu og Guðrúnu. Þau eru öll látin. Eiginmaður Kristínar var Jón Baldvin Sig- urðsson frá Þorleifsstöðum í Svarfaðardal. Þeirra böm eru: Sigrún, Asdís, Gunnþóra Anna, Ingunn Lilja, Sveinn Heiðar, Ingigerður Lilja, Arngrímur og Gunnar. Öll lifa þau móður sína nema Ingunn Lilja sem lést á fjórða aldursári. Kristín var jarðsungin frá Dalvíkurkirkju 31. ágúst. Þann 17. september andaðist á heimili sínu, Hreiðarsstaðakoti í Svarfaðardal, María Sig- urlína Arngrímsdóttir. María fæddist á Skarði í Glerárþorpi 20. maí 1924. Hún varð kona Sigtryggs Guðjóns Sig- urðssonar á Hjaltastöðum f Skíðadal. Þar bjuggu þau til þess er hann fórst í snjóflóði á Þorláksdag 1955. Börn þeirra eru: Jóhann, Elfn. Sumarrós og Ingibjörg. María varð sambýliskona Sigurðar Eiðssonar frá Ingvörum. Tóku þau saman upp úr 1960 og hófu búskap á Hreiðarsstaðakoti. Börn þeirra eru: Ófeigur, Júlíus, Eiður og Sigurgeir. Útför Maríu fór fram í Dalvíkurkirkju mánudaginn 26. septem- ber, en jarðsetningin að sóknarkirkjunni, Urðum í Svarfaðardal. FRÉTTAHORNIÐ SlINDI.AUCIN NÝJA er óðum að taka á sig endanlega mynd og samkvæmt áreiðanlegum heimildum er stefnt að því að vígja liana með pompi og pragt á sunnudaginn kemur, 2. október. Á mvndinni sést forstöðumaðurinn, Skarp- héðinn Pétursson, á laugarbakkanum. Mynd:-ÞH Nú er að hefjast endurbygging á húsinu Hafnarbraut 2 norðan við Bjarg, en bæjaryfirvöld veittu heimild til þess að húsið yrði tekið í notkun að nýju. Aður hafði verið ákveðið að þetta hús skyldi víkja, en nú hefur þeirri ákvörðun verið breytt með 3 atkvæðum gegn 2 í byggingarnefnd. / Asama fundi byggingarnefndar var samþykkt að veita leyfi til að starfrækslu á fiskbúð í bakhúsi við Skíðabraut 3 (þar sem Rafvélar voru til húsa). Sá sem þarna hyggst opna fiskbúð er Siyurður Krist- mundsson. Bryndís Björnsdóttir launa- fulltrúi á skrifstofum Dalvík- urbæjar hefur hætt störfum og flutt sig yfir í sparisjóðinn. Starf hennar var auglýst og bárust sex umsókn- ir. A fundi bæjarráðs var ákveðið að ráða Guðnýju Rut Sverris- dóttur í starfið. Nýir bændur eru komnir í Stein- dyr. Það eru hjónin Hjálmar Herbertsson og Gunnhildur Gylfadóttir ásamt sonunum Her- bert 3ja ára og Jóni Bjarka eins árs. Fyrri ábúendur Armann Sveins- son og Erna Fuchs Sveinsson fluttu í íbúð ungu hjónanna á Dal- vík en Gunnhildur er ömmubarn Ernu. Steindyr er ríkisjörð og telst kvótinn fylgja jörðinni. s AYtra Hvarfi fer nú fram skóg- ræktartilraun á vegum Skóg- ræktarstöðvarinnar á Mógilsá. Plantað hefur verið í tvö 300 metra löng skjólbelti einum 30 mismun- andi „klónum“ af alaskavíði og er ætlunin að fylgjast nteð vexti þeirra til samanburðar við sam- bærilega tilraun á Suðurlandi. Al- askavíðirinn þykir hafa gefist mjög vel í skjólbelti á Suðurlandi og á nú að skoða hvort slíkt hið sama gildi ekki hér. Að sögn Jóhanns Ólafssonar bónda hefur Skógrækt ríkisins verið að auka þjónustu sína við Norðlendinga og er nú komin með fastan skógræktarráðu- naut sem aðsetur hefur í Búgarði á Akureyri. Sá heitir Brynjar Skúlason. Jóhann á Hvarfi er at- hafnasamur skógræktandi og hefur plantað 20.000 plöntum á undan- förnum 11 árum í Hvarfinu. A síð- ustu jólum hjó hann sitt fyrsta jóla- tré úr skóginum við mikinn fögnuð fjölskyldunnar. Það var fura og segir Jóhann fleiri slík í uppvexti hjá sér. Leikfélag Dalvíkur hefur hafið æfingar á söngleiknum Land míns föður eftir Kjartan Ragnars- son með tónlist eftir Atla Heimi Sveinsson. Þetta er stríðsáragrín þar sem lýðveldishátíðin á Þing- völlunt kemur við sögu og þótti því prýðilega til þess fallið að fagna afmæli lýðveldisins og leikfélags- ins. Leikstjóri er Kolbrún Hall- dórsdóttir sem hefur getið sér gott orð fyrir söngleikjauppsetningar víða um land, en um tónsprotann heldur Gerrit Schuil. Sýningin er geysifjölmenn og allt að fjórða tug rnanna á sviðinu samtímis, þám. sex manna hljómsveit. Frumsýn- ing hefur verið ákveðin 4. nóvern- ber. Svarfdælingamótið verður að vanda haldið í Raykjavík laug- ardaginn 12. nóvember, en ekki er enn búið að velja því stað. Verður mótið betur auglýst hér í blaðinu í október. NÝR SLÖKKVILIÐSBÍLL var afhentur sl. laugardag, en liann er smíðaður í Olafsfirði. Á mvndinni má sjá Sigurð Jónsson slökk\ iliðsstjóra ásamt bíla- smiðunum í Múlatindi, feðgunum Sigurjóni Magnússyni og Magnúsi Sigur- steinssyni. Mynd: -ÞH MÁ ÉG KYNNA? Felix Jósafatsson yfirlögregluþjónn við embættisbifreiðina. Mynd:-ÞH nýjan lögreglu- varðstjóra á Dal- vík, Felix Jósa- fatsson Það er kominn nýr lögregluvarð- stjóri á Dalvík. Björn Víkings- son er hættur og í hans stað hef- ur Felix Jósafatsson verið settur í starfið í eitt ár. Hann kom til starfa í lok ágúst og Norðurslóð tók hann tali eftir þriggja vikna dvöl hér í bæ. Það kom upp úr kafinu að hér er á ferð Skagfirðingur, fæddur fyrir 41 ári að Húsey, skammt frá Varmahlíð. Þar ólst hann upp en kom átján ára gamall á Árskógs- strönd til að stunda þaðan sjó. Hann veiddi fleira en fisk því þar kynntist hann konunni sinni, Bald- vinu Guðrúnu Valdimarsdóttur frá Hauganesi. Þau fluttu inn á Ak- ureyri þar sem þau hafa búið síðan. Nú eru þau flutt á Hólaveginn og búa þar á virkum dögum með yngsta syninum sem er í grunn- skóla en auk þess eiga þau dóttur sem er á leið í háskólanám og tvo syni í Verkmenntaskólanum á Ak- ureyri sem koma heim um helgar. „Eg lærði smíðar á Akureyri og vann við þær þangað til ég varð fyrir óhappi. Þá byrjaði ég í lög- reglunni, það var árið 1977, og hef verið þar sjðan. Eg var orðinn að- stoðarvarðstjóri þar þegar ég sótti um starfið hér.“ - Og þér líkar starfið vel? „Já, að mörgu leyti, þótt vissu- lega séu á því bæði dökkar og ljós- ar hliðar. Það er oft erlitt að þurfa að grípa inn í á dapurlegum stund- um, svo sem að koma að þar sem slys eða voveiflegt dauðsfall hefur orðið. Einnig er mjög erfitt að sætta sig við það þegar slys verða á bömum. En ljósu hliðarnar eru einnig margar, til dæmis þegar við þurfum að aðstoða konur við að komast á fæðingarheintili. Það má því segja að við komum við sögu í lífi fólksins frá vöggu til grafar." - Svo starfið er þá ekki bara fólgið í því að elta uppi skúrka? „Nei, það fer sem betur fer minnihluti starfstímans í það. Eins og starfsheiti okkar gefur til kynna ber okkur að þjóna fólki og það sem gefur |ressu starfi gildi er ein- mitt aðstoðin við fólk. Á Akureyri sá ég til dæmis um umferðar- fræðslu sem mér þótti mjög skemmtileg og er raunar byrjaður aðeins á henni hér.“ - En er ekki munur á að starfa í stærri bœ eins og Akureyri og svo hér á Dalvík þar sem þú ert oftast einn á vakt? „Jú, á Akureyri eru rúmlega 30 manns í lögreglunni og þar er komin á nokkur verkaskipting. Hér þarf ég að sinna öllum þáttum starfsins, þám. rannsóknum saka- mála þótt við leitum aðstoðar ef stórmál koma upp. En þetta gerir starfið fjölbreyttara." - Og hvernig líst þér svo á þig hér á Dalvík? „Mér sýnist mannlífið hér vera gott. Eg fékk fljótlega að heyra það að hér væri mikið af ungum öku- mönnum sem væru stórhættulegir í umferðinni, en mér sýnist það dá- lítið orðunt aukið. Þeir eru í það minnsta ekkert fleiri eða verri en annars staðar. En það er ýmislegt sem þarf að taka á í umferðarmál- um og nauðsynlegt að halda vöku sinni þar. Eg gerði það mér til dundurs um daginn að athuga hvernig væri með bílbeltanotkun jregar fólk var á leiðinni í vinnuna og sýndist það heldur slakt. Það voru um 80% sem ekki höfðu spennt beltið. Svo vakti það strax athygli mína hve margir eru á hjól- um hér á Dalvík. Og því miður virðist þurfa að brýna fyrir mörg- um að þeir eiga að hjóla hægra megin á götunni og nota ljós eftir að dimmir.“ - En áttu von á því að þú munir setjast hér að? „Það er of snemmt að segja til um það. Mér hefur Iíkað sérlega vel þessar vikur, en reynslan verð- ur að skera úr því hvert framhaldið verður, bæði fyrir mig og bæjar- búa,“ segir Felix Jósafatsson yfir- lögregluþjónn. Og svona í lokin má geta |ress að lögregluþjónar eiga sér líka áhugamál utan starfsins. Felix er þegar byrjaður að syngja bassa- rödd með kirkjukómum eins og hann gerði raunar í Glerárkirkju á Akureyri. Og hann er farinn að renna hýru auga fram í Hringsholt því hann er hestamaður, enda varla á öðru von. maðurinn er Skagfirð- ingur. -ÞH

x

Norðurslóð

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðurslóð
https://timarit.is/publication/1253

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.