FLE blaðið - 01.01.2012, Page 4
Af stjórnarborði
Sigurður Páll Hauksson er formaður FLE
Á aðalfundi félagsins 4. nóvember s.l. var ný stjórn kjörin. Þrír
nýir stjórnarmenn voru kjörnir á fundinum, þau Arna Guðrún
Tryggvadóttir, Auður Þórisdóttir og Sturla Jónsson var kjör-
inn varaformaður. Jafnframt var undirritaður Sigurður Páll
Hauksson kjörinn formaður, Friðbjörn Björnsson sat áfram
í stjórn. Stjórnin hefur skipt með sér verkum; Arna Guðrún
Tryggvadóttir er ritari stjórnar og Auður Þórisdóttir gjaldkeri.
Stjórnin hefur haldið tvo stjórnarfundi á starfsárinu, þar af einn
skipulags- og verkefnafund með formönnum nefnda félagsins.
Á þeim fundi var ýmsum hugmyndum velt upp um möguleg
verkefni og áherslur félagsins til framtíðar. Margar frjóar og
gagnlegar hugmyndir komu fram við þá yfirferð sem vafalaust
munu nýtast stjórninni í störfum sínum. Ánægjulegt er að upp-
lifa hversu fórnfúst starf félagsfólk er tilbúnið til þess að leggja
á sig fyrir félagið og hversu virkt það er til þátttöku við skipu-
lagningu og framkvæmd verkefna á vegum félagsins. Mikil
verðmæti eru fólgin í því fyrir félag eins og okkar.
Aðild nema í endurskoðun að félaginu var samþykkt á aðal-
fundinum og samþykktum félagsins breytt til samræmis.
Breytingin er í takt við þá þróun sem orðið hefur hjá flestum
systurfélögum okkar á Norðurlöndunum og hafa kollegar okkar
þar látið vel af þeirri viðbót. Áhugavert verður að þróa þessa
nýbreytni í samstarfi við nýtt félagsfólk og mun stjórn félags-
ins skipa nemanefnd til þess að stuðla að þeirri þróun og fá
fram þær áherslur sem þjóna hagsmunum þeirra.
Töluverður hluti félaga í FLE eru endurskoðendur sem kjósa
að sinna öðrum störfum en endurskoðun eða u.þ.b. 27%. Eins
og annað félagsfólk er þetta mikilvægur hópur sem að ein-
hverju leyti hefur aðrar þarfir en hinn starfandi endurskoðandi.
Nágrannar okkar í Skandinavíu hafa með góðum árangri náð
að sinna og þjónusta félagsmenn með mismunandi áherslur
innan þeirra félagasamtaka, þannig eru félagar í FAR í Svíþjóð
alls um 6.700 en einungis um 3.700 starfandi endurskoðendur.
Endurskoðunarstéttin hefur vaxið töluvert á síðast liðnum
árum, fjöldi endurskoðenda á árinu 1981 var 121, en er í dag
þremur áratugum seinna 370. Auk þessa hefur hlutfall eldra
félagsfólks FLE aukist á síðustu árum og því eðlilegt að félags-
starfið taki að einhverju leyti mið af slíkum breytingum.
Formaður og framkvæmdastjóri ræða málin
Af erlendum vettvangi er það helst að frétta að nefnd á
vegum Evrópusambandsins um regluverk og starfshætti
endurskoðenda og endurskoðunarfyrirtækja skilaði tillögum
sínum nú í nóvember. Verði tillögur nefndarinnar samþykktar
á Evrópuþinginu og þeim hrint í framkvæmd munu þær hafa
töluverð áhrif á evrópska endurskoðendur. Tillögurnar beinast
fyrst og fremst að félögum sem tengjast almannahagsmunum
(e. PIE), þar sem m.a. takmörk verða sett á þjónustu endur-
skoðenda slíkra félaga, kveðið á um skylduútboð, útskiptingu
endurskoðenda og endurskoðunarfyrirtækja, gæðaeftirlit og
takmörkun á markaðshlutdeild stærstu endurskoðunarfyrir-
tækjanna. Langt ferli er framundan innan Evrópusambandsins
áður en endanlegar tillögur verða að lögum, en fram hefur
komið að innleiðing gæti tekið 3-5 ár. Á þeim tíma munu til-
lögurnar þó væntanlega taka breytingum og því afar mikilvægt
að fylgjast með framvindu mála. Erlent samstarf FLE við NRF
(norræna endurskoðendasambandið) og FEE (Evrópusamtök
endurskoðenda) er góður vettvangur til þess að fylgjast með
því sem gerist á þessu sviði. Mikilvægi erlends samstarfs fyrir
lítið félag eins og okkar, sannar sig við slíkar kringumstæður,
en erlendir kollegar okkar búa yfir mannauði til að kynna sér
mál og fylgja þeim eftir. Nokkuð sem við ættum erfitt með að
gera upp á eigin spýtur vegna smæðar en við njótum í gegnum
2 • FLE blaðið janúar 2012