Norðurslóð - 18.12.1996, Qupperneq 2
2 — NORÐURSLÓÐ
NORÐURSLOÐ
Útgefandi:
Rimar hf.
Ritstjórar og ábyrgðarmenn:
Hjörleifur Hjartarson, Laugahlíð. Netfang: rkb@ismennt.is
Jóhann Antonsson, Dalvík
Framkvæmdastjóri:
Sigríður Hafstað, Tjörn. Sími 466-1555
Tölvuumbrot:
Þröstur Haraldsson, Reykjavík. Netfang: throsth@isholf.is
Prentun: Dagsprent hf. Akureyri
Maríukvæði
Ljóð: Halldór Kiljan Laxness.
Lag: Atli Heimir Sveinsson.
Hjálpa þú mér helg og vœn,
himnamóðirin bjarta.
Legðu mína bljúgu bœn
barninu þínu ’ að hjarta!
Þá munu ávallt grösin grœn
í garðinum skarta,
í garðinum mínum skarta.
Bænheit rödd mín bíður þín,
blessuð meðal fljóða;
vertu æ unz ævin dvín
inntak minna Ijóða;
móðir Krists sé móðir mín
og móðir þjóða,
móðir allra þjóða.
Kenn mér aðfetaför þín ein,
feta að himna borðum,
leiddu þennan litla svein,
líkt og Jesúmforðum.
Líkt og Krists sé heyrn mín hrein
að hlýða orðum,
hlýða þínum orðum.
Myndir úr Vallakirkju
Forsíðumynd Norðurslóðar er að þessu sinni úr
Vallakirkju, ein þeirra mynda sem Lene Zachari-
assen í Dæli tók að enduðum viðgerðum á kirkj-
unni rétt fyrir brunann mikla 1. nóvember sl. Hér
á síðunni birtum við fleiri þessara mynda, en þær
hafa verið gefnar út, bæði sem jólakort og tækifær-
iskort, af sóknarnefnd Vallasóknar og rennur
ágóði af sölu þeirra til kirkjunnar.
Um aldur altaristöflunnar er ekkert vitað með vissu en giskað er á að hún hafi verið 2-300 ára og af erlendum
uppruna, líklega ensk eða dönsk. Hún gjöreyðilagðist í brunanum. Altarið er aftur á móti ekki alveg ónýtt talið þótt
það sé illa farið. Stóru koparstjakarnir eru mjög fornir og þá má að öllum líkindum pússa upp og gjöra sem nýja. I
altarinu voru kaleikur og platína sem björguðust óskemmd. (Mynd: Lene Zachariassen)
m : ■ M
•.# f „
Milligerðið milli kórs og framkirkju er fyrirkomulag sem
ekki þekkist í annarri íslenskri kirkju. Rimlaverkið að
neðanverðu og áletraðir bogarnir uppyfir settu mikinn
svip á Vallakirkju. Um það má segja það sama og fiest
annað innanstokks, aö á því eru miklar skemmdir en er
þó ekki talið Ónýtt llieð Öllu. (Mynd: Lene Zachariassen)
Samkvæmt áletrun á predikunarstól er hann frá árinu
1786. Hann mun hafa verið í kirkjunni sem stóð áður en
þessi kirkja var byggð en um uppruna hans er ekki vitað.
Stóllinn prýddu myndir af guðspjallaniönnunum en
þeirra sjást b'til merki nú. Þó er stóllinn ekki talinn ónýt-
ur. (Mynd: Anna Sólveig Sigurjónsdóttir)
Páll Jónsson
sálmaskáldið á Völlum
Barnasálmurinn „O Jesú bróðir besti“ er án efa einn vinsælasti og mest sungni sálmur sem ortur hefur
verið á íslenska tungu. Höfundur hans er séra Páli Jónsson sem var prestur á Völlum 1859-1878. Um
hann segir í Svarfdælingum:
„Séra Páll var lágur vexti og gildur, rauðleitur í andliti og snareygur. Hann var gáfumaður mikill og gott
skáld, mælskur vel og andrrkur. Skemmtilegur sagnamaður og eru allmargar sagnir hans til í prentuðum
þjóðsagnasöfnum. Þekktastur var hann þó fyrir sálmaskáldskap sinn og voru 27 sálmar eftir hann í íslensku
sálmabókinni sem var gefin út 1886.“
I nýju sálmabókinni eru 16 sálmar eftir séra Pál. Páll var prestur á Völlum í tæp tuttugu ár og bætti mjög
byggingar á staðnum á þeim tíma. Lét hann smíða nýja kirkju árið 1861 og var hún líklega vígð það sama ár.
Fyrir lausn þessarar myndagátu eru engin verðlaun utan þau sem í henni sjálfri eru fólgin.