Norðurslóð


Norðurslóð - 18.12.1996, Síða 9

Norðurslóð - 18.12.1996, Síða 9
NORÐURSLÓÐ —9 Hugsað til Helga á Þverá Ingvar Gíslason, fyrrverandi ráðherra, minntist vinar síns, HelgaSímonarsonar á Þverá í Svarfaðardal, þegar sá síðarnefndi átti aldarafmæli í fyrra. Ingvar sendi öldungnum Ijóð sem hann hefur nú aukið nokkuð, lagfært og slípað og er það okkur ánægja að birta þessa ljóðakveðju til Helga Um gengna daga saman lágu leiðir og lýsti bjarma trúar fram á veginn, að bóndinn fengi stækkað tún og teiginn, að tímar vona entust, löngu þreyðir, ei brysti gras né skertust skárar breiðir né skammta þyrfti moð og hrakin heyin, að æskan gæti heilsað framtíð fegin og fyndi lagða braut er sporin greiðir. En margt er breytt - svo man ég gamla tíð - og mörgu skolað burt „á tímans straumi", og fleira tjóns á fjörur okkar rak: Hvað fyrrum vannst það nota menn sem níð, þeir nálykt finna af sveitamannsins draumi og verkin kalla vogrek eitt og flak. II Svo lætur tíminn vaxa stundir stríðar, að straumar margra átta hníga og rísa. En rök og tákn sem ungum veginn vísa, þau vitna um mörk og stefnu nýrrar tíðar. Þó veistu ennþá hlæja grónar hlíðar, þú hlustar trúr á raddir vonardísa, hver framtíð gefist „fögru landi ísa“, að forspá góðra vætta rætist síðar: Já, grænn er dalur, gott er undir bú! Nú græði skóg og haga moldin frjóa! Blómklæðum skarti skriður, holt og börð! Sannist þín ætlan, sigri von og trú, „sveitirnar fyllast, akrar hylja móa“. Gefur oss lífið Guð og Móðir Jörð. Ingvar Gíslason /lulia /íííKF G Frá Tjarnarkirkjugarði Þeir sem hafa hug á að vera með Ijósakrossa á leiðum í garðinum yfir jólin, eða fá þá leigða, hafi samband við Sigríði í síma 466 1555, en hún gefur nánari upplýsingar. Sóknarnefnd. Loðdýrabúið í Dýrholti Aftur í fullan gang Um áramótin næstu mun starf- semi hefjast í loðdýrabúinu Dýrholti sem í 6 ár hefur staðið autt og ónotað á melnum norð- an við Sökku. Skarphéðinn Pétursson á Hrísum hefur við þriðja mann fest kaup á búinu en það var í eigu Stofnlána- deildar landbúnaðarins. Meðeigendur Skarphéðins eru þeir Zophonías Jónmundsson Hrafnsstöðum og Arvid Kro sem rekur ásamt fleirum loðdýrabúið á Lómatjörn í Höfðahverfi og er auk þess formaður SIL, Sam- bands íslenskra loðdýradænda. Hafa þeir félagar stofnað eignar- haldsfélag um reksturinn; Dýr- liolt ehf. Hlutafé er 1200 þúsund krónur sem skiptist þannig að Skarphéðinn og Arvid eiga hálfa milljón hvor en Zophonías 200 þúsund. Er fyrirhugað að auka hlutafé á næsta ári. Dýrholt var á sínurn tíma sem kunnugt er byggt og rekið af fjórum bændum í Svarfaðardal auk Skarphéðins sem sá um daglegan rekstur. Þar eins og annars staðar seig reksturinn á ógæfuhliðina þegar verðhrun varð á skinnamarkaði. Sú saga er flestum kunn. Dýrhyltingar hættu rekstri um áramót 1990-91 og Stofnlánadeild leysti til sín búið. Skarphéðinn sagði í samtali við blaðið að mjög litlu þyrfti að kosta til, öðru en kaupum á dýr- um, til að hefja rekstur á nýjan leik. Allt væri til staðar; búr og annar umbúnaður og það eina sem gera þyrfti væri sótthreinsun og smávægilegar viðgerðir. Mein- ingin er að fullsetja búið þegar um áramót en það rúmar 150 refí og um 500 minka. Verða lífdýr keypt frá Grenivík og Sauðár- króki. „Það leggst bara mjög vel í mig að byrja aftur," segir Skarphéðinn. „Forsendurnar núna eru allt aðrar en þegar við fórum út í þetta á sínum tíma og þurftum að byggj allt frá grunni. Ohætt er að segja að við kaupum þetta á mjög ásættanlegu verði. Verðið hefur verið mjög stabflt undanfarin ár, þetta 7-8000 fyrir refaskinnið en auðvitað verða Skarphéðinn Pétursson. Rebbi hefur átt sér fáa formælendur undanfarin ár. Er hans tími núna kominn? alltaf einhverjar sveiflur.“ Til refaskinnið fór niður í 1200 kr á samanburðar má geta þess að „kreppuárunum". hjhj Núna er rétti tíminn til að gerast áskrifandi að einstöku happdrætti Drögum 14. janúar Hm i 1 I j ó n i r óskiptar á einn miða N ý tt á s kri f t a r á r e r h afi ð Hvammstangi: Róberta Gunnþórsdóttir, Lækjargötu 6, sími 451-2468 Blönduós: Kaupfélag Húnvetninga, sími 452-4200 Skagaströnd: Guðrún Pálsdóttir, Bogabraut 27, sími 452-2772 Sauðárkrókur: Friðrik A. Jónsson, Háuhlíð 14, sími 453-5115 Hofsós: Ásdís Garðarsdóttir, Kirkjugötu 19, sími 453-7305 Siglufjörður: Ásta Margrét Gunnarsdóttir, Aðalgötu 14, sími 467-1228 Grímsey: Kristjana Bjamadóttir, Sæborg, sími 467-311 i Ólafsfjörður: Valberg hf., sími 466-2208 Hrísey: Erla Sigurðardóttir, sími 466-1733 Dalvík: Sólveig Antonsdóttir, Verslunin Sogn, sími 466-1300 Akureyri: Björg Kristjánsdóttir, Strandgötu 17, sími 462-3265 Svalbarðsströnd: Sigríður Guðmundsdóttir, Svalbarði, sími 462-3964 Grenivik: Brynhildur Friðbjörnsdóttir Túngötu 13B, sími 463-3227 HAP Allir miðar vinna á árinu og sumir oft (H~) £ Miðaverð: 700 kr. Mestu vinningslíkur í íslensku stórhappdrætti ... fyrir lífið sjálft i

x

Norðurslóð

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðurslóð
https://timarit.is/publication/1253

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.