Norðurslóð - 18.12.1996, Side 11
NORÐURSLOÐ —11
s
Ur salt-
pæklinum
í Svarfaðardal eru menn stöðugt
að segja góðlátlegar gamansögur
af náunganum og hagyrðingar
byggðarinnar hafa sett saman
kynstrin öll af kveðskap um vini
og kunningja með gráglettnum
undirtón en oft af töluverðri
íþrótt. Gamanbragi og sögur
hafa margir á takteinum hér um
slóðir og ýmsir safna slíku efni
og halda til haga sér og öðrum til
gamans á góðum stundum.
Einn er sá félagsskapur sem
einkanlega hefur orð á sér fyrir
gleðskap og gamanmál ýmiss kon-
ar. Það er hið svokallaða Söltunar-
félag Svarfdæla. Félagar í þeim
klúbbi, sem upphaflega hafði sam-
eignlega saltkjötstunnu sem nokk-
urs konar yfirskin fyrir samkomur
sínar, hafa verið iðnir við að yrkja
allskys óhróður um menn og mál-
efni innan klúbbs og utan. Hafa
þeir einkum troðið upp með afurðir
sínar í afmælum lýðum til skemmt-
unar en afmælisbömunum til hrell-
ingar. Ekki er hér ætlunin að segja
frá þessurn einkennilega félags-
skap enda þyrfti til þess mörg tölu-
blöð ef vel ætti að vera. Þess í stað
er hugmyndin að hleypa nú af
stokkunum föstum þætti í Norður-
slóð þar sem birt verða ýmis gam-
anmál með sögulegum útskýring-
um ef þurfa þykir. Er úr ýmsum
brunnum að ausa í þessum efnum
en fyrst í stað verður einkum leitað
fanga hjá Söltunarfélaginu enda af
nógu að taka á þeim bæ.
Tilefni ljóðsins „Lokasenna"
sem hér birtist var það að Júlíus J.
Daníelsson frá Syðra Garðshomi,
þáverandi ritstjóri Búnaðarblaðs-
ins „Freyr“, gekkst árið 1983 undir
aðgerð á Landakotsspítala þar sem
sneitt var ögn af augnlokum hans.
Þetta varð að sögn Júlíusar ekki
mikil eða merkileg aðgerð en
„óvönduðum skálkum norðan heiða
tilefni til yrkinga sem mest er þó
helber svartalygi".
Orðið „nasafus" er þekkt í máli
manna í Svarfaðardal og merkir
það múður eða röfl út af smámun-
um.
Lokasenna
Upp, upp mín sál og augnalok,
svo öl megi streyma niðrum kok.
Hjúkrunarkonur hjálpi til.
Holdsins pínu ég minnast vil.
Klippti á haftið lœknir létt,
lofaður mjög í sinni stétt.
Að loknum skurði mín lyftist brún
líkt og dregið séflagg við hún.
Ganga mátti með bólgna brá,
bölvaði hátt, en ekkert sá.
Þjáðist hann mikið þetta grey.
Þess skal getið í nœsta Frey.
Gangastúlkur með glaða brá
glyrnum ogfleira þreifuðu á.
Flest þar gladdi vorn fína vin,
meðfleira bólgið en augnlokin.
Fyrirþví kveið að halda heim.
Harmaði’ að kveðja þetta geim.
Glotti þá lýtalœknirinn:
„Við látumþað bíða góði minn“.
Sviptur var vist í sœlustað,
sár og aumur hann gekk í hlað.
Stirður um dyrnar staulast vann.
Starði konan á aumingjann.
Þegar aðfrúin segginn sá
svakalega þá henni brá.
Hún því afundrun hleypti í brún.
„Hver er maðurinn? “ spurði hún.
„Þekkirðu ekki þettafés?“
þunglega stund ‘ann við og blés.
„ Vertu ei neitt með nasafus
ég nefndur er ennþá Júlíus. “
Skartar hann nú með skinnið slétt.
Skeiðar hann um sem foli í rétt.
Aldrei lokar hann augum meir,
og eigi þá er að lokum deyr.
Vísur þessar eru skráðar í prótó-
koll Söltunarfélagsins og undir þær
skrifa; Halldór Jóhannesson, Hjalti
Haraldsson, Jóhannes Haraldsson,
Bjöm Þórleifsson, Bjöm Daníels-
son, Jóhann Daníelsson og Ríkarð-
ur Gestsson.
Svarfdælsk ungmenni
Safna áheitum
vegna heila-
skurðaðgerðar
Ekki geta allir verið heima hjá
sér á jólum, sumir vegna vinnu
sinnar eða náms en aðrir sökum
veikinda í einhverri mynd. Nú
yfir hátiðina dvelur ungt par,
Selma Haraldsdóttir og Óskar
Þór Vilhjálmsson, fjarri heima-
högum í Detroit í Bandaríkjun-
um.
Hún er 18 ára, úr Grímsey en
hann 22ja ára Svarfdælingur. Þau
bíða þess að Selrna gangist undir
mikla og erfiða heilaskurðaðgerð.
Hún hefur verið flogaveik frá bam-
æsku en veikindin hafa ágerst nijög
á seinni árum og frá því í sumar
hefur hún ekki mátt vera augnablik
án eftirlits. Selma og Óskar héldu
utan í lok nóvemer ásamt Unni,
eldri systur Selmu og var aðgerð
fyrirhuguð um mánaðamótin. Attu
þau von á að vera komin heim fyrir
hátíðir. Nú hefur aðgerðinni hins
vegar verið frestað þar sem gera
þarf á henni umfangsmiklar rann-
sóknir áður en hægt verður að
framkvæma hana. Það er því ljóst
að heimkoman dregst töluvert
fram yfir jól. Eins og gefur að
skilja fylgir ferðinni ómældur
kostnaður og þó Tryggingastofnun
greiði sjúkravist og ferðir fyrir
sjúkling og einn aðstandanda
hrekkur það skammt. Því hafa
vinir og skólasystkini hér heima
ákveðið að gangast fyrir söfnun til
að létta þeim róðurinn eins og hægt
er. Verður á næstunni opnaður
reikningur og safnað áheitum.
Nánari upplýsingar fást í síma
4661022 eða 4661504. Eru les-
endur hvattir til að legga þó ekki sé
nema eitthvert smáræði af mörk-
um. Safnast þegar saman kemur.
Stökur
Undarleg er íslensk þjóð!
Allt, sem hefur lifað,
hugsun sína og hag í ljóð
hefur hún sett og skrifað.
Hlustir þú og sé þér sögð
sama kveðna bagan,
þér er upp í lófa lögð
landið, þjóðin, sagan.
St. G. Stephansson.
Það er líkt og ylur í
ómi sumra braga.
Mér hefur hlýnað mest á því
marga kalda daga.
Þorsteinn Erlingsson.
Fuglastef
Tittlingur í mýri
tínir hann berin rauð,
kemur hann heim á kvöldin
og klagar sína nauð.
Tittlingur í mýri
tínir hann berin blá,
kemur hann heim á kvöldin
og kúrir mér hjá.
Dúfan í Danmörk
hún er hlaðin baugum;
gull er hennar nefi á
allt upp undir augum.
Þulur
Gekk eg upp á hólinn að brýna mér Ijá;
ekki mun hann sankti Jakob banna mér að slá.
Votar eru veiturnar, svo veð eg upp að hnjá,
þurrar eru þúfurnar, þar vil eg slá;
brattar eru brekkurnar og brönugrösin á;
skáir eru hólarnir og snjósköfin á.
Drífur döggin, þá drengir slá.
Lömbin í mónum
leika þau sér.
Selurinn í sjónum
syndir upp á sker.
Véttlingana á prjónum
vinnukonan ber.
Ketillinn á hónum
kolsvartur er.
Samlyndi með hjónum
silfri betra er.
Ríðum og ríðum
hart, hart í skóginn,
löng er leiðin,
löt eru trvppin;
týnt hefeg hnífmínum,
troðið afmér skó;
hallast eg á hestinum,
og ríða verð eg þó.
Norðlendingar!
RARIK
óskar viðskiptavinum sínum
gleðilegra jóla og orkuríks nýárs
með þökkfyrir samskiptin
á árinu sem er að líða.
Við hvetjum ykkur til að fara
að öllu með gát á hátíð ljóssins,
ekki síst í meðferð jólaljósa.
Með hátíðarkveðju
RARIK
Sendum viðskiptavinum okkar og
velunnurum bestu óskir um
gleðileg jól ogfarsœld á
komandi ári.
Happdrætti Háskóla íslands
vænlegast til vinnings!
Umboðið á Dalvík:
Verslunin Sogn - S. 466 1300