Norðurslóð


Norðurslóð - 18.12.1996, Blaðsíða 18

Norðurslóð - 18.12.1996, Blaðsíða 18
18 — NORÐURSLÓÐ Römm er sú taug Jóhann Þorvaldsson frá Tungufelli sem býr á Siglufirði á áttugasta og áttunda aldursári sendi Norðurslóð eftirfarandi ljóð. í meðfylgjandi bréfi segir hann m.a. „Mig langar svo til að ljóðlínur mínar „Römm er sú taug“ fái að sjást í Norðurslóð þegar þið hafið rúm fyrir þessa Svarfdælsku kveðju inína. Það skiptir ekki máli hvenær það yrði þó gaman væri að ég sæi það eintak áður en ég flyt. Hafið ástarþökk fyrir dugnað ykkar að gefa út blaðið Norðurslóð sem ég á frá byrjun og kaupi þar til yfir lýkur. Þökk fyrir sönginn og gleði úr svarfdælskri byggð. Kveðja og þökk til ykkar og Svarfaðardalsins fagra með byggðina fríða." Ljúft er að láta sig um liðna tíð dreyma, um lækinn og fjallið við bæinn minn heima. Þar áður fyrr lét æskan leikföng sín geyma, í lágreistum kofa í Tungufells-túninu heima. Nú eru öll þessi æskunnar leikföng löngu farin, leggir, horn, kjálkar og steinanna skarinn. Lágreisti kofinn er líka löngu burt farinn, en lækurinn, blómin og fjallið eru alls ekki farin. Bærinn minn með burstirnar þrjár er burtu farinn. Þar áður hann stóð er nú annar kominn í staðinn. Þó hann sé hærri og betur úr efninu búinn, var bærinn minn, úr timbri og torfi, mun betur tilbúinn. Þó árin líði og æskunnar leikföng löngu farin, þá leita ég alltaf heim í sólríka Svarfaðardalinn. Þó forlögin létu lífsstarf mitt liggja utan æskunnar slóð, er óslitin taug sem leiðir mig þangað, er bærinn minn stóð. Svarfaðardalur, sveitin mín fagra með byggðina fríða, er sannasta lífsperla, þó leitað sé víða. Ég alltaf mun leita á þinn Ijúfsæla fund uns líður að síðustu æfinnar stund. Jóhann Þorvaldsson frá Tungufelli (87 ára) Dalvíkurbær Fjárhagsáætlun lögð fram Rúmum 17 milljónum óráðstafað vegna skólamann virkj a Fárhagsáætlun Dalvíkurbæjar fyrir árið 1997 hefur verið af- greidd frá bæjarráði til fyrri um- ræðu í bæjarstjórn. Samtals eru tekjur bæjarins áætlaðar 258,8 milljónir, rekstur málaflokka kostar rúmar 184 milljónir og tekjur að frádregnum rekstrar- gjöldum 74,7 milljónir. Greiðslu- byrði lána, alborganir langtíma- skulda plús vextir nema 46,8 milljónum en nettó greiðslubyrð- in er þó minni því á móti koma innborganir vegna langtíma- krafna og vextir af þeim, t.d. vegna sölu á hlut bæjarins í fyr- irtækjum, þannig að nettó greiðslubyrði af lánum er um 22,7 milljónir. Bærinn hefur því til ráðstöfunar þegar frá eru dregnar greiðslur vegna lána krónur 52,6 milljónir. í fjárfestingar er áætlað að verja 35.3 milljónum en þá er óráðstafað 17.3 milljónum. Um þær hefur meirihluti bæjarráðs samþykkt bókun þess efnis að ráðstöfun þess fjár verði frestað þar til fyrir liggi kostnaðaráætlun og áfangaskipti fyrir nýtt skólahúsnæði. Þessir pen- ingar eru með öðrum orðum ætlað- ir til framkvæmda við nýja skóla- húsnæðið en áætlanir um það eru enn á frumstigi. Búið er að gera samning við feðginin Hauk Har- aldsson og Fanneyju Hauksdóttur um hönnun húsnæðisins og skulu áætlanir og teikningar liggja fyrir í júní n.k. Sé litið á einstaka málaflokka kemur fram eftirfarandi varðandi ráðstöfun á fjárfestingafé: Félagsþjónusta - 4.6 millj. Fræðslumál - 3,1 millj. Félags- og menningarmál - 850 þús. Æskulýðs- og íþróttamál - 4.6 millj. Brunamál og almannavarnir - 750 þús. Götur og holræsi - 12 millj. Utivistarsvæði -1.5 millj. Ferðamál - 1.1 millj. Skattatekjur bæjarins fyrir næsta ár eru áætlaðar 218 milljónir. Til samanburðar voru skattatekjur á þessu ári tæpar 196 millj. Og árið 1995 rúmar 168 milljónir. Þessi mikli mismunur skýrist með til- færslu grunnskólans yfir til sveitar- félaganna og hækkun útsvars sam- hliða því. Utsvar hefur hækkað sem kunnugt er úr 9,2% í 11,9% en að sama skapi hefur tekjuskattur lækk- að. Rekstrargjöld bæjarins eru áætl- uð 78,73% af tekjum en í fyrra nam þesst tala 83,79%. Hagspekingar telja að 75% megi teljast í góðu lagi. hjhj Óskum viðskiptavinum okkar og landsmönnum öllum gleðilegrajóla ogfarsældar á nýju ári. rsln nln PÓSTHÓLF 50, 620 DALVÍK, SÍMI 466 1670, BRÉFSÍMI: 466 1833, GRÆNT SÍMANÚMER: 800 8670

x

Norðurslóð

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Norðurslóð
https://timarit.is/publication/1253

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.