Norðurslóð - 28.02.1995, Síða 6

Norðurslóð - 28.02.1995, Síða 6
Svarfdælsk byggð & bær TIMAMOT Skírnir 1. febrúar var Jökull skírður í Dalvíkurkirkju. Foreldrar hans eru Lilja Kristinsdóttir (Jónssonar) og Kristján Aðalsteinsson, Hring- túni 4, Dalvík. 5. febrúar var Tómas Þór skírður í Dalvíkurkirkju. Foreldrar hans eru Helga Steinunn Hauksdóttir og Þorgils Garðar Gunnþórsson, Karlsbraut 11, Dalvík. 19. febrúar var Sigríður skírð í Dalvíkurkirkju. Foreldrar hennar eru Steinunn Aðalbjarnardóttir og Hannes Garðarsson, Böggvis- braut 12, Dalvík. Afmæli Þann 24. febrúar varð 75 ára Hjörtur E. Þór- arinsson Tjörn. Þann 29. febrúar verður 75 ára Arni Arngríms- son Goðabraut 3 Dalvík. Þann 29. febrúar verður 75 ára Laufey Sigurðardóttir Mó Dalvík. Norðurslóð ámar heilla. Andlát 14. febrúar lést á Dalbæ, dvalarheimili aldr- aðra á Dalvík. Bakhina (iuðmundsdóttir, Upsum, Dalvík. Baldvina fæddist á Bakka í Olafsfirði 16. mars árið 1919, ein af 14 börnum Kristínar Jónsdóttur og Guðmundar Aðalsteins Sig- urðssonar. Af þeim hópi eru nú 7 systkini á lífi, þar á meðal Jón er býr á Litlu Hámundar- stöðum og Sigurður er býr á Bessastöðum á Dalvík. Arið 1948 hóf Baldvina búskap á Akureyri með Páli Guðmunds- syni frá Skúfstöðum í Hjaltadal, en þau flultu til Dalvíkur árið 1951. Að Upsum lluttu þau síðan árið 1963 þar sem heimili þeima var í rétt tæpa þrjá áratugi. Þau hjón eignuðust þrjár dætur: Hildi Hólmfríði, Kristínu Guðbjörgu og Sigríði Rut. Einnig ólu þau upp fósturson Oskar Gísla Gylfason. Starfsakur Baldvinu var að stærstum hluta innan heimilis. Hún var hæglát kona, sem ekki hal'ði mörg orð um sjálfan sig en lagði allan hug við að sinna öðrum. Gaman hafði hún af handavinnu hvers konar og saumaði og prjónaði mikið um ævina. Haustið 1992 fluttu Páll og Baldvina frá Upsum og settust að í Brimnesbraut 19 á Dalvík. Páll lést í september 1993 og 1. október það ár flutti Baldvina inn á Dalbæ, dvalarheimili aldraðra, sem varð heimili hennar til dauðadags. Baldvina var jarðsungin frá Dalvíkurkirkju 18. febrúar og jarðsett í Upsakirkjugarði. 17. febrúar lést á Dalbæ, dvalarheimili aldr- aðra á Dalvík, Gestur Hjörleifsson, fyrrum organisti og kórstjóri. Gestur fæddist á Knappstöðum í Fljótum 2l.nóvember árið 1908. Foreldrar hans voru Rósa Jóhannsdóttir frá Þverá í Skíðadal og Hjörleifur Jóhannsson frá Ingvörum. 9 af börnum þeirra hjóna komust upp og af þeim eru tvær systur á lífi, Snjólaug er býr á Akur- eyri og Baldvina er býr á Dalvík. 1933 gekk Gestur í hjónaband með eftirlifandi konu sinni Guð- rúnu Kristinsdóttur frá Ingvörum. Eignuðust þau 6 börn sem eru: Kristinn Elfar, Lórilei, Þóra, Álfhildur, Sigurbjörg og Kári Baldur. Þau fluttu í Björk á Dalvík árið 1935 þar sem heimili þcirra hefur verið æ síðan. Gestur dvaldi á Dalbæ, dvalarheimili aldraðra, frá árinu 1991 vegna veikinda sinna, þar sem hann lést 17. febrúar s.l. Gestur var jarðsunginn frá Dalvíkurkirkju 25. febrúar. Starfa Gests að tónlistarmálum er minnst á bls. 3 í þessu blaði. Jóhann risi kominn á netið Internetið er hraðbraut framtíðarinnar segja menn «g víst er um að þar kennir margra grasa. Nýjasti sprotinn á þessu tölvusamskiptaneti er stærsti maður heims á sínum tíma, Jóhann Péturssun Svarfdælingur, en nú má fá upplýsingar um hann með því að spyrjast fyrir á Internetinu. Maðurinn á bak við þettaer Júlíus Júlíusson kenndur við Höfn. Hann er áhuga- maður um tölvusamskipti og þótti ótækt að Dalvíkur væri hvergi getið þar um slóðir. Hann safnaði því santan upplýsingum um Jóhann Svarfdæling og fékk svo styrk frá ferðamálanefnd Dalvíkur til að greiða þann kostnað sem fylgir því að láta einhverjar upplýsingar standa á netinu. Það er við hæfi að einn frægasti Dalvíkingurinn fyrr og síðar, sem á sínum tíma gat sér orð í erlendunt fjölleikahúsum, skuli vera fyrsti Dalvíkingurinn á netinu. FRETTAHORNIÐ Þrátt fyrir að markið sé kontið hálft á kaf í snjó, töluverðan hliðarhnlln og fannfergi á vellinum og leiðindaveöur láta Húsbekkingar það ekki aftra sér frá knattspyrnuiðkan. Mynd: hjhj Af félagsheimilismálum Svarf- dælinga er það að frétta að Jöfnunarsjóður sveitarfélaga hefur lagt fram 4 milljónir til bygging- arinnar sem er framlag sjóðsins fyrir þetta ár. Að sögn Atla Frið- björnssonar ræðst framvinda byggingarinnar nú af því hversu skarpt Jöfnunarsjóðurinn afgreiðir framlag sitt en enn mun vanta 13 milljónir upp á þá upphæð. Hvað næst gerist í byggingarmálum er ekki ljóst enn en vegna ófærðar hefur ekki tekist að kalla saman hreppsnefndina til að taka ákvörð- un um slíkt en hún verður sjálfsagt ekki í neinum vandræðum með að ráðstafa þessunt smámunum næst þegar fundarfært verður. Eigendur og umboðsmenn Olís á Dalvík, hjónin María Jóns- dóttir og Guðmundur Jónsson. hafa heldur betur aukið umsvif sín í dalvískum veitingarekstri. I haust hófu þau að selja pizzur undir merkinu Pizza 67 úr söluskála Olís og nú eru þau búin að færa út þær kvíar. Þau hafa fengið til liðs við sig önnur hjón, Sigríði Pálrúnu Stefánsdóttur og Eyþór Hauks- son, og tekið á leigu húsnæðið sem áður hýsti Lúbarinn við Skíða- braut. Þar hafa þau komið upp matsölustað sem býður upp á pizzur og pastarétti, auk hefðbund- inna kjötrétta, að sjálfsögðu með viðeigandi drykkjarvörum. Og þau sinna heimsendingarþjónustu, líka í nærsveitir Dalvíkur. Búið er að setja upp neonljós utan á húsið sem setja dálítinn stórborgarblæ á Skíðabrautina. Það eina sem ástæða er til að ergja sig á í þessu sambandi er að nú er ekki lengur til neinn Lúbar á Dalvík. Nýi staður- inn heitir Laufið. ✓ Isama húsi og Laufið hcfur verið starfrækt gallerí þar sem áður var rekin saumastofan Gerpla. Að því standa 18 handverkskonur og hefur reksturinn gengið framar vonum að sögn Helgu Árnadótt- ur sem er ein eigendanna. Rekstur- inn hófst í september sl. þegar fimm kvennanna keyptu húsnæði saumastofunnar, en áður höfðu þær reynt fyrir sér með galleríi í Karlsbrautinni. I Skíðabrautinni er alls konar handverk til sölu, prjónavörur, keramik, postulín, saumaður fatnaður og dúkar, myndlistaverk og skraut- og nytja- hlutir af ýmsum toga. Eigendurnir eru allir frá Dalvík þó tvær kvenn- anna búi í Ólafsfirði og á Akureyri. Þær hafa stofnað með sér Félag handverksfólks á Dalvík og hafa á prjónunum að efna til námskeiða- halds í húsnæði gallerísins í þeim greinum handverks sem áhugi reynist fyrir. Helga segir starfsem- ina vera í mótun, en óneitanlega hafi þær auga á ferðafólki sem til Dalvíkur kemur og í því augna- miði er staðsetningin við Skíða- braut afar heppileg. Bæjarstjórn Dalvíkur samþykkti í síðustu viku að ganga til samninga við Heigu Snorradótt- ur sjúkraliða og Sigríði Sigurðar- dóttur leikskólakennara um að þær taki að sér rekstur leikskólans Fagrahvamms. Núverandi rekstr- araðilar eru búnir að segja upp samningnum frá og með 1. júní nk. Tvö tilboð bárust í reksturinn og hljóðaði tilboð þcirra Helgu og Sigríðar upp á 9,6 milljónir króna en tilboð Þuríðar Sigurðardóttur og Höllu Steingrímsdóttur sem báðar eru leikskólakennarar var 1,5 milljónum króna hærra. Jafn- framt rekstri Fagrahvamms taka þær Helga og Sigríður að sér umsjá með gæsluvellinum við Svarfaðar- braut. Þorrablótin þar á... Við ræktun líkams þá varð nokkur þensla Það eina þorrablót sem eitthvað kveður að hér um slóðir á þessum síðustu og verstu tímum er sveita- blótið svokallaða sem haldið er fyrir innfædda Svarfdælinga, bæði þá sem enn búa í sveitinni og hina sem brott eru fluttir og kallast „flæmingjar“ á máli gárunga. Laugardaginn II. febrúar var þetta margrómaða blót haldið í Víkurröst eins og tvö undanfarin ár og var þar margt haft til skemmtunar. Að vanda bar hæst annálinn sem Sölvi Hjaltason las með tilþrifum og hafði þá Jóhann Ólafsson og Hallgrím Einarsson sértil aðstoðar við sönginn. Björn Þórleifsson lagði annálsriturum lið við hið bundna mál. I annálnum var m.a. sagt frá hlaupa- og heilsu- ræktaræði sem heltók Svarfdælinga á síðasta ári og birtist í almennri þátttöku í Lýðveldishlaupinu og mikilli aðsókn að heilsuræktarstöðinni á Böggvisstöð- um þar sem áður var skinnaverkun og fóðurstöð loð- dýrabús. Jónína húsfreyja á Klængshóli vann sér inn Ameríkuferð sem kunnugt er fyrir framgang sinn í Lýðveldishlaupinu og einhverjir gárungar töldu Hvarfsbóndann hafa stofnað sjálfstætt lýðveldi á austurkjálka þegar 50 ára lýðveldisfáninn var dreginn þar að húni. Allt þetta varð skáldinu, Birni, tilefni þessa kveð- skapar: (Lagboði: Hvað er svo glatt) Það gerist oft að œði fer ttni byggðir og allir virðast snúast upp á rönd. Þá vitnað er ífrœgð ogfornar dyggðir ogfólki halda rarla nokkur bönd. I vor þáfóru allir út að ganga og œttjörðinni með því sungu dýrð og gengu þar til vœtlaði sviti um vanga en vart skal á það kastað neinni rýrð. Er tók að vora gerðist lýður lúinn sem lengstar göngur arkaði hér til lands. en gekk þó enginn eins og Klœngshólsfrúin til USA með guðnavjnk til France. En allt er eins I leikjum stríði og starfi. Menn störðu og spurðu hvað það gœti þýtt er nýr reis fáni liátt við hún á Hvaifi. Hvort liefði bóndinn stofnað ríki nýtt. Við rœktun It'kams þá varð nokkur þensla er þustu konur út í líkamsrœkt. Og nú var hafin frœkin fitubrennsla þófyndist sumum miða allt ofhœgt. En vekja mun það ýmsum þunga þanka er þessar elskur ganga fram í röð að laga bœði á sér skrokk og skanka í skinnaverkun eða fóðurstöð.

x

Norðurslóð

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðurslóð
https://timarit.is/publication/1253

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.