Norðurslóð - 18.12.1996, Side 7
NORÐURSLÓÐ — 7
mönnum. Ófriður var langversta
samfélagsvandamál á íslandi á
miðöldum. Konungsvald var mjög
veikt á Islandi a.m.k. fram undir
1550 og vemdarar, sem oftast voru
sterkustu gósseigendur í hverju
héraði, tóku að sér að reka nokkurs
konar einkarekið ríkisvald í léns-
eða héraðsríki sínu.
Um veldi Guðmundar Arasonar
á sunnanverðum Vestfjörðum og í
Strandasýslu, og um veldi Vatns-
firðinga við Isafjarðardjúp eru til
betri heimildir en veldi Urðar-
manna. Sýna þær að flestar eða all-
ar jarðir á ákveðnu landssvæði
voru í eigu ákveðins höfðingja,
sem einnig sá um vernd og öryggi
(með misjöfnum árangri). Senni-
lega hefur ákveðið landssvæði ver-
ið veldi eða ríki Urðamanna með
sama hætti. Það hefur verið sá hluti
Svarfaðardals sem ekki lá undir
Velli eða Möðruvelli, Árskógs-
strönd, Fljót, Höfðahverfi, og jafn-
vel Ólafsfjörður og Siglufjörður. Á
þessu svæði hafa flestir eða allir
landbúar (bændur) verið undir
vemd Urðamanna, en verið getur
að landbúar úr öðmm héruðum
hafi einnig leitað til þeirra. Land-
búa bar ekki skylda til að velja sér
eigin gósseiganda fyrir vemdar-
herra, þótt svo hafi sennilega oftast
verið.
Tveir atburðir um 1360 gætu
hafa styrkt orðstír Urðamanna sem
öflugra vemdara: Víg Smiðs And-
réssonar og Jóns skráveifu á Grund
í Eyjafirði og uppreisn Eyfirðinga
gegn Jóni Hólabiskupi um sama
leyti. Efuðust Eyfirðingar um rétt
biskups til stólsins, töldu hann að-
eins hafa rétt til Grænlendinga-
biskupshéraðs. Hvort tveggja voru
greinilega vel skipulagðar og ár-
angursríkar aðgerðir, og hafi Þor-
steinn hirðstjóri Eyjólfsson staðið
að þeim hefur það eflt áhrif hans
og afkomenda hans það sem eftir
lifði 14. aldar og á 15. öld.
Þess má geta að á 14.-16. öld
var orðið bóndi á Islandi álíka
Væntanlega hefur verið nokkuð
öðruvísi umhorfs en nú er að Urð-
um meðan Þorsteinn Eyjólfsson
hirðstjóri var á dögum og réð
stóruin hluta Norðurlands.
tignarheiti og barónn eða greifi í
Evrópu. Aðeins helstu menn voru
bændur. Bændur í okkar venjulega
skilningi voru hins vegar nefndir
kotkarlar, landbúar eða almúgi.
Lokaorð
Á 16. öld eignaðist Hólakirkja
fjölda jarða í Fljótum og í Svarfað-
ardal. Urðir komust um skeið und-
ir stjórn Hólastóls, en það er önnur
saga. Á meðan Urðamanna naut
við var í næsta nágrenni við Hóla-
stól öflug höfðingjaætt sem virðist
hafa átt í fullu tré við kirkjuvaldið.
Tveimur spumingum var varp-
að fram í upphafi: Voru Urðamenn
sægreifar eða landaðall, og vom
þeir yfirgangssamir og héraðsríkir
eða vinsælir höfðingjar? Fyrri
spumingunni má svara þannig að
sennilega hafi þeir verið hvort
tveggja sægreifar og búhöldar,
sérstaklega á 14. öld, en kjarninn í
atvinnurekstri þeirra og veldi hefur
verið landbúnaðurinn, bæði tekjur
af leigujörðum og stórrekstri á öld, þegar þá var „manor“ eða
höfuðbólum. Glæsilegt hefur verið herragarður í fomum stíl.
um að litast á Urðum á 14. og 15. Sennilega hafa Urðamenn verið
hvoru tveggja, héraðsríkir og vin-
sælir höfðingjar. Til þess að vera
vinsælir þurftu menn nefnilega að
vera héraðsríkir, það fór saman.
Urðamenn virðast hafa verið það
öflugir að lítið var reynt að gera á
hlut þeirra, a.m.k. er þeirra lítið
getið við hinar tíðu deilur 14. og
15. aldar, nema um 1360. Því hafa
þeir skapað góðan frið í héraði.
Svarfdælingar 14. og 15. aldar
hafa litið til höfuðbólsins Urða
með virðingu. Þar sat höfuð þeirra,
eins konar konungur héraðsins.
Þangað greiddu menn afgjöld af
jörðum, ungt fólk sóttist eftir að
komast þangað í vinnumennsku,
því þar var jú fjörið og möguleikar
til að komast áfram í lífinu, og
þaðan mátti líka vænta vemdar,
steðjaði ófriður að.
Oskum viðskiptavinum vorum
gleðilegra jóla
og farsældar á komandi ári.
Þökkum viðskiptin á líðandi ári.
Landsbanki íslands
Strandgötu 1, Akureyri
Brekkuafgreiðsla, Kaupangi
L
VERSLUM í HEIA/IABYGGÐ!
★ Jólatilboð »
Kjúklingar
Londonlamb, frampartur
Léttreyktur lambahryggur
Hangiframpartur, úrbeinaður
Hangilæri, úrbeinað
Bayonneskinka
Svínakambur, úrbeinaður reyktur
Svínahamborgarhryggur
Svínabógur, hringskorinn reyktur
Niðursoðið grænmeti
Niðursoðnir ávextir
- margar tegundir
★
Jólakonfekt og jólakökur
í miklu úrvali jw
Við óskum öllum viðskiptavinum
okkar gleðilegra jóla og farsæls
komandi árs.
Starfsfólk Svarfdælabúðar
Mikið úrval af gjafavörum
^ og leikföngum
SVARFDÆLABUÐ
S I IVI I : 4 6 6 3 2 1 1 - 4 6 6 1 2 0 2