Svava - 01.10.1898, Qupperneq 48
192
þÉTlING GASTEGUNDA.
stýl við fiutniuga á mátvælum í hvaða loítslagi sem er.
Yið la-kningai' getuv hið „rennandi ioft“ fengið rnarg-
víslega notkun. Það er t. d. lafhægt að framleiða svo
mikið sem vora vill af öldungis gerlalausu íofti, og jafn-
vel í hitalieitunum má takmarka hitann í sjúkrahúsunum,
eins og mönnum þóknast. Sem sprengitundur í ófriði
getur saman jijappað loft haft mikla þýðing-u, og það má
eílaust nota það sem hreyfiaíl á skipum og járnhrautum.
Einkum hlýtur það að vera hið æskiiegasta hreyfiafl neð-
ansjávarskipa (tundurbáta) með því lireyfivélin sjálf get-
ur framleitt alt loft, er skipverjar þarfnast til að geta
haldist við undir vatnsfietinum.
Hin næsta fasta stjarna við hnött vurn er Alpha
of Cantauri, en þó er fjarlægðin svo mikil, að ijósið,
sem fer 186,000 mílur á sekúntunui, þarf fjögur ár og
fjóra mánuði til að komast til vor. Vegalengdin er svo
feykileg, að vér naumast getum gjört oss liugmynd um,
néma með því, að ímynda oss, að eimlest, sem færi með
fullum liraða, og heldi stöðugt áfrarn nótt sem dag, muudi
þurfa ellefu miljón ár að komast þangað.