Norðurslóð - 29.01.1997, Blaðsíða 1
o
Svarfdælsk byggð & bær
21. árgangur
Miðvikudagur 29. janúar 1997
1. tölublað
Salurinn tilbúinn til þorrablóts með sæti
fyrir 228 inanns. Innfelld mynd: Húsið séð
austan frá. |
Tf.ttíA,
©
§> ©
—CT"'
r r
r
AL ‘
ii®-TV! m ■ \ “Cl
: ; 1- 1
jiilP
:-T ~ WhTi' V'i/, >
nrr-
• j||
!;; li!
, //J- i i r „v
: /// lí' n
Wn
Séra Magnús
G. Gunnarsson
kjörinn
sóknarprestur
Séra Magnús Gamalíel Gunn-
arsson hefur verið valinn sókn-
arprestur í Dalvíkurprestakalli.
Meirihluti kjörnefndar skipuð
28 sóknarnefndarmönnum kaus
Magnús á kjörfundi sem haldinn
var í safnaðarheimili Dalvíkur-
kirkju sl. mánudagskvöld.
Sem kunnugt er sóttu fimm um
stöðuna: Arnaldur Bárðarson,
sóknarprestur á Raufarhöfn. Bára
Friðriksdóttir guðfræðingur, Magn-
ús G. Gunnarsson sóknarprestur á
Hálsi í Fnjóskadal, Stína Gísla-
dóttir sóknarprestur í Bólstaða-
hlíðarprestakalli og Sveinbjörg
Pálsdóttir guðfræðingur. Umsækj-
endur mættu á fund kjömefndar sl.
laugardag þar sem lagðar voru fyr-
ir þá spurningar og þeir vegnir og
metnir. Kjörfundur átti að fara
fram á sunnudagskvöld en frestað-
ist vegna veðurs fram á mánudags-
kvöldið. Prófastur, sr. Birgir Snæ-
bjömsson, stjórnaði kjörfundi.
Félagsheimilið á Húsabakka
Vígsluhátíð 8. febrúar
Hvað á barnið að heita?
Félagsheimilið og íþróttahúsið á
Húsabakka verður formlega vígt
þann 8. febrúar n.k. kl. 14.00.
Eins og fram hefur komið voru
verklok við húsið áætluð um
mánaðamót jan/feb og mun það
ganga eftir. Nefnd sem skipuð
hefur verið til að undirbúa vígslu-
athöfn er tekin til starfa og má
búast við að eitt og annað verði
haft til hátíðabrigða á þeirri
langþráðu samkomu, fluttar ræð-
ur, kórsöngur og þá hefur heyrst
að einhverjir skipulagðir leikir
verði fyrir börnin á meðan hinir
fullorðnu skoða húsakvnnin og
gæða sér á kaffi og bakkelsi.
Að sögn Oskars Gunnarssonar
formanns undirbúningsnefndar em
allir hjartanlega velkomnir til þess-
arar samkomu, bæði Svarfdæling-
ar og utansveitarmenn. Ákveðið
hefur verið að efna til samkeppni
um nafn á húsið og skulu tillögur
hafa borist til Kristjáns Hjartar-
sonar á Tjörn fyrir 5. febrúar nk.
Tillögur skulu merktar dulnefni en
fullt nafn og heimilisfang fylgi
með í lokuðu umslagi. Urskurður
dómnefndar um besta nafnið verð-
Sameining sveitarfélaga:
Skriður að komast á málin
Á fundi nefndar um sameiningu
sveitarfélaga við utanverðan
Eyjafjörð sem haldinn var fyrri
hluta janúar lá fyrir að Hrísey,
Árskógshreppur, Svarfaðardal-
ur og Dalvík hafa samþykkt að
taka þátt í tillögugerð um sam-
einingu hér á svæðinu. Miðað er
við að á þessu ári verði kynning
á málinu meðal íbúa og kosning
um tillögu.
Á fundinum kom fram að bæj-
arstjóm Olafsfjarðar hafði sam-
þykkt að fara mun hægar í þessum
efnum. Þeirra samþykkt hafði gert
ráð fyrir skoðanakönnun meðal íbú-
anna við næstu bæjarstjómarkosn-
ingar og að síðan verði unnið eftir
þeirri skoðanakönnun á næsta kjör-
tímabili. Á fundinum í janúar vildu
Olafsfirðingar fá að skoða betur
tímasetningar og þá miðað við að
tillögur um sameiningu verði til-
búnar í vor og kynning málsins
miði við að kosið verði um sam-
einingu í haust.
Á fundi bæjarstjómar Dalvíkur
þar sem fjallað var um fundargerð
sameiningamefndarinnar kom
fram eindreginn vilji bæjarstjóm-
armanna á Dalvík að málum verði
hraðað og kosið verði í vor en mál
ekki látin bíða haustsins. Það eru
ýmis mál til úrlausnar hjá sveitar-
stjómunum sem tæplega verður
ráðið til lykta fyrr en ljóst verður
hvort sveitarfélögin sameinast. Til
dæmis á sér stað undirbúnings-
vinna vegna hönnunar skólamann-
virkja bæði á Dalvík og á Árskógs-
strönd. Það gefur auga leið að ef
þetta verður eitt sveitarfélag munu
skipulagsmál skóla skoðast í heild.
Siglfirðingar komu að sameining-
armálunum í haust en þar sem ljóst
er að jarðgöng verða ekki gerð
milli Olafsfjárðar og Siglufjarðar
næstu 10 árin eða svo þá eru þeir
úr leik í bili. J.A.
ur kveðinn upp á vígsluhátíðinni
og höfundi heitið verðlaunum.
Svarfdælir bíða spenntir eftir
þorrablótinu en nýjustu fregnir
herma að það verði haldið í saln-
um nýja, þann 15. febrúar nk. Þá er
þess einnig beðið með óþreyju að
íþróttakennsla geti hafist í salnum
en bömin í Húsabakka hafa mátt
sætta sig við kennslu undir berum
himni mestmegnis það sem af er
vetrar. Þá má gera ráð fyrir að ým-
is önnur starfsemi skólans færist
yfir í nýja húsið, t.a.m. tónlistar-
kennslan. Væntanlega verðurfljót-
lega byrjað að leigja út aðstöðu í
húsinu s.s. fyrir íþróttastarf og
fundi en ekki er þó gert ráð fyrir að
ráða húsvörð til starfa fyrst í stað
að sögn Atla Friðbjömssonar odd-
vita.
hjhj
Séra Magnús hefur undanfarin ár
þjónað Ljósvetningum og Fnjósk-
dælingum og þekkir því vel til hér
nyrðra.
Magnús hlaut meira en helming
atkvæða og þar með lögmæta
kosningu.
Magnús Gamalíel er fæddur
1958 í Wuppertal í Þýskalandi en
var ættleiddur tveggja ára gamall
af hjónunum Gunnari Magnússyni
(Gamalíelssonar á Olafsfirði) og
Guðrúnu Hrönn Hilmarsdóttur.
Magnús er alinn upp í Reykjavík,
lauk stúdentsprófi frá Menntaskól-
anum við Sund og útskrifaðist úr
Guðfræðideild Háskóla Islands
1989. Sama ár hlaut hann vígslu
og þjónaði fyrst sem safnaðar-
prestur á Isafirði og Hnífsdal og
var auk þess fræðslufulltrúi kirkj-
unnar á Vestfjörðum en síðar var
hann kosinn til að þjóna Háls-
prestakalli (Síðar Ljósavatns-
prestakalli) í Þingeyjarprófasts-
dæmi og hefur þjónað þar síðan.
Kona Magnúsar er Þóra Olafs-
dóttir Hjartar, leikskólakennari og
eiga þau tvo syni: Gunnar Öm
(1988) og Svavar Þór (1992).
Norðurslóð býður Magnús og fjöl-
skyldu hans hjartanlega velkomna
í byggðina og bæinn og óskar
þeim til hamingju með kjörið.
hjhj
Fuglatalning
Hettumávar í jólaskapi
Venju samkvæmt fóru fuglatalningarmenn
á stúfana 29. des sl. og svipuðust um eftir
fiðurfénaði til lands og sjávar. Veður var
hið ákjósanlegasta til fuglatalningar, sunn-
angola og hiti við frostmark, léttskýjað og
óvenju bjart miðað við árstíma. Ár og vötn
voru ísi lögð og jörð alhvít.
Eins og oft áður gekk Haraldur Guðmunds-
son ströndina frá Sauðanesi að Karlsá, Stein-
grímur Þorsteinsson kannaði sandinn frá ósurn
Svarfaðardalsár að ósi Brimnesár og Kristján
Hjartarson fór hringferð um láglendið í neðan-
verðum Svarfaðardal. Uppskera þremenning-
anna var sem hér segir:
Haraldur Steingrímur Kristján
23
Rjúpur
Toppönd
Sendlingar
Silfurmávar
Stomimávar
Svartbakar
Álkur
Langvíur
Teistur
Músarrindlar
Skógarþrestir
Snjótittlingar
Auðnutittlingar
Toppskarfar
Hávellur
Æðarfuglar
Fýlar
Straumendur
Hrafnar
Hvítmávur
Hettumávur
Stokkendur
2
2
3
1
1
2
11
4
67
45
1
16
2
8 (ungfugl)
1
5
24
1
43
76
14
62
6
17
63
Fjöldi hettumáva vekur athygli. Að sögn
Steingríms Þorsteinssonar hafa hettumávar
sjaldan fundist við fuglatalningu í desember, í
mesta lagi einn eða tveir. Nú voru þeir 62 og
virtust una hag sínum bærilega. Þá Segir hann
athyglisverða aðra breytingu sem hefur verið
að gerast hér í þó nokkurn tíma. Áður fyrr var
svarlbakur (veiðibjalla) yfirgnæfandi og varla
þverfótað fyrir honum mörgunt manni til mik-
illar armæðu. Nú sést afar lítið af honum en
þess í stað hefur silfuiTnávur, sem ekki sást áð-
ur, orðið allsráðandi hér og er hann litlu skárri
vargfugl, sent hámar í sig æðarunga engu síður
en veiðibjallan, segir Steingrímur.
Og talandi unt breytingar í náttúrunni þá
gerðist það í vatnavöxtum í fyrravetur að
Svarfaðardalsá ruddi sér nýja braut lil sjávar
þannig að ós hennar lá allmiklu austar en fyrr.
Hún hefur síðan smátt og smátt verið að þoka
sér til baka í sitt fyrra horf og er nú svotil
hálfnuð með það verk. Áin hefur raunar stund-
urn áður verið óstabíl í þessum efnunt og hefur
ós hennar átt það lil að flytja sig um set í
miklum brimum eða vatnavöxtum.