Norðurslóð - 31.07.2002, Síða 4
4 - Norðurslóð
Máégkynna
Ibyrjun júní kom nýr for-
stöðumaður til starfa á
Byggðasafninu á Hvoli. íris
Ólöf Sigurjónsdóttir heitir hún
og kemur úr Reykjavík þótt hún
reki ættir sínar til Vestmanna-
eyja og víðar. Að loknu stúd-
entsprófi lærði hún textílhönnun
í Osló og forvörslu í Lundúnum.
Undanfarin rúm fjögur ár hefur
hún starfað sem safnvörður á
byggðasafni Reykvíkinga í Ar-
bæ en er nú í hálfu starfi sem
forstöðumaður safnsins í Hvoli.
íris býr í Laugasteini ásamt
Hjörleifi Hjartarsyni heitmanni
sínum en hún á þrjú börn, dótt-
urina Ragnheiði sextán ára og
synina Árna og Finnboga sem
eru þréttán og sjö. Norðurslóð
tók hús á Irisi einn sunnudaginn
nú í júlí þar sem hún var að taka
á móti gestum í Hvoli og þótti
eðlilegt að spyrja fyrst hvað
henni hefði þótt um safnið þegar
hún sá það fyrst.
„Það sem mér þótti allsér-
stætt við þetta safn var að hér
eru raunar þrjú eða fjögur söfn
undir sama þaki. Hér er byggða-
safn, náttúrugripasafn og svo
safn til minningar um tvo menn,
Jóhann Pétursson Svarfdæling
og Kristján Eldjárn forseta. Nú
finnst mér þessi blanda vera
mesti styrkur safnsins. Jóhann
Svarfdælingur hefur mesta að-
dráttaraflið og flestir koma til að
sjá safnið um hann. En að heim-
sókninni lokinni er það byggða-
íris Ólöf
Sigurjónsdóttir
forstöðumaður
Byggðasafns
Dalvíkinga
safnið sem fólk hrífst af, það á
ekki von á svona veglegu safni.
Mér finnst þetta safn ótrúlega
vel búið og upp sett, margir fínir
munir og mikil fjölbreytni. Það
sem helst vantar er textíllinn -
föt, handverk, vefnaður og þess
háttar - sem er kannski skiljan-
legt í ljósi þess að karlar hafa
verið duglegastir við að safna
gripum í það.“
- Hver verða helstu verkefni
forstöðumannsins á næstunni?
„Það sem er mest aðkallandi
er að bæta skráningu munanna.
Hér eru um 2.000 safngripir og
þeir eru allir skráðir með heiti
og nafni gefanda. Það sem vant-
ar er að gefa þeim líf og sögu. Til
þess þarf upplýsingar frá fólki úr
byggðarlaginu. Þetta verður
verkefni vetrarins hjá mér. Safn-
ið fékk einnar milljónar krónu
styrk úr Safnasjóði til þess að
bæta skráningu og forvörslu
safngripa og ég er þegar búin að
kaupa vandaða hita- og raka-
mæla og fleira sem þarf til for-
vörslu.“
- Hvernig líst þér á húsakost-
inn?
„Húsið er gott þótt það þurfi
endurbóta við. Sveinbjörn bæj-
artæknifræðingur kom hingað
og við skoðuðum húsið um dag-
inn og fundum dálítinn raka í
veggjum, auk þess sem gluggar
eru orðnir slitnir. Brunavarna-
kerfið þarf líka að bæta verulega
og það vantar alveg bflastæði við
húsið.
En mesti vandinn er skortur á
geymslurými. Safnið hefur í raun
engar geymslur og meðan svo er
getur það ekki tekið við nýjum
safngripum. Á þessu verður að
taka, annað hvort með því að fá
geymslu í öðru húsi eða loka ein-
hverju herbergjanna hér og
leggja það undir geymslu. Það
má ekki gleymast að safn er ekki
bara sýning, það þarf réttan að-
búnað ef munirnir eiga að varð-
veitast og safnið að geta starfað
með eðlilegum hætti. Geymslu-
málin hafa verið til umræðu en
engar ákvarðanir verið teknar.
Vonandi verður þó eitthvað gert
í þessu fljótlega."
- Ertu búin að koma þér upp
framtíðarsýn fyrir safnið?
„Eg sé enga ástæðu til að
breyta uppbyggingu safnsins en
það eru ýmsir möguleikar til að
endurbæta það og auka við. Það
væri til dæmis gaman að byggja
við það sýningarsal þar sem
hægt væri að vera með sérsýn-
ingar. Einnig er brýnt að endur-
Frétevhorn
Þrátt fyrir heldur hráslagalega
og umhleypingasama tíð hef-
ur töluverður ferðamannastraum-
ur verið til Dalvíkur sem af er
sumri. Einkum hefur orðið
aukning á innlendu ferðafólki og
hefur aðsókn á Byggðasafnið og
Sundlaugina verið jöfn og þétt.
Áberandi er einnig stóraukinn
áhugi innlendra ferðamanna á
gönguferðum um fjalllendið, s.s.
yfir Heljardalsheiði og Reykja-
heiði og hefur hver gönguhópur-
inn af öðrum þrætt þessar leiðir
og raunar fleiri hér á svæðinu.
Laugardaginn 19. júlí gekk til
að mynda allsérstæður 70
manna hópur yfir Helju. Var þar
um að ræða afkomendur hjón-
anna Jóns Zophoníassonar og
Svanhildar Björnsdóttur ásamt
ýmsum fylgifiskum en þau hjón-
in fluttu búferlum frá Bakka í
Svarfaðardal yfir Heljardals-
heiði að Neðra Ási í Hjaltadal
fyrir um 100 árum síðan. Með í
för voru nokkrir trússhestar og
einn kvígukálfur sem nokkurs
konar fulltrúar fyrir búfénað
þeirra hjóna sem þau fluttu að
Frá sóknarnefnd
Vallakirkju
Sóknarnefnd Vallasóknar í
Eyjafjarðarprófastsdæmi hefur ákveðið
eftirfarandi framkvæmdir við
grafreitinn á Vollum:
1. Mæla upp legstaði og gera uppdrátt að
garðinum.
2. Jarðvegsfylla og lagfæra garðflöt.
3. Fjarlægja ónýtar legstaðagirðingar og
rétta af minnismerki.
Þeir sem telja sig þekkja ómerkta legstaði
eða hafa eitthvað við framkvæmd þessa að
athuga eru vinsamlega beðnir að hafa
samband við formann sóknarnefndar,
Elínborgu Gunnarsdóttur, Læk,
Svarfaðardal í síma 466 1529 eða
sóknarprest, sr. Magnús G. Gunnarsson í
síma 466 1350 eða 896 1685, innan átta
vikna frá birtingu auglýsingar þessarar, sbr.
lög um kirkjugarða.
Fyrir hönd sóknarnefndar:
Guömundur Rafn Sigurbsson,
framkvæmdastjóri kirkjugarbarábs.
sjálfsögðu með sér yfir heiðina.
Áð lokinni göngunni var svo
haldið nokkurs konar óformlegt
ættarmót á Hólum.
Með auknum áhuga ferða-
fólks á gönguferðum hér
um slóðir hefur skortur á góðum
göngukortum af svæðinu orðið
æ tilfinnanlegri og hefur ferða-
þjónustufólk mjög kvartað und-
an því að geta ekki með góðu
móti vísað áhugasömu göngu-
fólki rétta vegi milli byggða. Nú
mun þú einhver bót þeirra mála
vera í sjónmáli því á næstunni
verða prentuð göngukort sem
ætlað er að leysa úr brýnustu
þörfinni en næsta vetur verða
svo gefin út fullkomnari göngu-
kort með góðum leiðarlýsingum
Dagana 19. og 20. júlí var
haldið Meistaramót íslands
12-14 ára í frjálsum íþróttum á
Dalvík.Til leiks mætti fjöldi ung-
linga víðs vegar af landinu ásamt
fjölskyldum og var tjaldstæði
Dalvíkur þéttsetið þessa daga.
Mótið þótti takast sérlega vel
íris og þúfnabaninn utan við safnhúsið Hvol.
bæta Jóhannsstofu. Svo langar
mig að tengja Kristjánsstofu við
fornleifar og uppgröft hér á
svæðinu. Það þyrfti að gerast í
samráði við minjavörð á Akur-
eyri,“ segir íris og er rokin til að
taka á móti fleiri gestum.
Aðsóknin hefur verið góð í
sumar sem á áreiðanlega að ein-
hverju leyti rætur að rekja til ný-
legrar sjónvarpsmyndar og bók-
ar um Jóhann Svarfdæling. Gest-
ir fara glaðir á brott enda hafa
þeir fengið miklu meira fyrir
peningana sína en stærsta mann
Islands: Fróðlega mynd af mann-
lífi og náttúru byggðarlagsins.
Það er ekki lítils virði. -ÞH
Jassin Dukes í sveiflu og Hjörleifur skekur bassann annarfrú vinstri.
enda veðurguðirnir í sínu besta
formi. í stigakeppni milli
íþróttafélaga vann HSK nauman
sigur á ÍR. Mjög góður árangur
náðist í mörgum greinum og
féllu m.a. tvö aldursflokkamet á
mótinu en ekki fer þó miklum
sögum af árangri heimamanna.
Sænska jasssveitin Jassin
Dukes hélt tónleika í Dal-
víkurkirkju þann 28. júní sl. og
flutti þá meðal annars jasslög
ásamt með kór Dalvíkurkirkju.
Bassaleikari sveitarinnar heitir
raunar Hjörleifur Björnsson (Júl-
íussonar úr Laugahlíð) en hann
hefur búið í Svíaríki og leikið
þar jass undanfarin 30 ár. Svo
skemmtilega vildi til að tónleika
hljómsveitarinnar bar upp á 60
ára afmælisdag Hjörleifs.
Thomas Haberle, svisslend-
ingurinn góðkunni sem
dvaldi hér á meðal vor um
tveggja ára skeið og kenndi
börnum í Dalvíkurskóla og á
Húsabakka, er hér staddur og
sýnir þessa dagana í Ráðhúsinu
vatnslitamyndir sem hann hefur
málað hér á landi. Flest eru mót-
ívin ættuð úr fjalllendi Svarfað-
ardals en Thomas hefur án efa
klifið fleiri fjöll og þrætt fleiri
gönguleiðir á utanverðum
Tröllaskaga en nokkur heima-
manna. Myndirnar eru allar til
sölu og stendur sýningin til 6.
ágúst.
Tímamót - frh.
Andlát
Þann 16. júlí sl. lést á Dalbæ Kristín Sigríður
Jónsdóttir. Kristín var fædd 6. nóvember 1919 í
Árgerði í Svarfaðardal. Foreldrar hennar voru
Sigurbjörg Ágústsdóttir og Jón Arngrímsson út-
gerðarmaður og fiskmatsmaður.
Kristín var næst elst átta systkina, en hin eru:
Bergþóra, látin, Arnfríður, látin, Svanbjörg, býr
á Dalvík gift Kristni Þorleifssyni, Lovísa, býr í
Kaupmannahöfn gift Páli Axelssyni, Karla, býr í
Reykjavík, gift Guðjóni B Jónssyni, Ingólfur,
býr á Akureyri, kvæntur Dagnýju Kjartansdótt-
ur og Hrafnhildur, býr í Reykjavík, gift Davíð
Haraldssyni.
Foreldrar Kristínar bjuggu á Kambi, Dalvík,
og þar ólst hún upp. Hún fór snemma að vinna
og stundaði hefðbundin verkakvennastörf.
Þann 9. október 1942 giftist hún Kristjáni
Eldjárn Thorarensen Jónssyni, sjómanni og
skipstjóra. Þau bjuggu um
hríð hjá foreldrum hans í Sól-
heimum en árið 1956 fluttust
Kristján og Kristín í Báru-
götu 4 á Dalvík. Kristján lést
árið 1975. Börn þeirra eru:
Sturla, fæddur 1943, kvæntur
Ingigerði Snorradóttur. Þau
eiga synina Snorra og
Kristján og tvö barnabörn;
Sighvatur, fæddur 1949, kvæntur Ingu Rut
Hilmarsdóttur, eiga þau tvo syni, Kristján Eld-
járn og Sævar Berg, og eitt barnabarn. Gissur,
fæddur 1960, kvæntur Kristjönu Kristjánsdóttur.
Kristín vann ekki úti en sinnti húsmóður-
störfum. Hún söng um árabil í Kirkjukór Dal-
víkurkirkju og starfaði einnig með Leikfélagi
Dalvíkur.
Árið 1994 fluttist Kristín á Dalbæ þar sem
hún lést þann 16. júlí síðastliðinn. Útför hennar
fór fram frá Dalvíkurkirkju 27. júlí.