Norðurslóð - 23.10.2002, Side 6
Tímamót
Áskriftarsími Norðurslóðar
er 466 1555
9október sl. voru haldnir tón-
• leikar til styrktar Sigrúnu
Maríu Óskarsdóttur og fjöl-
skyldu en Sigrún slasaðist sem
kunnugt er í bílslysi í Danmörku
í sumar. Á tónleikunum komu
i'ram Ólafur Kjartan Sigurðsson,
barítón, Kór Akureyrarkirkju,
Helga Bryndís Magnúsdóttir
píanóleikari, Daníel Þorsteins-
son píanóleikari, Óskar Péturs-
son tenór, Björg Þórhallsdóttir
sópran og Sigurður Rúnar Jóns-
son þúsundþjalasmiður á sviði
tónlistar. Tónleikarnir voru all
vel sóttir og tókust frábærlega
að sögn aðstandenda. Tónleik-
arnir voru síðan endurteknir í
Laugaborg í Eyjafjarðarsveit við
húsfylli og frábærar undirtektir.
Fleiri viðburðir hafa glatt eyru
tónlistarunnenda að undan-
förnu. Karlakórinn Fóstbræður
hélt tónleika í Dalvíkurkirkju
um helgina var. Kórinn naut
raunar stuðnings félaga í Karla-
kór Dalvíkur og stjórnar Guð-
mundar Óla Gunnarssonar í
nokkrum lögum. Að loknum
tónleikum bauð Karlakór Dal-
víkur hinum reykvísku gestum
upp á mat, skemmtun og dans í
Rimum.
/
Askemmtuninni að Rimum
kom m.a. fram nýkrýndur
„fyndnasti maður Norðurlands“
Sigurvin Jónsson á Dalvík en
hann krækti sér í þá nafnbót í
keppni á Kaffi Akureyri nú á
dögunum. Sigurvin mun nú um
mánaðamótin halda suður yfir
heiðar til að keppa um titilinn
„fyndnasti maður íslands".
Af Karlakór Dalvíkur er það
annars að segja að kórinn
verður með tónleika í Dalvíkur-
kirkju þann 31. okt nk. og eru
þeir tónleikar auglýstir hér á síð-
unni. Stjórnandi er Guðmundur
Óli Gunnarsson en undirleikari
Daníel Þorsteinsson.
Kór Dalvíkurkirkju fór í
söngferð um síðustu helgi.
Kórinn ók í austurátt og hélt
tvenna tónleika sl. laugardag á
Vopnafirði og Eskifirði. Á efnis-
skránni voru negrasálmar.
Undirleik annaðist Guðjón Páls-
son en Haukur Ágústsson sá um
einsöng og fróðleiksmola um
tónlistina á rnilli laga. Kórinn
mun halda eina tónleika í Dal-
víkurkirkju miðvikudagskvöld
ið 23. október kl. 20:30.
En það er fleira að gerast í
menningarlífinu en söngur-
Munir og minjar
Á byggðasafninu í Hvoli er fjöldi muna sem bera
vitni um horfna starfshætti og margir þeirra
koma nútímabörnum ef til vill spánskt fyrir sjón-
ir. íris Ólöf Sigurjónsdóttir forstöðumaður Byggða-
safnsins í Hvoli gerir hér lítilleg skil munum og
minjum af safninu, auk þess sem birtar eru mynd-
ir af skrýtnum hlutum sem lesendur mega ráða í
til hvers voru notaðir. Ef þið hafið einhverjar
upplýsingar um munina hvetjum við ykkur til að
hafa samband við írisi á byggðasafninu í síma
466-1497 eða 892-1497.
Nr. 415. Rissmáti.
Gefandi: ÓlafurTryggvason, Ytra-Hvarfi.Talið er
að Tryggvi Jóhannsson (1882-1971) faðir hans
hafi smíðað hann.
Rissmáti (-mát), notaður við trésmíðar, til að
gera strik í ákveðinni (stillanlegri) fjarlægð frá
kanti. Notaður t.d. ef geirnegla skyldi eða smíða
fals.
Mynd 6. Hvað er þetta?
Svarfdælsk byggð & bær
Lokiö er viö aö leggja slitlag á veginn frá Húsabakka fram aö Bakka.
Þá var ný brú yfir Svarfaðardalsá við Hreiðarsstaði tekin í notkun í
byrjun mánaöarins. Brúin yfir Skíöadalsá er enn fjarri alfaraleið og
enn er ólokiö viö veginn frá Bakka, fram og yfir Tungurnar að Ytra
Hvarfi.
inn. Æfingar á „Kverkataki“ Júl-
íusar Júlíussonar ganga vel. Júl-
íus leikstýrir sem kunnugt er
sjálfur þessu verki sínu en leik-
hlutverkin 20 eru öll í höndum
unglinga úr efstu bekkjum
grunnskólanna. Pá sér harðsnú-
inn hópur krakka um leikmynd,
ljós, hljóð, hárgreiðslu og bún-
inga og annað sem til þarf til að
góð sýning verði að veruleika.
Alls taka 44 krakkar þátt í sýn-
ingunni. Júlli segir að æfingar
gangi vonum framar og krakk-
arnir hafi staðið sig frábærlega
vel að öllu leyti. Frumsýning er
fyrirhuguð 2. nóvember en síðan
verður gert uppihald á meðan
prófavika gengur yfir í skólun-
um. Önnur sýning er því fyrir-
huguð 9. nóvember og svo reglu-
lega eftir það á meðan aðsókn
helst.
Mynd úr Skíðadal eftir Einar.
Og þá að myndlistinni. Sýn-
ing á verkum Einars Emils-
sonar stendur yfir í Kaffihúsinu
Sogni. Myndirnar eru allar til
sölu. Þá stendur yfir sýning á
verkum Stefáns Jónssonar -
Stórval - í Ráðhúsinu. Þar eru
verkin sömuleiðis til sölu. Sýn-
ingin stendur yfir til 10. desem-
ber en þá verður sett upp sýning
á verkum Stefáns Björnssonar
Dalvíkings.
Astjórnarfundi hjá Islands-
fugli á dögunum var Rögn-
valdur Skíði Friðbjörnsson ráð-
inn framkvæmdastjóri. Von er á
2.000 hænum í nýja hænsnahúsið
á Árskógsströnd þann 25. þ.m.
Annar eins hópur kemur um
áramót. Þá er fyrirhugað að
skipta eldra hænsnahúsinu í
tvennt þannig að þrír aldurshóp-
ar hænsna verði þar í senn. Þetta
mun jafna framleiðsluna að sögn
Rögnvaldar.
Rjúpnaveiðitíminn er hafinn
og gæsatímanum lokið. Að
sögn víðförulla rjúpnaskyttna
sem blaðið ræddi við er mjög
lítið um rjúpu og stofninn aug-
ljóslega í algeru lágmarki. Vildu
þeir mælast til þess við rjúpna-
menn að stilla veiðum í hóf af
þessum sökum.
Að undanförnu hefur verið
gengið frá gangstéttum frá
Hólavegi upp að kirkju og út að
Staðarhóli eða raunar alveg að
Lækjarstíg. Eins hefur planið við
slökkvistöðina og björgunar-
sveitarhúsið við Gunnarsbraut
verið malbikað. Þó hér sé ekki
um neinar stórframkvæmdir að
ræða þá hefur svona frágangur
talsvert að segja fyrir umhverfið.
Það er ýmislegt sem fara má bet-
ur í umhverfinu á stað eins og
Dalvík en það munar um hvert
það svæði sem gengið er frá.
Skírnir
Þann 5. október sl. voru
skírðir í Vallakirkju frænd-
urnir Draupnir Jarl (t.v.) og
Þorsteinn Örn. Foreldrar
Draupnis Jarls eru Aðalheið-
ur Reynisdóttir og Kristján
Tryggvi Sigurðsson, Klapp-
arstíg 3, Hauganesi. Foreldr-
ar Þorsteins Arnar eru Sól-
veig Lilja Sigurðardóttir og
Friðrik Arnarson Húsa-
bakka, Svarfaðardal. Prestur
var séra Sigurður Árni Þórðarson.
20. október var skírð að Sunnubraut 20 á Dalvík Aníta Mary.
Foreldrar hennar eru Gunnlaugur Gunnlaugsson og Hrund
Briem, til heimilis að Vættagili 23, Akureyri. Séra Magnús G.
Gunnarsson skírði.
Afmæli
Þann 3. október sl. varð 75 ára Elínborg
Gunnarsdóttir Syðra-Hvarfi, Skíðadal.
Þann 9. október sl. varð 70 ára Birna
Kristjánsdóttir Stórhólsvegi 5,Dalvík.
Þann 30. október nk.
verður 70 ára Jóhann
Sigurbjörnsson frá
Atlastöðum, nú á
Laugabóli, Svarfaðardal.
Þann 30. október nk.
verður 90 ára Karl
Karlsson Klaufabrekkna-
koti, Svarfaðardal.
Norðurslóð árnar heilla.
Þann 14. október sl. varð
75 ára Stefán Stefánsson
Mímisvegi 26 Dalvík.
Þann 24. október nk. verður 85 ára Kári Kára-
son Dalbæ, Dalvík.
Tónleikar
Karlakórs
Dalvíkur
Karlakór Dalvíkur
heldur tónleika í
Dalvíkurkirkju
fimmtudagskvöldiö
31. okt. kl 20:30.
Fjölbreytt efnisskrá.
Stjórnandi:
Guömundur Óli
Gunnarsson
Undirleikari:
Daníel Þorsteinsson
Stjórnin
Frétiahorn