Norðurslóð - 18.12.1996, Side 24
Þorsteinn Skaftason:
Ornefni í
Böggvisstaðafjalli
Hrútsgilshnjúkur
Jónsgilshnjúki
Böggvisstaðafjall
Strákafjall
Kollhólahnjúkui
Hnjúkur Hnjúkur
Flórkeldustallar
Lágafjall
Efstihjalli Djúpalaut Selhóll
Tvímelar Þtímelar i
Miðhjalli Leppamelur | j
Stekkjarhjalli Strýtuhóll
m Snæiduhóll •- t '‘-sa
Langanef
»vomPU;r
•gor ^mefa^ KrókhjaI|i
Teigarkot
Sydri Ytri
grænur grænur
Moldbrekkur ^
Selhóll
1gimelur
Örnefni í næsta nágrenni okkar eru ótal
mörg ef grannt er skoðað. En það er nú
svo, að í dag hafa menn ekki tíma eða
áhuga á að kynna sér nafngift á því um-
hverfi, sem við lifum í þrátt fyrir vaxandi
útiveru fólks.
Ég hef haft áhuga og ánægju af því að
leita uppi ömefni hér um slóðir, að kynna
mér tilurð þeirra og sögu. Þegar að er gáð,
finnst varla það gil eða lækjarfarvegur, hóll
eða dæld, þúfa eða melbarð - að þau eigi sér
ekki nafn. Já - landslagið yrði lítils virði ef
það héti ekki neitt. En þeim fer ört fækkandi
- einstaklingunum, sem enn kunna skil á
örnefnum eða kennileitum, sem á vegi okkar
verða. Hér áður fyrr, þegar menn fóru allar
sínar ferðir fótgangandi eða ríðandi, milli
bæja eða byggðarlaga, voru þessi örnefni
ætíð mikið notuð í samtölum fólks bæði sem
staðsetningar punktar á ferðalögum og ekki
síður í viðræðum manna á milli um næsta
nágrenni. Mörg örnefni urðu til og hafa
geymst í minnum manna í sambandi við
landamerki milli bæja. Þar mætti vitna í Ör-
nefnaskrá Jóhannesar Óla Sæmundssonar
um landamerki Hrafnsstaða og Hrafns-
staðakots gegnt Böggvisstöðum og Ytra-
Holti. Þar segir eftirfarandi: „Merkjaþúfa á
árbakka, þaðan bein lína yfir Breiðuna, yfir
Kerið, í Merkjastein neðan við Börðin og
áfram þaðan í Sellág, laut norðan undir Sel-
hól í mynni Ytra-Holtsdal, þaðan um Gulu-
dý og síðast Ausugil í brún fjallsins. Norður-
merkin eru úr sunnanverðum Argerðisósi
við Svarfaðardalsá, þaðan Merkjagarður
(nyrðri) upp norðanvert í svonefndum Enn-
um (þar eru svarðarmýrar) og sér þar enn
fyrir garðinum. Þessi merkjagarður nær upp
í Sveitarlang og hafa merkin legið eftir hon-
um þvert suður ofan bæjanna. Frá garðsend-
anum liggur merkjalínan um Teigakot,
Krókahjallagrænu og Syðri-Grænu í brún
Efstahjalla, en þaðan beint á fjall upp, þar
sem heitir Flórkeldustallur.“ Þannig voru
nú landamerkin milli þessara bæja vörðuð.
Þá er til eftirfarandi munnmælasaga um
landamerkin milli Böggvisstaða og Hrafns-
staða:
Þegar þeir bræður, Böggviður og Hrafn,
synir Karls ómála - Karlssonar rauða - höfðu
sett bú saman á Böggvisstöðum og Hrafns-
stöðum, ákváðu þeir að gera merkjagarð
milli landareigna sinna. Segir ekki af þeirri
framkvæmd frá Dalsá (Svarfaðardalsá) upp
að Sveitarlangi, en þar fyrir ofan, hermir
sögnin, að þeir hafi byrjað í fjalli með því
samkomulagi, að sá sem fyrri yrði að byggja
upp sína helft mannvirkisins, skyldi ráða
stefnu garðsins.Hófu þeir svo verkið og
miðaði Böggvi(ði) stöðugt betur, svo að land
Hrafns mjókkaði því meir, sem neðar dró.
Þegar komið er að Sveitarlangi, eru merkin
með þessum hætti komin suður fyrir Hrafns-
staðarbæ. Hvort sem eitthvað er hæft í þess-
ari gömlu sögn eða þá hvort þeir bræður
Böggviður og Hrafn hafi einhvem tíman
verið hér í sveit - þá er víst, að landamerkin
eru eins og segir í sögunni og ummerki um
foma hleðslu, sjást víða í dag. í Böggvis-
staðafjalli em feikimörg örnefni og í öflun
minni um nafngiftir þeirra komu oft mörg
nöfn á sama kennileitið. Ef ég nefni dæmi um
slíkt, þá má benda á götumar, sem liggja
skáhalt upp frá Böggvisstöðum áleiðis upp á
dal.Þetta er póstleiðin gamla milli Dalvíkur
og Ólafsfjarðar, og lágu þær í sneiðingum
upp fjallshlíðina. Sumir nefna þær Dals-
götur aðrir Dalagötur. Nokkurskonar vega-
gerð mun hafa verið unnin þarna um
aldamótin síðustu. Veg þennan, sem á
upptök sín við Leppamel, ruddi Magnús
nokkur á Norðurpól á Akureyri - oftast
kallaður Mangi plett. Magnús þessi lagfærði
á sínum tíma vörður á Reykjaheiði og hlóð
eina nýja fram á Böggvisstaðardal - skammt
frá vaðinu, þar sem farið er yfir á Upsadal, en
þar má enn í dag sjá merki um veghleðslu
Magnúsar. Atti sú varða að vera til
fyrirmyndar um stærð og íburð allann. Löngu
síðar mun Ólafur Jónsson, barnakennari í
Svarfaðardal hafa reist við vörður á
heiðinni. A liðnu sumri fóm nokkrir
Dalvíkingar fram á dal og hresstu við
nokkrar af gömlu vörðunum. Eins og fyrr
segir átti ég samtöl við marga í leit minni að
ömefnum í Böggvisstaðarfjalli og færi ég
þeim bestu þakkir fyrir.
Ég vil svo að lokum nefna nöfn nokkurra
heimildarmanna:
Anton Sigurjónsson, Aðalbjörg
Jóhannsdóttir, Baldvin Magnússon, Guð-
jón Loftsson og Þórir Jónsson.
(Ferðir, blað Ferðafélgs Akureyrar).
Þorsteinn Skaftason
TímamóT
Skírnir
23. nóvember var Anna Guðrún skírð í Dalvíkurkirkju.
Foreldrar hennar eru Bergljót Snorradóttir (Snorrasonar),
Brimnesbraut 5, Dalvík, og Rúnar Gylfi Dagbjartsson.
30. nóvember var Helgi Snær skírður í Dalvíkurkirkju.
Foreldrar hans eru Stefanía Guðrún Kristinsdóttir og
Gestur Helgason (Jónssonar), Skarðshlíð 14 e, Akureyri.
1. desember var Ólöf Rún skírð í Tjamarkirkju. Foreldrar
hennar eru Edda Björk Valgeirsdóttir og Júlíus Valbjöm
Sigurðsson (Eiðssonar) Hreiðarsstaðakoti, Svarfaðardal.
Afmæli
Þann 7. desember varð
80 ára Vilhelm Þórar-
insson, Svarfaðarbraut I,
Dalvík.
Þann 7. des. varð 85 ára
Anna Stefánsdóttir,
Karlsbraut 24, Dalvík.
Þann 9. desember varð
75 ára Guðlaug Guðna-
dóttir, Urðum, Svarfað-
ardal.
Þann 27. desember verð-
ur 90 ára Kristján Kristj-
ánsson frá Miðkoti, nú til
heimilis á Dalbæ, Dalvtk.
Hjónavígslur
30. nóvember vora gefin saman í hjónaband í Dalvíkur-
kirkju, Stelánía Guðrún Kristinsdóttir og Gestur Helga-
son, Skarðshlíð 14 e, Akureyri.
1. desember voru gefin saman í hjónaband í Tjamarkirkju
Edda Björk Valgeirsdóttir og Júlíus Valbjörn Sigurðs-
son, Hreiðarsstaðakoti, Svarfaðardal.
Norðurslóð árnar heilla.
Andlát
Þann 3. nóvember lést á Dalbæ, dvalar-
heimili aldraðra á Dalvík, Rósa
Laufey Kristinsdóttir, frá Árhóli.
Rósa fæddist í Árhóli á Upsaströnd
2. ágúst árið 1921. Þangað hafði faðir
hennar Kristinn Jónasson flust á ung-
lingsárum með móður sinni, en móðir
Rósu, María Sigfúsdóttir, var af Ár-
skógsströnd. Rósa var elst þriggja systra
en yngri henni vora tvíburasysturnar Kristín Soffía er býr
á Hofsósi, og Karítas Snjólaug, er bjó alla sína ævi í Árhóli,
en hún lést fyrir um 3 árum. Fósturbróðir þeirra er Njáll
Skarphéðinsson frá Siglufirði.
Rósa ólst upp í Árhóli og þar var hennar heimili allt þar
til hún flutti á Dalbæ, heimili aldraðra fyrir um þremur ár-
um. Hún vann nokkuð víða sem ráðskona en vann einnig í
frystihúsinu og síðast í Kaupfélaginu. Var hún hvarvetna
vel liðin, enda glaðsinna og dugleg til allra starfa.
Rósa var jarðsett í Upsakirkjugarði þann 16. nóvember.
Þann 21. nóvember lést á Dalbæ, dvalarheimili aldraðra á
Dalvík, Kristín Aðalheiður Jóhannsdóttir, Bjarkarbraut
15, Dalvík.
Kristín fæddist á Krossum á Ár-
skógsströnd þann 6. september árið
1917, elst þriggja dætra hjónanna Jó-
hanns Jónssonar frá Dalvík og Önnu
Júlíusdóttir frá Hverhóli í Skíðadal.
Yngri eru systurnar Guðrún og Valdís
er báðar búa hér á Dalvík.
Þann 26. nóvember árið 1940 gekk
Kristín í hjónaband með Hjalta Þor-
steinssyni, netagerðarmanni frá Efstakoti. Þau hófu búskap
á Steinstöðum, við Grandargötu á Dalvík, en fluttu um
1950 í Bjarkarbraut 15, hvar þau bjuggu á meðan bæði
lifðu. Þau hjón eignuðust 3 dætur, sem era Rannveig, Anna
Bára, og Kristrún. Þau tóku einnig í fóstur ungan dreng,
Hjörleif Björnsson, og þá áttu foreldrar Kristínar heimili í
Bjarkarbraut 15 á sínum efri áram.
Kristín var verklagin kona, glaðvær og greind sem vildi
öllum gott gera. Hjalti maður hennar lést 14. sept. á s.l. ári
en stuttu áður hafði Kristín komið til dvalar á Dalbæ.
Kristín var jarðsungin frá Dalvíkurkirkju 30. nóvember.
Kveðjumessur sr. Jóns Helga Þórarinssonar
Sr. Jón Helgi Þórarinsson hefur verið ráðinn sóknarprestur
í Langholtsprestakalli og verður væntanlega skipaður frá
15. janúar 1997. Hann mun kveðja söfnuði Dalvíkurpresta-
kalls eftir áramótin.
Þann 12. janúar verður kveðjumessa í Dalvíkurkirkju.
Kveðjumessa á Dalbæ verður auglýst síðar. Kveðjumessur
í Svarfaðardal verða í febrúar (væntanlega 9. og 16. febrú-
ar) og væntanlega verður ein messa fyrri hluta marsmán-
aðar. Þessar kveðjumessur verða allar auglýstar nánar í
söfnuðunum.