Norðurslóð - 18.12.1996, Qupperneq 3
NORÐURSLÓÐ —3
FréttahorN
Frá því var greint í síðasta blaði
að fengist hefði heitt vatn úr
borholu á Arskógsströnd sem gæfi
góðar vonir um hitaveitufram-
kvæmdir þar. I fréttinni kom fram
að umrætt vatn væri um 63 gráður.
Ekki er það þó allskostar rétt því
80 gráður er nær lagi. Sveinn Jóns-
son í Kálfsskinni hefur upp á eigin
spýtur verið að láta bora í landi
Sólbakka og eru þær framkvæmdir
ótengdar þeim borunum sem fram
hafa farið á vegum hreppsins utar á
Ströndinni. Það var Ræktunarsam-
band Flóa- og Skeiðamanna sem
sá um framkvæmdir fyrir Svein í
samráði við Omar Bjarka Smára-
son hjá Jarðfræðistofunni Stapa.
Fyrst voru boraðar 13 tilraunahol-
ur og síðan ein virkjunarhola. Bor-
að var niður á 183 metra dýpi og
komu þar upp 10 sekúndulítrar af
77,5 gráðu vatni.
Síðastliðið sumar var einstakt
sakir veðurblíðu. Til marks um
það má segja frá því að Sveinn í
Kálfsskinni á Arskógsströnd rækt-
aði korn handa búsmala sínum á
einum hektara lands og uppskar 3
tonn af hektaranum af fullþrosk-
uðu byggi. Korninu var sáð þann
10. maí og það slegið 30. septem-
ber. Raunar ræktaði hann meira
korn á leigulandi að Hrafnagili í
Eyjafjarðarsveit en það heyrir vart
til tíðinda. „Maður varð að gera
guði þetta til geðs fyrst hann var að
láta vorið koma svona snemma,“
segir Sveinn.
5. desember var svokallaður
Smiðjudagur Dalvíkurskóla.
Nemendur voru leystir undan áþján
hefðbundinnar stundaskrár og þess
í stað hvatt til frjálsrar sköpunar í
sem fjölbreyttastri mynd. Krakk-
amir skiptust í hópa, sumir máluðu
eða unnu skúlptúra, aðrir tóku ljós-
myndir, í einum hóp voru unnin
leikræn spunaverk, sumir lögðu
stund á fatahönnun en aðrir á hljóð-
færasmíði. Um kvöldið var haldin
sýning á afrakstrinum sem var
verulega glæsilegur á köflum.
Hinir árvissu föndurdagar skól-
anna hafa fest sig í sessi sem
ómissandi þáttur jólaundirbún-
ingsins hjá mörgum fjölskyldum. I
Dalvíkurskóla var föndurdagur 7.
desember. Mætti þar mikill fjöldi
nemenda og foreldra og föndruðu
saman eitt og annað til jólanna.
Nemendur tónlistarskólans léku
jólalög með dyggum stuðningi
kennara sinna. Einnig sýndu fata-
hönnuðir úr hópi nemenda fram-
leiðslu sína og fleira var þar sýslað
sem of langt mál yrði upp að telja.
Einbeitingin er mikil.
„Blóm í vasa.“
Listaverk úr dagblaðapappír, dæmi
um endurnýtingu.
Nemendur 10. bekkjar seldu kaffi
og allir fóru glaðir heim eins og
nærri má geta.
Enn einu sinni hefur riðan látið á sér kræla í Svarfaðardal.
Riðuveiki á
Bakka
Niðurskurður á tveim bæjum
Gígjan kaupir „Sælunau
Riðuveiki hefur verið staðfest á
Bakka. Fyrir nokkru fór vetur-
gömul heimafædd ær þar að
sýna einkenni sem svarfdælskir
bændur þekkja allt of vel og
boða lítinn fögnuð. Anni var
slátrað og höfuðið sent að Keld-
um til rannsóknar. f síðustu viku
féll svo dómurinn - riðuveiki,
ekki um að villast.
A Bakka er sem kunnugt er tví-
býlt en sauðahjörðin telur þó ekki
nema um 30 hausa. Sami háttur var
hafður á þar og annarsstaðar þar
sem riðudraugurinn hefur húsvitj-
að að undanförnu. Fénu hefur öllu
verið slátrað og það urðað á sama
stað og annað riðufé sem skorið
hefur verið niður í hreppnum að
undanfömu.
Ekki er þó nema hálf sagan
sögð því vegna samgangs við fé í
Syðra Garðshorni og samnýtingar
á ýmsum sviðum milli þessara
jarða sem byggðar em bræðmm,
þótti ekki annað fært en slátra öllu
fé þar einnig. Vom það nær 70 ær
svo samtals var um 100 ám slátrað
og þær urðaðar. Að sögn Ólafs
Valssonar héraðsdýralæknis er
þetta að sönnu mikið reiðarslag
þegar menn vom famir að gera sér
vonir um að við slyppum við áföll
þetta árið. „Ég sé þó ekki ástæðu til
að menn gefist upp á sauðfjárrækt.
Þetta kennir okkur hins vegar að
aldrei er of varlega farið til að
koma í veg fyrir að einhvers staðar
leynist smit. Það verður ekki séð
nein skýring á því af hverju riðan
kemur þarna upp. Ekki frekar en á
öðrum bæjum sem hún hefur verið
að stinga sér niður á að undan-
förnu. Allt bendir til þess að smitið
sé til staðar áfram þrátt fyrir allar
hreinsanir," segir Ólafur.
Norskir blaðamenn hafa verið
hér á ferðinni í tvígang að undan-
fömu til að kynna sér framgang
veikinnar hér og báráttuna við
hana. Mikil fjaðrafok hefur verið
þar í landi vegna nýrra riðutilfella.
Þar óttast almenningur að veikin
geti borist í menn eins og leiddar
hafa verið líkur að að tilfellið sé
með kúariðuna í Bretlandi.
Friðrik Gígja veitingamaður á
Café Menning með meiru, hefur
fest kaup á „Sæluhúsinu“ eða
réttara sagt húseigninni að
Hafnarbraut 14. Sem kunnugt
er var Ylir hf. sem áður rak
Sæluhúsið lýst gjaldþrota nú í
haust og Gunnar Sólnes lögfræð-
ingur settur bústjóri þrotabús-
ins. Friðrik hefur nú keypt eign-
ina af þrotabúinu og var gengið
frá kaupunum s.l. þriðjudag.
Eins og menn vita stofnaði
Friðrik kaffihúsið „Café Menning"
við Skíðabraut 4 fyrir skemmstu
og hefur það notið vinsælda meðai
bæjarbúa. Sá rekstur var í leigu-
húsnæði í eigu Arna Júlíussonar
sem ásamt fleirum stóð að rekstri
Sæluhússins þar til sá rekstur
stöðvaðist. Nú áformar Friðrik að
flytja Café Menningu í Sæluhúsið
gamla. Hann segist vonast til að
geta flutt sem mest af innanstokks-
munum og sömuleiðis „Menning-
ar“andanum sem þar hefur
blómstrað. „Ég hef hugsað mér að
reka Café Menningu á neðri hæð-
inni en salinn á efri hæðinni vonast
ég til að geta leigt út fyrir samkom-
ur, fundi og hvað eina sem þar get-
ur rúmast. Það verður óneitanlegra
rýmra um gesti en verið hefur við
Skíðabrautina og það býður upp á
möguleika á ýmsum uppákomum;
jasskvöld og aðrar tónlistaruppá-
komur.“ Fyrirhugað er að opna
staðinn með pompi og prakt á
gamlárskvöld með balli á efri hæð-
inni en afslappaðri Menningar-
stemmningu á þeirri neðri. Engu
að síður verður opið við Skíða-
brautina fram eftir mánuðinum og
meira um dýrðir sem nær dregur
jólum. Fyrirhugaðar eru bók-
menntakynningar í samvinnu við
verslunina Sogn og munu höfund-
ar koma og lesa úr verkurn sínum
fyrir gesti.
Ferðafélag Svarfdæla:
Vetrardagskráin
Ferðafélag Svarfdæla hugsar sér til hreyfíngs nú eins og endranær á
þessum tíma árs. Vetrardagskráin hefur verið ákveðin og verður sem
hér segir:
1. janúar kl. 13
1. febrúar
Hin árlega gönguferð í Stekkjarhús
Kot - Skeiðsvatn - Skeið
I. mars Hlíðarfjall - Vindheimajökull - Þelamörk
(sundlaug!)
29. mars (laugardag fyrir páska) Stutt ganga um Friðland
Svarfdæla (í tengslum við skíðalandsmót)
5. apríl Tungnahryggsskáli (skíðaganga og vélsleðatog)
3. maí Bræðraleið; Hólsdalur - Kálfsárdalur -
Ólafsfjörður
Sem fyrr er reglan sú að ferðir eru farnar fyrstu helgi hvers mánaðar
(undantekning laugardag fyrir páska). Ferðimar eru allar settar á
laugardaga en vegna ytri skilyrða getur þurft að fresta þeim eins og allir
þekkja. Þá höfum við sunnudag uppá að hlaupa. Eða næstu helgi ef
sunnudagurinn bregst.
Reyndar er búið að setja saman sumardagskrána líka og rétt að láta
hana fljóta með:
24. júní Jónsmessuferð út í Múla
5. júlí Fjölskylduganga upp að Gloppuvatni
9. ágúst Ferð á Tungnahrygg
6. september Vörðuhleðsla á Reykjaheiði (framhald)
4. október Urðabjörg í haustlitum
Þar hafa menn það svart á hvítu og geta byrjað að bera neðan á skíði og
undirbúa sig andlega fyrir þær frábæru ferðir sem framundan eru. Árið
sem senn kveður hefur verið félaginu gjöfult, þ.e.a.s. famar hafa verið
margar skemmtilegar ferðir og þátttakan yfirleitt framúrskarandi.
Lesendur Norðurslóðar veita því athygli að hér og þar
um blaðið má sjá litlar myndagátur. Ekki er úr vegi fyr-
ir ungan jafnt sem aldna að spreyta sig á að ráða þessar
gátur þótt engin séu verðlaunin önnur en ánægjan af
glímunni við þær. Úr þeim má lesa orð sem tengjast
blessaðri jólatíðinni. Góða skemmtun!
Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug
við fráfall móður okkar, tengdamóður og
ömmu
Kristínar Aðalheiðar Jóhannsdóttur
Bjarkarbraut 15, Dalvík.
Sérstakar þakkir eru færðar til
starfsfólks Dalbæjar fyrir aðhlynningu
hennar.
Rannveig Hjaltadóttir Karl Geirmundsson
Anna Bára Hjaltadóttir Trausti Þorsteinsson
Kristrún Hjaltadóttir Óskar S. Einarsson
og barnabörn
Sendi vinum og ættingjum á Dalvík og í
Svarfaðardal sem muna eftir mér
innilegar jóla- og nýárskveðjur.
Guð blessi ykkur öll.
Frímann Sigurösson
Hrafnistu, Hafnarfirði